Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 9

Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 9
Hans heilagleiki á Islandi. N u n n u r ufs K ar m i: I k I o u s t m\ u' i H.ifnarfirði tntta Johanntts 'P.it ifa II. sc?m konvtíl Islarufs latui daciiiin 3. jurii. SAMANTEKT: ÓMAR FRIÐRIKSSON MYNDIR: EINAR ÓLASON O.FL. Sögutími í Valhöll. Þorsteinn Pálsson, formaöur Sjálfstæðisflokksins, rifjar upp sögu flokksins við undirbúning sögusýn- ingar sem sett var upp fyrir 60 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins 25. maí. Þorsteinn má una sæmilega við sitt eftir árið. Hann hélt formannssætinu á landsfundi flokksins 5.—8. okt. og flokkurinn rauk upp í skoð- anakönnunum en kjör Davíðs Oddssonar í varaformanninn var af flestum talið sýna óánægju með formennsku Þorsteins skv. formúlunni; „þegar sjálfstæðismenn eru óánægðir með formanninn fær varafor- maðurinn aö fjúka". Borgaraflokksmenn skrifa sig inn í ríkisstjóm- ina. 10. september gekk Borgaraflokkurinn formlega til liðs við ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Óli Þ. Guð- bjartsson varð dóms- og kirkjumálaráðherra og Júlíus Sólnes fékk ráðuneyti hagstofunnar auk umhverfisráðu- neytis, sem þó er enn ekki til nema sem framtíðaráform og óvíst um fæðingu. UPPHEFÐ ÁRSINS VALUR VALSSON ráðinn bankastjóri íslandsbanka ÓLAFUR SKÚLASON kjðrinn biskup Islands BENEDIKT GRÖNDAL skipaður fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum ÓLAFUR SVERRISSON kosinn stjórnarformaður SÍS 6. júní JÚLÍUS SÓLNES kjörinn formaður Borgaraflokksins og skipaður hag- stofuráðherra AXEL GÍSLASON ráðinn forstjóri Vátryggingafélags Islands VALUR ARNÞÓRSSON skipaður bankastjóri Landsbankans STEFÁN FRIÐFINNSSON skipaður stjórnarformaður ísienskra aðalverktaka sem fulltrúi ríkisins STJÖRNUHRAP ÁRSINS Kvennalistinn í skoðanakönnunum Albert Guðmundsson Stöð 2 Ingólfur Guðbrandsson Samband íslenskra samvinnufélaga GJÖF ÁRSINS Brúðkaup órsins. Það vakti mikla forvitni lesenda er Pressan greindi ítarlega í myndum og máli frá hinni miklu brúðkaups- veislu þeirra Jóns Óttars Ragn- arssonar, sjónvarpsstjóra á Stöð 2, og Elfu Gísladóttur leikkonu, en þau gengu í hjónaband 14. maí. Beðið eftir bjór-frétt. Bjórinn var leyfður 1. mars. Fréttamenn voru í stell- ingum við útsölustaði ÁTVR að morgni bjórdagsins og biðu eftir örtröð hinna bjórþyrstu en gripu í tómt Fyrsti bjórdagurinn fór rólega fram og flestir létu nægja að væta kverkarnarað loknum vinnudegi á heimsborgaravísu — þvert ofan í spár bjórandstæðinga. Listaverkagjöf Erró til Reykjavíkur- borgar er hann gaf tvö þúsund Iistaverk 16. september. Mitterrand viðurkennir sérstöðu íslnnds á Evrópukort- inu. Francois Mitterrand Frakklandsforseti heilsarforseta íslands er hann kom til viöræðna við íslenska ráðamenn 7. nóvember um Evrópumálefni. Þar kom fram mikil»æg viðurkenning af hans hálfu á sérstöðu íslands gagnvart Evrópubandalaginu. Rúðherra á ferð og flugi. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráöherra var á sífelldum þeytingi vegna Evrópumálefna á árinu og fréttamennáttu fullt í fangi með að ná tali af honum. Utanríkis- ráðherra tók við formennsku í ráðherranefnd EFTA í viðræðunum gagnvart EB. Evrópumálin komust loks rækilegaá dagskrá síðari hluta ársins og yfirskyggðu flest önnur fréttamál.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.