Pressan - 29.12.1989, Blaðsíða 28
PRESSU
launamunur er þó nokkur milli
starfsmanna þeirra banka sem
sameinast í íslandsbanka um ára-
mót. Stjórn íslandsbanka er enn
ekki búin að taka af skarið um
hvernig eða bvort laun skuli sam-
ræmd þannig að bankastarfsmenn í
sambærilegum störfum fái sama
kaup. Fulltrúar starfsmanna bank-
anna fjögurra munu hittast í dag og
reyna að koma sér saman um sam-
eiginlega stefnu í þessu máli. . .
þOgetur
Hvergi í heiminum er jafnhátt vinningshlutfall og hjá Happdrætti Háskólans,
því 70% af veltunni renna beint til vinningshafa! Þar með er vinningsvonin hvergi jafnmikil
og hjá Happdrættinu. í ár eru yfir 2000 milljónir króna í pottinum. í raun gæti annar hver íslendingur
hlotið vinning því að vinningarnir eru 135.000 talsins. Mest getur þú unnið 45 milljónir á eitt
númer - allt skattfrjálst. Með trompmiða er hægt að vinna 10 milljónir króna í hverjum
mánuði og 25 milljónir í desember.
Tryggðu þér happamiða strax - þú mátt bara til!
Ifiíýverið var Birgir Braga-
son, sem séð hefur um vinsælan
bílasportþátt á Stöð 2, settur út í
kuldann í samtökum íþrótta-
fréttamanna. Framundan er kjör
íþróttamanns ársins og því Ijóst
að Birgir mun ekki hafa atkvæðis-
rétt i því kjöri íþróttafréttamanna.
Er þetta talið til marks um að bif-
reiðaíþróttir þyki ekki gjaldgengar
þegar greidd eru atkvæði um helstu
afreksmenn íþróttanna eftir áriö...
ýverið lét Hétur Oigeirsson
(faðir Lindu alheimsfegurðardrottn-
ingar) af framkvæmdastjórn Tanga
hf. á Vopnafirði. Tangi er eitt af
stærri Sambandsfrystihúsunum í
landinu og er eitt þeirra fyrirtækja
sem hafa verið til meðferðar hjá at-
vinnutryggingaqóði. Við starfi
Péturs tekur ungur Breiðdælingur,
Friðrik Guðmundsson, kaupfé-
lagsstjóri á Stöðvarfirði. . .
H^Éörgum ofbýður sölu-
mennskan sem ríkir fyrir jólin. Af-
greiðslufólk í vetslunum þurfti aö
vera í vinnunni langt fram á kvöld
síðustu þrjá dagana fyrir jólin. I
Kringlunni var til dæmis opiö til
klukkan níu að kvöldi á fimmtudag-
inn og föstudaginn og á Þorláks-
messu var eins og venjan er opið
til klukkan ellefu. Hins vegar
gekk verslunin Sautján fram af
mörgum, meira að segja öðrum
kaupmönnum. Sautján haföi nefni-
lega opið á aðfangadag sem, eins
og flestum mun væntanlega kunn-
ugt, bar upp á sunnudag. . .
b—
sáttir hvað vinsældalista yfir bæk-
ur varðar. Fyrir jólin munu nokkrar
bókaverslanir í Reykjavík hafa stillt
ákveðnum bókum á sérstakt borö,
og sett þar upp lista sem sagði til um
hvaða bók væri mest seld, hver
næst og svo framvegis. Telja ýmsir
bókaútgefendur að vinsældalisti af
þessu tagi hafi óhjákvæmlega haft
áhrif á val fólks. í viðtali í útvarpinu
í gær, fimmtudag, við Örlyg Hálf-
dánarson útgefanda kom fram að á
þeirri stuttu vertið sem hér ríkir í
bóksölu bæri að hugleiða af alvöru
hvort ekki væri rétt að útgefendur
sætu allir við sama borð. Benti Or-
lygur á að fullyrðingar um mest
seldu bækurnar gætu haft afdrifa-
ríkar afleiðingar fyrir sölu annarra
bóka...
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
ARGUS/SlA