Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 4

Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 4
4 -/Föstudagur* 29. des.. 1989 litilræði af tanngarði Áður en húsið er hannað eru menn yfirleitt með gaskútana inni í húsunum en síðan verður stefnubreyting. (Húsameistari ríkisins Morgunbl. 16. des. 1989.) Þegar ég var krakki hafði ég á engu eins mik- ið dálæti og Bakkabræðrum. Mér fannst þeir — einsog sagt er í dag — óborganlegir. Bakkabræðrasögurnar las ég aftur og aftur og hló mig máttlausan í hvert skipti. Ég man aðég var alla tíð klár á því að Bakka- bræðrasögurnar væru tilbúningur einn, því óhugsandi væri að slíkir moðhausar hefðu yfir- leitt haft tök á því að þreyja þorrann og góuna. Þetta var áður en sú stétt manna kom fram í dagsljósið sem einu nafni hefur verið kölluð hönnuðir. Það var ekki einu sinni búið að finna þetta töfraorð, hönnuður, upp. Það var eiginlega ekki fyrr en hönnuðir fóru að láta verkin tala og Ijósið sitt skína á prenti, að ég hætti að lesa Bakkabræðrasögur, enda hafði gæfan borið mér uppí hendurnar nýtt að- hlátursefni ekki síðra en Bakkabræður og að því leytinu bitastæðara að hönnuðir eru þó ekki bara þjóðsagnapersónur heldur, að því er mér skilst, fólk sem hefur á sér mannsmynd og lifir og hrærist í samfélaginu í dag. Og stinga ekki verulega í stúf fyrr en þeir fara að láta hendur standa framúr ermum. Þá koma þeir öllum í sólskinsskap, líkt og Bakkabræður forðum, með ótrúlega spaugi- legum hönnunartilfæringum. Þær Bakkabræðrasögur sem ég hafði löng- um mest dálæti á voru einkum þrjár: Sagan um það þegar þeir jusu vatni í botnlausa tunnu og undruðust að ekki skyldi hækka í henni þar til þeim var bent á að hún var botnlaus og er af komið orðtakið: Ekki er kyn þótt keraldið leki, botninn er suð- urí Borgarfirði. Önnur sagan er af því þegar þeir byggðu sér húskofa en gleymdu að hanna á hann glugga og reyndu að bera myrkrið út og sólskinið inn í sorptrogi. Þriðja sagan er „Faðir vor kallar kútinn" og kemur sú saga óneitanlega oft uppí hugann þessa dagana þegar hönnuðir eru dægrin löng að klóra sér, guð má vita hvar, og velta vöngum yfir því hvað eigiað gera viðgaskútana í „Tann- garði" Háskóla íslands norðanvert við Vatns- mýrina í Reykjavík. Sannleikurinn er nefnilega sá að Bakka- bræðrasögur eiga sér, einsog-önnur klassík, sláandi hliðstæður í nútímanum, svo þess- vegna gætu Bakkabræðrasögur, þegar betur er að gáð, ailar verið heilagur sannleikur. Fullvíst má telja að hönnunarsögur nútím- ans verði Bakkabræðrasögur framtíðarinnar. í staðinn fyrir „Ekki er kyn þótt keraldið leki" verður sögð sagan af hönnun flugstöðvarinnar sem kennd er við Leif Eiríksson. í staðinn fyrir „Sólskinið í troginu" fá afkom- endur okkar að heyra söguna af loftorrustunni á Kjarvalsstaði og Ijósburði í trogum á þeim bæ. En mesta kátínu á þó hönnunarsaga TANN- GARÐS eftir að vekja meðal komandi kyn- slóða. Jafnvel hætt við að Bakkabræðrasagan „Faðir vor kallar kútinn" falli í skuggann af gas- kútunum í Tanngarði Háskóla íslands. Gæti svosem byrjað svona: Einusinni fóru hönnuðir húsameistara að hanna tanngarð og unnu verkið af svo miklu kappi en lítilli forsjáað úr varð hús sem ekki var brúklegt sem tanngarður eða tanngarður sem ekki var brúklegur sem hús. Voru nú góð ráð dýr.. o.s.frv. Það er einsog fólk geri sér ekki Ijóst að auð- vitað er hönnunin á þessum furðulega Tann- garði öðru fremur til að halda fólki í góðu skapi. Viðtölin við Hallgrím Snorrason, formann yf- irstjórnar mannvirkjagerðar á Landspítalalóð, og húsameistara ríkisins í Morgunblaðinu á dögunum hafa áreiðanlega orðið til þess að slá á skammdegissvartsýni margra. Það þarf nú minna til að breyta dimmunni í dagsljós. Formaður yfirstjórnar mannvirkjagerðar bendir á að ekki sé um hönnunargalla að ræða á þessu merkilega húsi. Það sé að vísu rétt að erfitt sé að komast leiðar sinnar um gangana vegna karga í gólf- dúknum, ryk sáldrist linnulaust úr loftinu uppí' þá sem eru að máta nýja tanngarða og gas- leiðslur liggi þar sem eldhættan er mest. Að dómi formannsins er hér ekki um hönn- unargalla að ræða, heldur hafa hönnunarkröf- urnar breyst frá því í gamla daga. Líklega þegar reiðingur var notaður í þekj- una. Afturámóti segir Hallgrímur að gaslekinn hafi ekki komið til umfjöllunar fyrr en á þessu ári og má af þessu skilja að nú séu kröfurnar orðnar það strangarað ekki sé talið við hæfi að gasleiðslur séu lekar og síst þar sem neistar mikið af rafmagni. Húsameistari ríkisins segir afturámóti orð- rétt: — Áður en húsið er hannað eru menn yfir- leitt með gaskútana inní húsunum en síðan verður stefnubreyting og við hönnun hússins vildu menn vanda sig ... Ég býst við að íslenska þjóðin ætti að þakka guði og forsjóninni fyrir það ef hús á íslandi verða ekki einsog þau eru áðuren hönnuðirnir hanna þau. Og þó. Kannske gætu slíkar byggingar kom- ið manni í enn betra skap en hinar sem taka breytingu á hraða Ijóssins, á byggingarskeið- inu, eða í hvert skipti sem upp kemst um alvar- lega hönnunargalla. Sumir álíta að misvitrir hönnuðir séu búnir að kosta íslensku þjóðina fullmikið á undan- förnum árum. En það gerir ekkert til ef þeir geta komið al- menningi í gott skap með því að hanna nýja brandara. Og svo eru þeir endalaust svo ótrúlega ráða- góðir. En það er bara þetta með góðu ráðin einsog segir svo oft í sögunum af Bakkabræðrum. Nú eru góð ráð dýr. Gleðilega rest. Hvemig sem á stendur- Við emm á vakt allan sólarhringinn

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.