Pressan - 21.09.1989, Side 28
28
A
^^inn af toppmönnum Sam-
bandsins, Kjartan P. Kjartans-
son, framkvæmdastjóri fjárhags-
deildar, fékk sig fullsaddan í sumar
og sagði upp störfum. Kjartan
kvaddi aöeins nánasta samstarfs-
fólk og skilaði bíl sem hann hafði frá
fyrirtækinu. Þaö þótti ómögulegt að
láta Kjartan fara og gekk maður
undir manns hönd að fá hann til að
taka ákvörðun sína til baka. Hann
varð að lokum við þeirri málaleit-
an. . .
ið látum einn brandara ur
borgarkerfinu fljóta með; Davíð
Oddsson, borgarstjóri Sjálfstæðis-
flokks, var á ferð í Sovétríkjunum
fyrir nokkru og snerist!. . .
(nú kemur þögn og menn setja upp
furðusvip).. .á ökkla....
PRESSU
MOJLAR
I vikunni var gert heyrinkunnugt
að Olafur H. Torfason er næsti rit-
stjóri Þjóðviljans. Aðalmaðurinn á
bak við ráðningu Ólafs er Stein-
grímur J. Sigfússon, ráðherra Al-
þýðubandalagsins. Með þessum
leik þykir Steingrímur styrkja stöðu
sína innan flokksins. Hann mun
hyggja á frekari metorð og víst er að
Olafur Ragnar. Grímsson flokks-
formaður er hvergi óhultur. . .
Í^yrir þrem vikum var rekstri
samtakanna KVIK hætt. KVIK er
samband íslenskra og erlendra höf-
undarréttindahafa á kvikmyndum
og hvortveggja Ríkissjónvarpið
og Stöð 2 voru í samtökunum. A
fundi í ágúst bar Goði Sveinsson,
fulltrúi Stöðvar 2, fram þá ósk að
Stöðin fengi nafn samtakanna á
leigu. Stöð 2 ætlaði undir nafni
KViK að rannsaka notkun þjófa-
lykla og samtengingu myndlykla
Stöðvar 2, ennfremur að kanna
hvers vegna fjöldi manns greiðir
ekki áskriftargjöld Stöðvar 2.
Málaleitan þessari var hafnað og í
framhaldi sagði Stöð 2 sig úr
KVIK. . .
BflÉýtt tímarit hefur litið dagsins
ljós, mitt í harðærinu á blaða- og
auglýsingamarkaðnum. Blaðið heit-
ir Magazín og virðist ætla sér í
harða samkeppni við stóru mánað-
artímaritin, ef draga má ályktun af
efnistökum. í blaðinu er m.a. að
finna opinskátt viðtal við einn nýj-
asta þingmanninn, Ásgeir Hannes
Eiríksson. Ritstjórar blaðsins eru
tveir, þeir Friðrik Jónsson og
Smári Valgeirsson. Smári er
skráður ábyrgðarmaður og mun
Lifeyrissjóðir
ern samtrygging!
Samtrygging felst meðal annars í því að þeir sem njóta örorku-,
maka- eða barnalífeyris fá almennt langtum hærri lífeyri en sem
nemur greiddum iðgjöldum tii viðkomandi lífeyrissjóðs.
Sumir halda hins vegar að lífeyrissjóðir séu eins konar bankabók,
þ.e. iðgjöldin fari inn á sérreikning hvers og eins sjóðfélaga og
greiða skuli lífeyri eins iengi og innistæðan endist - en ekki lengur!
Um 1700 sjóðfélagar með um 400 börn njóta örorku-og barna-
lífeyris hjá SAL-sjóðunum.
Hætt er við að örorku- og barnalífeyrir yrði rýr ef eingöngu ætti
að miða viðgreidd iðgjöld bótaþeganna.
Lífeyrissjóðir eru ekki bara bankabók. Peir eru langtum meira!
Lífeyrissjóðir eru samtrygging sjóðfélaga! Mundu það!
SAMBAND ALMENNRA
IÍFEYRISSJÓÐA
- Samræmd lífeyrisheild
Fimmtudagur 21. sept. 1989
jafnframt vera einn aðstandenda út-
gáfunnar. Magazín mun þegar kom-
ið í dreifingu á sölustaði um allt
land, en eins og fyrri daginn eru það
lesendur sem ákveða framhaldið. . .
n^Éenn eru misjafnlega
ánægðir með sumarið eins og gefur
að skilja. Akureyringar mega vel
við una eftir góðan ferðamanna-
straum þangað og hótelin á Akur-
eyri munu hafa allt að fjórfaldað
veltu sína frá fyrra ári. . .
f
__I yrir skemmstu hélt Alþýðu-
bandalagið ráðstefnu um skóla-
mál, en flokkurinn fer sem kunnugt
er með þann málaflokk í ríkisstjórn-
inni. Á fundinum mun hins vegar
hafa komið fram hörð gagnrýni á
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra frá Braga Guðbrandssyni,
félagsmálastjóra í Kópavogi. Hafði
Bragi ýmislegt að athuga við það
sem ráðherrann er að gera og sak-
aði hann um hræsni og sýndar-
mennsku.. .
CL
ðstoðarmaður Stefáns Val-
geirssonar alþingismanns er
Trausti Þorláksson og hann hefur
verið í fréttum undanfarið. Trausti
var líka í fréttum fyrir þremur árum
því hann var annar tveggja starfs-
manna Brunamálastofnunar sem
jafnframt störfuðu sjálfstætt að eld-
vörnum og ekki voru allir hrifnir af
einkaframtakinu. I frétt Helgar-
póstsins veturinn 1986 segir um
Trausta að hann muni „oft vera
einkabílstjóri Stefáns Valgeirsson-
Þ
að er ekki að ástæðulausu
sem jafnréttisráð beitir sér fyrir því
að fá fleiri konur á framboðslista í
næstu kosningum. I síðustu sveitar-
stjórnarkosningum voru 3.853 ein-
staklingar á framboðslistum, þar af
1.374 konur, eða36% á móti 2.393
körlum. Til sveitarstjórna náðu kjöri
226 konur eða 16% kvenframbjóð-
enda en 25% karlframbjóðenda.
Af sveitarstjórnarfulltrúum á land-
inu öllu eru konur nítján af hundr-
aði og í áttatíu og einu sveitarfé-
lagi af 222 er engin kona í sveitar-
stjórn. ..
c
^^ífellt fréttist af fleiri væntanleg-
um jólabókum. Nýjustu fregnir
herma að Bókaútgáfan Bjartur
hyggist gefa út bókina Sveitasælu
eftir Fay Weldon, sem skrifaði m.a.
Praxis og Ævi og ástir kvendjöf-
uls. Einnig gefur þetta nýja forlag út
Dúfuna, en það er nýjasta bók
Patricks Sússkind, sem skrifaði
Iiminn. . .
II •
siðustu helgi safnaði
Áhugahópur um bætta umferð-
armenningu peningum til hús-
byggingar fyrir mænuskaddaða, en
þann 13. október verður þjóðin
aftur minnt á húsnæðisvanda fatl-
aðra. Þá ætla Landssamtökin
Þroskahjálp að efna til kröfugöngu
frá Hlemmi og niður að Alþingi og
halda þar útifund. Umræðuefnið
verður hvað stjórnvöld ætli að gera
varðandi lausn á húsnæðismálum
fatlaðs fólks á íslandi...
eitingastaðir hafa skipt ört
um eigendur upp á síðkastið, enda
margir sem þreifa fyrir sér í slíkum
rekstri án nokkurrar reynslu eða
þekkingar. Veitingastaðurinn Pott-
urinn og pannan í Brautarholti,
sem verið hefur einn af vinsælli og
ódýrari veitingastöðunum síðustu
ár, skipti um eigendur um síðustu
helgi. Tveir ungir matreiðslumenn
keyptu staðinn, þeir Guðmundur
Viðarsson og Stefán Stefánsson.
Þeir hafa báðir starfað sem mat-
reiðslumenn í Múlakaffi og í Veit-
ingahöllinni. Nú er að sjá hvort
fagmennskan gagnast þeim félög-
um, því þeir taka við af fólki sem rak
staðinn í stuttan tíma og sigldi hon-
um í strand...
A i i i JL Á A & S «
i i i i i i i i I i t i 1 14
TTT77TTT
t f. *■' * í’wíri'i' r