Pressan - 21.09.1989, Síða 13
Fimmtudagur 21. sept. 1989
13
ALLT FYRIR
Frægir leikarar fá stundum
hlutverk með bví skilyrði að þeir
grennist eða titni um tugi kílóa á
stuttum tíma.
ÞYTT OG ENDURSAGT: JÓNINA LEÓSDÓTTIR
Flestum þykir nógu erfitt að grennast um örfá
kíló áður en farið er í frí, en leikarar verða oft
að missa tugi kílóa (eða bæta þeim á sig!) fyrir
ákveðna dagsetningu til að fá eftirsótt kvik-
myndahlutverk. Hvernig skyldu þeir fara að
því?
Margir heimsþekktir kvikmyndaleikarar hafa
orðið að uppfylla þau skilyrði að grennast eða
fitna um fjöldamörg kíló til að hreppa spennandi
hlutverk. Og þeir fá ekki alltaf ýkja langan tíma
til þess að gjörbreyta líkamanum. En hvað gera
menn ekki fyrir frægðina — eða dollarana!?
Breski ieikarinn Bob Hoskins þurfti t.d. ný-
verið að léttast um tíu kíló á tveimur vikum og
þó ótrúlegt megi virðast tókst honum það. Bob
naut aðstoðar læknis við þetta þrekvirki, sem
hann varð að framkvæma vegna hlutverks í
myndinni Heart Condition. Þar leikur hann
veikan mann, sem gengst undir hjartauppskurð,
og slíkur náungi má ekki veltast um í spiki. Leik-
arinn varð því að hætta öllu hamborgaraáti og
áfengisdrykkju og byrja daginn á skokki á fast-
andi maga. Hann kvaldist líka einhver ósköp á
meðan á þessu stóð, en hugsaði bara um hlut-
verkið góða og lét sig hafa þjáningarnar. Og sér
til aðstoðar hafði Bob sérstakan þjálfara, sem
dró hann út úr rúminu við fyrsta hanagal, svo
það var engin miskunn hjá Magnúsi. í morgun-
verð fékk hann eggjahvíturíka máltíð, en síðan
eingöngu ávexti og grænmeti það sem eftir var
dagsins. Eina áfengið sem hann mátti innbyrða
var hvítvínsglas að kvöldlagi.
Fastaði eins og Gandhi
Sumar stórstjörnur snúa sér til frægu og ríku
megrunarlæknanna í Harley Street í London,
þegar þær verða að umbylta líkama sínum á
stuttum tíma. Einn þeirra fyrirskipar eftirfarandi
fæði:
Egg, fiskur, kjöt, appelsínur, mandarinur,
greipaldin og sítrónur og einungis fimm glös af
vökva á dag. Eitt af þeim glösum má innihalda
áfengi, en viðkomandi má drekka eins mikið og
hann getur í sig látið af ferskum safa úr framan-
töldum ávöxtum.
Ónefnd leikkona missti 14 kíló á hálfum
mánuði með því að fara eftir þessum lista, en
það er.mun meira en álitið er hollt. Hún gerði
líka erfiðar líkamsæfingar til að flýta fyrir
grenningunni, þó ekki sé heldur skynsamlegt að
taka slíkt of skarpt.
Ben Kingsley hefur tvisvar orðið að missa
tíu kíló vegna kvikmyndahlutverks. Fyrst þeg-
ar hann lék Gandhi og síðan þegar honum
bauðst hlutverk nasista-veiðarans Símons
Wiesenthai. Svo þetta mætti takast þurfti Ben
m.a. að sleppa því að fá sér vín á kvöldin og það
þótti honum verulega erfitt. Hann er hins vegar
leikari af lífi og sál og þess vegna fastaði hann al-
gjörlega fyrir tökurnar á föstu-atriðunum í
myndinni um Gandhi — bæði til að grennast og
til þess að lifa sig inn í hlutverkið.
Meryl Streep öfganna á
milli
Hinn ungi og efnilegi Nigel Havers svelti sig
líka fyrir hlutverk læknisins i mynd Spielbergs
Empire of the Sun. Hann hljóp marga kíló-
Það kemur líka fyrir að leikarar
Lynn Redgrave varð þekkt sem
hin þybbna Georgy Girl, en nú er
hún orðin mjó og fær því annars
konar hlutverk.
metra á degi hverjum og snæddi eggjahvíturíka
fæðu, en segir raunar að sér hafi hvað eftir ann-
að legið við yfirliði á meðan á megruninni stóð.
En Meryl Streep hefur bæði reynslu aí því að
grenna sig og fita vegna spennandi kvikmynda-
hlutverka, enda er hún þekkt fyrir að taka vinn-
una alvarlega. Hún hefur ávallt verið fremur
grönn, en þegar hún lék í fangabúðaatriðunum
í Sophie’s Choice var hún nánast eins og beina-
grind. Sagt er að fyrir tökurnar hafi Meryl ekki
borðað fasta fæðu í þrjár vikur, heldur lifað
eingöngu á Riesling-hvítvíni. Haft er eftir henni
að á þessu tímabili hafi hún verið „hamingju-
söm, drukkin og sífellt að grennast".
Dæmið snerist við, þegar Meryl fékk hlutverk
áströlsku móðurinnar í myndinni A Cry in the
Dark, sem sýnd var á íslandi í sumarbyrjun. Þá
varð hún að bæta á sig fimmtán kílóum og
gerði hún að eigin sögn með því að „borða eins
og svín". Hún borðaði margar máltíðir á dag, að-
alléga rifja- og nautasteik og pylsur.
Sírópspönnukökur og sjö
móltíðir á dag '
Flestir ættu eflaust auðveldara með að bæta
við sig nokkrum kílóum en að losa sig við þau.
En það eru fáir í þeirri aðstöðu að fá milljónatugi
greidda fyrir vikið. Það fékk stórleikarinn Ro-
bert De Niro hins vegar í tvígang, vegna kvik-
myndanna Raging Buli og The Untouchabl-
es. Þegar hann fékk hlutverk boxarans Jake La
Motta í Raging Bull stundaði hann fyrst líkams-
rækt af miklum krafti í heilt ár. Þá var fyrri hluti
myndarinnar tekinn og síðan gert hlé á meðan
Robert fitaði sig um nær 30 kíló.
Robert De Niro hafði alltaf þráð að geta borð-
að ótakmarkað og hélt að nú yrði lífið eins og
stöðug jólahátíð. En sú varð aldeilis ekki raunin,
því að endingu varð hann alveg uppgefinn á öllu
þessu áti. Honum datt þó aldrei í
hug að gefast upp og eftir fjóra
mánuði var byrjað að taka seinni
hluta kvikmyndarinnar. En hvernig
fór Robert að þessu? Jú, hann hóf
daginn á því að borða pönnukökur
löðrandi í sírópi og síðan sjö máltíðir
fram að háttatíma, ásamt áfengi og
öðrum fitandi drykkjum.
Leikarinn tók fitunina reyndar
svo alvarlega að á endanum grát-
báðu bæði læknirinn og leikstjórinn
hann að hætta. Það er nefnilega síð-
ur en svo gott fyrir heilsu fólks, þeg-
ar líkamsþyngdin breytist svona
fljótt.
Stallone setti
Travolta i megrun
Margir leikarar í Bandaríkjunum
njóta aðstoðar sérfræðinga í líkams-
rækt við að halda sér í góðri þjálfun
og koma í veg fyrir að fitulagið verði
of þykkt. Glenn Close var t.d. undir
handleiðslu heilsuræktarfrömuðar-
ins Chris Meade áður en hún lék í
Fatal Attraction. Hann lét hana
lyfta lóðum, hlaupa kílómetra eftir
kílómetra, sippa og æfa sig í líkams-
ræktartækjum af fullkomnustu
gerð. Enda var Glenn „í góðu
formi", eins og sagt er.
Priscilla Presley og Harrison
Ford nota þjálfara í Hollywood, sem
heitir Jake Steinfield. Hann kemur
heim til viðskiptavina sinna og þjálf-
ar þá þar, en í lokin kíkir hann í ís-
skápinn hjá þeim og fjarlægir allt fit-
andi sykursull.
Sumir leikarar fela líka leikstjór-
anum umsjón með líkamsræktinni.
Þaö gerði John Travolta, þegar
hann fékk hlutverkið í myndinni
Staying Alive. Leikstjórinn var
auðvitað enginn annar en Sylvest-
er Stallone og hann útbjó matar-
og þjálfunarlista fyrir John. Þeir
höfðu hins vega’r nægan tíma, svo
leikarinn fékk fjóra mánuði til að
léttast um tíu kíló fyrir kvikmynda-
tökuna.
Matseðillinn, sem Travolta fór eft-
ir, var svohljóðandi: Kjöt, fiskur,
kjúklingur eða kalkúni með hrásal-
ati og ferskir ávextir á eftir. Þessu
var skolað niður með ávaxtasafa,
sódavatni eða sérstökum vítamín-
drykk. En leikarinn varð einnig að
taka inn bætiefni: fjölvítamín, stein-
efni, sink og hveitiklíðstöflur. Og
það þýddi ekkert að svindla, því
einu sinni í viku varð hann að fljúga
til Los Angeles, fara úr fötunum og
leyfa Stallone að sjá hvernig megr-
uninni miðaði.
Ef brjóstin á þér
stækka. . .