Pressan


Pressan - 16.11.1989, Qupperneq 19

Pressan - 16.11.1989, Qupperneq 19
Fimmtudagur 16. nóv. 1989 19 Guðmundur Thoroddsen listmálari sýn MYNDIRNAR ERU ÆVINTÝRI Boulevard de Charonne er ósköp hversdagsleg gata í París. En húsið nr. 190 er dálítið ólíkt hinum húsun- um við götuna. Þegar gengið er inn í húsagarð blasir við tveggja hæða bygging við enda hans, hvítmáluð, með stórum gluggum, blómapottar standa úti fyrir dyrum. Þegar inn er komið blasir við stór sýningarsalur, bjartur og rúmgdður. Fyrir innan hann er salur þar sem sýnd eru leik- rit og við hliðina á honum danssal- ur. Ur miðjum sainum liggur hring- stigi upp á loft. Þar býr jesúítaprest- urinn faðir Jean sem hér ræður ríkj- um og fær reglu sína og ríkið til að fjármagna þessa menningarmið- stöð. Hann hefur nefnt hana Conflu- ences sem útleggst samruni og hún ber nafn með rentu því hér mætast vissulega menningarstraumar úr ýmsum átturm Þeir koma jafnvel alla leið frá íslandi. Guðmundur Thoroddsen listmálari hélt sýningu á verkum sínum hér í október. Is- lendingar búsettir eða staddir í París fjölmenntu á opnunina og það var glatt á hjalla. Guðni rektor í MR, sem var staddur í París, söng negra- sálma við undirleik listamannsins og Olivier, eiginmaður Eddu Er- lendsdóttur píanóleikara, lék tangó á bandóneón af mikilli snilld. Fréttaritari Pressunnar kom að máli við listamanninn daginn áður en sýningunni lauk í október. Hinar litríku og líflegu myndir hans tóku sig vel út í mildri haustbirtunni í þessum viðkunnanlega sýningarsal og hann sjálfur var glaður og reifur að vanda. — Hér eru fjögur olíumálverk. Er þetta ný tœkni sem þú notar hér í olíumálverkunum Gudmundur? „Já, það má kannski segja það. Ég byrjaði á þvi í vetur að gera svona útklipptar myndir. Ég komst í svo góða vinnustofu þar sem var nóg EFTIR GUÐRÚNU FINNBOGADÓTTUR pláss og ég komst líka í heilmikið af ýmiss konar byggingarefni; texplöt- um, gólfdúk og öðru byggingarefni. Ég klippi þetta út, lími á léreftið og svo mála ég yfir með olíulitum. Það sem ég er að fást við núna er allt saman meira eða minna ævintýri. Ævintýri og ferðalög í huganum og allt byrjar og endar á sjónum. Hann er grunntónninn í öllu sem ég geri. Hann er kannski ekki alltaf sýnileg- ur en hann er hér alls staðar, undir og yfir og allt um kring. Þetta er ekki raunveruleikinn. Ég nota bara „elementin" sem eru fyrir hendi og bý til úr þeim mitt eigið ævintýri. Sjávarævintýrið mitt." — Ertu nýfarinn ad mála olíumál- verk? „Nei, ég hef tekið olíusyrpu áður. Ég tók eina árið 1983 og sýndi þá í Nýlistasafninu tíu olíumálverk. En síðan hef ég ekki snert á olíu þar til núna í vetur. Ég hef líka verið í akrýl svolítið inn á milli en ég sé, þegar ég tek til við olíuna aftur, hvað hún gef- ur miklu meiri möguleika. Það er erfiðara að fást við hana en maður nær meiri dýpt með henni. Ef næg þolinmæði er fyrir hendi nær mað- ur að iokum betri árangri." — Vatnslitamyndir eru miklu fleiri hér, eöa 15 alls. Hefuröu fengist meira vid vatnslitina Gudmundur? „Já, reyndar. Ég hélt fyrstu sýn- inguna á vatnslitamyndum 1986. Þessi sýning er mín þriðja hér í Frakklandi. Ég hef tekið þátt í sam- sýningum í Bordeaux og París." — I vatnslitamyndunum er mikid um tákn. Eru þetta ný áhrif? „Þessi myndasyrpa hérna er unn-’ in að nokkru leyti upp úr bók sem 'mér var gefin af íslenskum presti sem sagðist sjá mörg kristileg tákn í myndunum mínum. Hann sendi mér bók um kristileg tákn í miðalda- myndum og ég vann heilmikið úr henni. Reyndar er það ekki úthugs- að eða reiknað fyrirfram heldur nota ég táknin meira ómeðvitað til að fá fram spennu í myndina." — Ertu trúadur? „Nei, ég er ekki beint trúaður. Ég er ekki kristinn maður. Mér finnst gaman að vita af kristinni trú í kringum mig, að það skuli vera til fólk sem tekur þetta alvarlega. Þetta er falleg kenning og mannbætandi. Nú er eiginlega hvergi friður nema í kirkjum. Það var reynt að tæla unglingana inn í kirkjurnar með poppi en það misheppnaðist gjör- samlega. Maður fer í kirkju til þess að hugsunin komist á æðra stig og losna við skrum og mengun. Ég fer oft inn í Notre Dame og verð þar fyr- ir áhrifum. Ég fer líka oft í yfirgefnar kirkjur á íslandi og mér er minnis- stæð gömul kirkja í Furufirði á Ströndum. Það er magnaður staður. Mér finnst líka stórkostlegt að skoða kirkjur og klaustur á Spáni þar sem munkarnir lifa enn eins og á miðöld- um.“ — Hvaö hyggstu fyrir í framtíö- inni? „Ég og Elísabet, konan mín, bú- um núna á Isafirði og þar málaði ég þessar myndir. En okkur dreymir um að geta verið nokkra mánuði á ári hér í París. Ég bjó í mörg ár í Amsterdam og líka í París svo mað- ur er búinn að vera talsvert á flakki undanfarin ár. Veturinn er erfiður á íslandi. Ég hef mikla þörf fyrir hreyfingu og ég hef ekki enn reynt hvernig er að vera þar lengi um kyrrt. Akjósanlegast væri að vinna hér á veturna en fara svo heim á sumrin. Ég hef alltaf farið heim á sumrin síðan 1981 og get ekki hugs- aQ mér annað. Það er einhver ómót- stæðilegur kraftur sem dregur mig heim." Engirnaglar Minni Gífurlegum fjármunum er árlega varið í endurbætur og viðgerðir, því skulum við nýta okkur ónegldu hjólbarðana og haga akstri eftir aðstæðum. GATNAMÁIASTJÚRINN í REYKJAVÍK SVÍNAKJÖT Vá kjötskrokkar 398,- pr.kg tilbúid pakkað og merkt í frystinn. SVÍNAKÓTILETTUR SVÍNASCHNITZEL SVÍNARIFJASTEIK SVÍNABÓGUR SVÍNAGULLASCH SVÍNAHRYGGUR SVÍNALÆRI 617,- pr.kg 725,- pr.kg 295,- pr.kg 398,- pr.kg 595,- pr.kg 600,- pr.kg 398,- pr.kg ÚRBEINAÐ HANGIKJÖT LÆRI 820,- kr.kg FRAMPARTUR 630,- kr.kg FRÍ ÚRBEINING NAUTAKJÖT lÆ SKROKKAR 499,- pr.kg 14 FRAMPARTAR 374,- pr.kg y4 LÆRI 658,- pr.kg 10 KÍLÓA PAKKNING NAUTAHAKK 500—1000 g í pakka Aðeins 455,- kr.pr.kg TILBÚIÐ í FRYSTINN SENDUM UM LAND ALLT VISA OG EURO ATH. ÚRBEINUM ALLT KJÖT OG GÖNGUM FRÁ í FRYSTINN AÐEINS 45,- kr.pr.kg TILBUIÐ, PAKKAÐ OG MERKT: KJÚKLINGAR 10 í KASSA 535,- kr.pr.kg LAMBASKROKKAR 369,- kr.pr.kg LAMBALÆRI 590,- kr.pr.kg LAMBASLÖG 115,- kr.pr.kg LAMBAFRAMHR. 695,- kr.pr.kg LAMBABÓGAR 395,- kr.pr.kg LAMBALÆRISSNEIÐAR 755,- kr.pr.kg LAMBAKÓTILETTUR 597,- kr.pr.kg ATH. FRÍ ÚRBEINING Rúllupylsur fyrir slög Besta verðið SENDUM HEIM, 200,- kr. gjald OPIÐ FRÁ kl. 9-18.30 FÖSTUDAGA kl. 9—19.00 LAUGARDAGA kl. 9-18 VERIÐ VELKOMIN m :) I) / LANGHOLTSVEGI 113 S-84848

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.