Pressan - 30.11.1989, Blaðsíða 6

Pressan - 30.11.1989, Blaðsíða 6
rs f- 6 skáum hætti glæsilífi starfsmanna utan- ríkisþjónustunnar á árum áður, gífur- legu áfengisvandamáli sínu og stríði í einkalífinu. Hún nafngreinir fjöldann allan af frammámönnum í þjóðfélaginu bæði fyrr og nú og greinir opinskátt frá samskiptum sínum við innlenda sem er- lenda embættis- og stjórnmálamenn. Útkoma þessarar bókar má teljast mjög óvenjuleg fyrir það hve hispurs- lausar lýsingar þar er að finna. Því er haldið fram án þess að PRESSAN hafi fengið það endanlega staðfest að ýmsir hafi hugleitt að fá sett lögbann á bókina. Bókaútgáfan Skjaldborg hf., sem gefur bókina út, lét lögfræðinga gera ná- kvæma skoðun á texta bókarinnar til að fyrirbyggja hugsanleg málaferli. Fjöl- miðlar hafa gert árangurslausar tilraun- ir til að fá vitneskju um sögu Hebu en Fimmtudagur 30. nóv. 1989 mikil leynd hefur hvílt yfir ritun bókar- innar. Þá munu nokkrir aðilar innan ut- anríkisþjónustunnar hafa lagt hart að Hebu að láta söguna ósagða. PRESSAN hefur nú fyrst fjölmiðla fengið nákvæm- ar upplýsingar um innihald þessarar um- deildu bókar og greinum við hér á eftir frá fjölmörgum athyglisverðum upplýs- ingum og sögum sem þar koma fram. EFT/R JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR OG ÓMAR FR/ÐR/KSSON MYND/R: MAGNÚS REYN/R O.FL. Áður en Heba giftist starfaði hún sem flugfreyja og árið 1952 var hún kosin „Blómadrottn- ing". í verðlaun hlaut hún ferð til Norðurlanda, en meðfylgjandi mynd var tekin þegar Heba var stödd i Osló á Blómadrottningar-ferðalaginu. HLERANIR OG „FYLGDAR- MENN" Heba lenti í því í Moskvu að ráðist var á hana úti á götu — að því er viröist vegna þess að hún klæddist síðbuxum, sem ekki þótti viðeigandi í Kússlandi á þeim tíma (1957-58). En yfirvöld létu fylgja sendiráösstarfsmönn- um og ættingjum þeirra eftir hvert sem þeir fóru og komu þessir sovésku „englar” henni til hjálpar. I Moskvu urðu Islending- arnir aö gera ráð fyrir aö allar þeirra vistarverur væru liler- aðar. I’ess vegna fóru Heba og eiginmaöur hennar ávallt út aö ganga, ef þau þurítu að ræöa mikilvæg mál. SENDIHERRA- FRÚRNAR Heba lýsir innihaldslausu lífi sendiráðseiginkvenna í Moskvu, sem gera lítið annað en heimsækja hver aöra. bessum heimsóknum likir hún viö leiksýningar, vegna þeirrar yfirborðsmennsku sem einkenni samskipti kvennanna. Alltaf var mætt á slaginu klukkan ellefu aö morgni og stansað í nákvæm- lega hálftíma. I einu slíku boði dró sendiherrafrú (rá Pakistan fram vörur til aö selja gestunum, en þaö átti að vera hinn mesti heiöur fyrir viökomandi að fú að kaupa varninginn. Fylgdi Heba konu íslenska sendiherrans í þessar heim- sóknir. Hún segir að sendi- herrafrúrnar hafi lengi með- höndlað eiginkonur undir- manna sinna sem nokkurs konar hirðmeyjar eöa am- báttir, sem þeim hafi fallið í skaut. í París þurfti Heba t.d. iðulega að aka sendiherra- frúnni í búðir og bíða eftir henni klukkutímum saman. FRÆGA FÓLKIÐ A meðan á Moskvudvöl- inni stóð ferðaðist Heba með eiginmanni sínum vítt og breitt um Sovétríkin og kynntist landi og þjóð. Lýsir hún m.a. ýmsum vistarverum í Kremlhöll, en þangað var hún oft boðin í veislur. í boði í Moskvu hitti Heba líka leikkonuna Elísabetu Ta- ylor með þáverandi eigin- manni, Michael Todd. Þau hjónin voru raunar boðflenn- ur í þessum fagnaði og end- aöi með því að Khrushcheu lét bókstaflega henda þessu fræga fólki út. En Heba var í návígi viö fleira þekkt fólk og segir frá þvi í bók sinni. Hún kynntist að sjálfsögðu fjölda háttsettra manna í utanríkisþjónustu ýmissa landa og sótti veislur erlendra þjóðhöfðingja og Furstinn af Mónakó átti íbúð skammt frá henni í París. Oft sá Heba þess vegna eigin- konu furstans, Grace Kelly, þegar hún kom til Frakklands í innkaupaferðir. RÚBLUSMYGL Heba segir frá því að sendi- ráðsstarfsmenn í Moskvu hafi fengið greitt í bandaríkjadöl- um. I Rússlandi fengu þeir fjórar rúblur fyrir hvern dal, en hún heldur því fram að sumir Islendinganna hafi far- ið til Sviss, fengið þar tíu rúbl- ur fyrir hvern dal og smyglað rússnesku myntinni til Sovét- ríkjanna. Lýsir Heba m.a. verslunarleiðangri í leit að hentugri tösku undir rúblurn- ar. SPARNAÐUR OG BRUÐL Ekki er Heba hrifin af öll- um eiginkonum starfsmanna utanríkisþjónustunnar, sem hún kynntist hér heima og er- lendis. Segir hún af þeim ýmsar sögur, m.a. af mikilli sparsemi einnar og önnur er líka sögð liafa boðið móður Hebu í mat og haft fiskbollur úr dós á borðum. Þó eru lýs- ingar á bruöli í utanríkisþjón- ustunni meira áberandi en sögur af aöhaldi, t.d. frá þeim árum er Heba var í París. Seg- ir hún að glæsibifreið hafi verið leigð í hvert sinn er ein- hver ráöherra kom til borgar- innar, þó ríkiö ræki þarna bíl með einkabílstjóra. Sá bíll var m.a. notaöur á hverjum morgni til aö keyra sendi- herrafrúna í hárgreiðslu, eftir því sem segir í bók Hebu. Segir Heba eiginkonur sendiherranna hafa misnotað töluvert fríðindin í utanríkis- þjónustunni. Símareikningar einnar frúarinnar í London hafi t.d. veriö svo háir (700 þúsund gamlar krónur í eitt skipti) aö ráðuneytið hafi gert athugasemd og tekið fram aö síminn væri ekki ætlaður til einkanota nema í takmörk- uðum mæli. DRYKKJA, DJAMM OG ÁTÖK Heba lýsir í bókinni drykkjusiöum frammá- manna íslenska lýðveldisins og segir m.a. að ákveðinn for- sætisráðherra hafi alltaf þurft hjálp til að komast til síns heima að veislum loknum. Segist Heba líka hafa hitt tvo háttsetta starfsmenn ut- anríkisþjónustunnar í góðum félagsskap á næturklúbbi í Genf. Þeir.höföu sig hins veg- ar á brott eftir aö hún hafði komið auga á þá. Einnig lýsir Heba því, þeg- ar eiginmaður hennar lenti í slagsmálum við kollega sinn eftir síðdegisdrykkju í París. Voru þessir íslensku dipló- matar víst að rííast um þaö hvor hefði ákveðinn titil inn- an sendiráðsins. KVENNAFAR OG TÝNDIR MENN Eiginmaður Hebu var stað- settur á Islandi á meðan land- helgisdeilan stóð yfir og fékk það verkefni að sinna erlend- um blaðamönnum, ásamt einum landsþekktum kollega sínum í utanríkisþjónustunni. Segir Heba þá hafa verið afar upptekna við að borða á vertshúsum með blaðamönn- unum. Þó prísar hún sig sæla yfir því að eiginmaðurinn hafi a.m.k. sofið heima hjá sér á næturnar, en segir koll- egann hafa sinnt kvenfrétta- ritara nokkrum af mikilli al- úð. Á öðrum stað í bókinni má skilja frásögn Hebu á þann veg að þessi sami starfsmað- ur utanríkisþjónustunnar hafi heillast svo í veislu af þekktri fegurðardís og fyrirsætu að hann hafi látið sig hverfa með henni, en „fundist" að viku liðinni. Þá hafði eiginkona hans látið grennslast fyrir um hann. En það „týndust" fleiri, samkvæmt því sem Heba segir í bók sinni. Lýsir hún því að sendiherrann í París hafi átt að mæta á fund Belgíu- konungs í Brussel, en ekki látið sjá sig þar. Stallari kon- ungs hringdi til Parísar og spurðist fyrir um sendiherr- ann, en til hans spurðist ekk- ert á þriöju viku. Var þá starfsmaður sendiráðsins sendur til Belgíu að leita sendiherrans, sem harðneit- aði að koma heim þegar hann loks fannst. SKEMMTIFERÐIR Á FUNDI Heba lýsir starfi eigin- manns síns í varnarmála- nefnd og segir því fylgja margar veislur hjá aömíráln- um á Keflavíkurflugvelli og árleg ferð til Norfolk í Banda- ríkjunum. Einnig segir hún mörg boð í laxveiði fylgja því að vera í varnarmálanefnd. Þar að auki minnist Heba á árlegar heimsóknir Varnar- málanefndar til Brussel, en fyrrum eiginmaður hennar var um árabil staðsettur þar í sendiráðinu. Segir Heba nefndarmenn hafa verið áhugasama um að komast í tollfrjálsa verslun, þar sem þeir hafi t.d. keypt sér golf- kylfur og jafnvel sjónvarps- tæki. Ennfremur segir hún þá flesta hafa þurft að fá pen- ingalán í sendiráðinu og að algengt hafi verið að þeir hafi ekki verið komnir heim á hótel, þegar sendiráðsbíllinn mætti á morgnana. Funda- höldin hafi sem sagt verið al- gjört aukaatriði í ferðunum. Það sama segir Heba eiga við um heimsóknir Varð- bergs, Samtaka um vestrœna samvinnu. Segist hún eitt sinn hafa heyrt þegar fyrirliði slíks hóps bað sendiherrann að gefa þeim upp heimilis- fang á góðum stað, þar sem bæði væri hægt að skemmta sér og njóta kynlífs. Átti við- komandi að hafa sagt að Varðbergsferðirnar stæðu og féllu með slíkum dægrastytt- ingum. ,,Eg er hvergi smeyk" segir Heba Jónsdóttir um hina umdeildu bók sína Sendiherrafrúin segir frá. „Pad er alltof mikið um það að konur þegi og láti troða á sér. Menn sem eru í háum stöðum hafa getað sagt eins og maðurinn minn gerði; „Pað þýðir ekkert fyrir þig að ætla að gera eitthvað því ég er sendiherra en þú ert ekki neitt .” Petta er ástæðan fyrir því að ég skrifaði bók- ina,” segir Heba Jónsdóttir, fyrrverandi sendiherrafrú, í samtali við PRESSUNA. ,,Ég byrjaði að skrifa árið sem ég kom heim frá útlöndum og það eru um 14 ár síðan. Á meðan börnin mín voru í skóla hér lagði ég skriftirnar til hliðar því mér fannst ég ekki geta lagt þetta á þau. Barátta mín fyrir réttlæti stóð í mörg ár. Skilnaður minh er sá fyrsti sem kemur upp meðal sendi- herra á Islandi og það voru engin lög sem vernduðu rétt minn. Ég fékk ekkert í minn hlut við skilnaðinn en í dag á maðurinn minn fjórar íbúðir, eina lóð í Arnarnesinu og íbúð á Manhattan í New York. Ég fékk ekki krónu þrátt fyrir bar- áttu við kerfið og þessi bók er m.a. um þetta óréttlæti. Það hjálpaði mér enginn, ég kom alls staðar að lokuðum dyrum og það heilsaði mér varla fólk á götunni. Reiðin magnaðist innra með mér stig af stigi,” segir Heba. Að sögn hennar hafa mikil viðbrögð orðið í kringum þessi bókarskrif hennar og ýmsir reynt að fá hana ofan af því að gefa hana út. „Ég er fyrir löngu komin yfir það að langa til að samneyta þessu fólki í utanríkisþjónustunni. Aðalatriðið hjá mér hefur allan tímann verið að styöja börnin mín í upp- eldi og til náms. Börnin eru nú öll komin til náms í Bandaríkj- unum og ég hef því verið ein sl. tvö ár. Þá fór ég að skrifa og fann það mér til ánægju að ég gat skrifað bók." Bókaútgefendur rifust um útgáfurétt bókarinnar að sögn Hebu og fjölmiðlar hafa reynt mikið að fá kafla úr bókinni og viðtal við hana. „Það verður sjálfsagt allt vitlaust þegar bókin kemur út því þarna eru opinskáar lýsingar á ýmsu, en þetta er allt sannleikur. Ég er hvergi smeyk," segir Heba.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.