Pressan - 26.04.1990, Page 4

Pressan - 26.04.1990, Page 4
4 Fimmtudagur 26. apríl 1990 litilræði af hermannaveiki Þegar ég var yngri og hraustari en ég er í dag kom þaö stundum fyrir aö ég drakk brennivín mér til hressingar og heilsubótar. Þetta var ágætt á meðan á því stóð og allir í sjöunda himni, sérstaklega mínir nánustu (ef ég man rétt). Ölteitin keyröi aö vísu — aö sumra dómi — stundum úr hófi í sumarfríum, sérstaklega þegar heimdraganum var hleypt og haldið til fjarlægra landa til aö höndla gleðina og lífs- hamingjuna. Eftir slíkar feröir var maður stundum meira en lítið lumpinn og satt aö segja jafnvel spítala- matur. í þá daga var þetta kallað „timburmenn", ein- faldlega vegna þessað þá hafði landlæknirenn ekki komist að því hvað það var sem hrjáði sól- arlandafara svo sárlega eftir þriggja vikna heilsubótardvöl á sólarströnd. Nú þykir það hinsvegar fullsannað að ef maður kemur heim illa haldinn eftir þrjár vikur á Spáni í vindlingum, viskíiog villtum meyjum, þá hafi maður fengið hermannaveiki. Helst er að skilja á forsvarsmönnum heilsu- gæslunnar í landinu að hemnánnaveikin sé að- kenning af „svartadauða" og að það sé mis- skilningur að svartidauði hafi ekki sífellt verið að skjóta upp kollinum síðan um aldamótin fjórtánhundruð. Sannleikurinn er sá að flestir fá aðkenningu af hermannaveikinni fljótlega eftir að þeir hafa stigið uppí flugvélina sem flytur þá suðrábóg- inn. Einkennin eru þó væg til að byrja með, en síðan elnar mönnum sóttin eftir því sem á dvalartímann líður í sólarlöndum. Ljóst er að sjúklingar eru verst haldnir þegar þeir eru að leysa svefninn og má þá einu gilda hvenær sólarhringsins þeir hafa náð því að festa blundinn. Sjúklingurinn vaknar þannig oft mjög þrút- inn og með blóðhlaupin augu. Hann hefur þá gjarnan tapað tönnunum, konunni, persónu- skilríkjum og peningum. Mjög algengurfylgikvilli hermannaveikinnar er „algert minnisleysi", sem á fagmáli er kallað „blackout". Nú hafa allar ferðaskrifstofurnar í landinu sameinast um að gefa út leiðbeiningar um það hvernig hægt sé að halda hermannaveikinni niðri á meðan verið er í heilsubótarfríi í sólar- löndum og birti ég þær hérmeð væntanlegum sólarlandaförum til halds og trausts. Þjóðráð er að hafa á náttboröinu hjá sér hálft vatnsglas af koníaki blandað súkkuiaði- líkjör, rjóma og krem du mint og skutla þessu í sig um leið og maður leysir svefninn. Þetta meðal er kallað „Lúmúmba" og hefur undraverð áhrif. Ekki sakar að eiga valíum og líbríum til að slá á hina sálrænu hlið veikinnar, taka síðan inn sex matskeiðar af rommi, renna því niður með staupi af kókakóla, taka svo fjórar amfetamín og skella sér í sund. Ekki er talið ráðlegt, meðan maður er hald- inn hermannaveikinni, að fara í sjóinn. Farið heldur í sundlaug hótelsins þar sem baðverðir eru jafnan til taks til að draga þá uppúr lauginni, sem fá aðkenningu af þeim svefndrunga sem er fylgikvilli hermanna- veikinnar. Lífgunartilraunir með „munnviðmunn"- aðferðinni hafa þá oft bæöi gefið góða raun og verið fyrsta skrefið að því að stofna til skyndikynna. Margir sem haldnir eru hermannaveikinni eiga það til að fara í laugina í öllum fötunum og hefur það að sjálfsögðu bæði sína kosti og galla. Öruggara er þó að koma skónum í örugga gæslu áður en sjúklingar varpa sér til sunds svo þeir týnist ekki og sama er að segja um tennurnar. Þær má geyma í ölglasinu á sund- laugarbarminum. Þegar búið er að fá sér þannig góðan sund- sprett getur verið ágætt að fara í sturtu og raka sig en fara þá úr fötunum. Síðan er farið í slopp á barinn og pantaður annar „Lúmúmba". Þá er eiginmaðurinn kominn í leitirnar, eða eiginkonan ásamt spænskum unglingi sem hljóp í skarðið á meðan sofið var. Þegar komið er úr sundinu er höfuðnauð- syn að halda hermannaveikinni niðri með því að taka inn sex matskeiðar af rommi og renna þeim niður með einu vatnsglasi af „Lúmúmba" til að taka rommbragðið úr munninum. Sólbruni er annar fylgikvilli sólarlandaferð- anna en oft stafar hann af því að sólarlanda- fari sem haldinn er hermannaveikinni sofnar oní súpudiskinn eða oní ketkássuna, sem hefur stundum verið kallað að fá sér kríu- blund í kássunni. Ef þess er vandlega gætt að hafa „Lúm- úmba" alltaf við höndina er semsagt hægt að halda spænsku veikinni niðri í þær þrjár vikur sem dvalið er í sólarlöndum. Lýkur hér leiðbeiningum ferðaskrifstofanna um varnaðaraðgerðir gegn hermannaveikinni sem stundum hefur raunar verið kölluð spænska veikin. Nú vænta landsmenn þess að landlæknis- embættið gefi út leiðbeiningar um það hvernig bregðast eigi við þessari spænsku veiki eftir að heim er komið og ekki tök á að ná í undrameð- alið „Lúmúmba". Hafa verður hugfast að hermannaveikin sem áður var kölluð „spænska veikin" er læknan- legur kvilli. Þess vegna færi vel á því að landlæknir sendi frá sér þessa gömlu góðu lækningavísu: Spænska veikin virðist mér vond og mjög til nauða. Við henni lækning ein þó er ögn af svartadauða. MALLORCA Dagflug í allt sumar

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.