Pressan - 01.06.1989, Blaðsíða 6

Pressan - 01.06.1989, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 1. júní 1989 Bylgjan hf. var stofnuð sumarið 1986 til að veiða og vinna kúfisk. Hlutafé var 17 milljónir króna og þrír stærstu eigendurnir voru Erl- ing Auðunsson, Finnbogi Bernód- usson og Byggðastofnun. Báturinn Villi Magg var smiðað- ur í Hollandi fyrir Bylgjuna og kom hann til Suðureyrar sumarið 1987. Veiðiskapurinn gekk framar ósk- um, en í landi kom fljótlega í Ijós að brotalamir voru á vinnslu og í markaðsmálum. Það hefði mátt komast fyrir þessa erfiðleika hefði stjórn fyrirtækisins staðið saman. En það var öðru nær. Upphafsmaður fyrirtækisins, Erling Auðunsson, þóttist verða þess áskynja að ekki væri allt með felldu í rekstrinum og gerði athuga- semdir við ráðslag stjórnar og framkvæmdastjóra. Erling ein- angraðist í gagnrýni sinni og með fulltingi stjórnarmanns Byggða- stofnunnar í Bylgjunni náði Finn- bogi Bernódusson tökum á fyrir- tækinu og fór sínu fram. Fyrstu mistökin „Mistökin sem ég gerði voru þau að taka að mér skipstjórn á Villa Magg. Ég var á sjónum og gat ekki fylgst með rekstri fyrirtækisins,” segir Erling Auðunsson. Kúfiskveiðar og -vinnsla er hug- mynd sem Erling hafði gengið lengi með. Tengdafaðir hans veiddi kú- fisk fyrir Bandaríkjamenn á Straumnesfjalli á sjötta áratugnum og þá sannfærðist Erling um að veiðar væru vel mögulegar. Kú- skeljastofninn við ísland er þriðji stærsti fiskstofninn við norðanvert Atlantshaf og hingað til ónýttur. Erling starfrækti í niörg ár salt- fiskverkun á Suðureyri, en vildi gjarnan reyna kúfiskveiðar og hafði bæði kannað veiðimöguleika og. söluhorfur á afurðinni. Hann leitaði hófanna hjá Byggðastofnun um stuðning við fyrirtækið. Byggðastofnun vildi fá fleiri hlut- hafa og varð úr að Finnbogi Bern- ódusson, sem á vélsmiðjuna Mjölni í Bolungarvík, gekk inn í félagið. Að auki lögðu í púkkið nokkrir aðrir einstaklingar. Ýmsir efuðust um að það tækist að veiða það magn kúskeljar sem þurfti. Erling ákvað því að stýra veiðunum sjálfur. En um leið dæmdi hann sig úr leik í landi og kom til með að gjalda þess. Hagsmunaárekstrar Þegar drög voru lögð að uppsetn- ingu verksmiðjunnar lagði Finn- bogi áherslu á að fá til sín og vél- smiðjunnar Mjölnis þau verk sem FYRSTA HEILA STARFSÁR KUFISKVERK- SMIÐJUNNAR BYLGJUNNAR HF. Á SUÐUR- EYRI TAPAÐI HÚN 50 MILLJÓNUM KRÓNA, TAPIÐ STAFAR AF MAKALAUSRI ÓREIÐU í FJÁRMÁLUM, SPILLINGU OG SINNULEYSI BYGGÐASTOFNUNAR, SEM ER STÆRSTI HLUTHAFI BYLGJUNNAR. VERKSMIÐJAN VARÐ GJALDÞROTA I MARS NYLIÐNUM OG NEMA SKULDIR FYRIRTÆKISINS 200 MILLJÓNUM KRÓNA. EFTIR: PÁL VILHJÁLMSSON féllu til. Finnbogi ætlaði að greiða hlutafé sitt að stórum hlula til með vinnu vélsmiðjunnar. Erling segist ekki hafa séð neitt athugavert við að vélsmiðja Finn- boga fengi einhvern starfa við upp- setningu verksmiðjunnar. Þó runnu á Erling tvær grímur þegar Finn- bogi fór fram á að vélsmiðjan sæi um viðhald verksmiðjunnar. „Mér fannst eðlilegt að vélamenn Bylgjunnar sæju um viðhaldið. Það er ódýrara en aðkeypt vinna,” segir Erling. Hann féllst samt sem áður á málaleitan Finnboga og Bylgjan keypti verk sem starfsmenn verk- smiðjunnar voru fullfærir um að sinna. Finnbogi segir viðskipti Bylgj- unnar og Mjölnis ekki á nokkurn hátt hafa verið óeðlileg. Hann vill heldur ekki kannast við að um hagsmunaárekstra sé að ræða þegar hann situr beggja vegna borðs í samningum Bylgjunnar og Mjöln- is. Fúlsað við samningum Tæki til verksmiðjunnar komu að mestu leyti frá fyrirtækinu Trausti hf. í Reykjavík. Eigandi Trausts, Trausti Eiríksson, hafði undanfarin ár aðstoðað Erling við markaðsathuganir í Bandaríkjun- um. Um það Ieyti sem Bylgjan hf. var stofnuð var Trausti kominn með samning um sölu kúfisks til Banda- ríkjanna. „Bandarískar kúfiskverksmiðjur á austurströndinni vildu kaupa kú- fisk í frosnum blokkum. Það átti að þíða fiskinn og vinna þegar ekki gæfi á sjóinn vegna brælu,” segir Trausti. Byggðastofnun var ekki á því að láta Traust hf. sjá um sölumál Bylgjunnar. Stofnunin setti þaö sem skilyrði fyrir aðstoð við Bylgj- una að samningum við Traust hf. yrði rift. Það var gert og fótunum um leið kippt undan rekstri Bylgj- unnar, því síðan hafaekki tekist er- lendir sölusamningar. Um þetta at- riði eru Trausti og Erling sammála. Fulltrúi Byggðastofnunar í þriggja manna stjórn Bylgjunnar, Rafn A. Sigurðsson, er hinsvegar á öðru máli. Hann segir að það verð sem Trausti bauð upp á hafi ekki verið nógu hátt. „Við þurftum að minnsta kosti tvöfalt hærra verð fyrir kúfiskinn en það sem Trausti taldi sig geta fengið í Bandaríkjun- um,” segir Rafn. Trausti segist hafa verið með til- boð frá Bandaríkjunum um kaup á verulegu magni af kúfiski á þar- lendu markaðsverði. „Arðsemisút- reikningar sýndu að það verð var fullnægjandi. Eftir að gengi dollar- ans lækkaði var ekki eins mikið upp úr þessu að hafa, en gengið hefur aftur hækkað undanfarið,” segir Trausti. Vinnusvik Verksmiðjutækin frá Trausti hf. komu til Suðureyrar, en það voru starfsmenn vélsmiðjunnar Mjölnis sem settu þau upp. „Tækin voru sett vitlaust upp og frágangurinn með mestu ólíkind- um,” segir Hlöðver Kristinsson um vinnu þeirra Mjölnismanna. Hlöð- ver var vélamaður hjá Bylgjunni. Við annan mann varð Hlöðver að taka upp flestallar vatnslagnir sem starfsmenn Mjölnis lögðu og leggja þær upp á nýtt. „Það hefði verið hagkvæmara að láta Traust hf. sjá um uppsetningu á tækjunum, eins og stóð til í upphafi,” er skoðun Hlöðvers. Vélsmiðjan Mjölnir fékk það verk að smíða grindur og vatnsplóg í bát verksmiðjunnar, Villa Magg. Finnbogi sagðist geta smíðað þetta á sama verði og skipasmíðastöðin Damen í Hollandi, en stöðin smíð- aði Villa Magg. Fyrir smíði hvors tveggja tók Mjölnir eina og hálfa milljón króna. Það liggur hinsvegar fyrir tilboð frá Damen um smíði sama útbúnaðar fyrir rúmar 700 þúsund krónur, eða helmingi lægri upphæð. í ofanálag voru grindurnar ekki úr galvaniseruðu stáli, eins og sagði í samningi, heldur úr svörtu stáli sem ryðgaði eftir litla notkun. Grindurnar voru heldur ekki af réttri stærð og erfitt var að nota þær um borð. „Svívirðilegt okur” Tortryggni Erlings jókst eftir því sem leið á árið 1987 og furðulega háir reikingar bárust frá Mjölni fyr- ir verk sem iðulega voru illa unnin. Steininn tók úr þegar Erling sá þrjá vagna sem Mjölnir smíðaði fyrir Bylgjuna og áttu að kosta 430 þús- und krónur. „Mér fannst þetta svívirðilegt ok- ur. Vagnarnir voru ónýtir og það var ekki hægt að nota þá,” segir Erling. Að sögn Jóhanns Ólafssonar, umdæmisstjóra Vinnueftirlitsins á Vestfjörðum, virtust vagnarnir smíðaðir úr göntlum vörubílum. „Það er stórhættulegt að aka þess- um vögnum og eftir að við gerðum athugasemdir var þeim Iagt,” segir Jóhann. Þrátt fyrir eftirgrennslan fundust engar smíðalýsingar fyrir vagnana. Á sama tíma og Mjölnir smíðaði ónýtu vagnana stóð Bylgjunni til boða að kaupa nýja vagna frá Vík- urvögnum fyrir lægra verð en Mjölnir bauð. Rafn A. Sigurðsson segir eina ástæðuna fyrir því að Mjölnir fékk svo mörg og dýr verk fyrir Bylgjuna þá að það voru fáir aðilar sem vildu skipta við Bylgjuna. „Auk þess var Mjölnir oft með lægstu boðin þeg- ar við buðum verk út,” segir Rafn. „Ekki til manneldis” Markmiðið með stofnun Bylgj- unnar var að selja á erlenda mark- aði kúfisk til manneldis. í raun framleiddi verksmiðjan aðeins beitu, því enginn fékkst til að kaupa fiskinn og gera úr honum neyslu- vöru. Sumarið 1988 voru gerðar kostn- aðarsamar breytingar á vinnslulínu Bylgjunnar með það fyrir augum að gera afurðina hæfari til sölu. Sem fyrr var það vélsmiðjan Mjöln- ir sem framkvæmdi breytingarnar. „Mér var sagt að skipta mér ekki af breytingum,” segir Hlöðver Krist- insson vélamaður, sem þó var með í ráðum þegar sömu breytingar voru áætlaðar. Sýnishorn af framleiðslunni voru send til írlands haustið 1988 og þau efnagreind þar. Niðurstaðan var ótvíræð: Kúfiskurinn frá Bylgjunni er „ekki hæfur til manneldis”. Með- ferð skeljarinnar var slík að í kjötið söfnuðust gerlar sem gerðu afurð- ina óseljanlega. Það hallaði undan fæti fyrir Bylgjunni. Sama haustið og kúfisk- urinn var dæmdur óhæfur til manneldis var starfsmönnum í verksmiðjunni og sjómönnum á Villa Magg sagt upp störfum. I janúar var ákveðið að gera úr- slitatilraun til að bjarga verksmiðj- unni. Starfsmenn voru ráðnir aftur, nema skipstjórinn á Villa Magg, Erling Auðunsson, og sonur hans sem var háseti á bátnum. Erling var sagður „óhæfur til samstarfs”. Þrem mánuðum seinna var Bylgjan lýst gjaldþrota.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.