Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 21
Föstudagur 29. des. 1989
21
*
■'m.íí v
ff> 'lpt plpip^fgatffe I
. ;
„Framundan er
viðburðaríkur kaffli
i líffi Daviðs. Hann
byrjar þó ekki i
alvöru fyrr en
1992, en stendur
alveg til
aldamóta . .
„Guðrún verður
vissulega fremur
vinsæl, en það er
bara við ofure
etja . . .
fi
er klókur
maður, en hefur hlotið þau
örlög að vera svolítið
misskilinn aff samtíðarmönnum
smum
„Olafur Ragnar
„SPRENGING" TENGD
UNGLINGUM
Málefni barna og unglinga verða í brennidepli árið 1990
og þetta verður einn af mest áberandi máíaflokkunum í
þjóðmálaumræðunni. Það er barátta á milli kynslóðanna og
nokkurs konar uppgjör í vændum í náinni framtíð. Stig af
stigi nálgast hins vegar einhver málamiðlun og kynslóðirnar
ná því að verða betur samstiga.
Mikið verður fjallaö um ailt, sem tengist uppeldismálum.
Hugsanlegar leiðir til úrbóta verða ræddar og ekki yrði ég
hissa þó komið yrði á fót nokkurs konar ráði eða stofnun,
sem færi með málefni barna og unglinga. Það veröa a.m.k.
gerða einhverjar ráðstafanir til að koma til móts við þarfir
unga fólksins.
Eiginlega hallast ég að því að það veröi einhver „spreng-
ing" út af þessum málaflokki og hann verður ekki bara ofar-
lega á baugi árið 1990, heldur næstu sjö ár. Á því tímabili
verður hugarfarsbreyting hjá unglingum gagnvart fullorðna
fólkinu og hjá þeim eldri gagnvart unglingunum. Slík við-
horfsbreyting gæti stðan beinlínis haft áhrif á lífsstíl okkar
á mjög bókstaflegan hátt.
Það verða einhverjar breytingar í skólamálum og verða
þær til þess að styrkja stöðu okkar á alþjóðavettvangi. Ef til
o
vill verður um aö ræöa endurskoöun eða bætur á mennta-
rnálum hér á landi til samræmingar við erlend menntakeríi.
Ég held, að þetta snerti aöallega síðustu bekki grunnskóia
og framhaldsskólana.
PENINGAMÁLIN
íslendingar hafa góða möguleika á því að styrkja fjárhags-
lega stöðu sína á næsta ári, sem og raunar næstu sex til sjö
árum. Svo góða möguleika, að við megum alls ekki láta þá
fara til spillis. Þetta kemur sérstaklega í Ijós á tímabiiinu frá
maí og fram yfir ágústmánuö.
SKYNDIFUNDIR ÆÐSTU
VALDASTOFNANA
Óvenjumikið veröur um deilur og hörð átök á Alþingi árið
1990. Ríkisstjórnin hefur góða möguleika á því að vinna
þessi átök og mál hennar munu njóta brautargengis. Mánuð-
irnir apríl og ágúst verða stjórninni sérlega hagstæðir.
Stjórnarandstaðan stendur í ströngu gagnvart ríkisstjórn-
inni bæði í janúar og febrúar og einnig í maí og júnibyrjun.
Þá verða stjórnarflokkarnir að hafa sig alla við í átökunum.
Það verður mjög viðburðaríkt á íslandi í maí og júní og
sennilega stendur það í sambandi við sveitarsljórnarkosn-
ingarnar. Það lítur út fyrir að stjó'-nin haldi velli áriö 1990,
en hún lendir samt í gífurlegum átökum og veröur afskap-
lega óvinsæl.
Það verður líka eitthvað mikið um að vera á árinu, sem
veldur því að endurtekið þarf að kalla saman á skyndifundi
æðstu valdastofnanir lýðveldisins, t.d. ríkisráðið. Þetta teng-
ist einhverjum sérlega mikilvægum ákvarðanatökum og lík-
legast er að þetta gerist um haustið eða veturinn 1990.
Það geta orðið deilur vegna virðisaukaskattsins frá mars
eða apríl og fram í júni.
VERKFÖLL
Það verða verkföll á árinu. Gæti þar m.a. veriö um að
ræða starfsfólk Pósts og síma og að öllum likindum riðlast
strætisvagnasamgöngur líka eitthvað af völdum verkfalla.
Svo verða heilmiklar deilur í tengslum við bókaútgáfu, blöð
og aðra fjölmiðla. Þessar deilur gætu haft áhrif á skólamál
hér á landi.
KVENNABYLTING í
STJORNMALAFLOKKUNUM
Kjör kvenna í þjóöfélaginu verða í brennidepli á árinu,
engu síður en málef ni unglinga, og geta skapað átök. Jafnvel
gæti komið til nokkurs konar uppgjörs á milli karla og
kvenna árið 1990 og ég hallast að því að það gerist m.a. inn-
an „gömlu" stjórnmálaflokkanna.
Konur í stjórnarandstöðuflokkunum munu haía töluvert
að segja á næstunni og geta haft úrslitaáhrif á pólitíkina á ár-
inu. En þær munu þurfa að berjast hart fyrir sínum málum.
Konur munu raunar fá síaukin áhrif við stjórn landsins á
komandi árum, bæði konur sem starfa í stjórnmálum og
einnig geta konur almennt haft úrslitaáhrif með því hvernig
þær nýta atkvæði sín í kosningum.