Pressan


Pressan - 17.08.1989, Qupperneq 4

Pressan - 17.08.1989, Qupperneq 4
4 íPMnrttudagúr T?.t4g\jSM989 litilræði af lendingu Að mínum dómi erekkert jafn sálbætandi og heilsustyrkjandi einsog það að hóa saman þrjátíu-fjörutíu hrossum og ríða til fjalla í hópi góðra vina og vera svona þrjár-fjórar vikur fjarri hinni þjakandi alvöru líðandi stundar. Alvara lífsins hleypur svosem ekkert frá manni, því þegar loksins er lent eftir slíkt „fjallagösl" bíða manns heima bunkar af dag- blöðum sem yfirfull eru af ótíðindum og pósti sem er, einsog að líkum lætur, mestmegnis gluggapóstur innihaldandi váleg tíðindi, að ekki sé nú talað um símsvarann sem hlaðinn er áríðandi skilaboðum um „að hafa samband sem allra fyrst" útaf einhverju „sem allsekki má dragast". Ég er maður í tæknivæddara lagi umvafinn tækjum og tólum alltfrá handryksugu uppí öfl- uga IBM-tölvu, en á engu apparati hef ég jafn mikið dálæti einsog símsvaranum mínum. Þetta undratæki svarar fyrir mig í símann, þegar í mér er lunti og ég nenni ekki að tala við fólk, já svarar jafnvel þegarég erekki heima, og tekur á sinn hljóðláta hátt við skilaboðum, óbótaskömmum eða oflofi, sem góðglaðir menn og konur hlaða stundum á mig í ölæði. Símsvarinn leyfir þeim sem hringir að þusa í þrjátíu sekúndur og slítur svo samtalinu. Nokkuð sem ég get ekki gert án þess að vera úr hófi fram dónalegur. Og þegar ég kem heim, örþreyttur eftir margra vikna fjallaferð á merum mínum, sest ég við símsvarann og get á skammri stund gert mér grein fyrir því hvað ég er nú mikilvægur í samfélaginu. Ég byrjaði á því í morgun, þegar ég var búinn að sofa úr mér ferðaþreytuna, að hlusta á sím- svarann ásamt konu minni, sem stundum fær líka skilaboð gegnum apparatið. Grímur frændi hafði hringt nokkuð oft vel við skál og aldrei höfðu honum nægt þrjátíu sekúndurnar til að lýsa vanþóknun sinni á sím- svaranum. Öll skilaboð frá honum byrjuðu eins: — Ég tala ekki við vélar. Síðan hóf hann einræðu við þögla vélina þartil hún lagði á eftir þrjátíu sekúndur einsog hennar var von og vísa. En Grímur hringdi bara aftur og skammaði símsvarann einsog hund eftir að hafa tilkynnt honum að hann talaði ekki við vélar. Ég fer ekki ofanaf því að símsvarinn hefur betra lag á Grími helduren ég. Grímur sleppir manni nú ekki svo glatt þegar hann hefur náð á manni símtangarhaldi og er búinn að fá sér „einn". En áfram snerist símsvarinn og nú hljómaði af honum dularfull, seiðandi rödd og sagði: — Viltu fyrir alla muni muna eftir því að gleyma því sem okkur fór á milli „um daginn". Þó hefði átt að drepa mig var mér ekki nokk- ur leið að muna hvað það var sem ég átti að gleyma og auðvitað hljóp ég gersamlega í bak- lás, þegar konan mín spurði með umtalsverðri þykkju: — Hvað var það sem þú áttir að muna eftir að gleyma? Ég varð, einsog venjulega undir svipuðum kringumstæðum, þrúgaður af sektarkennd, en svaraði einsog satt var að mér væri gersam- lega fyrirmunað að muna hvað það væri sem ég hefði átt að muna eftir að gleyma ekki að gleyma. Ég væri semsagt búinn að gleyma því hverju ég hefði átt að gleyma. Þá tók konan mín svo til máls: — Ég veit fullvel að þú gleymir venjulega því sem þú átt að muna, en þú skalt ekki reyna að segja mér að þú gleymir því sem þú átt að gleyma. Ég sá ekki ástæðu til að svara þessu en fór að fletta blöðunum og rakst fljótlega á forsíðu- fyrirsögn í Þjóðviljanum: YFIRSTÉTTARSKÓLI STOFNAÐUR. Og ég hugsaði til þess með sárum trega hve mikils ég hefði misst að slíkur skóli skyldi ekki hafa verið til þegar ég var barn. Ég hafði aðeins orð á þessu við konu mína, sem er ættuð úr Dölum vestur og komin af Melkorku Mýrkjartansdóttur írakonungs. Hún lét mig svona einsog finna það að ætt- boginn frá Neðra-Hundagerði ætti lítið erindi í yfirstéttarskóla, sem auðvitað er alveg satt ef útí það er farið. — Undarlegt að þú skyldir láta þig vanta í Húnaver sagði hún nú og rétti mér blað þar sem tíundaðir voru í smáatriðum alþýðutón- leikar Stuðmanna í Húnaveri við Bólstaðarhlíð um verslunarmannahelgina. Þar stóð með flennifyrirsögn: — FIMMTÍUÞÚSUND SMOKKAR SELDIR. Og ég hugsaði sem svo: — Alltaf eru undirstéttirnar samar við sig. Ekki hefði nú farið svona ef blessuð börnin hefðu gengið í yfirstéttarskóla. Alltaf sami andskotans gauragangurinn á þessum alþýðutónleikum. Svo hélt ég áfram að lesa blöðin um ástand- ið í Beirút í Líbanon, örlög Botha í Suður-Afríku, stjórnarkreppuna í Póllandi og ástandið í Bel- fast á írlandi. Og ég hugsaði sem svo: — Er nema von að maður gleymi því að muna hvað það er sem maður á að gleyma? Svo sofnaði ég aftur. Taktu lífið ekki of alvarlega, þií kemst hvort sem er ekki lifancli frá því. m ÐMSTADHR I MIÐBII ÓPERUKJALLARINN OPNAR Á FÖSTUDAGSKVÖLD Hverfisgötu 8-10 Suui 188JJ

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.