Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 23
Föstudagur 29. des. 1989
23
veigu, hún verður oft undir gífurlegu álagi og
þarf að sýna þolinmæði. Það mun líka auka á
álagið að hún neyðist ósjaldan til að sigla á milli
skers og báru og það fellur henni ekki. Hún mun
hafa lítinn tíma til að sinna málefnum fjölskyld-
unnar. Hún verður að gæta þess að skuldbinda
sig ekki of mikið í fjármálum — sérstaklega næst-
komandi haust.
I heild verður árið henni þó frekar hagstætt, en
hún verður að sýna raunsæi í samskiptum við
annað fólk og treysta eigin skynsemi.
JÓN ÓTTAR RAGNARSSON:
Jón Óttar hefur til-
hneigingu til að vilja
leika hlutverk konungs
og hann hefur mikla
löngun til að hafa
áþreifanleg áhrif á um-
hverfið.
Hann er að ganga í
gegnum tímabil, sem er
fjárhagslega erfitt, en
tekur hlutunum þó með alveg ótrúlega heim-
spekilegri ró. Hann leyfir atburðunum ekki að
snerta sig of djúpt, jafnvel þó hann sé nánast kró-
aður af. Þetta er sem sagt baráttutími, en hann
hefur þrek til að berjast.
Bæði nóvember og desember síðastliðnir voru
viðurðaríkir í lífi Jóns Óttars og það sama mun
eiga við um mars árið 1990. Allur fyrri hluti nýja
ársins gæti raunar reynst honum allerfiður. Stór-
átökunum er ekki lokið og það getur brugðið til
beggja vona.
DAVÍÐ ODDSSON:
Undanfarin tvö til þrjú
ár hafa verið mikið um-
breytinga- og uppbygg-
ingartímabil í lífi Dav-
íðs Oddssonar, en fram-
undan er sérlega við-
burðaríkur kafli í lífi
hans. Hann byrjar þó
ekki fyrir alvöru fyrr en
árið 1992, en stendur
alveg til aldamóta. Ef til vill þýðir þetta að Sjálf-
stæðisflokkurinn fer inn í ríkisstjórn og Davíð
verður ráðherra og þá fer í hönd mjög mikilvægt
tímabil í sögu flokksins.
Komandi ár verður í raun auðvelt, jákvætt og
þægilegt fyrir Davíð. Þó verður mikið stríð eða
valdaátök í kringum hann og embætti hans, en
útkoma hans úr þeirri viðureign verður fremur
góð. Árið verður viðburðamikið og áhrifaríkt.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON:
Árið 1990 gæti reynst
Halldóri Asgrímssyni
erfitt átakaár. Hann
þarf að hafa mikla þol-
inmæði, a.m.k. fram yf-
ir miðbik sumars, því
það eru gerðar gífurleg-
ar kröfur til hans. Undir
lok ársins á hann þó von
á ákveðnum sigri.
Raunar er árið svolítið blandað. Að mörgu leyti
getur það orðið alveg sérdeilis jákvætt, en á öðr-
um vettvangi afskaplega erfitt. Það verða miklar
sveiflur tengdar starfi hans og stefnu og tekist
verður á af hörku. Apríl verður t.d. ekki auðveld-
ur.
Hvað einkalífið varðar er árið hagstætt, en
hann ofkeyrir sig, því vinnan yfirskyggir allt
annað.
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON:
Jón Baldvin fær mörg
góð tækifæri í starfi
sínu á fyrri hluta ársins
1990 og þau þyrfti hann
að nýta vel. Þetta er
hagstæður tími til að
taka á öllu, sem snertir
önnur lönd og utanrík-
ismál. Hann fer hins
vegar svolítið sínar eig-
in leiðir, en þyrfti að koma meira til móts við
skoðanir annarra. Og hann þarf að vinna sérlega
vel úr öllum málum á fyrstu mánuðum ársins.
Hann er ekki jafnúthaldsgóður og áður og því
verður hann að taka meira tillit til heilsunnar en
hann hefur áður þurft að gera.
Mánuðirnir maí og júní verða allviðburðaríkir,
einnig haust og vetur 1990.
ÞORSTEINN PÁLSSON:
Árið 1990 verður frem-
ur viðburðaríkt hjá
honum og alls ekki
óhagstætt. Honum gefst
hins vegar lítill tími til
að sinna eigin málefn-
um, því hann mun
skorta næði til þess.
Það hófust mikil
þáttaskil í lífi hans í lok
októbermánaðar síðastliðins og þær breytingar,
sem eru honum í hag, halda áfram að styrkjast
fram til ársins 1991.
Mars, júlí og nóvember verða áhrifamiklir
mánuðir.
,,Það verða töluverðar
breytingar á
árinu, og
þær verði
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR:
Næsta ár verður að
mörgu leyti frekar gott
hjá Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og fyrri hluti
þess verður tiltölulega
rólegur, sem verður
léttir fyrir hana. Já-
kvætt tímabil ríkir fram
yfir haustið og allt sem
lýtur að ferðalögum
verður henni hagstætt. Hún fer brátt að sjá
áþreifanlegan árangur af því, sem hún hefur ver-
ið að berjast fyrir.
Viðburðaríkustu mánuðir ársins verða apríl og
ágúst. Haustið 1990 og árið 1991 verður líka já-
kvætt fyrir Jóhönnu varðandi starf hennar og
stefnu, þó því fylgi ef til vill mikil átök og vinna.
JÓN SIGURÐSSON:
Jón Sigurðsson býr yfir
ótrúlegri seiglu og gefst
aldrei upp, en þetta er
mjög erfitt tímabil hjá
honum. Það verða mikil
átök í kringum hann
fram á sumar 1990 og
hann veitir sér litla
hvíld. Það eru líka tölu-
verðar líkur á því að
hann hafi erindi sem erfiði og hann fer í margar
áhrifaríkar ferðir á komandi ári.
Jón þarf, eins og fleiri kollegar hans, að gæta
þess að ofkeyra sig ekki á næstu árum. Árið 1990
verður honum sæmilega hagstætt, ekki síst
vegna eigin seiglu. Fyrri hluti ársins verður við-
burðaríkari en sá síðari, þó raunar dragi til ein-
hverra tíðinda um haustið.
Jón mun ekki hafa mikinn tíma til að skemmta
sér á næsta ári, enda virðist hann hafa takmark-
aðan áhuga á slíku. Hann lifir fyrir vinnuna.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON:
Steingrími J. Sigfússyni
mun takast ágætlega að
fá málum sínum fram-
gengt árið 1990 og það
verður hagstætt til
hvers kyns ferðalaga.
Þetta verður allvið-
burðaríkt ár hvað varð-
ar framkvæmdir.
Árið verður jákvætt í
einkalífi Steingríms, sem er mjög trygglyndur
maki, en aðaláherslan er á vinnuna — a.m.k.
fram á miðbik ársins 1991, ef ekki lengur. I heild
verður árið 1990 honum sem sagt harla gott.
Hún þarf hins vegar nauðsynlega að fara betur
með sig og hlífa sér meira en hún gerir.
ÓLI Þ. GUÐBJARTSSON:
í heild verður árið 1990
frekar jákvætt fyrir Ola
Þ. Guðbjartsson, þegar
starf og stefna eru ann-
ars vegar. Hann verður
mjög virkur og gæti líka
séð einhvern árangur af
framkvæmdum sínum.
Mars og apríl verða
þýðingarmiklir mánuðir í lífi hans og haustið
verður honum hagstætt, sérstaklega í einkaiíf-
inu. Það geta hins vegar orðið töluverð valda-
átök, sem tengjast starfi hans.
BORGIR, SEM BÚAST MÁ VIÐ UPPÞOTUM í Á NÆSTA ÁRI: New Orleans, Washini’tort, London.
Einnig veröur mikill óróleiki í horgum í Sudur-Frakklandi, ef ekki beinlínis óeiröir vegna kynþáttadeilna.
BORGIR, SEM VERÐA í HEIMSFRÉTTUNUM Á NÆSTA ÁRI : New York, Stokkhólmur, Jerúsalem,
Lyon, Toulouse.
BORGIR, SEM TENGJAST LISTRÆNUM VIÐBURÐUM Á NÆSTA ÁRI: Salzhurg, Hamborg,
Miinchen.