Pressan - 17.08.1989, Page 24
PRESSU
MOJLAR
Viiiiii:
þ
| eir eru margir, sem undrast
hvað malbikið endist illa á götum
hér á landi. Erlendis er víða reiknað
með fimm ára endingu malbiks og
jafnvel gefin svo löng ábyrgð af
framleiðendum þess. Gatnamála-
stjórinn ■ Reykjavík segir að
nagladekkin eigi stóran þátt í þess-
ari lélegu endingu. Aðrir segja hins-
vegar, að íslenska grjótið sé hrein-
lega svo lélegt, að það dugi ekki í al-
mennilegt malbik. Eina ráðið, segja
þessir aðilar, er að flytja inn nægi-
lega gott grjót frá útlöndum ...
b. T
spænsku vikublöðin eftir heim-
sókn konungshjóna Spánar til Finn-
lands og Islands. Flest lögðu þau
tvær til þrjár opnur undir frásagnir
af ferðum þeirra og fjöldi litmynda
prýddi síðurnar. Það sérstaka var að
í langflestum blöðunum var ein
mynd frá Finnlandsferðinni á
móti tíu frá íslandi. Spænsku ljós-
myndararnir virtust einkum hug-
fangnir af íslenska hundinum sem
Spánardrottning tók í fang sér og
birtu nánast öli blöðin eina stóra
mynd af drottningunni gæla við
hundinn. Aðrar stórar myndir voru
af konungshjónunum með Vigdísi
forseta og dóttur hennar Ástríði og
myndaseríur sýndu Soffíu drottn-
ingu í félagsskap islenskra
hesta . . .
A
^^ins og um flestar verslunar-
mannahelgar var töluvert um að
ökumenn væru gripnir undir stýri
með of mikið áfengismagn i æðum.
Það vekur athygli að ölvuðu bílstjór-
arnir voru sjaldnast á ferðinni að
kvöldlagi. Meginhluti þeirra var að
keyra þegar langt var liðið á nótt
eða árla morguns og virtust þessir
ökuþórar ekki gera sér grein fyrir
þvi hve lengi áfengið héldist i bíóði
þeirra . . .
L
I Hér áður fyrr var það árviss
viðburður að kjörin var Ungfrú
Hollywood. Sú síðasta var árgerð
1986 og hét Guðlaug Jónsdóttir,
en nú mun vera hafin leit að arftaka
hennar. Ákveðið hefur verið að
krýna nýja „ungfrú" í janúarlok á
næsta ári og í fyrstu verðlaun verð-
ur viðeigandi glaðningur. Ferð fyrir
þá heppnu til Hollywood í Banda-
ríkjunum ...
um sig í stórborgum vestanhafs gæti
nú hvað úr hverju riðið yfir ísland. í
byrjun næsta mánaðar er fyrirhug-
að að kvikmyndin dýra um Batman
verði frumsýnd hér í borg. í Banda-
ríkjunum er talað um Hollywood-
sumarið mikla og þar þyrpast menn
í bíó sem aldrei fyrr. Hér í borg hefur
þessa einnig gætt, a.m.k. ef marka
má aðsóknina á James Bond sem
hefur vinninginn í sumar. Nú mán-
uði eftir frumsýningu hafa rúmlega
30 þúsund íslendingar séð Bond og
ekkert lát er þar á ...
Itlög óvanaleg sýning verð-
ur opnuð í Þrastalundi næstkom-
andi sunnudag. Þetta er Ijósmynda-
sýning, en myndirnar tóku krakkar,
sem voru í sumarbúðunum á Úlf-
ljótsvatni á síðustu mánuðum. Og
ekki nóg með það. Myndirnar eru
teknar á ljósmyndavélar, sem
krakkarnir bjuggu til sjálfir, og það
tók frá þremur mínútum upp í tvær
klukkustundir að taka hverja mynd!
Allar eru myndirnar til sölu og verð-
ur ágóðinn notaður til að bæta að-
stöðu fyrir fatlaða í sumarbúðum
skáta . . .
q
*^Rerð hefur verið úttekt á
afengismagni í blóði ökumanna,
sem teknir voru fyrir ölvun við akst-
ur á síðasta ári. Alls voru tekin rúm-
lega 2.600 blóðsýni þetta ár og það
heyrði til undantekninga að áfengis-
magnið reyndist undir þeim mörk-
um, sem miðað er við, eða innan við
0,5 prómill. Langflestir voru mjög
langt yfir mörkunum, því í 1.870
sýnum mældist áfengismagnið
a.m.k. 1,0 prómill...
H^Éenn á Stöð 2 eru kampa-
kátir þessa dagana. Þeir hafa nefni-
lega nýverið fengið í hendur upp-
gjör fyrir fyrri helming yfirstand-
andi árs og sýnir það 40 milljóna
króna hagnað af rekstrinum ...
^fjallað er um fyrirhuguð skipti á
þingkonum í nýjasta fréttabréfi
Kvennalistans, en eins og fram
hefur komið er töluverður ágrein-
ingur um það mál innan samtak-
anna. í fréttabréfinu er hins vegar
gefin allt önnur skýring á því að
Guðrún Agnarsdóttir hættir ekki
í haust. Þar segir: „Vegna anna get-
ur Guðrún Halldórsdóttir ekki
tekið við af Guðrúnu Agnarsdóttur
fyrr en í fyrsta lagi eftir næstu ára-
mót.“...
Íandssamband fatiaðra, Sjálfs-
björg, hefur ráðið nýjan fram-
kvæmdastjóra sem tekur væntan-
lega til starfa 1. október nk. Hann
heitir Tryggvi Friðjónsson og er
deildarstjóri fjármáladeildar fé-
lagsmálaráðuneytisins ...
I kjölfar þess, að samkomulag
hefur náðst um æðstu stjóra í ís-
landsbankanum nýja, hafa opin-
berar vangaveltur um aðra helstu
yfirmenn hins sameinaða banka
þegar hafist af fullum krafti. Heim-
ildum ber saman um að Útvegs-
bankahópurinn muni fara einna
lakast út úr þeim skiptum. Heimildir
okkar telja aðeins þrjá núverandi yf-
irmenn í Útvegsbankanum eiga
von á samskonar stöðum í nýja sam-
einaða bankanum. Nöfn tveggja
þeirra eru Jakob Ármannsson að-
stoðarbankastjóri og Guðmundur
Gíslason, yfirmaður erlendra við-
skipta bankans .. .
ii
^^^tanrikisraðherra, Jon Bald-
vin Hannibalsson, hélt kvöldverð-
arboð á ísafirði til heiðurs kolleg-
um sínum frá hinum Norðurlöndun-
um. Hófst veislan á því að hann hélt
ræðu, en á eftir tók Helgi Ágústs-
son í utanríkisráðuneytinu til
máls og lýsti dagskrá næsta dags.
Sagði hann m.a. að farið yrði út í
Vigur, sem væri lítil eyja í ísafjarð-
ardjúpi. Kallaði ráðherrann þá fram
í og sagði að Vigur væri stór eyja.
Ekki lét Helgi þessa leiðréttingu slá
sig út af laginu, heldur sneri sér að
Jóni og sagði að bragði: „Yes, minist-
er!“ (Já, ráðherra!) Og veislugestir
hlógu dátt...
n
ýverið var ráðinn markaðs-
stjóri að auglýsingastofunni Góðu
fólki, sem rekin er undir sama hatti
og Auglýsingastofa Ólafs Stepb-
hensen. Það er Magnús Pálsson
viðskiptafræðingur, sem ráðinn var
í stöðuna ...
1%,
ýr auglýsingastjóri hefur ver-
ið ráðinn að Vikunni. Er það Her-
dís Karlsdóttir, sem áður starfaði
við Sjónvarpsvísinn fyrir Stöð 2.
Undanfarin ár hefur Ingvar
Sveinsson, fyrrum forstjóri SAAB-
umboðsins, gegnt þessari stöðu, en
nú hefur fjölskylda hans fest kaup á
Viðskiptahandbókinni og mun
hann ráðast þar til starfa ...
£g
vBra fundi bankastjóra Lands-
bankans með útibússtjórum af
landinu nýlega var sérstaklega
brýnt fyrir þeim síðarnefndu, að
draga úr útlánum eins og hægt
væri... sem sagt segja nei og aftur
nei við kúnnana. Á fundinum munu
útibússtjórarnir margir hinsvegar
ekki hafa legið á þeirri skoðun sinni,
að æðsta stjórn Landsbankans væri
komin harla fjarri fólkinu í landinu.
Reglur í höfuðstöðvunum í Reykja-
vík yrðu að vera í einhverju sam-
ræmi við raunveruleikann í landinu.
í þessari sameiginlegu Reykjavíkur-
dvöl útibússtjóra Landsbankans
reyndu þeir líka að ræða við starfs-
mannastjórann, Ara Guðmunds-
son. Afstaða hans til málanna þótti
að sögn útibússtjóranna koma vel
fram í því, aö starfsmannastjórinn
gekk snúðugt af fundi útibússtjór-
anna löngu áður en þeir höfðu kom-
ið sjónarmiðum sínum á fram-
færi...
AFMÆLISUTGAFA
AUKABUNAÐUR FYRIR KR. 35.000 - OKEYPIS
í tilefni 35 ára afmælis BIFREIÐA & LANDBÚNAÐAR-
VÉLA, gefur fyrirtækiö nú aukabúnaö aö verömæti kr.
35.000, með hverjum 5 dyra Lada Samara 1300.
Opið kl. 10-14 laugardag.
Aukabúnaöur: Stereo útvarps- og segulbandstæki,
__ hátalarar, límrendur á hliðar,
Allt þetta ókeypis í
afmælisútgáfunni.
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR HF
Armula 13 - 108 Reykjavík - s* 681200