Pressan - 29.12.1989, Page 8
8
Föstudagur 29. des. 1989
í!IiHiil!ilii!!!íliIi!llll!if
PRESSAN
VIKUBLAÐ A FIMMTUDÖGUM
Útgefandi: Blaö hf.
Kitstjórar: Jónína Leósdóttir Omar Friðriksson
Hlaóamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir Fáll Vilhjálmsson
Ljósmyndari: Einar Olason
Útlit: Anna Th. Kögnvaldsdóttir
Prófarkalestur: Sigríður H. Gunnarsdóttir
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, simi. 68 18 66. Auglýsingasimi: 68 18 66. Áskrift og dreifing. Ármúla 36, simi 68 18 66. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaðaprent hf. Áskriftargjald 500 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþyðublaðið: 1000 kr. á mánuði. Verð i lausasölu: 150 kr. eintakið.
HRUN KOMMÚNISMANS
OG NÝFRJÁLSHYGGJUNNAR
I upphafi níunda áratugarins hófst kuldaskeiö á alþjóðavettvangi og
horföi ekki vænlega fyrir friöar- og jafnaðarsinna. í austri ríkti harö-
stjórn alræðisins — Bréznev, Chernenko og Andropov héldu þjóöum
Sovétríkjanna í rótföstum alræðisgreipum og heittu Afganistan her-
valdi. í Póllandi voru sett herlög og barátta Samstööu barin niður. í Kl
Salvador og fleiri Mið- og S-Ameríicuríkjum rikti blóðug barátta á milli
þjóðfrelsishreyfinga og einræðisafla sem nutu hernaðaraðstoðar
hægri öfgasinna í Bandaríkjunum. í Kvrópu kepptust Bandaríkja-
menn við að koma upp meðaldrægum kjarnorkueldflaugum í sam-
ræmi við samþykkt NATO frá árinu 1979. Sovéski herinn stórjók her-
búnað sinn á hafinu. A fyrstu stjórnarárum sinum sem Bandaríkjafor-
seti kynti Ronald Reagan undir kaldastríðsáróðri með yfirlýsingum
unt „heimsveldi hins illá' — Sovétríkin, og setti ómældar fjárhæðir i
Stjörnustríösáætlunina. í efnahagsmálum ríkti geirnegld miðstýring
kommúnismans i austri og í vestri reið yfir blómaskeið nýfrjálshyggju
Thatcherog Reagans með lilheyrandi niðurskurði ríkisútgjalda til vel-
ferðarmála og taumlítils markaðsfrelsis.
Umskiptin í heiminum á síðari hluta þessa áratugar sem senn líöur
undir lok eiga sér enga hliðstæðu frá striðslokum. Vart |>arf að rifja
upp umbótastefnu Gorbatsjovs eða þá stóratburði sem átt hafa sér
stað í austantjaldsríkjunum ásíöustu mánuðum. Kjölflokkalýðræði er
i buröarliðnum í Póllandi og Ungverjalandi. Alræöisöfl í A-Pýskalandi,
Tékkóslóvakíu og nú síðast Rúmeníu hafa horfiöá einni nóttu. A-Kvr-
ópubúar hafna stjórnkerfi kommúnismans gjörsamlega — í Kvrópu er
hann að renna sitt skeiö á enda. Mikilvægir afvopnunarsamningar
hafa náðst á milli stórveldanna og hlýir vindar samvinnu og skilnings
rikja í samskiptum austurs og vesturs. í Bandaríkjunum hefur frjáls-
hyggjustefna Reagans löngu siglt i strand og nýr forseti fengið það
verkefni að rétta landið úr þeim öldudal sem það er i efnahagslega eft-
ir skuldasöfnun og gííurlegan fjárlagahalla sem frjálshyggjustefna Re-
agan-áranna skildi eftir sig. A Bretlandi eru helstu vígorð nýfrjáls-
hyggjunnar þögnuðogThatcher-stjórnineróvinsælli en nokkru sinni
fyrr á tiu ára ferli sínum.
Pær hugsjónir sem bera uppi þær breytingar sem gengið liafa yfir
siðustu ár kalla á umhverfisvernd, öflugt ríkisvald sem viðheldur vel-
ferð og skynsamlegri efnahagsstjórnum á sama tíma og markaðslög-
málin eru virkjuð með hagsmuni neytenda í huga. Frelsisbyltingin í
A-Kvrópu kann að gera þann samruna Kvröpuríkjanna í eina efna-
hagsheild sem stendur yfir ennþá stórbrotnari en nokkurn gat grunað
fyrr á þessu ári.
Með von um áframhaldandi þröun lýðræðis og jafnaðar á nýju ári
sendir Pressan lesendum sínum bestu nýárskveðjur.
hin pressan
I ■ i| ^ Ijt nMrilft Pólitísk þankabrot skrifa Birgir Árna-
WH son, aöstoöarmaöur viöskipta- og iön-
aöarráöherra, Einar Karl Haraldsson,
ritstjóri Nordisk Kontakt, og BolliHéð-
insson hagfræðingur.
Tveir heimar
Fyrir nokkrum árum hélt
greindur Englendingur, sem
var samtíða mér við háskóla
einn í Bandaríkjunum, því
fram í mín eyru að kommún-
isminn hlyti að líða undir lok
þar sem undir þvi þjóðskipu-
lagi væru engin jólin. Ég
lagði þessa kenningu á minn-
ið aðallega sem gamanmál
en nú þegar ég rifja hana upp
á öðrum degi jóla á því herr-
ans ári 1989 er ég ekki fjarri
því að vinur minn hafi ein-
mitt hitt naglann á höfuðið.
Annars þykja mér jól og
stjórnmál eiga illa saman og
ég verð að viðurkenna að
mér er heldur óljúft að setjast
við skriftir um pólitík á jóla-
hátíðinni. Ef ekki kæmu til
miklir atburðir úti í hinum
stóra heimi á undanförnum
dögum og vikum væri mér
einnig gersamlega orða vant.
Ég á hér auðvitað við atburð-
ina í Rúmeníu og Panama.
-o-o-o-
Það hlýtur að vera hverjum
ærlegum manni fagnaðarefni
að rúmenska þjóðin skuli
hafa tekið höndum saman og
hrakiö frá völdum þá fjöl-
skylduklíku sem haldið hafði
þjóðinni í heljargreipum um
aldarfjórðungsskeið. Pó er
sorglegt til þess að hugsa að
tugir þúsunda manna hafi
þurft aö láta líf sitt til að þetta
mætti veröa.
Valdaskeiði kommúnista-
flokkanna í Austur-Evrópu er
nú aö heita má lokið nema ef
vera skyldi í Sovétríkjunum
sjálfum. Þaö sem var nánast
„Fámenn þjóð sem á sjálfstæði sitt undir því
að farið sé að alþjóðalögum og sjálfs-
ákvörðunarréttur smáþjóða sé virtur getur
ekki haft annað en skömm á framferði
Bandaríkjamanna í þessum málum."
óhugsandi fyrir aðeins
nokkrum misserum er nú
orðið að veruleika í einni
svipan. Alræði kommúnista-
flokkanna í stjórnmálum og
miðstýringu efnahagslífsins
hefur verið hent sem hverju
öðru skrani á ruslahaug.
Friðsamar byltingar hafa
verið gerðar í Póllandi, Ung-
verjalandi, Austur-Þýska-
landi og Tékkóslóvakíu í
nafni borgaralegs lýðræðis
og markaðsbúskapar. Hug-
myndafræðileg rökræða síð-
ustu hundrað ára í Norðurálfu
hefur þannig verið til lykta
leidd á vettvangi veruleikans
með ótvíræðri niðurstöðu,
a.m.k. fyrir Evrópuþjóðirnar.
Helsta undrunarefnið er í
raun hversu langan tíma þaö
hefur tekið. Það væri hins
vegar fjarstæða að halda því
fram að öfgakennd frjáls-
hyggja hefði borið sósíalism-
ann ofurliöi heldur er það þrá
fólksins eftir frelsi, frelsi frá
fátækt og til að ráða sér sjálft
og kalla forystumenn sína til
ábyrgðar sem hefur sigrað.
-o-o-o-
Yfirlýstur tilgangur Banda-
ríkjamanna meö innrás sinni
í Panama var einnig a.m.k. í
aðra röndina að þjóna lýð-
ræðinu. Að mér setti hins
vegar óhug þegar ég heyrði
Bush Bandaríkjaforseta lýsa
þessu yfir í sjónvarpsávarpi.
Bandarísk stjórnvöld eru enn
við sama heygarðshornið í af-
skiptum sínum af málefnum
Mið- og Suður-Ameríku og
þau hafa verið frá því að bóf-
inn Walker leiddi óþjóðalýð
til innrásar í Nigaragua á síð-
ustu öld. Ég efast ekki um að
engu hafi verið logið upp á
þann alræmda hershöfðingja
Noriega. En er hann ekki skil-
getið afkvæmi langvarandi
afskiptastefnu Bandaríkj-
anna í þessum heimshluta?
Abyrgð Bandaríkjanna á
ástandi mála í Vesturálfu
sunnanverðri — á örbirgð og
kúgun þar — er stór og tæp-
ast minni en en Sovétríkj-
anna á stöðnun og frelsis-
skerðingu í Austur-Evrópu
undanfarna áratugi. Það er
umhugsunarvert að á sama
tíma og Sovétmenn láta af-
skiptalausa og kynda jafnvel
undir frelsisþróun í ná-
grannaríkjum sínum skuli
Bandaríkjamenn enn leggja
stund á heimsvaldasinnaða
ævintýramennsku í óljósum
tilgangi. Því er víst að það er
ekki lýðræðisástin sem rekið
hefur Bandaríkjamenn til að
gera innrás í Panama og harla
iítinn áhuga virðast þeir hafa
á því að hafa hendur í hári
Noriega. Helst hafa getur ver-
ið að því feiddar að Bush for-
seti hafi með innrásinni viljað
má af sér aumingjastimpilinn
sem lengi hefur við hann loð-
að heimafyrir (the whimp
factor). Innrás Bandaríkja-
manna fyrir nokkrum árum í
eitt smæsta þjóðríki veraldar
— Grenada — að undirlagi
Reagans, þáverandi Banda-
ríkjaforseta, var sprottin af
svipuðum hvötum.
Fámenn þjóð sem á sjálf-
stæði sitt undir því að farið sé
að alþjóðalögum og sjálfs-
ákvörðunarréttur smáþjóða
sé virtur getur ekki haft ann-
að en skömm á framferði
Bandaríkjamanna í þessum>
málum.
Ég finn betur nú enn
nokkru sinni áður aö ég á í
stjórnmálalegu og menning-
arlegu tilliti fyrst og fremst
samleið með öðrum Evrópu-
mönnum. Hinn evrópski hug-
arheimur er mér meira aö
skapi en hinn ameríski.
Koniak handa afa
— Fyrirsögn á sælkerasíöu DV
Kóka kóla breytti jólasveinin-
um
— Fyrirsögn í DV
Þetta var yndisleg jólagjöf
— Nýoröin þríburamóöir í DV
Ók á lögreglubílinn
— Fyrirsögn i Bæjarins besta, isa-
firöi
Vafalaust má deila um hvort
jólahaldið hefur f jarlægst
upphaflegan tilgang sinn
— Víkverji í Morgunblaöinu
Ég er alveg stað-
ráðin í því að
einn góðan veður-
dag œtla ég að
bjóða þeim
(spaugstofumönn-
um) hingað heim
til að koma og
skoða minn fata-
skáp
— Guörún Helgadóttir þingmaður í
viðtali við Timann
Peter, en svo hét
hinn rússneski
leiðsögumaður
okkar, leiddi okk-
ur inn í spenn-
andi og í senn
ógnvekjandi heim
kommúnismans
— Stúdentafréttir um heimsókn
fjölmiðlafræðinema til Sovét-
ríkjanna
Aldís og Eydis reynast vel Já, það fékkst sko Heineken-
— Blaðafulltrúi Flugleiöa i Morgun- bjór í Sovétríkjunum
blab'nu — Sama blað um sömu ferö
Lögregla og slökkvilið:
Klipptu i sundur bil — með
nýju klippunum
— Fyrirsögn í Bæjarins besta, ísafiröi