Pressan - 16.11.1989, Síða 23

Pressan - 16.11.1989, Síða 23
Fimmtudagur 16. nóv. 1989 23 ////// Cheeríos — hafragrautur dagsins í dag Með hliðsjón af breyttu mataræði íslendinga undan- farin ór kemur sú spurning óneitanlega upp i hugann, hvort fæðan sem obbinn af þjóðinni neytir nú standist samanburð við þó fæðu sem fyrri kynslóðir ólust upp við, ekki fagurfræðilega eða hvað varðar bragð, heldur fró næringarfræðilegu sjónarmiði. hún sé víða meiri hjá þeim sem borða kjöt heldur en hjá okkur. Við höfum í seinni tíð átt þess kost að ferðast nokkuð um heiminn og hvar sem við komum fær Ágúst hug- myndir að hinum og þessum réttum sem hann svo eldar þegar heim er komið. Við borðum mikið mexí- kanska rétti, austurlenska og svo mætti lengi telja. Við borðum til dæmisspínatböku með sveppasósu, ofnrétti með allskyns baunum og osti yfir, kartöflur, sósur og salöt. Ostfyllta papriku sem velt er upp úr eggi og borin fram með sterkri sósu ásamt öðru meðlæti. Semsagt mjög fjölbreyttur matseðill. Það verður hinsvegar að viður- kennast að þegar kemur að því að fara út að borða hérlendis þá kemur orðið „barbarismi" ósjálfrátt upp í hugann. Það er aðeins einn staður hér í Reykjavík sem býður upp á fjöl- breytt úrval jurtafæðu og það er staðurinn ,,Á næstu grösum". „Við Tjörnina" býður jafnan upp á einn jurtarétt á matseðlinum en þar með er það líka nánast upp talið. Enda er það svo að við föru m ekki kinnroða- laust út að borða með útlendum vin- um okkar sem heimsækja okkur hingað. Þeir einfaldlega hrista höf- uðið yfir því skilningsleysi sem ríkir í garð okkar sem ekki viljum éta dýrin. Ef þetta ástand er borið sam- an við það sem tíðkast í nágranna- löndum okkar þá er þess sums stað- ar krafist að eigi að opna veitinga- stað, þá verði hann að hafa jurtarétti á boðstólum. í Finnlandi er það til dæmis sett sem skilyrði fyrir opnun matsölustaðar að hann hafi upp á að bjóða að minnsta kosti þrjá jurta- rétti! Þegar maður svo biður um grænmetissúpu hér heima er ekki óalgengt að „súpan" sé kjötsoð sem í hefur verið fleygt einhverjum ræf- ilslegum bitum af gulrótum og lauk!“ Þú talar um ferðir á veitinga- hús, langar þig aldrei í bita af safaríkri nautasteik náungans á næsta borði? „Nei, slíkt hvarflar ekki að mér. Þegar þú hefur haft parket á gólfun- um hjá þér í langan tíma þá hvarflar það tæplega að þér að skipta aftur yfir í ómálaðan steininn! Nei ég hef aldrei efast um að ég hafi valið rétt með því að gerast jurtaæta. í dag bókstaflega heyri ég líkamann þakka fyrir hvern bita sem ég læt of- an í mig af þeirri fæðu sem ég veit að er honum fyrir bestu. Á sama hátt heyri ég hann hafna til dæmis einu glasi af Campari, eða meðöl- um, þurfi ég að taka þau. Það er nefnilega nauðsynlegt að taka inn þau efni sem meðölin hreinsa burt úr líkamanum, um leið og þau eru tekin. Annars skapast ójafnvægi í líkamanum og við verðum líkt og malbikuð að innan. Allir nauðsyn- legir gerlar drepast og fleira í þeim dúr. Það má hinsvegar til sanns vegar færa að þó ég hafi byggt fæðuval mitt upp á baunum, grænmeti, mjólk og eggjum og fleiru í þeim dúr undanfarin ár, þá er ég hreint ekkert ,,edrú“. Ég fæ mér til dæmis ein- stöku sinnum fisk, þegar ég fer út að borða, þó það sé mjög sjaldgæft. Ég borða egg, sem má segja að stingi í stúf við „mottóið". Auk þess er það grænmeti, sem okkur er boðið upp á, því miður svo langt frá því að vera hreint og ómengað. Það er baðað í gerviáburði og skordýraeitri. Eplin eru bónuð svo þau séu fín og gljá- andi þegar í verslunina er komið. Appelsínurnar eru sprautaðar með litarefni svo þær séu með réttan lit, og þannig mætti lengi telja. Eina leiðin til að borða algjörlega hreint fæði er að rækta það sjálfur. Það gerum við reyndar lítillega, við ræktum til dæmis Basil til að nota í pastasósurnar okkar og svo erum við svo heppin að vinir okkar búa norður í Bjarnarfirði á Ströndum og þau senda okkur á hverju hausti kassa fullan af lífrænt ræktuðu grænmeti. Jafnvel þó að margt mætti betur fara hérlendis í þessum efnum, það er hvernig búið er að jurtaætum, þá eru góðir hlutir að gerast hér. í því sambandi nægir að nefna grænmet- isborðið í Hagkaup í Kringlunni. Þar er gerð nokkur bragarbót á þeim skorti á fersku grænmeti sem hefur viljað vera ráðandi hér. Þrátt fyrir það veit maður ekkert um það hvað- an þetta grænmeti kemur, né heldur hvernig það er ræktað." Nú fær maður það á tilfinning- una að breyttar fæðuvenjur séu aðeins einn hlekkur í stærri keðju breyttra lífsviðhorfa. Er það svo? „Já, já, það er mikið til í því. Það átti sér stað hálfgerð endurfæðing hjá mér. Ég fór að hlusta á líkamann, ég fór að lesa öðru vísi bækur, hlusta á öðruvísi tónlist og pæla í öðrum hlutum en ég hafði áður gert. Ég þroskaðist að öllum líkindum allt öðruvísi en ég hefði annars gert. Breytt mataræði er í raun byrjun á mjög einbeittri leið til þroska. Ég er sannfærð um að það er réttara að nýta það sem náttúran gefur af sér í formi jurta og annars slíks en að borða dýr. Að rækta ferfætlinga til þess eins drepa þá og borða! Það er líka svolítill tvískinnungur í því að okkur er kennt og við upplifum það að við getum náð tilfinningatengsl- um við hestinn okkar, við kúna okk- ar, kálfinn eða kjúklinginn. Við horf- um jafnvel í augun á viðkomandi dýri og gælum við það. Gefum því okkar blíðustu tilfinningar. Förum síðan inn í eldhús og borðum það! Það þarf heldur enginn að segja mér það að fólk sem borðar til dæm- is kjúklinga sem sprautaðir eru með allskyns lyfjum og hormónum t.d. til að lærin á þeim verði kjötmeiri, borði ekki líka þessi efni sem kjúkl- ingnum hafa verið gefin. Og hvert fara þau efni? Það er hverjum manni hollt að hugleiða þá spurningu. Varðandi lífsvið horfin þá upplifi ég það mjög sterkt að Andinn á auð- velt uppdráttar eftir þá hreinsun sem átt hefur sér stað í líkama mín- um á undanförnum árum og ég vil vita meira og meira, finna betur og betur fyrir mér. Það má líkja breyttu mataræði við tiltekt. Þú tekur til í einu herbergi hússins þíns og þér líður mun betur. Það kallar hins veg- ar á það aö þú takir til í allri íbúð- inni, hverjum krók og kima, og það í sjálfu sér er nokkurs konar eilífðar- verkefni sem gaman er að vinna að. Maður verður að vinna að því að gæða jarðveginn lífi, minnugur þess að það stoðar lítt að sá fræi í klett!" Fyrir þá sem kynnu að hafa fylist forvitni við lestur þessa viðtals birt- um við uppskrift að graskerssúpu sem Kolbrún gaf okkur leyfi til að ljóstra upp. Graskerssúpa: 100 g smjör 1 stór laukur, sneiddur þunnt 500 g grasker, sneitt þunnt 225 g kartöflur, sneiddar þunnt 1 lítri af vatni 250 ml af sýrðum rjóma sjávarsalt og svartur pipar, nýmalaður svolítið engiferduft steikt eða vel ristað heil- hveitibrauð eða kex 1. Hitið smjörið á pönnu og bætið lauknum út í og hrærið þar til hann er orðinn glær — u.þ.b. 4 mín. 2. Bætið graskerinu og kartöflun- um út t og steikið í 4 mín. til við- bótar. Ef ekki tekst að útvega grasker er hægt að notast við ís- lenskar rófur og gulrætur, jafnt af hvoru. Þá getur reyndar reynst nauðsynlegt að þykkja súpuna svolítið með hrísmjöli. 3. Bætið vatninu út í og sjóðið í 30 mín., eða þar til grænmetið er soðið. Hellið í gegnum sigti og setjið síðan grænmetið í „mixer" ásamt svolitlu af soðinu og blandið. 4. Setjið aftur í pottinn, bætið soð- inu út í og hitið upp. Bætið kryddinu út í ásamt sýrða rjóm- anum og berið fram með brauð- inu sem skorið er í litla bita og sett út á súpuna. Afar gott er að strjúka yfir brauðsneiðarnar með hvítlauksrifi sem skorið er til helminga. Bon apétit! Laufey Steingrímsdóttir er nær- ingarfræðingur og starfar nú að könnun sem á að gera á komandi ári. Þessari könnun er ætlað að varpa nokkru Ijósi á neysluvenjur ís- lendinga og verður hægt að lesa úr niðurstöðum hennar hluti eins og hvort búseta, fjárráð, atvinna og fleira þess háttar hafi áhrif á fæðu- val okkar. Tildrögin eru samþykkt sem ríkis- stjórnin gerði síðastliðið vor og studd var með þingsályktunartil- lögu sem samþykkt var á Alþingi stuttu seinna. Samþykkt þessi felur í sér yfirlýsingu um mótun manneld- is- og neyslustefnu íslendinga. Nið- urstöður könnunarinnar verða svo nýttar til mótunar þessarar stefnu meðal annars. Hún verður gerð á vegum heilbrigðisráðuneytisins og það var í húsakynnum þess sem blaðamaður Pressunnar hitti Lauf- eyju að máli í vikunni. Laufey Steingrímsdóttir var fyrst innt eftir því hvort sá matur sem margur nútímamaðurinn lifir að miklu leyti á, svo sem ýmiskonar skyndibitar, jafnt í hádegi sem á kvöldin, og innpakkaður kornmat- ur á morgnana, stæðist samanburð við hafragraut og súrmat, saltkjöt og fisk, mat sem var á flestra borð- um fyrir ekki svo löngu í mun meira mæli en þekkist í dag? „Það er rétt að átta sig á því að fullyrðingar eins og: „Skynciibitar og Cheerios eru óhollt ruslfæði" þurfa alls ekki að vera réttar. Cheeri- os t.d. er frekar hollur matur. Þetta er ristað korn, járn- og vítamínbætt, og þjónar því tilgangi sínum sem morgunmatur ágætlega, sem og margar aðrar tegundir tilbúins morgunverðar, svokallaðs pakka- matar. Með þessu vil ég ekki láta fólk halda að ég sé að reka einhvers konar áróður fyrir þessari ákveðnu tegund, alls ekki. Það að sambærilegur pakkamat- ur skuli heita náttúrulegum nöfn- um, kallast musli-þetta og musli- hitt, þarf heldur ekkert endilega að þýða að þar sé um að ræða ein- hverja óskaplega holla fæðutegund. Þetta byggist á svo mörgu og fólk ætti að huga vel að því hvað það lætur ofan í sig hverju sinni. Til dæmis minnkar hollusta samfara neyslu slíks kornmatar stórlega um leið og farið er að strá sykri yfir allt saman áður en það er borðað. Þegar fólk er að bera saman morgunverð þeirra barna sem nú eru að komast á legg, sem oftar en ekki er úr þeim fæðuflokki sem við erum að tala um, og morgunverð þeirra sem fengu súrmjólk með púðursykri á morgnana, eru mestar líkur á að sá sem borðar ósætan kornmat sé að borða hollari fæðu en sá sem fékk súrmjólkina hér áður fyrr, og fær kannski enn. Mataræðið í dag bygg- ist líka minna á mjólkurmat eins og skyri og súrmjólk, sem aftur verður til þess að sú hægðatregða sem al- gengt var að börn glímdu við hér áður fyrr er nú orðin mun sjaldgæf- ara fyrirbæri en áður var. Fólk einblínir of oft á það hvaða nöfnum maturinn heitir og segir til dæmis að hamborgarar, pizzur og pítur séu allt saman þrælóhollar fæðutegundir. Þetta sama fólk úðar svo kannski í sig hinni margfrægu „kokkteil-sósu sem er í flestum til- fellum það óhollasta sem tengist neyslu á fyrrgreindum tegundum. Þrátt fyrir að ég segi að borgarar, pizzur og pítur þurfi ekki að vera óhollur matur breytir það ekki því að soðinn fiskur með kartöflum er miklu hollari, en með honum er því miður orðið algengt að bera fram ► Laufey Steingrímsdóttir „kokkteil'-sósuna fyrrnefndu. Þessu til staðfestingar má geta þess að í einum dl af kokkteilsósu eru 700 hitaeiningar, eða 'A af orkuþörf full- vaxinnar konu! Ætli manneskja sér til dæmis að fá sér hamborgara og getur valið milli borgara með tómat- sósu og sinnepi annars vegar og kokkteilsósu hins vegar, þá er sá kokkteilsósulausi helmingi orku- minni en hinn. Það er því hægt að borða tvo slíka á móti hverjum ein- um hinsegin, sé orkuþörfin höfð í huga.“ Nú talar þú um tómatsósu, sem í margra huga er þykk sósa, full af litarefnum og öðrum aukefn- um. Er hún samt sem áður svo miklu betri en þessi skaðræðis kokkteilsósa? „Hættan af aukefnum er hverf- andi, borin saman við hættuna af þeim aðskotaefnum sem því miður má í mörgum tilfellum reikna með að við leggjum okkur til munns. Nægir þar að nefna skordýraeitur sem gjarnan er úðað á grænmeti og ávexti, mengun í sjónum og þá sér í lagi í þeim fiskum sem eru ofarlega í fæðukeðjunni, þ.e. lifa á öðrum fiskum, og margfalda því hættuna á mengun. Maðurinn er til dæmis of- arlega í fæðukeðjunni því við borð- um svo mikið af öðrum dýrum, sem oft eru að einhverju leyti mettuð af allskyns mengun. Hérlendis eru mjög ströng ákvæði í gangi varðandi aukefni, en eftirlit- ið með framkvæmd þessara ákvæða er því miður mun lakara. Þó er reynt að fylgjast nokkuð grannt með framleiðslu innlendra fyrirtækja, kannski á kostnað eftir- lits með þeim erlendu. Segja má að neytandinn sé nokkru öruggari með því að kaupa vöru frá þekktum framleiðanda en frá óþekktum, því sá þekkti er oftast nær undir strang- ara eftirliti, og á þar að auki meira undir því að standast þær kröfur sem gerðar eru víðsvegar um heim en sá litli og óþekkti. Oft er bent á að fólk geti haft ofnæmi fyrir hinum og þessum aukefnum og að aðeins beri að framleiða matvæli úr nátt- úrulegum efnum. Þarna er rétt að staldra lítið eitt við og benda á að aukefni eru í mjög mörgum tilfellum náttúruleg. Þetta eru efni unnin úr náttúrunni og efni sem náttúran notar oft á tíðum til álíka brúks og þau eru notuð í mat- vælum okkar mannanna. Það eitt að efni er náttúrulegt þarf hins veg- ar alls ekki að þýða að það sé hollt, samanber eitur eiturslöngunnar. Það efast víst enginn um það að það er náttúrulegt, en þó vildu víst fæst- ir láta blanda mjólkina sína með því! Eldhúsborð og stólar Fjölbreytt úrval af stólum og borðum í eldhúsið. Smíðum borðplötureftirpöntunum í stærðum og litum að vali kaupanda. SMIÐJUVEGI 5 - 200 KÓPAVOGI - SÍMI 43211

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.