Pressan - 17.08.1989, Page 16
16
Góð íbúð óshast
Góð 2ja herbergja íbúð óskast til leigu.
Leigutími minnst eitt ár. Stór einstaklingsíbúð
kemur einnig til greina.
Uppl. í síma 680242 á daginn, 678191 á
kvöldin og um helgar.
Fimmtudagur 17. ágúst 1989
ÓÐUR TIL
KARLMANNS-
HOLDSINS
i dag verður ffyrsta ffrwmsýning Kvik-
myndaklúbbsins á þessu starffsári, en þá
verður sýnd myndin Caravaggio efftir
Bretann Derek Jarman. Caravaggio er
tiltölulega ný mynd (1986), en annars
hyggst Kvikmyndaklúbburinn aðallega
sýna gamlar klassiskar myndir i vetur.
Einnig verður tekin upp sú steffna, sem
sve sannarlega er þakkarverð, að fflokka
myndir, kynna tiltekna leikstjára, tiltek-
in timabil, steffnur eða strauma.
Sófasett
MILANO
PARIS
i miklu úrvali
DALLAS
Takið eftir
Smiðum hornsófasett eftir máli
Tausófasett verð frá kr. 84.600 stgr.
Leðursófasett verð frá kr. 131.400 stgr.
Leðurluxsett verð frá kr. 95.600 stgr.
Raögreiðslur á VISA og Eurocard
allt aö 11 mánuðir
HÚSGAGNA-J
/ )Q / SMIÐJUVEGI 30
' L2CJL l/SÍMI 72870
ANNA TH. RÖGNVALDSDÓTTIR
í vetur verða t.a.m. sýndar þrjár
myndir eftir Fritz Laing og tvær eftir
Murnau og er það vísir að kynningu
á þýska expressionismanum. Þá má
kannski sérstaklega benda á „You
Only Live Once“, sem Laing gerði á
Ameríkuárum sínum, eina myrk-
ustu film noir-mynd sem gerð hefur
verið.
Ennfremur verða sýndar nokkrar
myndir eftir japönsku risana tvo,
Ozu og Mizogushi. Mizogushi hefur
sjaldan eða aldrei verið sýndur hér
á landi svo að þetta er ákaflega þarft
framtak Kvikmyndaklúbbsins.
Caravaggio fjallar um lífshlaup
samnefnds endurreisnarmálara og
olli talsverðu fjaðrafoki á Bretlandi
á sínum tíma, ef ég man rétt.
Myndrænt séð er Caravaggio afar
áferðarfalleg mynd, þótt hún sé
gerð af vanefnum og fyrir styrki frá
bresku kvikmyndastofnuninni. Jar-
man leitast við að endurskapa stíl
og andrúmsloft málverka Caravagg-
ios sem einkennast af ríkmannlegri
áferð hlutanna, djúpum litum, heit-
um svörtum skuggum og mjúku
karlmannsholdi sem hnyklast í
guilnum bjarma (ýkjulaust). Jarman
gengur meira að segja svo langt að
hvika hvergi út úr myndramma mál-
arans — hann útilokar alia tiifinn-
ingu fyrir rými og myndin er því al-
gerlega laus við landafræði og arki-
tektúr. Þetta orkar iðulega þannig
að áhorfandinn fær hræðilega inni-
lokunarkennd.
Skemmtilegar og vel valdar tíma-
skekkjur skjóta upp kollinum öðru
hverju í þessu annars fágaða og list-
ræna umhverfi. Þegar Caravaggio
birtist fyrst er hann með sígarettu
lafandi í munnvikinu (að vísu hand-
vafða). Ljóshærður myndarpiltur
sem Caravaggio gefur auga á krá er
með iítinn hattkúf úr samanbrotnu
dagblaði. Bírókratinn, ritari drottn-
ingar, situr í baði og skrifar enn eitt
klögunarbréfið út af Caravaggio —
og notar til þess gamla Royal-ritvél.
Jarman og samverkamaður hans,
Nicholas Word-Jackson, túlka og
leggja út frá ævi málarans og skrifa
magnað handrit um ást, dauða,
bræðralag, peninga, losta og kirkj-
una. Útkoman er stundum eins og
Jean Genet hafi endurskrifað lista-
söguna (atriðið þegar Caravaggio
liggur fyrir dauðanum og líður
skelfilegar þjáningar og andnauð er
til að mynda eitt erótískasta atriði
myndarinnar).
Miðað við óvenjuleg efnistök og
hugmyndaauðgi er það annars und-
arlegt hvað myndin reynist síðan
þróttlítil. Ein af ástæðunum er mis-
heppnað samspil hljóðs og myndar:
vafrandi áherslur. Áleitinn talaður
texti er settur yfir áleitna mynd.
Þegar texti og mynd keppa um at-
hygli áhorfenda, eins og iðulega
gerist hér, verður myndin ofan á.
Það bætir ekki úr skák að tæknilega
er hljóðið leiðinlega lélegt.
Kvikmyndaklúbburinn sýnir tvær
aðrar myndir eftir Derek Jarman í
þessum mánuði, Jubilee og The
Tempest. Jarman er misþroska
kvikmyndaleikstjóri en ansi gríp-
andi og verður mjög fróðlegt að sjá
annað sem hann hefur gert.