Pressan - 29.12.1989, Page 22
C3Gr .e&b .6S luq&bulaö-l
22
Föstudagur 29. des. 1989
STEINGRÍMUR HERMANNSSON:
Árið 1990 er Steingrími
gott hvað varðar hvers
kyns samstarf eða sam-
vinnu. Samskipti hans
við fjöldann verða líka
jákvæð og það sama á
við um samningavið-
ræður og frágang ým-
issa mála. I heild verður
árið þó svolítið þreyt-
andi fyrir hann og hann þyrfti að fara afar vel
með sig.
Viðburðaríkustu mánuðirnir í lífi Steingríms á
þessu ári verða febrúar, júní og október.
SVAVAR GESTSSON:
Svavari verður fremur
vel ágengt í fram-
kvæmdum ársins 1990.
Átakapunktarnir tengj-
ast helst stjórnarand-
stöðunni og hann verð-
ur að leggja sig allan
fram, ef hann á að kom-
ast í gegnum árið án
þess að verða fyrir
miklum áföllum á þeim vettvangi.
Það verða töluverðar breytingar á einkalífi
hans á árinu og það bendir allt til að þær verði
honum til góðs. Hann er sem sagt á leið inn í
fremur jákvætt tímabil í einkalífinu.
Afdrifaríkustu mánuðir ársins hjá Svavari eru
apríl, ágúst og tímabilið í kringum jólin árið
1990.
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON:
Ólafur Ragnar er klók-
ur maður, en hefur hlot-
ið þau örlög að vera svo-
lítið misskilinn af sam-
tíðarmönnum sínum.
Þetta verður honum
gott baráttu- og fram-
gangsár og hann mun
sjá árangur af erfiðinu.
Hann má búast við því
að lenda í miklum deilum og að einhver spenna
myndist í tengslum við starfsstefnu hans, en
þetta verða frekar átök innan ríkisstjórnarinnar
en á milli hans og stjórnarandstöðunnar.
Það verður mikið um að vera í tilfinningamál-
um Ólafs Ragnars árið 1990 og verður það allt
fremur jákvætt fyrir hann. Raunar hófst mjög
viðburðaríkt tímabil í lífi hans þegar haustið
1989 og lýkur því ekki fyrr en næstkomandi
haust. Hann nýtir alla sína orku í starfið og hefur
lítinn tíma fyrir fjölskylduna.
Vorið og haustið eru afdrifaríkustu tímabil árs-
ins 1990 fyrir fjármálaráðherrann.
GUÐMUNDUR BJARNASON:
Þetta verður í heild
frekar farsælt ár hjá
Guðmundi Bjarnasyni
og jákvætt tímabil hvað
fjölskyldumál varðar.
Einhverri þungri byrði
verður létt af honum á
árinu og hann á auð-
veldara með að takast á
við þau vandamál, sem
hann þarf að leysa.
Eins og svo margir aðrir af æðstu ráðamönnum
þjóðarinnar þyrfti Guðmundur að taka sér góða
hvíld — helst næsta vor. Hann ætti líka að taka til-
lit til sjálfs sín og gæta þess að ofgera sér ekki í
starfinu í árslok 1990 og fyrri hluta ársins 1991.
Þetta er maður með sterka réttlætiskennd.
GUÐRUN HELGADOTTIR:
Árið 1990 verður Guð-
rúnu Helgadóttur hag-
stætt til allrar sam-
vinnu, hún verður
áfram í sviðsljósinu og
stutt ferðalög reynast
henni jákvæð. Ef hún
fer út í einhverjar
skriftir á árinu gengur
það áreiðanlega frekar
vel. í stórum dráttum verður árið hins vegar ró-
legt og það verður sviplítið hvað varðar fjöl-
skyldumál.
Guðrún ætti að nota vel árið 1990, því 1991
verður meira átakaár og þá verður hún að öllum
líkindum ekki lengur í forsetastóli í Sameinuðu
þingi. Seinni hluti næsta sumars verður við-
burðaríkt tímabil.
LÖND, SEM VERÐA í
HEIMSFRÉTTUNUM Á NÆSTA ÁRI:
SVÍÞJÓÐ
RAUÐA-
RÚSSLAND
ENGLAND
^ MEXÍKÓ
EISTLAND
LETTLAND LITHÁEN
PÓLLAND
AUSTUR-ÞÝSKALAND
AFGANISTAN
BÚLGARÍA
GRIKKLAND
ALBANÍA ARMENÍA
SAUDI-ARABÍA
ALSÍR
LÍBÝA
ENGLAND:
Búast má viö miklum
óeiröum í London árið 1990,
en ég á erfitt með að átta
mig á hvernær ársins það
veröur. Næsta vetur og jafn-
vel fram á vor veröur líka
mikið um verkföll á Eng-
landi og standa þau í sam-
bandi við járnbrautir.
Margrét Thatcher forsæt-
isráöherra mun eiga í vök aö
verjast allt árið viö að koma
málum sínum í gegnum
enska þingið.
Töluveröar deilur geta
orðið næsta vor á milli Evr-
ópubandalagsins og George
Bush Bandaríkjaforseta.
BANDARÍKIN:
í sumarbyrjun verða al-
varleg slys í Bandaríkjun-
um. Bæði gæti orðið um að
ræða umferðarslys, en einn-
ig gætu þau tengst Banda-
ríkjaher eða vopnafram-
leiðslu.
ÞÝSKALAND:
Þýskaland heldur áfram
að vera í heimsfréttunum,
enda um nokkurs konar
endurfæðingu að ræða.
Landið mun styrkja stöðu
sína og það sama á við um
þýska markið.
Sameining Austur- og
Vestur-Þýskalands gæti hins
vegar reynst löndunum
hættuleg og leitt til spennu
eða einhverra óeirða á milli
austurs og vesturs. Einnig
myndi hugsanlegsameining
leiða af sér togstreitu og
ýmsa erfiðleika innan Evr-
ópu.
KÍNA:
Herinn mun gera upp-
reisnartilraun og Kínverjar
neyðast til að opna landið út
á við.
SOVÉTRÍKIN:
Næsta ár verður átakaár í
Sovétríkjunum, því gamli og
nýi tíminn takast þar á, en
umbótastefna Gorbachevs
mjakast hægt og sígandi
áfram.
Miklar deilur verða á milli
Gorbachevs og gömlu
flokksjálkanna og hann
mun einnig eiga í deilum
við KGB. í maí og júní verð-
ur viðburðaríkt tímabil í
Sovétríkjunum og síðan aft-
ur í september og október.
Gorbachev verður sem
sagt að standa í ströngu og
mér finnst afar líklegt að
byltingartilraun verði gerð
gegn honum á árinu 1990
eða 1991. Það gæti jafnvel
farið svo að Sovétríkin leyst-
ust upp í smærri einingar.
FRAKKLAND:
Næsta ár verður erfitt í
Frakklandi. í lok ársins
verða miklar umbreytingar
tengdar stjórninni og bendir
ýmislegt til þess að konur
standi á einhvern hátt á bak-
við þær breytingar. í Suð-
ur-Frakklandi verður óró-
legt, jafnvel kynþáttaóeirð-
ir, sem geta breiðst út. Iðn-
aður í landinu mun hins veg-
ar eflast á árinu.
JAPAN:
Það verður mikið um
hneykslismál í Japan árið
1990 og fjármálaveldi þeirra
verður ekki jafntraust og á
síðustu árum.
ÚTLÖND
ALMENNT:
Að öllum líkindum grillir á
næsta ári í þann möguleika
að bólusetja fólk gegn al-
næmi. Ef það gerist ekki ár-
ið 1990, þá verður það
a.m.k. í mjög náinni framtíð.
Einnig verða framleidd á
næstu árum lyf, sem geta
haft áhrif á hrörnunarsjúk-
dóma.
Áhrifamiklir straumar í
listum berast frá löndum í
Austur-Evrópu.
Átök á milli austurs og
vesturssetjasvipáárið 1990
í Evrópu.
„Jón mun ekki hafa mikinn tima
til að skemmta sér á næsta ári,
enda virðist hann hafa
takmarkaðan áhuga á slíku.
Hann lifir fyrir vinnuna.y#
AÐALHEIÐUR BJARNFREÐSDÓTTIR:
Árið verður Aðalheiði
Bjarnfreðsdóttur nokk-
uð gott. Heilsan verður
allsæmileg og það sem
snýr að starfi hennar og
framkvæmdum verður
líka fremur gott. Ein-
hverjar breytingar
verða þó á högum henn-
ar á árinu 1990 eða
1991 — kannski viss þáttaskil, en þau verða
henni alls ekki neikvæð.
Framundan er rólegt tímabil í einkalífinu, en
afdrifaríkasti tíminn í lífi Aðalheiðar á næsta ári
er mars/apríl, júlí/ágúst og nóvember.
GUÐRUN AGNARSDOTTIR:
Þetta verður mjög
blandað ár fyrir Guð-
rúnu Agnarsdóttur.
Hún hefur töluvert þrek
og úthald, enda þarf
hún á orkunni að halda,
því hún lendir í mikilli
andstöðu og baráttu við
persónur, sem hafa
meira vald en hún sjálf
eða standa á einhvern hátt betur að vígi. Samt
verður hún vissulega fremur vinsæl, en það er
bara við ofurefli að etja.
Vorið getur orðið viðburðaríkt og það sama á
við um septembermánuð, en haustið allt verður
mikið álagstímabil.
Júlíus Sólnes hefur ver-
ið að berjast fyrir skoð-
unum sínum frá því vor-
ið 1989 og sú barátta
heldur áfram til næsta
vors. Þetta er mikið
átakatímabil í lífi hans,
en það gæti vel skilað
einhverjum árangri.
Febrúar og mars
verða áhrifamiklir mánuðir og sumarið 1990 get-
ur reynst honum jákvætt. Hann verður hins veg-
ar að fara varlega í umferðinni.
RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR:
Þetta er kona, sem vill
hafa næði, frið og stöð-
ugleika í kringum sig
og framkvæmdir sínar.
Hún er líka afar vönduð
í öllum sínum fram-
kvæmdum og það er
gott að leita til hennar
og njóta ráðlegginga
hennar. Það ætti raunar
betur við hana að starfa sem einhvers konar leið-
beinandi en þingmaður.
Árið 1990 verður mikið vinnuár hjá Rann-