Pressan - 19.10.1989, Qupperneq 29
29
',<fjmmtudagur,19:.okt. 1989
spáin
16.-23. október
(21. murs—20. apríl)
Helgin ætti aö fara sem mest í allslags vinnu
hjá þér, þó svo aö þessi vinna kunni að vera
misskilin af öörum. Ef þú þarft aö selja eitt-
hvað eöa kaupa geröu það þá á föstudaginn.
Foreldrum er bent á að hugsa um þarfir af-
kvaemanna hvað varðar félagslega þjón-
ustu.
(21. upríl- 20. mai)
Naut eru einstaklega rómantísk um þessar
mundir og sjá ekki sólina fyrir henni/honum,
enda fariö aö skyggja. Þetta er svo sem allt
gott og blessaö en um leið og einhverjar
skýjaborgir fara aö myndast er hætta á ferö-
um.
(21. mai—21. júni)
Þaö er ekki viturlegt að nota spariféð i ein-
hvern óþarfa. Láttu slíkt ekki hvarfla að þér.
Og málunum er ekki reddað meö því aö
borga með greiðslukorti. Einbeittu þér aö
innviðunum í staöinn fyrir aö tilbiðja!
Mammon.
(22. júni—22. júti)
Þeir krabbar sem enn búa í heimahúsum en
hafa verið að hugsa sér til hreyfings ættu að
láta verða af hlutunum núna. Það er ekki til
betra tækifæri. Einhley pir krabbar hafa verið
svolitið niðurdregnir upp á síðkastið en nú
horfir til betri vegar með það.
(23. júlí—22. ágúsl)
Fylgstu grannt meö því fólki sem þú vinnur
með og athugaðu framferði þess gagnvart
þér. Þú verður að sýna þolinmæði í því sem
þú ert að gera og ekki taka hlutina með þér
heim úr vinnunni. Það mun einnig gera ásta-
lífið betra.
Æi (23. ágúst—23. sept.)
Of háar væntingar geta leitt af sér vonbrigði
með það sem þú ert að gera. Um leið og þú
verður leið(ur) skaltu hætta í bili og hvíla þig.
Farðu i heimsókn til vinar eða kunningja og
léttu á þér. Þér líður miklu betur á eftir, sann-
aðu til.
(23. sepl.—24. okt.)
Þú lendir í aðstöðu þar sem þú þarft að vera
leiðtogi. í fyrstu veistu ekki hvernig þú átt að
taka þessu en sérð svo fljótlega að þér likar
þetta bara vel. Láttu Ijós þitt skina þvi ekki
færðu of mörg tækifæri til þess.
(24. okt.—22. nóa)
Þú þarft á aðstoð að halda en hún er hvergi
sjáanleg. Mikilvæg ákvörðun liggur i loftinu
og það lítur út fyrir að þú þurfir að taka hana
ein(n) þíns liðs. Þér finnst allir hafa yfirgefið
þig en um að gera; ekki láta hugfallast.
(23. nóv.—21. des.)
Ekki taka neina fjárhagslega áhættu, sama
hve lítil hún er. Ef þú gerir það er líklegt að
helgin verði bara hreinasta hörmung en fín
ef þú gerir eins og stjörnuspáin segir þér.
Þetta þýðir þó ekki aö þú eigir að liggja uppi
í rúmi alla helgina.
(22. des.—20. jan.)
Ekki reyna að þvinga hluti upp á fólk og
reyna aö fá það til að gera eitthvað sem
stríðir gegn samvisku þess. Ráðríki er ekki
gott þegar þaö er ofnotað. Slappaðu því
bara af og safnaðu kröftum fyrir næstu
vinnuviku.
(21. janúar—19. febrúar)
Háskólafólk og námsmenn í þessu merki
ættu að hugsa fram í tímann og skipuleggja
námið. Það er aldrei of vel gert! Fjölskyldu-
fólk ætti að eyða timanum með börnum sín-
um og einhleypir ættu ekki að sitja aðgerð-
arlausir.
(20. febrúar—20. mars)
Metnaður þinn krefst persónulegra fórna.
Þær mega þó ekki verða of miklar. Láttu per-
sónutöfra þína gera það sem þeir geta fyrir
þig og hafðu ekki áhyggjur þó aðrir öfundi
þig-
i framhjáhlaupi
Jón Ólafsson
tónlistarmaður:
„Vissi ekki hvort ég var
Jón Olafsson eðo hestur"
— Hvaða persóna hefur haft
mest éhrif é þig?
„Það eru foreldrar mínir og
Sjöfn nokkur Kjartansdóttir."
— Hvenær varðstu hrædd-
astur ó ævinni?
„Það átti sér stað í Danmörku
íhinniillræmdu Nýhöfn. Þarvor-
um við Bítlavinir staddir á ein-
hverri sóðabúllu (ekki spyrja af
hverju!) og urðum fyrir áreitni
danskra dusilmenna. Þá vissi ég
ekki hvort ég var Jón Ólafsson
eða hestur."
— Hvenær varðstu glaðast-
ur?
„Þegar ég sá dóttur mína,
Sigyn, koma í heiminn með til-
þrifum."
— Hvers gætirðu síst verið
án?
„Súrefnis og membrulaga
flotnálarsplittis á seigfljótandi
öxlum. Dýrari týpunnar auðvit-
að."
— Hvað finnst þér leiðinleg-
ast að gera?
„Bíða eftir hinum óstundvísu.
Nú að hengja upp þvott hefur
ekki nálgast mig að ráði í gegn-
um tíðina."
— Hvað fer mest í taugarnar
á þér?
„Vondir útvarpsmenn, þröng-
sýni og óstundvísi."
— Manstu eftir neyðarlegri
stöðu sem þú hefur lent í?
„Já, þegar ég gleymdi einu
sinni að taka skiptimiða árið
1976."
— Ef þú værir ekki í núver-
andi starfi, við hvað vildirðu
helst vinna?
„Eg myndi vilja vera bifvéla-
virki. Ekki spurning."
— Áttu þér leyndan draum?
„Já."
H.S.G. og D.G.,
Fjölb rautaskólanum
í Breiðholti.
lófalestur
draumar
í þessari viku:
Tótó
(karl, fæddur 6.9. 1967)
Þessi maður virðist hafa verið
frekar lokaður persónuleiki á
barns- og unglingsárum og ef-
laust hefur hann líka skort sjálfs-
traust. Hann verður mjög raunsær
og jarðbundinn og ýmis verkleg
vinna gæti hentað honum vel, t.d.
tæknileg vinna eða iðnaðarstarf.
Maðurinn hefur góða einbeiting-
arhæfileika, þegar honum tekst að
hemja óþolinmæðina.
Hann er fremur raunsær í til-
finningamálum og lætur skyn-
semina ráða í þeim málaflokki.
Hann hefur tilhneigingu til að of-
keyra sig, en því verður hann að
reyna að hætta þar sem það getur
t.d. farið illa með bakið. Ef þessi
maður fer vel með sig fram að
fimmtugu getur hann orðið mjög
gamall.
Um 35 til 45 ára aldur eru líkur á
bústaðaskiptum og breytingu á
högum hans.
AMY
ENGILBERTS
)
ít
£
Svona gerum við þegar
göngum kirkjugólf. ..
Guðshús eða kirkjur eru nokk-
uð algeng draumtákn. Kirkju-
draumar hafa verið ráðnir á ýmsa
vegu. Þykist maður ganga í kirkju
hefur maður yfirstigið erfiðleika þá
sem maður hefur verið að glíma við
og léttara er framundan. Nema
kirkjan sé bleikmáluð, þá veit
draumurinn á andlátsfregn. Kirkju-
brúðkaup er einnig talið boða dán-
arfregn, vinarmissi. Brúðkaupið
merkir þá að einhver segir skilið
við þétta líf og byr jar annað, eins og
brúðhjón segja skilið við æsku sína
og byrja nýtt lífsmynstur. Ef maður
þykist þekkja annað brúðhjónanna
er mikið atriði að vita nafn hins þvi
þýðing draumsins getur líka byggst
á því, og þarf ekki endilega að vera
feigðardraumur. Að þykjast halda
brúðkaup barna sinna segja sum-
er fyrir því að óskir dreymandans
rætist. Að dreyma sig vera að vinna
húsverk í kirkju, fást við borðbún-
að eða þess háttar boðar heimilis-
hamingju. En dreymi mann kirkju-
garðsvörð er það yfirleitt fyrir
veikindum. Einkum ef hann er
moldugur.
Kirkjugarðurinn getur haft
margræða merkingu. Þyki manni
hann vera gamall og öll leiði gróin
er það góðsviti. Þá er gróið yfir erf-
iðleikana í lífi manns. En ef mikið er
af opnum gröfum og mold má búasi
við vonbrigðum og sorg. Að sjá bát
í kirkjugarði er sagt boða mann-
skaða á sjó. Að sjá sáluhlið (eða
kirkju) brotið er af sumum talið
boða dauða sóknarprestsins eða
einhverjs kirkjunnar manns. Að
dreyma álfakirkju eða álfamessu
segja sumir boða blessun en aðrir
ráða þveröfugt.
Skyldir kirkjudraumunum eru
draumar um krossa. En oftast er
draumur um kross neikvæður og
tengdur dauða, nema þá að dreym-
andinn sé prestur eða vinni önnur
kirkjuleg störf.
Dreymi mann að maður grafi hlut
sem maður á niður í kirkjugarð á
maður e.t.v. ekki langt eftir, einkum
séu það skartgripir. En einnig getur
draumurinn þýtt að dreymandinn
geti ekki gleymt fortíð sinni og sé
henni sífellt tengdur, sérlega ef það
er kirkjugarður æskustöðva hans
sem hann heimsækir. Ég veit um
konu sem dreymdi að hún færi með
hálsmen með silfurhjarta til að grafa
það í kirkjugarðinum á sínum
bernskuslóðum. Hún var alla ævi
mjög tengd heimahögum sínum og
kunni ekki við sig þó hún byggi
lengi annarsstaðar. Silfurhjartað
táknaði tryggð hennar.
Steinunn Eyjólfsdóttir