Pressan - 17.08.1989, Qupperneq 19
Fimmtudagur 17. ágúst 1989
19
þótt þær séu góðar til síns brúks
(Páll Magnússon hjá Stöð 2, Edda
Andrésdóttir fréttaþula á Sjón-
varpinu og Herdís Þorgeirsdótt-
ir ritstjóri Heimsmyndar eru í
þessum hópi) — eða það hverfur af
vettvangi til annarra starfa en fáir
vita hvert (t.d. Guðjón Einarsson,
Sonja Diego, fyrrverandi frétta-
menn Sjónvarpsins, og Magnús Ól-
afsson, sem einu sinni var ritstjóri
NT). Það gustaði hér í fyrra ansi
hressilega um persónu Ingva
Hrafns Jónssonar, fyrrverandi
fréttastjóra Sjónvarpsins, — en ætli
menn séu ekki núna farnir að venj-
ast því að hafa hann ekki inni á gafli
hjá sér á hverju kvöldi?
Sjónvarpsfrægð er ugglaust hent-
ugur stökkpallur inn á Alþingi. En
þó eru þess dæmi að menn stökkvi
í öfuga átt, ef svo má segja, — af Al-
þingi í sjónvarp. Það gerði t.d.
Kristín S. Kvaran, fyrrverandi
þingmaður BJ, sem í sumar er frétta-
maður á Sjónvarpinu, og olli litlu
fjaðrafoki. Þingseta er þó engin
trygging fyrir því að vera ,,inni“ alla
tíð, eins og Kolbrún Jónsdóttir og
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
bera glöggt vitni um. Enn hefur ekki
fengist úr því skorið hvernig færi
fyrir Pétri Guðjónssyni, formanns
Flokks mannsins, á Alþingi.
Þeir settu svip á öldina
Sjónvarp er skæður fjölmiðill.
Trausti Jónsson þótti segja veður-
fregnir á skemmtilegri hátt en flest-
um er lagið hér á landi. Ekki var að
sökum að spyrja: Trausti varð svo
mikið „inni“ að hann var á endan-
um talinn af. Þá þótti honum gam-
anið vera tekið að kárna enda er
hann nú búinn að snúa sér endan-
lega að fræðunum. Trausta tókst að
draga sig í hlé út úr sviðsljósinu af
eigin rammleik — og það er meira
en margur getur sagt eða hefur vilj-
að.
Fyrir einhverjum árum var óhugs-
andi að gerður væri sjónvarpsþáttur
án þess að leita ráða hjá Geir Við-
ari Vilhjálmssyni sálfræðingi,
Þráni Eggertssyni hagfræðingi
eða Aðalsteini Ingólfssyni list-
fræðingi. Þetta var á þeim árum
þegar menningarlífið var mótað af
fólki eins og Reyni Oddssyni kvik-
myndagerðarmanni, Hafliða Vil-
helmssyni rithöfundi og Olgu
Guðrúnu Arnadóttur, þýðanda og
rithöfundi. Nú er róið á önnur mið.
Það er ekki ýkjalangt síðan settu
svip á athafnalífið þeir Erlendur
Einarsson, fyrrverandi SÍS-for-
stjóri, og Ármann Reynisson í
Ávöxtun. Þeir prýða ekki oft forsíð-
urnar. Sama á víst við um þá Björg-
ólf Guðmundsson, fyrrverandi for-
stjóra Hafskips, og Ragnar Kjart-
ansson, fyrrverandi stjórnarfor-
mann sama fyrirtækis.
Kristín S. Kvaran,
fyrrverandi þingmaður
fyrir BJ:
SAKNA EKKI
ALÞINGIS
„Ég sakna þess ekki að vera ekki
lengur í eldiínunni og er laus við öll
tengsl í pólitík," segir Kristín S. Kvar-
an, sem í kosningunum 1983 var í
öðru sæti á iista Bandalangs jafnað-
armanna í Reykjavík sem dugði
henni til að komast á þing. Kristín
var ekki sátt það hvernig stefnumál
BJ þróuðust, sagði sig úr þing-
flokknum, var um hríð utan flokka
og gekk svo til liðs við Sjálfstæðis-
flokkinn. „Upplausnin í BJ var orðin
slík að ég sá mér ekki annað fært en
hætta þar. Það var líka að vissu leyti
áfall fyrir mig að komást að því
hversu lítt manni varð ágengt með
mál sem maður hafði í hyggju að
koma í gegn.“ Kristín var ekki á
neinum lista fyrir síðustu kosningar
en segist þess í stað fremur vilja
beita sér á vettvangi þar sem hún
sjái skýrari árangur af starfi sínu en
á Alþingi. Núna er hún ritstjóri mán-
aðarblaðsins Blaðið okkar sem er
gefið út í Garðabæ. Kristín sá um
skeið um neytendaþætti á Stöð 2 og
í sumar hefur hún verið fréttamaður
í afleysingum á Sjónvarpinu. Verður
hún fyrir ónæði opinberlega þótt
hún birtist á skjánum núna? „Nei.
En þegar ég var á þingi gat maður
varla farið út að borða án þess að
einhver væri farinn að abbast upp á
mann.“
Troels Bendtsen í
Savannatríóinu:
EFTIRSJÁ
„Ég man að ég var að vinna í
Herradeild P & 0 og fólk kom að
skoða mig í gegnum búðarglugg-
ann,“ segir Troels Bendtsen sem nú
rekur heildsölu — er með umboð
fyrir flísar, hreinlætistæki og fittings
— en söng sig inn í hjörtu lands-
manna á sjöunda áratugnum, ma.
fyrsta kvöldið sem íslenska sjón-
varpið sendi út árið 1966. Félagar
hans í Savannatríóinu voru ekki síð-
ur dáðir: þeir Björn Georg Björns-
son hjá Stöð 2 og Þórir Baldursson
sem haslað hefur sér völl á erlendri
grund og starfað með stórstjörnum
á borð við Donnu Summer, Sailor og
Boney M. „Auðvitað minnist maður
þessara tíma með ákveðinni eftir-
sjá,“ segir Troels, „en við tókum
ákvörðun um að hætta vegna þess
að við töldum okkur hafa skilað
okkar verki og óttuðumst að við
myndum „sjúskast" ef við héldum
áfram. Sjálfsagt hefði þó verið gám-
an að halda hópinn eitthvað lengur
— en það er eitt að vilja og annað að
geta..."
Bjarni Dagur Jónsson, fyrrverandi útvarpsstjarna
LÍTIÐ DREGIÐ ÚR AÐ
FÖLK HEILSI Á GÖTU
orku frá manni. Það var mál til kom-
ið að endurnýja hana og ég tók því
þá skynsamlegu ákvörðun að taka
mér smá-hlé frá fjölmiðlum.“
Spurningunni hvort hann verði
var við að fólk þekki hann á götu úti
svarar hann játandi: „Já, já, það
þekkja mig margir. Þaö hefur lítið
dregið úr því að fólk heilsi mér á
götu eða komi og spjalli við mig.
Sumir eru ekki alveg vissir um hvað-
an þeir þekkja mig, en heilsa samt
mjög kumpánlega; aðrir spyrja
hvort ég ætli ekki að fara að gera
nýja þætti."
Hann segist í fyrstu hafa verið
feiminn við að vera þekktur „en svo
venst það. Maður eignast mikið af
vinum í gegnum svona störf og það
er sérstaklega gott að vita til þess
þegar fólki er hlýtt til manns. Verra
ef einhverjum er í nöp við mann“!
Ekki segist hann hafa orðið var við
að fólk væri reitt eða vonsvikið:
„Nánast allir sem höfðu samband
við mig voru jákvæðir, voru að hæla
mér eða láta mig fá góðar hugmynd-
ir. Það viðmót er sjálfsagt öfugt við
það sem margir stjórnmálamenn
finna. Þegar fólk er á öndverðri
skoðun vilja samskiptin verða hast-
arlegri. Ég man aðeins eftir einu
skipti sem einhver móðgaðist við
mig. Þá hringdi til mín maður sem
fannst ég hafa verið of klámfeng-
inn ... Við slíku má auðvitað búast
þegar verið er að segja tvíræða
brandara ... I “
Einn stærsta gallann við að vera
þekktur telur Bjarni Dagur slúður-
sögurnar sem oft eru sagðar um
þekkt fólk: „Auðvitað hefur verið
slúðrað um mig eins og aðra. Slíkar
sögur hafa bitnað einna mest á mín-
um nánustu. Þær skapa óróa þegar
þeir frétta eitthvað um mann sem
ekki er satt." Hann segist hafa feng-
ið nokkuð af símhringingum heim
meðan hann starfaði hjáStjörnunni,
en ekki geti hann metið hversu mik-
ið hafi dregið úr slíkurn hringingum
„því nú er ég ekki lengur í síma-
skránni"...
Hvort hann sakni þess að starfa
utan sviðsljóssins svarar hann eftir
örstutt hik: „Jú ætli ég sakni þess
ekki að vissu leyti en ég er hins veg-
ar í mjög skemmtilegu starfi núna.
Það er krefjandi að vinna við útvarp
og sjónvarp og maður gerir ekkert
annað á meðan. En ég sakna helst
allra góðu vinnufélaganna af Stjörn-
unni og Stöð 2. Nú er ég að safna
kröftum, fá nýjar hugmyndir — og
svo kem ég aftur!"
Bjarni Dagur Jónsson var einn
vinsælasti útvarpsmaðurinn á
Stjörnunni. Hann hafði einstakt
lag á að láta landann opna sig, jafn-
vel segja frá sínum leyndustu
draumum í beinni útsendingu.
Bjarni Dagur er einnig þekktur úr
sjónvarpinu, en hann var annar
stjórnenda þáttanna „í sumarskapi"
sem Stöð 2 sendi út. Eftir samein-
ingu Stjörnunnar og Bylgjunnar var
tekin ákvörðun um að feila þætti
Bjarna Dags niður, ákvörðun sem
féll illa í jarðveginn hjá fjölmörgum
aðdáendum hans.
Bjarni Dagur hefur nú snúið sér
að öðrum störfum. Hann rekur aug-
lýsingastofuna Nýjan Dag í sam-
starfi við Ernst Backman auglýs-
ingateiknara: „Ég fór af Stjörnunni
af mörgum ástæðum. Til dæmis
þeirri að ég hafði verið mikið í sjón-
varpi og útvarpi og slíkt tekur mikla