Pressan - 01.06.1989, Blaðsíða 10
10
Fimmtudagur 1. júní 1989
Suðurnesjamenn vilja meiri varnarliðsvinnu
Suðurnesjamenn
líta til varnariiðsins
þegar kreppir að i
atvinnulífinu.
Frammámenn í
verkalýðshreyfing-
unni suður með sjó
telja að hlutfallslega
hafi dregið úr ráðn-
ingu íslendinga í
þjónustustörf á
Vellinum.
Bandariski herinn á Miðnesheiði er stærsti ein-
staki atvinnurekandinn á Suðurnesjum. Á síð-
ustu árum hafa að jafnaði l.100 íslcndingar starf-
að hjá hernum. Það er misjafnlega eftirsótt að
vinna á herstöðinni. Þegar vel árar í byggðarlög-
unum suður með sjó sækir fólk síður urn vinnu
hjá hernum, enda þykir kaupið ekkert tiltakan-
lega gott. Dæmið snýst við þegar samdráttar
verður vart á Suðurnesjum og þá fjölgar þeim
sem leggja inn umsóknir á ráðningarskrifstofu
varnarliðsins.
„Við höl'um undanfarið fengið kvartanir frá ís-
lendingum sem telja sig hafa orðið þess áskynja
að varnarliðið ráði fremur sitt eigið fólk í laus
þjónustustörf en íslendinga," segir Magnús
Gíslason, formaður Verslunarmannafélags Suð-
urnesja. En hvernig skýrir Magnús þá staðreynd
að fjöldi íslenskra starfsmánna hjá hernum hefur
undanfarin ár tekið litlum breytingum?
„Við vitum að þjónustustörl'um á Vellinum
hefur fjölgað undanfarin ár. En í stað þess að
ráða íslendinga er vinnan látin í hendur varnar-
liðsmanna og fjölskyldna þeirra," segir Magnús.
Að sögn Magnúsar er langt síðan ráðningar-
mál á Keflavikurstöðinni voru tekin upp við ís-
lensk stjórnvöld og þess æskt að þau gripu i
taumana. „Það er okkar skoðun að íslendingar
eigi að ganga fyrir við ráðningu í þjónustustörf
hjá varnarliðinu og þróun síðustu ára er okkur
• „íslendingar eiga að
ganga fyrir í vinnu á Vellin-
um,“ segir formaður Versl-
unarmannafélags Suður-
nesja.
þyrnir í augum.“
Magnús og félagar hans hal'a ekki erindi sem
erl'iði þegar þeir leita ásjár íslenskra yfirvalda og
æskja liðsinnis. Röksemdin sem mætir þeim er
vanalega sú, að þar eð íslensk stjórnvöld af fé-
lagslegum ástæðum leggja að Bandaríkjaher að
sendaá Keflavíkurstöðina frekar fjölskyldumenn
en einhleypa, verði einhverju að fórna á móti. Til
að eiginkonur hermanna þrifist á herstöðinni
ntega þær til að eiga ntöguleika á einhverjum
starfa.
Blaðafulltrúi varnarliðsins, Friðþór Eydal,
segir varnarliðið ávallt reyna að fara að óskum ís-
lenskra stjórnvalda í ráðningarntálum. „Það er
stefna varnarliðsins að ráða Islendinga í sem f'lest
þjónustustörf. Það verður hinsvegar að taka tillit
til þess að á svo stórum vinnustað sent herstöðin
er verður ekki komist hjá nokkrum breytingum
frá einum tíma til annars,“ segir Friðþór. Flann
gat ekki án fyrirvara sagt til um hvort þjónustu-
störfum á Vellinum hefði í raun fjölgað síðuslu
árin. „Það eru hinsvegar til nákvæmar skýrslur
unt þjónustustöður hjá varnarliðinu og breyting-
ar á milli ára.“
Ef til þess kemur að verkalýðsfélög á Suður-
nesjum fari í hart útaf ráðningum á Vellinum
mun reyna á þau lagaákvreði íslensk sem segja til
um að útlendingar þurfi atvinnuleyfi til að starfa
hérlendis.
„Fyrir nokkrum árum létum við lögfræðing
okkar kanna réttarstöðu íslendinga í þessu til-
liti,“ segir Magnús, „og niðurstaðan varð sú að
bandarískir þegnar þurfa atvinnuleyfi frá íslensk-
um yfirvöldum ef þeir ætla að starfa á íslandi.“
Magnús telur ekki ólíklegt að það verði látið
reyna á þessi lagaákvæði.
Verslunarmannafélag Suðurnesja mun liins-
vegar fyrr fara fram á það við utanríkisráðherra
að hann taki atvinnumálin upp við hæstráðendur
á Miðnesheiði.
„Það er bara svo erfitt að ná í hann Jón Bald-
vin. Við höfunt reynt að ná l'undi hans frá því
hann tók við embættinu í haust. Það hefur hrein-
lega ekki tekist enn,“ segir Magnús.
PÁLL VILHJÁLMSSON
i vikunni
... hélt Sjálfstæöisflokk-
urinn hátíólegt 60 ára af-
mæli sitt. PRESSAN birti
skýrslur endurskoöunar-
nefndar frá árinu 1987 þar
sem forysta og flokkur
voru harðlega gagnrýnd.
Vakti birtingin mikla at-
hygli en formaóur flokks-
ins kallaöi skýrslurnar
„gamlar lummur".
... kom í Ijósað 10,5 millj-
óna króna tap varö á
rekstri Fiskmarkaðarins i
Hafnarfiröi á fyrsta starfs-
ári hans.
... gerðu Grænfriðungar
kunnugt aó þeir hygöust
höfóa mál fyrir íslenskum
dómstólum á hendur aö-
standendum kvikmyndar-
innar Lífsbjargar í Noröur-
höfum. Þeir hafa ekki
fengið íslenskan lög-
mann til aö taka málió aö
sér.
... varð þaö niðurstaða
meirihluta ríkisstjórnar-
innar aö ekki sé svigrúm
fyrir meira en 2—3%
hækkun á fiskverði. For-
seti Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands
segir að afleiöingar þess
að setja sjómenn skör
lægra en aðra geti orðiö
stjórnvöldum þungbærar.
Fálmað eftir hlutverki
Að því var látið
Iiggja i Timanum
um daginn, að
fjölgun gistiheiniila
í Reykjavík gæti
bæði reynst örlaga-
rík fyrir frið í heim-
inum og lagt okkur
íslendingum til
vopn í baráttunni
fyrir því að eiga eitt-
hvert hlutverk í veröldinni. Sagt var, í fyrirsögn
og meginmáli greinar um deilur innan NÁTÓ um
skammdræg kjarnorkuvopn, að íslendingar
gætu stuðlað að lausn málsins, því að með fjölg-
un hótela og gistiheimila í Reykjavík gætu þeir
lagt til vettvang fyrir fund um málið. Það kom
hins vegar ekki fram, hvers vegna samkomulag
ætti frekar að nást á slíkum fundi í Reykjavík en
í Rebecourt, Rudisheim, Ravenna, Rotherford,
eða í einhverri af þeim þúsund eða tvö þúsund
borgum í löndum NATÓ þar sem er eins mikið
eða jafnvel meira af gistiheimilum en í Reykjavík.
Mig grunar að þetta sé ekki mjög úr ætt við ann-
að í fálmi manna eftir einhverju hlutverki fyrir
landið á alþjóðavettvangi.
Hin nöturlega staðreynd þessa máls er auðvit-
að sú, að íslendingar hafa nánast engin áhrif á
gang mála í heiminum, og hafa aldrei haft, frekar
en hundrað aðrar þjóðir, sem flestar eru þó öllu
stærri en sú íslenska og ráða yfir fleiri gistiheimil-
um. í flestum litlum þjóðfélögum ganga hins veg-
ar alls kyns þjóðsögur um áhrif viðkomandi
þjóðar á alþjóðavettvangi. Það má heyra slíkar
sögur frá Möltu til Singapore og frá Karíbahafi til
Kyrrahafs í hundrað ríkjum smáþjóða. Þær
ganga líka hér, bæði i ræðum á stórum stundum
og svona hvunndags í lauginni. Þetta nánast al-
gera áhrifaleysi breytir hins vegar ekki því, að það
er nauðsynlegt að marka stefnu í málum lands og
heims. Það leiðir líka hugann mjög að því eina
sviði þar sem afstaða okkar getur skipt umtals-
verðu máli, en þaðer veraeða brottför varnarliðs-
ins, og þar erum við í hópi með smáríkjum um
allan heim.
Smóríki breytir viðhorfum
á suðurhöfum
Smáríki nokkurt, sem er að vísu fjórtán sinn-
um stærra en það íslenska, Nýja-Sjáland, hefur
að undanförnu fylgt mjög sjálfstæðri utanríkis-
stefnu. Þessi stefna hefur breytt verulega viðhorf-
um til varnarmála í heilum heimshluta og er
• Fjölgun gistiheimila í
Reykjavík kemur ekki í stað
stefnu í alþjóðamálum.
sjaldgæft dæmi um áhrifamátt smáríkja. Stjórn
Nýja-Sjálands ákvað fyrir nokkrum árum að
meina skipum með kjarnorkuvopn innanborðs
að koma þar að landi. Landið myndar með Ástr-
alíu og Bandarikjunum eins konar NATÓ í suð-
urhöfum. Siðan þessi stefna var tekin upp hafa
Bandaríkjamenn beitt landið ýmsum þrýstingi og
tekið enn skýrar til orða en þessi flotaforingi
gerði í Keflavík nú á dögunum. Fyrir fáum dög-
um lýsti svo forsætisráðherra Nýja-Sjálands því
yfir, að hann teldi varnarbandalagið við Banda-
ríkin úr sögunni. Það skal að vísu tekið fram, að
Longe forsætisráðherra minnir stundum dálítið á
starfsbróður sinn hér á íslandi, hvað varðar stíl í
yfirlýsingum, og þessi ummæli hans ber því að
taka með þeim fyrirvörum sem menn eru vanir
hérlendis. Engu að síður vakti þetta mikla athygli
í Asíu, Eyjaálfu, Bandarikjunum og jafnvel hér í
Evrópu.
Þarna eystra, á Filippseyjum, blandaðist þetta
beint í umræður um herstöðvar Bandaríkjanna
þar í landi, en það eru vaxandi líkur á að þeim
verði lokað innan fárra ára, þrátt fyrir sára þörf
landsins fyrir efnahagsaðstoð, sem frá Banda-
ríkjanna hálfu verður að mestu skilyrt áfram-
haldandi veru bandaríska hersins. Það er raunar
svo komið, að vandfundinn er stjórnmálamaður
á Filippseyjum sem reynir að verja veru útlends
hers þarna með öðru en efnahagslegum rökum.
Nokkur af ríkjum Suðaustur-Asíu hafa líka end-
urskoðað afstöðu sína til veru Bandaríkjanna á
Filippseyjum, og í kjölfar minnkandi ógnar frá
Sovétríkjunum vex því fylgi, að öll útlend her-
veldi hafi sig á brott frá Suður- og Austur-Asíu,
en bæði Bretland og Sovétríkin eru í varnar-
bandalögum við ríki á svæðinu. í Ástralíu hefur
svipuðum skoðunum vaxið fylgi og þar mótmæl-
ir fjöldi manna nú að jafnaði komu herskipa frá
Bandaríkjunum og Bretlandi, eins og hertoginn
af York, sonur þjóðhöfðingja Ástralíu, mátti
með öðrum reyna á dögunum.
Utanríkismál upp úr skotgröfunum
Deilurnar innan NATÓ eru í rauninni angi af
sama máli. Forsendur í alþjóðamálum hafa verið
að breytast mjög ört síðustu misseri. Ráðamenn
vesturlanda hafa fæstir tekið þátt í þessum breyt-
ingum og reynst humgmyndasnauðir og kjark-
lausir í viðbrögðum við breyttum straumföllum.
Þarna eru mikilsverðir straumar mannkynssög-
unnar að skipta um farveg. í fjarlægum heims-
hlutum hafa forsendur breyst og hér nær okkur
sjáum við járntjaldið riðlast. Það virðist ekki úr
vegi að endurskoða stöðu okkar í þessu ljósi og
hefja umræður um utanríkismál úr þeim skot-
gröfum sem þeim hafa verið grafnar á síðustu
áratugum. Þarna eru spurningar um afstöðu
okkar til sameiningar Vestur-Evrópu, stórauk-
inna samskipta milli Austur- og Vestur-Evrópu,
breyttra aðstæðna í alheimslegum ntálefnum og
breyttra þarfa í öryggismálum. Fjölgun gisti-
heimila í Reykjavík kemur ekki í stað stefnu í
málum heimsins.
ÚTSÝN
JÓN ORMUR HALLDÓRSSON
... kom fram í nýrri
skýrslu framkvæmda-
stjóra öryggismálanefnd-
ar aö íslensk stjórnvöld
skorti vitneskju um hlut-
verk sitt og væru illa undir
þaó búin að vera þátttak-
endur í ákvörðunum um
pólitísk og hernaðarleg
viðbrögð á óvissu- og
átakatímum. Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkis-
ráðherra segir þessa nið-
urstöðu eiga við rök að
styðjast.
... var nýrri Boeing 737-
þotu Flugleiða gefið nafn-
ið Eydís. Vigdís Finn-
bogadóttir forseti var
meðai farþega í fyrstu
ferö vélarinnar heim og
jós hana vatni á Keflavík-
urflugvelli.
... ákváðu íslenskir kven-
guðfræöingar að mót-
mæla þeirri ihaldssemi
páfa aó veita konum ekki
prestvígslu meó þvi að
sækja ekki messur hans
hér á landi.
... létu tveir ritstjórar
Þjóðviljans af störfum,
þau Silja Aóalsteinsdóttir
og Möróur Árnason. Árni
Bergmann ritstjóri mun
ritstýra blaðinu einn fyrst
um sinn.
... varó Ijóst að verulegar
búvöruhækkanir taka
gildi í dag, 1. júní. Búvöru-
verð hækkar um allt að
10%.
... áttu tveir kunnir ís-
lendingar merkisafmæli.
Helgi Pétursson frétta-
maður á Stöö 2 varð fer-
tugur og Karl Steinar
Guðnason alþingismaður
fimmtugur.