Pressan - 21.09.1989, Síða 24

Pressan - 21.09.1989, Síða 24
24 r/v-r i— - i iuc£buírnr Fimmtudagur 21. sept. 1989 Leikkonan Shelley Winters opinberar einkamál sín ELSKHUGAR i KIPPUM Út er komið annað bindi endurminn- inga kvikmyndaleikkonunnar Shelley Winters og þykir hún aldeilis ótrúlega opinská um einkaliff sitt — þ.e.a.s. fjölda ástarsambanda við ffræga menn. EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR Kvikmyndahúsagestir undir fer- tugu eiga ef til vill erfitt með að skilja að Shelley Winters hafi lent í mörgum ástarævintýrum. Síðustu áratugi hefur hún vaggað um hvíta tjaldið í móður- og ömmulegum hlutverkum, íklædd víðum kjólum eða beinsniðnum mussum. Hún hef- ur átt við verulegt offituvandamál að stríða og þrátt fyrir heiðarlegar megrunartilraunir tekst henni ekki að halda sér grannri. í fyrra missti hún t.d. 25 kíió, en fitnaði strax aftur um 26! En þó Shelley sé orðin 66 ára gömul og „línurnar" ekkert til að hrópa húrra fyrir, þá var hún heil- mikill kroppur, þegar hún var upp á sitt besta. Sjarmörar þess tíma voru heillaðir af henni og hún hafði ekk- ert á móti því að stofna til náinna kynna við huggulega herra, bæði þekkta og óþekkta. Sem dæmi um ástmenn Shelley má m.a. nefna Se- an Connery, Albert Finney, Marl- on Brando, Burt Lancaster, Errol Flynn og Ijóðskáldið Dylan Thom- as. Öllu þessu segir leikkonan frá í endurminningum sínum og skamm- ast sín ekkert fyrir að brjóta hin óskráðu lög um að það sé í lagi að karlar monti sig af ástarsambönd- um, en ekki konur. Hún viðurkennir t.d. að hafa fallið flöt fyrir tveimur tegundum karlmanna. Mönnum með mömmukomplex og dökkum ítölskum „týpum", en hún giftist tveimur af síðarnefndu gerðinni. Shelley segist þó þrátt fyrir allt hafa verið fremur siðprúð, miðað við hvernig nútímastúlkur hegða sér. Og hún hlífir lesendum við opin- skáum lýsingum af líkamiegum þætti ástarsambandanna. Hún segir t.d. frá nótt, sem hún átti með Sean Connery í óupphitaðri íbúð í Lond- on, þegar hann var gjörsamlega óþekktur, en hún orðin Holly- wood-stjarna. Frásögnin endar á því að þarna hafi auðvitað verið jökul- kalt og að lesendur hljóti að geta Þegar Shelley Winters leit svona út átti hún ekki í vandræöum meö aö heilla karlmenn upp úr skónum. ímyndað sér hvernig hún hélt á sér hita! Hún bætir við að Sean hafi ver- ið staurblankur og fengið lánaða peninga hjá henni, sem hann hafi endurgreitt eftir að hann varð sjálf- ur frægur. Og vextina af láninu borgaði hann með því að gefa henni minkapels. Shelley fer ögn nánar út í sam- band sitt við Marlon Brando og seg- ist gefa honum einn af tíu möguleg- um í einkunn. Hann varð mjög sár, þegar hann las þetta, en leikkonan reyndi að hughreysta hann með því að barnsfaðir hennar hefði líka fengið einkunnina einn — hvort sem það hefur nú róað Brando eður ei. Þess má að lokum geta að Shelley segir reyndar líka frá nokkrum sjar- mörum, sem hún svaf ekki hjá. Einn þeiTra var John F. Kennedy Bandaríkjaforseti, en leikkonan lagði sitt af mörkum í kosningabar- áttu hans. Svo segir hún að sir Lawrence Olivier hafi sent sér skilaboð á þekktum veitingastað með því að láta þau fljóta yfir laug, sem var í borðsalnum. „Hann var æðislegur, en það hittist aldrei þannig á að við værum bæði maka- eða elskhugalaus á sama tímabili." kynliffsdálkurinn Bréf til kynlífsdálksins má skrifa undir dulnefni. Utanáskriftin er: PRESSAN— kynlífsdálkurinn, Ár- múla 36, 108 Reykjavík. SKIPULÖGÐ ÓREIÐA Mér datt ekki í hug betur viðeig- andi titill á pistlinum í dag, einfald- lega vegna þess að í heilbrigðis- þjónustunni ríkir slíkt ástand á sviði kynlífsráðgjafar. Það sem fékk mig til að taka það mál upp í kynlífsdálkinum var símtal sem ég fékk fyrir skömmu. í símanum var karlmaður utan af landi sem sagð- ist hafa farið til heimilislæknis síns út af kynlífsvandamáli, „en hann kom af fjöllum, þegar ég spurði hvort eitthvað væri hægt að gera“. Hver gerir hvaö? í þessu tilviki vissi heimilislækn- irinn ekki hvert hann gat vísað manninum. Þetta er alls ekki eins- dæmi. Á sviði kynlífsráðgjafar og -fræðslu vísar hver á annan í heil- brigðiskerfinu, í von um að sá næsti geti bjargað málunum. Þessi aðferð væri miklu betri ef heil- brigðisstarfsmenn, eins og þessi heimilislæknir utan af landi, hefðu undir höndum einhvern lista yfir þá sem hægt er að leita til — jafnt utan heilbrigðisstétta sem innan — ef skjólstæðinga vantar upplýs- ingar um kynlíf eða ef vandi steðj- ar að. Á íslandi starfa margir hæfir ein- staklingar í ýmsum félagasamtök- um sem geta boðið fram-þekkingu sína, stuðning og ráðgjöf í kyn- ferðismálum. Til dæmis fólk sem starfar við hjónaráðgjöf, meðferð kynlífsvandamála, greiningu ým- issa sjúkdóma og alnæmisráðgjöf. Einnig eru starfandi ýmsir hópar svo sem stuðningshópur þolenda sifjaspella, Samhjálp, kynfræðslu- deild Heilsuverndarstöðvar Hvaö á ég aö gera? Hér eru nokkur sýnishorn af því sem fólk hefur áhyggjur af: Móðir nítján ára stúlku: „Hvað á ég að gera? Hún sagði mér í gær að hún væri gengin í Samtökin 78.“ Ung kona: „Ég ætla að hætta á lykkj- unni og vil vita hvenær örugga tímabilið er.“ Karlmaður: „Konan mín hefur engan áhuga á samlífi og mér stendur ekki." Ungur strák- ur: „Hvar eru kyntólaverslanir til húsa í bænum?" Fertugur karl- maður: „Er eitthvað hægt að gera við of litlu tippi?" Unglingur: „Er eðlilegt að strákar rúnki sér? Er eðlilegt að strákar geri það meira en stelpur?" Karl: „Eg er hræddur um að hafa smitast af eyðni." Ung- ur maður: „Ég held, að ég sé með Reykjavíkur, Samtökin 78, Kyn- fræðifélag íslands, SÁÁ og mörg önnur samtök. En þessir aðilar, og þá sérstaklega þeir sem starfa inn- an heilbrigðisstéttanna, virðast hafa afar litla hugmynd hver um annars tilveru hvað snertir með- ferð kynlífsvandamála og upplýs- ingar um kynlíf. Og það virðist sem enginn leggi sig í líma við að kynna sérsvið sitt eða efla sam-s starf við aðra. „Kynlífsráögjöfin, góöan daginn' Það er einnig eins og það vanti einhvers konar upplýsingamid- stöd eda rádgjafarstöd sem býður upp á bestu þjónustu sem völ er á í þessum efnum. Vísir að opinberri kynlífsráðgjöf var eitt sinn til húsa í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, en nú er búið að leggja starfsem- ina niður. Þeir sem koma nálægt kynlífsráðgjöf og -fræðslu í dag á vegum hins opinbera eru allir af vilja gerðir til að bæta þessi mál, en viljinn er lamaður vegna skiln- ingsleysis yfirvalda. Annað sem vegur þungt í þessum efnum er lít- ið sem ekkert skyldunám í kynlífs- ráðgjöf og meðferð kynlífsvanda- mála í námi heilbrigðisstétta. En er þörf á ein hvers konar sam- hæfingu allra áðurnefndra bjarg- ráða, þegar skjólstæðingar leita sér aðstoðar? TVÍMÆLALAUST. Spurningar þær og áhyggjur sem fólk hefur í kynlífi eru bæði marg- ar og flóknar. kynsjúkdóm. Hver á ég að leita?“ Karlmaður: „Ég hef mikinn áhuga á kynlífi, en konan mín engan. Þetta eru hreinustu vandræði. Hvað er hægt að gera?" Kona úti á landi. „Ég er nýbyrjuð í sambúð með manni sem drekkur svolítið og á í erfiðleikum með stinningu og sáðlát." Kona á sjötugsaldri: „Karlinn minn hefur aldrei veitt mér fullnægingu." Karl: „Hvaða kynörvandi efni eru best?“ Nemi: „Áttu efni um Herpes-sjúkdóm- inn?“ Hjúkrunarfræðingur: „Er til eitthvað af viti um breytingaskeið karla?" Ég held að þessi romsa ætti að sannfæra hvern þann, sem er í vafa um hvort fólk á íslandi þurfi á. fræðslu eða kynlífsráðgjöf að halda. Stórar spurningar sitja samt eftir og er enn ósvarað: Hver á að veita þessa fræðslu? Hvað segir löggjöfin? Hvað hefur verið gert? Hvað er á döfinni hjá hinu opin- bera, t.d. í heilbrigðiskerfinu? JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR KYNFRÆÐINGUR

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.