Pressan - 01.06.1989, Qupperneq 19
Fimmtudagur 1. júní 1989
19
Heimspressan
Hvaö gera forsetar og fyrirmenn, þegar aðrir taka við stjórninni?
REAGAN MALAR GULL í NÝRRIRULLU
Sá tímierlöngu liðinn að fyrrverandiforsetar Banda-
ríkjanna setjist í helgan stein að loknu kjörtímabili og
dundi í mesta lagi við að skrifa endurminningar sínar.
Hafiþeir áhuga geta þeir haft nóg að gera og haft marg-
falt meira fé handa á milli en í forsetatíð sinni.
GREIN: JÓNÍNA LEÓSDÓTTIR, BYGGT Á NEWSWEEK OG THÉ SUNDAY TIMES
Jiinmy Carter og Gerald Ford
hafa báöir átt annríkt eftir að þeir
hættu aö gegna embætti forseta í
Bandaríkjunum. í maímánuði síö-
astliðnum voru þeir t.d. báðir i ai-
þjóðlegri sendinefnd, sem fór til að
fylgjast með kosningunum í
Panama.
Carter hefur haft mikil afskipti
af utanríkismálum og hvers kyns
mannúðarmálum frá því hann lét af
forsetastörfum árið 1981. Hann
stofnaði Carter-miðstöð í borginni
Atlanta í Georgíufylki, sem ver ár-
lega rúmlega 900 milljónum ís-
lenskra króna til að styrkja ýmis
málefni. Má t.d. nefna Iandbúnað-
arverkefni í Ghana í Afríku og
fundahöld til að finna lausnir á
milliríkjadeilum.
En Jimmy Carter eyðir ekki bara
peningum. Hann vinnur líka fyrir
dágóðri summu, ef marka má
heimildir vikuritsins Nevvsweek.
Þeir segja hann t.d. hafa haft
nokkrar milljónir króna fyrir fyrir-
lestraferð um Japan skömmu eftir
að kjörtímabili hans lauk.
Richard Nixon hefur lítið gert af
því að nota frægðina sem gróða-
lind, en Gerald Ford hefur engu síð-
ur en Carter haft dágóðar tekjur
eftir að hann yfirgaf Hvíta húsið.
Sagt er, að á tímabili hafi hann ver-
ið launaður ráðgjafi átta fyrir-
tækja, átt tvær útvarpsstöðvar,
tengst fasteignaviðskiptum og hald-
ið fyrirlestra við ýmis tækifæri fyrir
Ronald Reagan
kemur til með að
vinna fyrir hærri
fjárhæð á tíu dög-
um í októbermán-
uði en hann gerði
á átta árum í Hvlta
húsinu.
rúmar 800 þúsund krónur í hvert
skipti. Ford hefur þó ávallt einnig
sinnt góðgerðarmálum og núna ku
hann þar.að auki hafa dregið veru-
lega úr viðskiptaumsvifunum.
Samt sem áður er hann sagður hafa
í árslaun sem samsvarar 28—42
milljónum króna.
Ronald Reagan virðist ætla að
feta í fótspor fyrirrennara sinna og
nýta frægðina til að drýgja ellilíf-
eyrinn. í október er hann t.d. vænt-
anlegur til Tókýó í Japan til þess að
vera nokkurs konar veislustjóri á
listahátíð, sem fyrirtækið Fujisan-
kei Communications Group efnir
til. Fær Reagan u.þ.b. 114 milljónir
króna fyrir að mæta á hátíðina,
sem stendur í tíu daga, og halda
eina eða tvær ræður. Það er rúmum
tuttugu milljónum meira en hann
fékk í Iaun á áttd áruni í forsetastól.
En það eru l'Ieiri „stjörnur" eftir-
sóttar af Stórfyrirtækjum en fyrr-
verandi Bandaríkjaforsetar. Þessi
tíska teygir sig einnig yfir hafið, því
bresk blöðhafa flutt fregnirafýms-
unt tilboðum, sem borist hafa í
Downingstræti númer tíu. Margrét
Thatcher, sem þar býr, hefur alls
ekki látið í það skína að hún hyggist
láta af embætti í bráð — hvorki sem
formaður íhaldsflokksins né for-
sætisráðherra Bretlands — en sanit
er farið að bjóða í hana. Sagt er að
henni standi til boða að l'ara i fjöl-
margar fyrirlestraferðir, m.a. um
Bandaríkin, og halda ræður við alls
kyns tækifæri. Talið er að Járnfrú-
in svokallaða gæti margfaldað tekj-
ur sínar með því að hætta í
stjórnmálunum og taka þessum
gylliboðum.
Komin er út bók um skyndilegt dauðsfall Jóhannesar Páls páfa I árið 1978
DULARFULLUR DAUÐDAGI
Höfundur nýútkominnar bókar um dauðdaga síðasta
páfa kemst að því að sögusagnir um að hann hafi verið
myrtur séu uppspuni. Telur hann að Jóhannes Páll I
hafi dáið vegna vinnuálags, sem hann réð ekki við, og að
starfsfólk Vatíkansins hefði getað komið honum meira
til hjálpar.
JÓNÍNA LEÓSDÓTTIR, BYGGT Á THE SUNDAY EXPRESS
„Svipti síðasti páfi sig lífi?“
Þannig spyr breska blaðið The
Sunday Express í fyrirsögn fyrir
skemmstu. Umrædd grein er þó
ekki afrakstur harðrar rannsóknar-
blaðamennsku, heldur er þetta fyr-
irsögn á bókardómi eftir bók-
menntaritstjóra blaðsins og til um-
fjöllunar er bókin A THIEF IN
THE NIGHT (Þjófur á nóttu) eftir
John Cornweil.
Bók þessi kom nýverið út hjá
Viking-bókaforlaginu og segir í
greininni að núverandi páfi, Jó-
hannes Páll II, hafi hvatt höfund-
inn til að skrifa hana og skipað
starfsmönnum Vatikansins að svara
spurningum hans. Tilgangurinn á
að hafa verið sá að kveða niður orð-
róm um að síðasti páfi hafi verið
myrtur. Niðurstaða Cornwells eftir
ítarlegar rannsóknir er raunar sú,
að Jóhannes Páll I hafi örugglega
ekki verið myrtur, en bókin inni-
heldur engu að siður ógnvekjandi
upplýsingar. Hann álítur páfann
hafa framið nokkurs konar sjálfs-
víg, án þess að neinn hafi lyft litla
fingri til að bjarga honum.
Cornwell heldur því ekki fram að
páfinn hafi tekið of stóran lyfja-
skammt eða neitt í þeim dúr. Hann
segir hins vegar að páfi hafi verið
orðinn alvarlega veikur, þegar hann
tók við embætti, og strax hafi verið
Jóhannes Páll I dó,
þegar hann hafði
einungis verið páfi I
33 daga, og af ýms-
um ástæðum kom-
ust þá á kreik sögur
um að hann hefði
verið myrtur.
útséð um að liann réði ekki við álag-
ið, sem þvi l’ylgdi. Fullyrðir höf-
undurinn að Jóhannes Páll 1 hafi
daglega beðið Guð um að fá að
deyja og að endingu dáið vegna
vanrækslu á eigin heilsu eða jafnvel
vegna þess að hann hætti að taka
þau lyf, sem liann þurfti á að halda.
Rannsóknir Cornwells leiddu í
Ijós að páfinn kvartaði nokkrum
sinnuni um verki síðasta daginn,
sem liann lifði, en um nóttina fékk
hann blóðtappa og lést á gólfinu i
íbúð sinni. Þá varð uppi fótur og fit
á meðal ritara páfans, sem ekki
þótti sá dauðdagi góður til afspurn-
ar. Þeir báru hann í rúmið, þar sem
hann átti að „finnast" um tnorgun-
inn. Það gerðist hins vegar fyrr en
til hafði verið ætlast, því ráðskona
páfa, sem er nunna, kont með kaffi
til hans klukkan hálfsex.
Það þótti ekki viðeigandi að láta
það fréttast að kona hefði uppgötv-
að lát páfa um sólarupprás og því
varð hin opinbera útgáfa sögunnar
sú, að Magee biskup hefði fyrstur
komið að honum andvana í rúm-
inu. Og þannig byrjuðu kjaftasög-
urnar, því við þessa hagræðingu
sannleikans reyndist nauðsynlegt
að grípa til hvítra lyga og brátt voru
staðreyndir farnar að stangast á og
menn orðnir tvísaga.
Cornwell segir langflestar sög-
urnar uppspuna, en hann er hins
vegar harðorður í garð starfsfólks
Vatíkansins. Segir hann páfann
ekki hafa notið neinnar virðingar
og að enginn hafi reynt að hjálpa
eða Iétta undir með honum.