Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 13

Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 13
Föstudagur 29. des. 1989 13 Bogmaður — Bogmaður Heillandi hjónaband! Þau geta fljótt oröið þreytt hvort á öðru. 1990 gæti orðið erfitt fyrir ykkur að ná hvort öðru! Bogmaður — Fiskar Þægilegt samband. 1990 gæti komið til ósamkomu- lags vegna ferðalags. Eitthvað eigið þið illa saman kynferðislega. Bogmaður —Hrútur Funheitt samband, fullt af hlýju og ástríðum. Mjög vin- samlegt árið 1990 og þið haldið saman. Gott ár, bæði í viðskiptum og ástum. Bogmaður — Krabbi Sérkennileg blanda, því krabbinn er heimakær en bogmaöurinn ævintýragjarn. Árið 1990 gengur ykkur báðum einstaklega vel á einu sérstöku sviði og þið verðið stolt og hreykin. Bogmaður — Ljón Bæði hafa gaman af spenningi, glæsileika og skemmt- unum. Þótt þið séuð mjög lík gætuð þið fjarlægst árið 1990. Bogmaður — Meyja Meyjunni finnst bogmaðurinn grobbinn. Bogmannin- um finnst meyjan alltaf segja „nei”. Árið 1990 finnst öðrum þið vera harðskeytt og skynsamt par. Bogmaður — Naut Eiga fátt sameiginlegt. 1990 verður kynlífið kapps- fullt, hratt og ákaft, en skyldi það endast? Bogmaður — Sporðdreki Erfitt samband. Árið 1990 skipar sporðdrekinn of mik- ið fyrir og bogmaðurinn verður lítið hrifinn af því. Með umburðarlyndi ætti ykkur þó að semja vel. Bogmaður — Steingeit Ólíkar manngerðir, en geta sýnt heilbrigða skynsemi og ástúð. 1990 lofar stórkostlega góðu. Það er eitthvað sem hvetur ykkur til að koma vel saman. Dásamlegt fyrir ný sambönd. Bogmaður — Tvíburi Svo lík, samt svo ólík! Þau ráðast hvort gegn öðru, nærri því af kvikindisskap! Einhver tiltekin atburðarás veldur ykkur efasemdum árið 1990. Frábært ár til að ferðast saman. Bogmaður — Vatnsberi Fyrirmyndarsamband, því þau reyna ekki að þvinga hvort annað tilfinningalega. Árið 1990 verður mjög svipað og þið þurfið hvort á öðru að halda. Verið hreinskilin hvort við annað. Bogmaður — Vog Prýðilegt samband, því þau hressa hvort annað upp. Vogin er full af ráðagerðum sem ykkur þykja báðum spennandi. Þiggið aðstoð frá öðrum fjölskyldumeð- limum. Sumarið verður ánægjulegasti tíminn. Fiskar — Fiskar Þau svamla um í hamingjuvímu og vilja hjálpa heimin- um. Árið 1990 gætuð þið bæði heilsast og kvaðst í mesta bróðerni. Séra Heimir Steinsson þjódgardsuördur er krabbi, en eig- inkona hans, frú Dóra Pórhallsdóltir, er tvíburi. Samkvœmt spánni mun krabbinn eiga fullt í fangi meö ad fylgja tvíbur- anum eftir árid 1990. Fiskar — Hrútur Fiskurinn er yfirleitt á báðum áttum en hrúturinn vill öllu ráða. Fiskurinn er svolítið hræddur við breytingar árið 1990, en hrúturinn býr yfir miklum fortöluhæfi- leikum! Fiskar — Krabbi Þau virðast eiga stórkostlega vel saman, streyma hvort inn í hjartað á öðru. Það verður erfitt að slíta þetta samband árið 1990, því þið sigrist í sameiningu á erfiðleikum. Fiskar — Ljón Dásamlega næmur skilningur á innsta eðli hvors ann- ars. 1990 laðist þið dásamlega hvort að öðru í upphafi — reynið að láta það endast. Fiskar — Meyja Bæði eru hrifin af hreinleika og háleitum hugsjónum, en meyjan er hagsýn og fiskarnir draumlyndir! 1990 metið þið skoðanir hvors annars. Fiskar — Naut Mjög ólík skapgerð. Árið 1990 gætuð þið orðið frávita af ást — og komist að því síðar að þið voruð frávita! Fiskar — Sporðdreki Þetta ætti að bjargast, svo framarlega sem fiskurinn hefur frelsi og sporðdrekinn auðugt tilfinningasam- band. 1990 streitist fiskurinn ef til vill gegn breyting- um. Fiskar — Steingeit Sambandið gæti leiðst út í þunglyndi ef þau fara sínar eigin leiðir. 1990 er fiskurinn ef til vill svolítið ertinn, svona til að lífga upp á tilveruna. Steingeitin er ekkert hrifin af því! Þið gerið sameiginleg mistök í viðskipt- um. Fiskar — Tvíburi Fiskarnir eru hikandi og tvístígandi í samanburði við glögga skapgerð tvíburans. Þið farið stundum í taug- arnar hvort á öðru árið 1990. Fiskar — Vatnsberi Vatnsberanum finnst fiskurinn of hverflyndur fyrir sinn smekk, en þau geta samt unnið vel saman með innsæi sínu. Kynlífið verður ofarlega á baugi 1990, en fjárráðin verða þröng. Stórt, sameiginlegt verkefni heppnast vel. Fiskar — Vog Fólk í þessum merkjum finnur til andlegs skyldleika, svo samband þeirra verður ákaflega viðkvæmt. Árið 1990 hjálpar bráðsnjall áhrifavaldur ykkur báðum. Frábært ár fyrir hjónaband — eða brúðkaupsafmæli! Hrutur — Hrútur Blóðheitt, fljótfært og örvandi samband. Þið eruð tengd sterkum böndum árið 1990, en ekki alltaf þægi- legum. Deilur ekki síður en sættir. Hrútur — Krabbi Stundum stormasamt samband, sem einkennist af skaphita og þunglyndisköstum. En ástríðan er líka mikil. 1990 getið þið náð mjög góðum árangri og vek- ið adáun annarra. Hrútur — Ljón Mjög hlýtt og fjörugt, en bæði vilja ráða. Það verður hart barist um yfirráðin árið 1990, en ástríkið er líka mikið. Gott ár fyrir hjón sem hafa verið gift lengi. Hrútur — Meyja Þau finna ekki til sannrar samkenndar og erfiðleikarn- ir eru miklir á köflum. Meyjan virðist á nálum 1990, en hrúturinn er of sjálfumglaður og góður með sig. Hrútur — Naut Hrúturinn horfir fram á veginn en nautið er hrifnara af fortíðinni. Það gengur á ýmsu árið 1990 og valda- baráttan verður hörð. Aftur á móti er væntumþykjan líka mikil. Treystið því að allt fari vd.r- Hrútur — Sporðdreki Bæði eru sterk, en hafa gjörólík viðhorf. Sambandið verður erfitt árið 1990 og þið gætuð verið'hrædd við að sýna ást ykkar opinskátt. í viðskiptum eru tengslin góð. Hrútur — Steingeit Hér eru töluverð átök um völdin, hrúturinn tekur áhættu og steingeitin ráðleggur gætni. 1990 vinnið þið jafnt og þétt að sameiginlegu takmarki. Hrútur — Tvíburi Fjörugt og opinskátt par og allt verður undan að láta þegar þau eru ósammála. Þið vinnið vel saman og gætuð unnið til sameiginlegra verðlauna árið 1990. Páll Magnússon, fréttastjóri Stödvar 2, er tvíburi en kona hans, Hildur Hilmarsdóttir, sporddreki. Um þau merki er sagt ad þar ríki,,ástar-haturs-samband“ á árinu 1990. Hrútur — Vatnsberi Bæði eru sjálfstæð og vilja fara eigin leiðir. Vatnsber- inn getur fengið hrútinn á sitt band, sérstaklega með nýjum áætlunum. Hrúturinn er furðu auðveldur við- fangs. Hrútur — Vog Þau eru á sitthvorum enda litrófsins, gjörólíkt fólk. Ár- ið 1990 býðst þeim tækifæri til að afla sér fjár í samein- ingu. Krabbi — Krabbi Móðurlegt par, gæta hvors annars vel. 1990 eru viss at- riði í einkalífinu sem þið viljið hreinlega ekki ræða. Innan fjölskyldunnar gengur aftur á móti allt í haginn. Krabbi — Ljón Þau eiga ágætlega saman, þó að þau séu ólík. Árið 1990 verðið þið að veita hvort ööru svolítið frelsi — þá semur ykkur vel. Krabbi — Meyja Þau eru bæði varfærin í afstöðu sinni til lífsins. Sam- band ykkar árið 1990 einkennist af ást og góðu skapi. Þið ættuð ekki að taka hliðarspor með öðrum þetta ár. Krabbi — Naut Bæði eru fjölskyldufólk og vilja hafa hægt um sig. Árið 1990 skemmtið þið ykkur dásamlega í ferðalagi og finnst þið vera orðin ung aftur. Krabbi — Sporðdreki Ástríðufullt, trygglynt og eigingjarnt samband. Árið 1990 gera tafir ykkur gramt í geði, en á endanum náið þið yfirhöndinni. Krabbi — Steingeit Traust samband þar til dauðinn aðskilur þau. Árið 1990 virðist þetta samband verða hvikult — og ósam- kvæmt sjálfu sér! Það gæti ýmislegt versnað, áður en það batnar aftur. Krabbi — Tvíburi Hugmyndaríkt par, en tvíburinn er grunnur og krabb- inn djúpur. Krabbinn getur ekki haldið sama hraða og tvíburinn árið 1990, svo þið gætuð fjarlægst hvort annað. Sættir verða dásamlegar. Krabbi — Vatnsberi Sérkennilegt samband, því krabbinn er stundum of til- finningaríkur fyrir vatnsberann. Þið njótið félagsskap- ar hvors annars betur en áður árið 1990. Núna verðið þið að halda aftur af ykkur. Krabbi — Vog Með ánægjulegri samböndum. 1990 verður vogin ef til vill ekki eina manneskjan í lífi krabbans. Það gæti valdið afbrýðisemi og öryggisleysi. Ljón — Ljón Þau minna á tvo leikara sem reyna að stela senunni hvor frá öðrum. Árið 1990 verður sambandið betra en nokkru sinni fyrr. Annað hjálpar hinu á framabraut. Hvað fjárhaginn varðar lendið þið í sameiginlegu klúðri.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.