Pressan - 30.11.1989, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 30. nóv. 1989
7
ÁST OG HATUR
í BOÐI
Mörg kunn nöfn eru nefnd
til sögunnar í bók Hebu. Segir
hún m.a. frá því er eiginmað-
ur hennar skilur hana eftir í
veislu með fólki, sem hún
þekkti lítið. Þekktur lögfræð-
ingur á þá að hafa sýnt henni
gífurlega ástleitni, króað
hana af úti í horni og kysst
hana. Segist Heba hafa orðið
æf af reiði, en húsfrúin hafi
orðið vör við hvað gekk á og
komið henni til hjálpar.
I þessu sama boði segir
Heba frá því hvernig nafn-
greind frú sparkaði látlaust í
fætur eiginmanns síns undir
borðum, þar sem þeim haföi
eitthvað sinnast.
ÚT VIL EK
Af frásögn Hebu má skilja
að íslenskir sendiherrar geti
stundum haft þó nokkur áhrif
á það hvert þeir eru sendir
með því að hrókera embætt-
unum sín á milli, þegar timi
tilfærslu nálgast. Segir Heba
að sendiherrar geti yfirleitt
alls ekki hugsað sér aö koma
heim í ráðuneytið á íslandi og
það sama eigi við um eigin-
konur þeirra. Dvöl hér heima
þýði mun lægri laun, ekkert
þjónustufólk og minni tæki-
færi til ferðalaga og veislu-
halda.
A erlendri grund gátu
frúrnar líka keypt húsgögn
og aðra innanstokksmuni á
kostnað ríkisins og segir
Heba sumar þeirra hafa verið
drjúgar við slík kaup — bæði
með og án samþykkis húsa-
meistara ríkisins, sem átti að
leggja blessun sína yfir öll
meiriháttar innkaup. Lýsir
Heba einnig húsakaupum
fyrir sendiherrafjölskyldurn-
ar á erlendri grund og
áherslu þeirra á að fá glæsi-
legt húsnæði á besta stað í
heimsborgunum. Og á einum
stað í bókinni nefnir Heba
sendiherrahjón, sem fóru í
mánaðarferðalag á bifreið
ríkisins, sem ekki var ætlast
til að notuð væri í einkaerind-
um.
FJÖLSKYLDULÍF
OG AFENGIS-
NEYSLA
Fyrrum tengdafjölskylda
Hebu er nokkuð til umræðu í
bókinni og verður henni m.a.
tíðrætt um fjárútlát og ýmis
óþægindi vegna heimsókna
systkina eiginmannsins og
aðstandenda þeirra.
Töluvert er einnig af frá-
sögnum af hjónabandi Hebu,
sem endar með skilnaði und-
ir lok bókarinnar. Lýsir hún
eiginmanninum sem afar
hörðum maka og föður, sakar
hann um framhjáhald og
nefnir nafn eins einkaritara
hans í því sambandi. Óhófleg
áfengisneysla Hebu hefur
hins vegar greinilega átt mik-
inn þátt í ágreiningi þeirra
hjónanna á síðustu árum
hjónabandsins. í bókinni eru
t.d. birtir kaflar úr bréfum frá
eiginmanni hennar til skyld-
menna sinna, þar sem hann
kvartar undan drykkju Hebu
og segist vilja losna við hana.
Sendi eiginmaðurinn hana
raunar á hæli í nokkrar vikur,
eftir að ástandið á heimilinu
var orðið óbærilegt. En
hjónabandinu varð ekki
bjargað og flytur Heba heim
til íslands og hefur búiö hér
síðan. Hún var hins vegar
ekki sátt við hjónaskilnaðinn
og telur sig hafa verið svikna
um háar fjárhæðir.
RÁÐUNEYTIS-
MENN í
TVEIMUR
STÖRFUM
I bók Hebu eru lýsingar á
utanríkisráðuneytinu hér
heima og m.a. sagt frá pales-
anderklæddri skrifstofu með
fataskáp, sem kostað hefði
sem samsvaraði fjögurra
mánaða launum skrifstofu-
stúlku. Segir Heba einnig frá
afar merkilegri vél, sem ráðu-
neytið hafi eignast á þeim
tíma er eiginmaður hennar
var við störf á íslandi. Var vél-
in til þess gerð að halda uppi
beinu sambandi við hinar
NATO-skrifstofurnar, en á
hverjum degi var skipt um
dulmálslykil. Var starfsfólk
sent til Noregs aö læra á
þessa vél. Rammbyggð hurð í
líkingu við hurö á peninga-
skáp var siðan sett á herberg-
iö, sem vélin var í.
Ráðuneytisstjórinn er líka
nefndur til sögunnar og sagt
að hann hafi stundum gist á
skrifstofunni, fyrir utan frá-
sagnir af fjárhagskröggum
starfsmanns utanríkisþjón-
ustunnar, sem vanur var
meiri auraráðum á erlendri
grund. Þar að auki fullyrðir
Heba að einn starfsmaður
ráðuneytisins hafi óáreittur
rekið fasteignasölu í vinn-
unni og auglýst símanúmerið
þar í því sambandi. Heba seg-
ir líka einn starfsmann á
varnarmáladeild hafa rekið
fasteignasölu og annan sinnt
innflutningi á víni í vinnutím-
anum.
MÁ ÉG VERA
MEÐ?
Á einum stað í bókinni seg-
ir Heba frá gífurlegum áhuga
manna í Reykjavík á að kom-
ast í veislu á Hótel Sögu í
tengslum við ráðherrafund
Atlantshafsráðsins. Linnti t.d.
ekki simhringingum frá
ákveðnum ræðismanni og
urðu þær að lokum til þess að
ákveðið var að bæta við einu
borði fyrir ræðismenn inni í
horni þar sem nú er bar í
Súlnasalnum. Ekki var hægt
að dreifa ræðismönnunum
um salinn, þar sem sætaskip-
an hafði verið ákveðin og
henni varð ekki breytt.
Eftir þennan ráðherrafund
segir Heba að einn starfs-
maður utanríkisráðuneytis-
ins, sem hún nafngreinir í
bókinni, hafi komið með yfir-
vinnureikning upp á 30 þús-
und krónur. Eiginmaður He-
bu á hins vegar að hafa neit-
að að skrifa upp á reikning-
inn.
HA, HA,
HA, . . .
Eitt sinn munaði litlu að
Heba og maður hennar lentu
í flugslysi, þegar þau voru á
leið frá fslandi til Parísar og
áttu að skipta um flugvél í
London. Flugvél þeirra frá ís-
landi seinkaði, svo þau
misstu af framhaldsfluginu
yfir til Frakklands, en sú vél
rétt hóf sig á loft áður en hún
féll til jarðar með þeim afleið-
ingum að allir farþegarnir
fórust. íslenski sendiherrann
í London var á flugvellinum
og segir Heba hann hafa tek-
ið skellihlæjandi á móti þeim
með þessi tíöindi, þegar þau
gengu inn í flugstöðiria.
KAIIPA ÞRJU
FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI
MEIRIHLUTA
Þrjú fjölskyldufyrirtœki, Hagkaup,
Vifilfell og Hekla, ihuga að kaupa sig inn
i Stöð 2 sem sárvantar peninga i rekstur-
inn. Skilyrðið er að þau eignist meiri-
hluta i Stöðinni. Jón Óttar s jónvarpsst jóri
gerir örvæntingarfullar tilraunir til að
halda meirihluta sinum.
EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON
Síðasta hálmstrá Jóns Óttars er
franska sjónvarpsstöðin Canal Plus.
Jón Óttar fór til Parísar í síðustu viku
með kynnisbréf utanríkisráðherra
upp á vasann. Heimildarmenn í við-
skiptalífinu telja ólíklegt að sjón-
varpsstjórinn hafi erindi sem erfiði
Hugmyndin að kaupa hlut í Stöð 2
hefur veriö rædd á óformlegum
fundum sem eigendur Hagkaups og
Vífilfells eiga reglulega.
„Þetta hefur bara verið rætt í
kaffibollasamhengi," segir Lýður
Friðjónsson, framkvæmdastjóri Víf-
ilfells. í DV í gær sagði að Morgun-
blaðið, Hekla, Vífilfell og Hagkaup
ættu i viðræðum við Stöð 2 með
kaup í huga. „Fréttin í DV er eins og
hvert annað kjaftæði," segir Lýður.
Samkvæmt heimildum Pressunn-
ar er Morgunblaðið ekki með í við-
ræðum um kaup á hlutafé í Stöð 2.
Stjórnarformaður Árvakurs hf.. sem
gefur út Morgunbiaðið, er Hallgrím-
ur B. Geirsson. í samtali við biaöa-
mann þvertók Hallgrímur fyrir að
eiga í viðræðum um kaup á hlut í
Stöðinni.
Aftur á móti munu forsvarsmenn
Heklu vera með og taka þátt í þess-
um þreifingum. Fyrirtækin þrjú eru
um margt áþekk. Þau eru rótgróin
fjölskyldufyrirtæki, standa vel og
eiga þegar í samstarfi á afmörkuðu
sviði. Þá hjálpar það til að fyrirtæk-
in starfa hvert á sínu sviði og eru
þess vegna ekki í innbyrðis sam-
keppni.
„Get ekkert sagt"
„Ég get ekkert um það sagt,” svar-
aði Ingimundur Sigfússon, forstjóri
Heklu, þegar það var borið undir
hann hvort til stæði að Hekla gengi
inn í rekstur Stöðvar 2. Ingimundur
vildi hvorki játa því né neita að við-
ræður stæðu yfir, en itrekaði aö
hann gæti ekkert sagt.
Lýður vildi líka sem minnst segja
um fyrirætlanir Vifilfells. Hann
kvað þó Stöð 2 vera áhugavert fyrir-
tæki.
Verðmætar fasteignir Vífilfells við
Hofsvallagötu eru á söluskrá þar
sem fyrirtækið mun innan skamms
flytja höfuðstöðvar sínar upp á
Stuðlaháls. Lýður sagði nokkra að-
ila hafa sýnt áhuga á fasteignunum.
Þegar af sölu veröur mun Vífilfell
eiga stórar fjárhæðir á lausu.
Stöð 2 er að sligast undan skuld-
um sem stofnað var til þegar fyrir-
tækið hóf rekstur fyrir þrem árum.
Stofnendurnir slógu lán fyrir stór-
um hluta stofnkostnaðar. Afborgan-
ir og vextir af þessum skuldum eru
fyrirtækinu fjötur um fót. Viðskipta-
banki Stöðvarinnar, Verslunarbanki
íslands, gengur í eina sæng með
fjórum öðrum bönkum og stofnar
islandsbanka um áramótin. Fyrir
þann tíma vill Verslunarbankinn
koma skikkan á peningamál Stöðv-
ar 2.
Áhugamenn um
fjölmiðlun
Stjórnarformaður Hagkaups, Sig-
urður Gísli Pálmason, er áhugamað-
ur um fjölmiðlun. Hann er formaður
stjórnar íslenska útvarpsfélagsins,
sem rekur Bylgjuna og Stjörnuna.
Þá er Sigurður einnig í útgáfustjórn
tímaritsins Heimsmyndar.
Ingimundur Sigfússon, forstjóri
Heklu, á sömuleiðis fortíð í fjöl-
miðlabransanum. Fyrir nokkrum
árum sat hann í stjórn Frjálsrar fjöl-
miðlunar, sem gefur út DV. í samtali
við blaðamann sagðist Ingimundur
hafa fyrir nokkru selt hlut sinn i
Frjálsri fjölmiðlun.
Vífilfell og Hagkaup eru þegar í
samstarfi. Saman eiga fyrirtækin
húsnæðið í Kringlunni sem veit-
ingastaðurinn Kvikk er með á leigu.
Einnig er í bígerð að Vífilfell og Hag-
kaup standi sameiginlega að út-
flutningi íslensks ferskvatns.
Samkvæmt heimildum Pressunn-
ar er skilyrði fjölskyldufyrirtækj-
anna um meirihlutaeign í Stöð 2
komið til vegna þess að þau telja til
lítils að koma inn í reksturinn án
þess að hafa afgerandi áhrif á stefnu
Stöðvarinnar. Á meðan Jón Óttar,
fjölskylda hans og félagar eiga
meirihluta er lítil von til þess. Það er
talað um að niðurstaða í málinu fáist
innan viku.
Hingað til hefur Jón Óttar aðeins
leitað eftir auknu hlutafé, og af hans
hálfu stendur ekki til að selja meiri-
hluta. Það er hinsvegar ekki lengur
víst að kóngurinn á Krókhálsi sé
nægilega sterkur til að halda meira
en helmingnum af ríki sínu.