Pressan - 16.11.1989, Page 29

Pressan - 16.11.1989, Page 29
Fimmtudagur 16. nóv. 1989 cr 29 spam 16. nóvember—21. nóvember (21. rnurs—20. upril) Þú ert ekki í skapi til aö fara mikið út eða vera með vinum þínum um þessar mundir. Þér mun hinsvegar veitast erfitt að sannfæra þá um þetta. Börn fara hugsanlega í taugarnar á þér, jafnvel einhverskonar gældudýr. Þú ert frekar pirraður, líklegast yfir fjármálum, reyndu að byrja á ákveðnum aögeröum til að kippa þeim í lag, t.d. að skera niður matar- reikninginn með því að gera hagstæðari kaup en áður. (21. upríl—20. rnui) Þú getur komist hjá töluveröum vandræö- um með því aö láta ekki uppi allar fyrirætlan- ir þínar það sem eftir lifir ársins. Það er mögulegt að þú verðir dálítiö einmana í þessari viku þar sem einhver nátengdur þér mun þurfa að hverfa á brott í einhvern tíma. (21. rnui—21. júni) Þessi vika getur reynst afdrifarík. Einhver sem þú rekst á fyrir hreina tilviljun mun hafa veruleg áhrif á framtíð þína, bæði hvað varð- ar hamingju og fjárhagslega velferð. Ekki draga þig í hlé í margmenni, en gættu þess hinsvegar að þetta er ekki vikan til aö reyna um of á líkamann. (22. júni—22. júlí) Þú sökkvir þér niður í verkefni af heilum hug. Verkefnið er unniö í hópvinnu og einhvers- konar afbrýðisemi eða óvild kemur upp inn- an hópsins vegna smálegra atvika sem ger- ast. Þú átt m.a. sök á þessu. Reyndu að temja þér betri siði í samvinnu, þ.e. ef þú vilt halda áfram með verkefnið. Annað gengur ekki. (23. júli—22. útfúsl) Ef þú reynir of mikiö að ná árangri við tiltekið verkefni sem þú vinnur að getur farið svo að árangurinn verði þveröfugur við það sem þú ætlaöir. Þaö er í þessu tilliti mikilvægt að taka ekki ákvarðanir fyrir aðra og þú mátt ekki neyöa þá til aö segja já viö þínum áætl- unum og skoðunum. (23. úífúst—23. sept.) Reiði samstarfsmanns þíns getur hugsan- lega aukist verulega og jafnvel brotist út í hreinu hatri og illvilja. Þú skalt gera allt sem í þínu valdi stendur til að koma þessu í lag, jafnvel biöjast afsökunar á hlutum sem ekki eru nema aö hluta til þér að kenna. Þú mátt búast við að einhver þín leyndarmál veröi ekki lengur leyndarmál þegar vikunni lýkur. (23. sept —24. okt.) Ekki bíða eftir öðrum varöandi frumkvæöi til aðgerða. Taktu sjálfur af skarið og kynntu hugmyndir þínar áður en of langt líður enda er vikan líklegast góð til að hefjast handa viö meiriháttar verkefni. Leitaðu aðstoðar, ef þarf, þeirra sem standa þér næst en ekki sýnast um of hjálpar þurfi. Mlu (24. okt.—22. nóu.) Samstarf við einhvern þér náinn mun veita þér óvenjulega gleði og gera þér gott. Þetta samstarf mun skila þér mun meiru en ef þú stæöir einn aö verkinu. Þú ættir að reyna nýjan veitingastaö eöa fara út á lífiö með einhverju lagi í vikunni, það ætti aö gera þér gott. (23. nóv.—21. des.) Þú verður að taka mikilvægar ákvarðanir í fjármálum. Þaö er mjög mikilvægt fyrir þig að þú gerir þér fulla grein fyrir markmiðum þínum, því án þess hefur þú ekki möguleika á aö taka rétta ákvörðun. Grandskoöaðu alla hugsanlega þætti málsins, án þess gerist ekkert. (22. des.—20. jun.) Nýttu þér þær aðferðir sem þú hefur notað hingaö til meö góöum árangri. Þú þarft aö standa fyrir máli þínu til aö svo verði en þú skalt ekki gefa þinn hlut eftir. Taktu virkan þátt í félagsstarfsemi ellegar einhverju skemmtilegu með vinum og kunningjum. C2k junúur—10. febrúur) Þú skalt taka þig saman í andlitinu og klára verkefni heima fyrir sem hafa beðið lengi. Einvera mun hafa góð áhrif á þig og hreinsa hugann af smámálum sem þú hefur of mikl- ar áhyggjur af. Þaö gagnar ekkert aö velta sér upp úr vandamálunum sýknt og heilagt. (20. febrúur—20. murs) Nú gildir að skipuleggja fremur en fram- kvæma. Vertu viss um að þaö sem þú ætlar að gera sé við hæfi og réttlætanlegt. Kannski hugsarðu of mikið í eina átt, það er mikilvægt aö vera sveigjanlegur því ekkert gengur nákvæmlega eftir, miðað viö áætl- anir. i framhjqhlaupi Ragnhildur Sigurðardóttir handlangari hjá múrara og fyrrverandi íslandsmeistari í golfi •• Orlagavaldurinn Súbarú — Hvaöa persóna hefur haft mest áhrif á þig? „Foreldrar mínir." — Án hvers gætiröu síst ver- ið? „Það er alveg Ijóst að án vina minna gæti ég ekki verið, en hestunum vildi ég ekki sleppa heldur." — Hvaö finnst þér leiöinleg- ast? „Þegar teknar eru af mér myndir." — En skemmtílegast? „Að spila golf og ríða út í góðu veðri." — Hvaö fer mest í taugarnar á þér? „Eigingjarnt og sjálfselskt fólk." — Manstu eftir einhverri ákvörðun sem breytti miklu fyrir þig? „Þegar ég keypti Súbarúinn minn (árg. 79)." — Viö hvaö ertu hrædd? „Að Súbarúinn bili á verstu tímum." — Hvenær hefurðu oröiö glööust á ævinni? „Þegar foreldrar mínir gáfu mér hestinn minn." — Ef þú þyrftir aö skipta um starf, hvaö vildirðu helst taka þér fyrir hendur? „Gerast atvinnugolfleikari, þá gæfist mér meiri tími til að stunda hestana mína, sem sagt þá myndi ég slá tvær flugur í einu höggi." — Áttu þér draum sem þú vilt upplýsa? „Já, að vinna 10 milljónir í happdrætti." lófalestur í þessari viku: „Brynja” (kona, fædd 17.2. 1956.) Þessi kona hefur snemma þurft að standa á eigin fótum og lífsbar- áttan hefur verið henni fremur erfið. Hún á svolítið erfitt með að taka skipunum frá öðrum, fer sínar eigin leiðir, getur verið þrjósk en er oftast raunsæ. Það verða töluverð þáttaskil í einkalífi þessarar konu, þegar hún eru.þ.b. 40 til 45 ára gömul. Ef hún er í hjónabandi eða sambúð gæti þetta tengst högum mannsins hennar á einhvern hátt. Á næstu þremur árum verða einhverjar breytingar á starfi kon- unnar, sem hafa áhrif á fjármálin. Smám saman snýr hún sér meira að tæknilegum sviðum, t.d. tengdum tölvum, og félagsmál- um. Það lítur út fyrir að þessi kona gæti orðið nokkuð gömul og í einkalífinu verða hennar bestu ár á seinni hluta ævinnar. Á þeim tíma gæti henni líka hlotnast ákveðin viðurkenning eða jafnvel frægö. AMY ENGILBERTS draumar Ljósið kemur langt og mjótt, logar á fífustöngum .. . Ljós hefur alltaf verið íslending- um afar þýðingarmikið, bæði í vök- unni og í draumum þeirra. Það er skiljanlegt, svo mjög sem myrkrið bagaði þjóðina á flestum öldum. Við sem nú lifum erum líklega fyrstu ls- lendingarnir sem ekki þurfa að hafa áhyggjur af því hvort ljósmetið — lýsi, tólg og annað sem nærði ljósið, í seinni tíð steinolía — mundi endast allan veturinn. En það er rafmagns- reikningurinn . . . jæja, það er önn- ur saga. Að sjá í draumum sínum ljós eða kveikja ljós i húsi sínu ráða margir fyrir nýju barni í fjölskyldunni. Einkum ef Ijósið logar í svefnher- bergi manns. En þyki manni Ijósið slokkna er hætt við að einhver á heimilinu sé skammlífur. I draumun- um er ljósið oft kertaljós, uppruna- legt ljós. Við höfum ekki enn raf- væðst í draumum okkar. Kerti sem er næstum útbrunnið táknar að einhver á skammt eftir. En sé kertið nýtt og stórt með stilltu og fallegu Ijósi boðar það langa ævi. Ljósum prýtt jólatré getur einnig merkt barn, einkum ef skrautið á trénu bendir til þess — bleikt eða blátt skraut. En jólatré stendur að- eins stuttan tíma, og hætt er við að barnið sem það táknar dvelji ekki lengi í þessum heimi. Einnig getur jólatré verið tákn skammvinnrar hamingju. Mjög skært ljós, sem maður sér ekki hvaðan kemur, þykir ekki gott draumtákn, heldur ekki sólskin. Það er sagt vita á erfiðleika, þýðir líklega að maður eigi að gæta betur að sér, lýsa upp líf sitt svo maður komist einhverntíma út úr vand- ræðunum. Tunglsljós þykir ekki gott að dreyma, nema þá helst ef tunglið er fullt, þá kann það að boða dreym- andanum heppni. En skarðað tungl, rautt eða með einhverju und- arlegu útliti, er vísast fyrir sjóslysum eða hrakningum. Þá er ekki gott að dreyma að maður horfi á sól og að sjá margar sólir á lofti. Það var sagt boða lát jafnmargra manna og sólirnar voru margar. Algengur draumur fyrir slysförum. En að sjá ljós í fjarska sem maður stefnir að eða vísar manni veg í draumnum er fyrir láni. Tákn ljósanna eru mörg og oft torráðin. Að manni sé gefið ljós er góður draumur að flestra dómi. En að slökkva ljós veit á sorg. Ljósið er mjög sterkt og já- kvætt afl sem við skulum umgang- ast með tillitssemi, bæði í vöku og draumi. Hafið sem oftast hjá ykkur lifandi Ijós og ykkur mun lærast að þykja vænt um þau. Steinunn Eyjólfsdóttir

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.