Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 19

Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 19
Föstudagur 29. des. 1989 19 PRESSU |( Bi^^rossanesverksmiðjan á Ak- ureyri sagði upp öllu starfsfólki milli jóla og nýárs Verksmiðjan er í eigu bæjarfélagsins og opinberlega er sagt að léleg loðnuvertíð ráði mestu um, en kunnugir telja ástæð-' urnar fleiri. Meðal annars er nefnd óhófleg fjárfesting á síðustu árum og léleg stjórnun. Fyrir rúmu ári skrifaði forstjóri verksmiðjunnar, Geir Zoéga, opið bréf til starfs- manna þar sem hann gagnrýndi klíkuskap yfirmanna og uppi- vöðslu skyldmenna þeirra. Þá sagði í bréfinu að starfsmenn væru „allir áhugalausir og enginn telur sig bera ábyrgð á neinu”.. . Wemar í fjölmiðlafræði við háskólann fóru í námsferð til Sovét- ríkjanna fyrir skemmstu og láta vel af. í Moskvu bauð íslenski sendi- herrann, TómasTómasson, nem- endunum í veitingahús þar sem hálfnaktar sovéskar yngismeyjar dönsuðu fyrir gesti. Þá var einnig sýndur kyrkislöngudans á meðan á borðhaldi stóð Skemmtiatriðin voru aðallega sniðin að smekk karl- manna, en 12 af 16 manna hópi fjöl- miðlafræðinema voru kven- kyns. . . cs Akureyri er fatt meira rætt þessa dagana en gjaldþrot verk- takafyrirtækisins Híbýla sem teygir anga sína víða. Ljóst er að bæjarfé- lagið mun tapa stórfé í gjaldþrotinu, en Híbýli skildu eftir hálfkaraða íbúðarblokk sem bærinn bar ábyrgð á. Þá munu undirverktak- ar eiga mikla peninga inni hjá aðal- verktakanum. Aðaleigandi Híbýla er Bragi Hjartarson bæjarfull- trúi. . . d ^^■agblöðin birtu með reglu- legu millibili lista yfir söluhæstu bækurnar í verslunum í Reykjavík. Ekki virtist þá skipta máli hvort um- ræddar bækur hefðu verið lengi til sölu í verslunum og lentu því þær bækur sem síðast komu út ekki inni á reykvískum listum. Þannig komst Heimsmetabók Guinness aldrei inn á bókalista dagblaðanna í Reykjavík, en blaðið Dagur á Akur- eyri gerði hins vegar könnun 21. desember á söluhæstu bókunum á Akureyri og þar varð heimsmeta- bókin í sjötta sæti.. . B^Éýliðar skjóta öðru hverju upp kollinum innan kvikmyndagreinar- innar. Næstkomandi laugardag hyggst ungur kvikmyndagerðar- maður, Óskar Jónsson, sýna tvær stuttmyndir sinar í Regnboganum. Önnur er lokaverkefni hans frá Na- tional Film and Television Scho- BROSUM / í DmíenUnni * - og illt genfnr betor! * yar*” ol í London, en þar nam Ágúst Guðmundsson sín fræði í eina tíð. . . • • A ^^^sin í verslunum höfuðborgar- innar er ekki alveg búin þó jólin séu liðin. Góðkunningi PRESSUNNAR ætlaði t.d. að „skreppa" og skila gjöf í Hagkaup í Kringlunni i matar- tínianum sínum síðastliðinn fimmtudag, en jiað reyndist ekki svo auðvelt. Lenti maðurinn aftast í fimmtán manna einfaldri röð fólks, sem allt var þarna í sömu erinda- gjörðum. I sumum verslunum, t.d. í fyrrnefndri Hagkaupsbúð og hljóm- plötuversluninni Skífunni í Kringl- unni, var m.a.s. komið fyrir sérstök- um afgreiðsluborðum fyrir þá, sem þurftu að skila jólagjöfum. . . Jólatrésskemmtun Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrésskemmtun fyrir börn félagsmanna sunnudaginn 7. janúar kl. 15.00 á Hótel íslandi. Miöaverö fyrir börn kr. 500 og fyrir fulloröna kr. 200. Midar eru seldir á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, 8. hæö. Upplýsingar í síma 687100. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur VÖRUR í VIRÐISAUKASKATTI: Samaverð stundum lægra! Nýmjólk, G-mjólk, undanrennaog léttmjólk lækka I ■verði vegna endurgreiðslunnar. Þessi leekkun á að skilasérbeint í vöruverðinu strax eftir áramótin. Neyslufiskur á að lækka í verði. Endurgreiðslan miðast viðferskan óunninn neyslufisk í heildsölu. Álagningin erfrjáls, og er mikilvægt að fisksalar og neytendurtaki höndum saman til að skattalækkunin skili sér í vöruverðinu. Tegundirnarsem lækkaeru:Ýsa, . þorskur, ufsil steinbítur, karfi, langa, keilar, lúða, koli, skata, skötuselur, ■-., rauðmagiog . grásleppa. Vöruverð á ekki að hækka þegar virðisaukaskattur leysir söluskatt af hólmi nú um áramótin. Vissar vörutegundir lækka verulega og almennt vöruverð stendur í stað eða þokast niður á við. Með virðisaukaskatti breytist skatthlutfallið úr 25% í 24,5%. Þá hverfa einnig uppsöfnunaráhrif söluskatts í vöruverðinu því að virðisaukaskattur leggst aðeins einu sinni á sömu vöruna, óháð fjölda framleiðslu- og viðskiptastiga. Vöruverð á því alls ekki að hækka vegna kerfisbreytingarinnar. Þvert á móti ætti breytingin að leiða til lækkunar á almennu vöruverði. Vegna sérstakrar endurgreiðslu hefur skattbreytingin þau áhrif að neyslumjólk, ferskfiskur, kindakjöt og ferskt innlent grænmeti bera ígildi 14% skatts í stað 24,5% á öðrum vörum. Ef aðrir þættir, til dæmis álagningin, haldast óbreyttir geta skattaumbæturnar haft í för með sér að þessi matvæli lækka um allt að 7-9% strax eftir áramótin. vskm FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ '' '' Kindakjöt í heilum og hálfum skrokkum lækkar í veröi frá afurðastöðvunum nú strax eftir áramótin vegna endurgreiðslunnar. Verðlækkun á til dæmis lambalærum, lærissneiðum, hrygg, kótilettum og súpukjöti er háð aðgæslu kjötkaupmannaog aðhaldi neytenda þvi frjáls álagning er áunninni kjötvöru. Allt innlent grænmeti lækkar í verði, til dæmis kartöflur, sveppir, baunaspírur, gulrófurog gulrætur. Álagning erfrjálsáþessari matvöru. Þess vegna er það ekki sístkomiðundir árvekni neytendaog aðgæslu verslunarmannaað endurgreiðslan skili sér að fullu í vöruverðinu. FYLGJUMST MEÐ - VEITUM AÐHALD Þáð er mikilvægt að almenningur veiti aðhald og beri saman verðiag fyrir og eftir 't áranjót. VERÐLaGSSTOFNUN fylgist með því af fremsta megni að skattbreýtingin um.áramót leiði ekki til verðlagshækkunar, og að endurgreiðslan skili sér í lækkuðu verði þeirra innlendu matvæla sem hún tekur til. - Ef þú verður var/vör við óeðlilegar verðhækkanir eftir áramótin, og ekki fást fullnægjandi skýringar hjá kaupmanninum, skaltu hafa samband við VERÐLAGSSTOFNUN. Hún kannar hvert tilvik og hefur sérstakt eftirlit með verðlagsbreytingum.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.