Pressan - 04.05.1989, Síða 5

Pressan - 04.05.1989, Síða 5
Fimmtudagur 4. maí 1989 5 nærmynd „Dóri greyið yar svosem eng- inn sjarmör. Ég er sko samt á því aó hann hefði getað náð sér í skárri kvenmann en þessa síblaðrandi beina- sleggju,“ segir æskufélagi Halldórs. Allt, sem þig langaði alltaf að vita um Bibbu og Halldór ó Bróvallagöt- unni/Arnarnesinu, en vissir ekki hvern þú ættir að spyrja. GREIN: JÓNI'NA LEÓSDÓTTIR — MYND: EINAR ÓLASON Hjónin á Brávallagötunni/Arn- arnesinu hafa verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarna mán- uði. Margir telja sig þekkja þau út og inn, en það er nú oft svo með kunnar persónur að almenningur þekkir ekki nema eina hlið á þeim — þá, sem snýr út á við. Við ákváð- um því að bæta úr þessu með „nær- mynd“ af þeim Bibbu og Halldóri með liðsinni ýmissa aðila, sem kynnst hafa þeim á lífsleiðinni. Með skólagönguna í gröfina „Hún Bibba var alveg óskaplega skemmtilegur krakki,“ sagði öldr- uð frænka hennar, þegar hún var spurð um Bibbu í æsku. „Hún var samt kannski ekkert sérstaklega bráðþroska eða fljót til. Ég man t.d. að hún var ekki farin að ganga óstudd fyrr en um sjö ára aldur. En hún var gjörsamlega farin að tala tíu ára.“ Bibba heitir raunar fullu nafni Sigurbjörg Pétursdóttir. Hún fædd- ist og ólst upp með íslensku alþýðu- fólki á Grímsstaðaholti, sem í þá daga var aðsetur þeirra sem ekki höfðu alltof mikið á milli hand- anna. Skólaganga Bibbu var stutt. Svo mikið vitum við. Hins vegar hvílir yfir henni ákveðin leynd. Reynt var að ná tali af gömlum íslenskukenn- ara hennar, Þorfinni Skagfjörð, sem yfirgaf skólann og hætti „Hann var svo óskaplega lítill og óiriður að ég var bókstaflega i sjokki.#' kennslu vorið sem Bibba lauk skólagöngu sinni. Þorfinnur dvelst nú á hvíldarheimili skammt fyrir utan borgina. Tók hann í fyrstu vel í að tala við okkur, en þegar talið barst að gamla nemandanum hans, henni Sigurbjörgu Pétursdóttur, var eins og þyrmdi yfir gamla manninn. Allt viðmót hans varð kuldalegt og vísaði hann blaða- mönnum umsvifalaust á dyr. Það sama gerðist í hvert sinn, sem okkur tókst að hafa upp á einhverj- um úr starfsliði skóíans. Fólkinu sortnaði fyrir augum og síðan rak það okkur á dyr. Það fer því ekki nánari sögum af skólagöngu Bibbu. Hún fer með þær í gröfina. Hittust ó Röðli Eftir hina dularfullu skólagöngu lá leið Bibbu út á vinnumarkaðinn. Nánar til tekið í ísbjörninn. Gömul starfssystir hennar þar sagði m.a.: „Það var alltaf líf og fjör í kringum Bibbu — þá fáu daga, sem hún „Það var alltaf líf og ffjör i kringum Bibbu — þa fóu daga sem hún * mætti." mætti.“ Guðmundur Jósafatsson, fyrrverandi verkstjóri, sagði að það væru „ýkjur að segja að Bibba hefði verið hamhleypa til verka. Eftir fyrsta hálfa mánuðinn var hún búin að taka út veikindadagana fyr- ir árið og þá var hún góðfúslega beðin að Ieita sér að vinnu annars staðar“. Margir í fjölskyldu Bibbu urðu afar hissa, þegar hún og Halldór opinberuðu trúlofun sína. Það var á eldri systur Bibbu að skilja að hún hefði aldrei sætt sig fullkomlega við Halldór. „Hann var svo óskaplega lítill og ófríður að ég var bókstaf- lega í sjokki, þegar Bibba systir kom með hann heim eina nóttina eftir ball á Röð!i.“ En hvað heldur þessi eldri systir Bibbu að hún hafi séð við Halldór? „Hann var náttúrulega reglumaður á vín og tóbak og við vorum sko ekki aldar upp við það. Svo skaff- aði hann. Hann var strax kominn í fasta stöðu hjá lokunardeildinni í rafmagnsveitunni. Lokaði meira að „Hún var gjör- samlega farin að tala tiu ara." segja einu sinni heima hjá okkur!“ Það er í minnum haft í fjöl- skyldunni að Dýrleif heitin sáluga spýtti út úr tóbaksbrunnum talfær- unum, þegar Halldór var kynntur fyrir henni sem unnusti Bibbu. Og var hún þó orðin nánast blind og heyrnarlaus, langt fyrir aldur fram, blessuð sé minning hennar. Fór framhjó nógrönnunum Halldór Þorgeirsson virðist ekki hafa verið eftirminnilegt barn. Það var sama hvernig við spurðumst fyrir meðal þeirra, sem bjuggu í - námunda við hann í æsku. Allt kom fyrir ekki. Enginn mundi eftir Hall- dóri á númer níu. Sterkur grunur leikur á því að þetta hafi eitthvað með smæð Halldórs að gera. Hann var ósköp kyrkingslegur fram eftir öllum aldri og bendir allt til þess að fólki hafi hreinlega sést yfir hann á förnum vegi. Það var sama sagan með fyrrver- andi bekkjarsystkini Halldórs. Ekki einn einasti maður kom hon- um fyrir sig og flestir sögðust svo- leiðis geta svarið með tíu fingur upp til Guðs að það hefði ekki verið neinn Halldór í bekknum. Okkur tókst hins vegar að hafa upp á manni, sem kenndi Halldóri í barnaskólanum fyrir vestan, en þangað á hinn síðarnefndi ættir að rekja. Þráinn Höskuldsson, fyrrum „Hann aat ekki skrúfao peru í lampa hjálpar- laust." kennari og organisti, nú vistmaður á dvalarheimili aldraðra sjómanna, hafði eftirfarandi að segja: „Hann Dóri litli, eins og hann var kallaður fram eftir öllum aldri, var skarp- greindur strákur, fjandanum orð- heppnari og hafði ríka kimnigáfu, sem aflaði honum margra óvina. Bekkjarbræður hans gengu gjarn- an í skrokk á honum, þegar skeytin voru hvað hnyttnust." „Hann hefði átt að ganga menntaveginn," hélt Þráinn áfram. „En Halldór var værukær og hon- um lánaðist aldrei að ljúka við neitt, sem hann tók sér fyrir hendur. Þetta lýsti sér t.d. í því að þegar hann þreytti próf skilaði hann æv- inlega hárréttum og ítarlegum svör- um við fyrstu spurningunum, en lagði síðan prófblaðið frá sér og kvartaði undan námsleiða." Ein- hvern veginn tókst Halldóri þó að klára skyldunámið og lauk prófi frá Gagnfræðaskólanum við Lindar- götu um það leyti er Elvis Presley söng „I’m all shook up“ inn á hljómplötu vestur í Ameríku. Góður biti í hundskjaft Einn æskufélaga átti Halldór, því foreldrar hans ólu upp munaðar- lausan dreng, sem var eitthvað skyldur þeim. Þetta var Reynir Bollason, sem nú starfar sem bif- „Hann hefði átt að ganga menntaveg- mn." vélavirki hjá Kaupfélagi Hnífsdæl- inga. Kveður Reynir Halldór hafa verið góðan og skemmtilegan fé- laga og telur góðan bita hafa farið í hundskjaft, þegar hann opinber- aði trúlofun sína og Sigurbjargar Pétursdóttur, eða Bibbu beina- sleggju eins og hún var oft uppnefnd á þessum árum. „Dóri greyið var svo sem enginn sjarmör," sagði Reynir. „Hann hafði aldrei verið við kvenmann kenndur, þegar hann kynntist Bibbu, en ég er sko samt á því að hann hefði getað náð sér í skárri kvenmann en þessa síblaðrandi beinasleggju." Reynir hefur ekki haft samband við Halldór síðan hann kvæntist Bibbu. Að loknu gagnfræðaprófinu fór Halldór á samning sem rafvirkja- lærlingur hjá Geir A. Björnssyni rafvirkjameistara. Hann lauk hins vegar ekki námi, þar sem honum sinnaðist við meistara sinn. „Dóri dvergsmái, eins og hann var alltaf kallaður, var meinleysisgrey. En hann hafði þumalputta á hverjum fingri og gat ekki skrúfað peru i lampa hjálparlaust,“ sagði Geir þegar hann var spurður um Hall- dór. Hjá núverandi samstarfs- mönnum fékk Halldór þá umsögn að hann væri „hvers manns hug- ljúfi“.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.