Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 2

Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 2
<JÍJI.' Cí ■f-.r -f Föstudagur 29. des. 1989 vellcomin i heiminn 1. Foreldrar: Fjóla Friöriksdóttir og Jón Þór Einarsson. Stúlka fædd 18. desember. 51 sm og 3.482 g. 4. Foreldrar: Guöbjörg Ingunn Einarsdóttir og Skarphéöinn Þór Gunnarsson. Stúlka, fædd 19. desember, 51 sm og 12 merkur. 2. Foreldrar: Guöný Jóna Guönadóttir og Ólafur Geir Magnússon. Drengur fæddur 17. desember. 51 sm og 4.024 g. 3. Foreldrar: Kristín Árdal og Friðrik Jósepsson. Stúlka fædd 18. desember. 52 sm og 3.670 g. 5. Foreldrar: Ágústa Sigur- björnsdóttir og Hjörtur Berg- staö Valdimarsson. Drengur fæddur 19. desember. 55 sm og 4.756 g. • í * 4- 4 .. 6. Foreldrar Hlíf Elfa Magnús- dóttir og Gestur Hr. Krist- mundsson. Stúlka fædd 18. desember, 51 sm og 3.090 g. 7. Foreldrar: Guðrún B.Hall- björnsdóttir og Helgi Gústafs- son. Stúlka fædd 16. desember, 55 sm og 4.660 g. 8. Foreldrar: Súsanna Þorvalds- dóttir og Baldvin Á. Jónsson. Drengurfæddur 14. desember, 54 sm og 17 merkur. 9. Foreldrar Aðalbjörg Karls- dóttir og Jón Ingi Benedikts- son. Stúlka fædd 17. desember, 53 sm og 3.900 g. 10. Foreldrar: Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir og Leifur Björn Björnsson. Stúlka fædd 16. desember, 55 sm og 3.750 g. 11. Foreldrar: María Arthúrs- dóttir og Sæmundur Gíslason. Stúlka fædd 15. desember, 50 sm og 3.700 g. 12. Foreldrar: Guörún Hrönn Stefánsdóttir og Árni Sigurös- son. Stúlka fædd 18. desember, 51 sm og 3.760 g. 13. Hér kemur mynd af litlum herra, en í síöasta blaði urðu þau mistök aö hann var sagður vera stúlka. Semsagt: Þetta er drengur, fæddur 11. desember, sonur Svölu Arnardóttur og Ei- ríks Leifssonar. Viðfæðingu vó hann 3.850 g og var53 sm lang- ur. PRESSAN Á FÖSTUDEGI PRESSANkemurnæst út föstudaginn 5. janúar. Ujónaband er . . . .....ad tryggja aö hanri kippi sænginni ekki af þér . . . Ujónaband er .. . . . . ad kyssa tengdó jólakossinn . . . Þrír af eigendum Geysis, Gissur Guömundsson, Árni Valur Sólonsson og Óli Jón Ólason. GEYSIR í OSLÓ Samkeppnin í veitinga- húsabransanum er mikil hér- lendis, en meiri er hún þó í stærri löndum. í Oslóborg skipta veitingahús hundruð- um og þar verða menn að standa sig vilji þeir ekki verða undir í baráttunni. í síðustu viku birti norska viðskiptablaðið Dagens Næringsliv niðurstöður úr könnun sem það gerði á veit- ingahúsum í Osló og þar varð Geysir í 6.-9. sæti, sem er framúrskarandi gott þegar tekið er tillit til þess að í Osló eru veitingahús á hverju götuhorni. Veitingahúsið Geysir flokkast undir betri veitinga- staði Oslóborgar og er staður- inn í eigu fjögurra Islendinga. Þeir eru matreiðslumennirn- ir Gissur Guðmundsson og Óli Jón Ólason og fram- reiðslumennirnir Arni Vaiur Sólonsson og Skúli Magn- ússon. Salarkynnin í Geysi eru vistleg. Arni Valur sýnir gestum matseöilinn en fjóröi eigandi Geysis, Skúli Magnússon, situr við næsta borð. Fjórmenningarnir höfðu áð- ur starfað saman á veitinga- húsi í Osló og ákváðu að fara út í eigin rekstur. Fyrir valinu varð þjóðhátíðardagurinn, 17. júní, 1989, ogsjá þeir ekki eftir að hafa lagt út í sam- keppnina því vel gengur á Geysi. Geysir er til húsa í einu af fallegustu steinhúsum Osló- borgar, við Keysers gate númer 4, en sú gata er í fimm mínútna fjarlægð frá aðalgöt- unni, Karl Johan. Staðurinn tekur 32 gesti og þar er leikin íslensk tónlist meðan á borð- haldi stendur og enginn ís- lendingur lendir í vandræð- um með matseðilinn, því á Geysi starfa íslendingarnir fjórir. / Það sem Geysir býður upp á umfram aðra veitingastaði í Osló er hangikjöt og skyr sem matreiðslumennirnir búa sjálfir til í eldhúsinu. Á Þorláksmessu buðu þeir upp á skötu og frá 20. janúar til 20. febrúar ætla þeir að hafa þorrabakka að gömlum og góðum íslenskum sið. — ís- lendingar á viðskiptaferðum koma mikið á Geysi en yfir- leitt er staðurinn fullur af út- lendingum, einkum Norð- mönnum, sem líkar sérstak- lega vel að fá alvöru íslenskt skyr.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.