Pressan - 01.06.1989, Blaðsíða 16

Pressan - 01.06.1989, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 1. júní 1989 16 sjúkdómar og fólk BARN SEM VÆTIR RÚMIÐ Hann pissar alltaf undir Þau komu saman á stol'una mæðginin Óli litli og Guðný. Ég hafði áður haft með Óla að gera út af ýmsum smávandamálum, eyrna- bólgum, útbrotum og smámeiðsl- um. Óli var gerðarlegur strákur, lið- lega 6 ára, Guðný var myndarleg hálffertug kona, nýlega fráskilin og bjó ein með Óla í blokk í úthverfi borgarinnar. Hún vann í banka og Óli var á dagheimili á daginn. Guð- ný var klædd í litsterkan, rauðan einkennisbúning bankakvenna, en bankinn hafði nýlega fjármagnað fatakaup starfsfólksins að einhverj- um hluta og þessi litur og snið orðið fyrir valinu. Mér fannst þessi ein- kennisklæðnaður minna mig á dyraverði í Tívólí eða franska lúðra- sveitarmenn. í barminum bar hún litið nafnspjald. Óli var í úlpu með trefil og vettlinga, enda hálfgerður hráslagi i lofti. — Hvað get ég gert fyrir ykkur? spurði ég þegar þau mæðgin höfðu komið sér vel fyrir. Er ég nokkuð kominn yl'ir á ávís- anaheftinu? bætti ég við og reyndi að brosa kankvíslega eins og mað- urinn með stálhnefana gerði stund- um í samnefndum bókum. — Það hef ég ekki hugmynd um, svaraði Guðný stuttaralega, og bætti svo við: Það verður að gera eitthvað fyrir hann Óla, liann pissar alltaf undir. Mikið vandamál Samkvæmt Irásögn Guðnýjar hal'ði Óli eiginlega aldrei haldist al- veg þurr yl'ir nótt. Hann hal'ði þroskast eðlilega og var að öllu leyti hinn efnilegasti drengur en pissaði stundum undir. Óli var niðurlútur undir frásögninlii og greinilegt að hann skammaðist sín fyrir þetta. Það var líka vandamál, að hann svaf stundum hjá ömmu og afa og þau voru yl'ir sig gáttuð, að þessi stóri strákur vætti sig ennþá. Hann hafði af þessum sökum færst und- an því að gista hjá þeim, sem kom sér illa fyrir Guðnýju. — Annars er ég eiginlega alveg að gefast upp á þessu, sagði hún og lygndi aftur augunum, rúllaði augasteinunum upp á við og lét augnlokin titra. — Maður’er bara alltaf að þvo lök og rúmföt, bætti hún við í ásökun- artón. Ætli tnaður verði ekki að setja á hann bleyjur aftur? Óli varð enn Imipnari undir þessum lestri. Ég greip l'ram i fyrir Guðnýju og sagði, að þetta væri nú minna vandamál cn hún vildi vera Iáta. Ég fékk síðan að skoða drenginn en l'ann ekkert óeðlilegt. Þvagskoðun var eðlileg. Óþekkt orsök Flest börn stjórna þvaglátum sjálf 3ja til 4ra ára bæði að nóttu og degi. Ákveðinn hluti heldur þó áfram að væta sig og talið er að 8—10% allra 5 ára barna pissi urtdir á nóttunni. Þetta eldist af krökkun- um en þó munu 1% pilta og 0,5% stúlkna bleyta rúmið á nóttunni við 14 ára aldur. Þetta er oft mikið vandamál fyrir þessa krakka, þeir eiga erfitt með að gista hjá félögum stnum og kvíða fyrir útilegum vegna þessa. Margar hugmyndir eru uppi um orsakirnar. Ef barnið hef- ur aldrei verið þurrt á nóttunni, en heldur sér þurru á daginn, finnst yf- irleitt engin ástæða. Eitt sinn var talið að streita og spenna hefðu mikla þýðingu í þessum tilvikum en flestir hafa fallið frá því. Þetta ástand virðist ættgengt, svo foreldr- ar eða aðrir ættingjar hafa þannig líka vætt sig á nóttunni í æsku. Álit- ið er, að þroski á ýmsum tauga- brautum sé mishraður og einstakl- ingsbundinn og taugaboðum frá blöðrunni sé á einhvern hátt áfátt hjá þessum einstaklingum vegna seinþroska. Þessi börn virðast ekki skynja á eðlilegan hátt þensluna í blöðrunni sem á að vekja barnið. Það eru meiri líkur á að vefræn or- sök finnist, ef barnið hefur náð því að haldast þurrt um einhvern tíma en fer að vætasigaftureða vætirsig bæði að nóttu og degi. Þá er oft um meðfæddan galla að ræða eða þrá- láta sýkingu. Úrrœði En hvað á til bragðs að taka? Flestir Iæknar eru á einu máli um að ekkert eigi að gera fyrr en barnið er orðið 5 ára. Fyrir þann aldur sé næsta þýðingarlaust að gera nokk- uð. Fyrsta úrræðið er að ræða við foreldrana og segja þeim, að þetta ástand sé hættulaust og muni í flestum tilvikum eldast af barninu. Banna verður að skamma barnið fyrir að væta sig á nóttunni eða hæða það með köpuryrðum eins og Guðný gerði við Óla. Barninu líður ákaflega illa vegna þessa og skammir og ávítur auka þá vanlíð- an. Lyf eru stundum notuð við þessu og þá helst ADH (antidíúre- tískt hormón) en það minnkar þvagmyndunina. Þetta lyf (Miniril) fæst sem nefdropar og dugir vel í viðlögum. Þá er barninu gefið Miniril í nefið, þegar mikið liggur við að það haldi sér þurru, t.d. þeg- ar gist er næturlangt í öðrum hús- um eða farið í útilegur. Barnalækn- ir sem ég ráðfæri mig oft við sagði almennar ráðleggingar og Miniril í viðlögum duga sér best. Miniril er yfirleitt ekki notað til langs tíma. Eitt sinn var geðdeyfðarlyfið Tofra- nil mikið notað við nreturvætu. Tofranil virðist breyta svefninum, svo börnin sol'a ekki eins djúpt og vakna því þegar blaðran fyllist og komast fram til að pissa. Þessi lyf hafa ýmsar aukaverkanir eins og munnþurrk, þreytu og hægða- tregðu, sem gerir þau mjög óspenn- andi. Flestir læknar eru hættir að nota Tofranil við næturþvaglátum og barnalæknirinn vinur minn sagðist ekki vilja sjá Tofranilið vegna aukaverkana. Vœtudýna Annað ráð er svokölluð vætu- dýna en það er dýna eða plata, sein er þannig útbúin, að komist væta að henni fer bjalla í gang. Barnið sefur á þessu og pissi það á sig fer bjallan í gang og barnið vaknar. Smátt og smátt breytist svefninn hjá barninu svo það fer að halda sér þurru á vætudýnunni. Sumir lækn- ar eru mjög hrifnir af vætudýnun- um en aðrir segja árangurinn ekki eins góðan. Sumir vilja einungis nota dýnurnar á börn sem komin eru á skólaaldur. Pabbi pissaði líka undir Ég talaði alvarlega við Guðnýju um ástandið á Óla og í Ijós kom, að faðir hans hafði víst pissað undir á nóttunni þegar hann var iítill, svo ástandið var ekki óþekkt í ættun- um. Guðný talaði ákaflega hrak- lega um þennan fyrrverandi eigin- mann sinn og kallaði hann alltaf þettað: „Þettað pissaði víst á sig í æsku og kom víst fæstum á óvart.“ Mér ofbauð þetta tal fyrir framan Óla en lét á engu bera. Ég bað Guð- nýju þess lengstra orða að sýna þol- inmæði og hætta að skammast og býsnast yfir fullunt þvottavélum af hlandblautum lökum. Þetta mundi eldast af Óla á nokkrum tíma. Ég gaf honum Miniril-nefdropa til að nota þegar hann svæfi hjá afa og önnnu eða einhverjum vinum. Ég bað Guðnýju að hafa samband aft- ur ef þetta lagaðist ekki og sagði henni frá værudýnunni og kvaðst tilbúinn að nota hana í næstu lotu. Mér fannst þau mæðgin vera miklu sáttari við lífið og glaðari, þegar þau fóru út af stofunni, og vonandi verður Óli hættur að pissa undir þegar við hittumst næst. Ég raulaði fyrir munni mér gamlan húsgang: Piss, piss og pelamál / púðursykur og króna, / þegar mér er inikið mál / pissa ég bara í skóna. Það er eins gott að þeir fari ekki að framleiða vætuinnlegg í skó svipuð vætudýnunum; þá yrði nú erfitt um vik að pissa í skóinn sinn. Ég hló með sjálfum mér yfir eigin skarpskyggni og hóaði í næsta mann. KROSSAPROF OG ITALSKUR IS Eiginlega ætlaði ég bara að fá mér ís. Það var sunnudagur; pattaraleg sól á himni og góðar minningar frá partýi kvöldið áður. ítölsku kaffi- húsin á Leopoldstrasse höfðu tútn- að út á gangstétt og fólk kepptist við að fylgja þeim óskráðu lögum sem brennheitir sunnudagar bera með sér: Að setja upp sólgleraugu, borða ís. Og ég hafði fengið nokkra aura svo ég mætti samgleðjast öllu þessu fólki í ísátinu. Allt í einu gekk ung stúlka í veg fyrir mig. Hún spurði hver væri nú uppáhaldsliturinn minn? Ég hef svo mikinn áhuga á stúlkum og svaraði „svartur“. Kannski var það vegna þess að ég gaf upp lit sem er ekki litur að mér var umsvifalaust boðið að taka þátt í persónuleikaprófi í næstu hliðar- götu. Ég settist niður innan gulmálaðra veggja, fékk í hendur möppu með ■spurningum (einungis 200 talsins) og eyðublað þar sem ég skyldi krossa. við „já“, „nei“, eða „veit ekki“. Svona mátti ég svara á þrjá vegu. Ég sat þarna á rassgatinu það sem eftir lifði dags og gerði mig að hálfgerðu varmenni; að minnsta kosti var útkoman úr þessu prófi ekki mjög jákvæð... að því er mér var sagt þarna á staðnum. Ég var nú hálfillur yfir mörgum spurning- anna. Til dæmis þessari: Geturðu komið af stað fjöri í stóru sam- kvæmi? Ég krossaði vð „veit ekki“ (vegna þess að upp á síðkastið hef ég yfirleitt fengið leið á sjálfum mér í samkvæmum) og það hefur senni- lega ekki fallið í kramið hjá þessari maskínu sem reiknaði út úr títt- nefndu persónuleikaprófi. Auk þess hefur það ekki bætt úr skák að ég vil ekki vera allra vinur og tárast ekki þegar verið er að blóðga fisk. Á meðan verið var að reikna út „stigin“ úr prófinu var mér boðið á fyrirlestur og í bíó á eftir. Að sjálf- sögðu var þessi skemmtun ókeypis eins og próftakan. Fjórir áheyrendur gerðu það að verkum að fyrirlesturinn var nokk- uð vel sóttur, enda var herbergið frekar lítið. Fyrirlesturinn fjallaði um einhverja ameríska heimspeki, díanetik, en maður að nafni L. Ron Hubbard hafði fundið þessa speki upp. EÍf dæma má af þeim fjölda bóka sem lágu frammi í þessu húsi og höfðu þennan Hubbard fyrir höfund, þá má sjálfsagt hala inn einhvern pening á þessari heim- speki. Að minnsta kost nóg til þess að kaupa ítalskan ís. Fyrirlesarinn var feitur og sköll- óttur (tanngarðurinn eins og Berlín eftir stríð) og var mikið niðri fyrir. Hann kynnti fyrir okkur meðferð, byggða á Hubbard-spekinni, með- ferð sem miðar að því að losa lík- amann við eiturefni með hjálp víta- míns (B3) og gufubaða. Þegar eit- urefnin eru á bak og burt gengur fólki betur að hugsa og starfa. Sá sem hélt fyrirlesturinn hafði sjálfur étið vítamín og farið í gufu- bað á eftir og sagðist vera allur ann- ar síðan. Föður sinn háaldraðan hafði hann einnig dregið í svona meðferð og sjálfur L. Ron Hubbard hafði hlotið allra sinna meina bót í gufubaðinu. L. Ron Hubbard missti fót í síð- ari heimsstyrjöldinni og sjónina að auki. Þegar fyrirlestri og sýningu kvik- myndar um L. Ron Hubbard og díanétík var lokið hitti ég fyrir ung- an mann sem settist niður með mér'til þess að fara yfir niðurstöð- ur pfcrsónuleikaprófsins. Hánn tók í höndina á mér, brosti, kynnti sig og horfði um stund íbygginn á línurit. Síðan tók hann að rústa fram- tíð minni. Ég væri ekki nógu dug- legur að koma mér áfram, vildi ekki tala við hvern sem væri, væri lokaður persónuleiki, kaldur, gaeti ekki fundið til með öðrum... o.s.frv. Það var sama þótt ég andæfði annarri hverrí staðhæfingu mannsiris, hann sagði að ég væri hvort sem er efasemdamaður og mundi ekki trúa orði af því sem hér yrði sagt. Hins vegar væri möguleiki á því að breyta út af þessari hættulegu braut sem líf mitt væri á (niðurstöður sýndu að ég er óhæfur til allrar samvinnu, af því ég get engum treyst) og besta ráðið væri að koma einfald- lega á fund til þess að kynnast bet- ur díanetík. Og L. Ron Hubbard. En ég er svo mikill efasemda- maður og get engum treyst, ekki einu sinni L. Ron Hubbard. Þess vegna afþakkaði ég pent boðið. Ráðgjafinn stóð upp, brosti, tók í höndina á mér og óskaði mér sjálfsagt til helvítis. Þar myndi ég sjá eftir því að hafa ekki viljað kynnast L. Ron Hubbard. En slík er forherðing og firring mannsins orðin að hann flýr frek- ar á náðir ítalsks íss. Stracciatella.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.