Pressan - 30.11.1989, Blaðsíða 3
og sala íbúðar
Lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða,
sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989.
Hvað eru húsbréf ?
Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar getur fengið
hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir
fasteignaveðbréf, sem kaupandi íbúðarinnar gefur út.
Húsbréf eru verðtryggð og gefin út með föstum vöxtum til 25 ára.
Gengi þeirra er opinberlega skráð daglega.
Húsbréf eru með ríkisábyrgð og undanþegin skatti.
A a \ Umsögn ráðgjafastöðvar er
\: \ skilyrði fyrir tilboði.
Hvemig fer sala íbúðar fram?
Allir kaupendur í húsbréfakerfinu verða að hafa í
höndum skriflega umsögn ráðgjafastöðvar
Húsnæðisstofnunar um greiðslugetu sína og
kaupverð íbúðar, áður en þeir geta gert seljanda
kauptilboð.
O \ Seljandi fær kauptilboð.
- \ Tilvonandi kaupandi sýnir seljanda
umsögn ráðgjafastöðvar og gerir honum kauptilboð
með tilliti til greiðslugetu sinnar skv. umsögninni.
inT\ Tilboði tekið með fyrirvara um
1—skuldabréfaskipti.
Þegar samkomulag hefur náðst um kaupverð,
samþykkir seljandi kauptilboðið með fyrirvara um
skuldabréfaskipti við húsbréfadeild Húsnæðisstofn-
unar. Allt að 65% af kaupverði íbúðarinnar getur
IIÍBE
verið fasteignaveðbréf sem kaupandinn gefur út og
seljandinn fær skipt fyrir húsbréf. Fasteignaveðbréfin
geta verið tvö, ef seljandi þarf að aflétta skuldum
sem kaupandi tekur ekki við, frumbréf og viðauka-
bréf.
Undirbúningur að skuldabréfa-
Skiptum. Þegar seljandi hefur
gengið að tilboði, fer tilvonandi kaupandi fram á
skuldabréfaskipti við húsbréfadeildina.
Afgreiðsla húsbréfadeildar.
Húsbréfadeild metur veðhæfni
íbúðar og matsverð og athugar greiðslugetu
væntanlegs kaupanda. Samþykki hún kaupin,
sendir hún væntanlegum kaupanda fasteignaveð-
bréfið, útgefið á nafni seljanda.
undirritaður -
fasteignaveðbréf afhent
seljanda. íbúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera
með sér kaupsamning og kaupandi afhendir
seljanda fasteignaveðbréfið.
\ Kaupandi lætur þinglýsa
* \ kaupsamningnum.
Seljandi lætur þinglýsa
1 fasteignaveðbréfinu.
1;
y/
- 00
Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að
húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl.
og hafa lánsrétt.
HÚSNÆÐISSTOFNUN
RÍKISINS
DSL
SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK • SÍMI ■ 696900
Seljandi skiptir á fasteigna-
veðbréfi fyrir húsbréf.
Óski seljandi eftir því að fá húsbréf, fær hann
þau afhent hjá húsbréfadeildinni í skiptum fyrir
fasteignaveðbréfið.
Húsnæðisstofnun annast inn-
heimtu fasteignaveðbréfsins
af kaupanda, enda orðinn eigandi þess, þegar hér er
komið.
Seljandi ráðstafar húsbréfunum
að vild. Seljandi getur átt bréfin,
notað þau við íbúðarkaup eða leyst þau út.
Æ