Pressan


Pressan - 26.04.1990, Qupperneq 6

Pressan - 26.04.1990, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 26. apríl 1990 _■___. •_____^_______ . ipiliiilili wffimm VIKUBLAD Á FIMMTUDOGUM ÚtKefandi: Blað hf. Kramkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Kitstjórar: Jónína Leósdóttir Omar Krióriksson Blaóamemi: Anna Kristine Mai»núsdóttir Björíí Kva Krlendsdóttir Kriórik Þór (iuómundsson Ljósmyndari: Kinar Olason Útlit: Anna Th. Rögnvaldsdóttir l’rófarkalestur: Si^ríöur H. Gunnarsdóttir Aui»lýsingastjóri: Hinrik (iunnar Hilmarsson Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, simi: 68 18 66. Auglysingasimi: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, simi 68 18 66. Setning og umbrot. Leturval sf. Prentun: Blaöaprent hf. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi. Áskriftargjald: Pressan og Alþýöublaöið. 1000 kr. á mánuði. Verö í lausasolu: 150 kr. eintakiö. BYRÐ PU I DAUÐAGILDRU? Lög eru ekki til skrauts, heldur eru þau ætluð til hrúks. Sú virðist þó því miður ekki alltaf vera raunin. Lf farið hefði verið að landslögum um rafmagnseftirlit, sem alþingismenn settu væntanlega í góðri trú umað þeir væru að stuðla að auknu öryggi fólks, hefði t.d. kannski verið hægt að koma í vegfyrir þrjú dauðsföll og um sextíu slys af völdum raf- magns — fyrir utanum 260 tjón á eignum. Þetta sýnir, áð þegar mannslíf eru í veöi er ef til vill skömminni skárra að sleppa því að setja lög en aðsamþykkja lög, sem síðan er ekki framfylgt. Þannig er að minnsta kosti ekki ýtt undir falska öryggiskennd. Samkvæmt landslögum eiga rafmagnsveitur að sinna eftir- liti með raflögnumí húsum, en eins og fram kemur i þessu tölu- blaði PRESSUNNAR viðurkenna hins vegar þeir aðilar, sem sjá eiga um framkvæmdina, að eftirlitinu sé víða mjög ábótavant. Þeir hafi einfaldlega ekki mannskap til að sinna þessu hlut- verki. I Reykjavík eiga t.d.tíu starfsmenn aðannast eftirlit með fimmtíu þúsund heimilum! Það má því ætla aö ástand raflagna í fjölmörgum gömlum íbúðarhúsum sé afar slæmt. í slíkum dauðagildrum búa eflaust þúsundir íslendinga, án þess að gera sér grein fyrir því. Ætla mætti að tryggingafélögin gegndu í þessu sambandi hlutverki öryggisventils með því að neita að tryggja húsnæði nema rafmagnsmá! séu í góðu lagi. En í grein PRESSUNNAR kemur fram að sw er ekki. Tryggingafélögin gera ekki slíkar kröfur, vegna innbyrðis baráttu um iðgjöldin. Rafmagnseftirlit í atvinnuhúsnæði er látið ganga fyrir eftir- liti í íbúðarhúsum.en það er ekki ná| að fylgst sé með ástand- inu af hálfu opinberra aðila. Það getur kostað stórfé að endur- nýja raflagnir í stórum fyrirtækjumog það kemur fyrir að for- ráöamenn telja sigekki hafa efni á að leggja út í þann kostnaö. Þeirri staðreynd að um mannslíf geti verið að tefla er ýtt til hliðar. Mannslíf og jafnvel líka afkomu heilla byggðarlaga. Sé dæmið sett þannig upp ætti öllum að vera |óst að við höfum einmitt alls ekki efni á að spara, þegar rafmagn er annars veg- ar. pólitisk þankabrot lYilitisk /Hinkabrot skrifa: /lirifir Arnason. adstoöarinad- nr riöskipta- oi> ihnaöarrúblwrru, Ilolli Héöinsson. efna- haifsrúdfljafi forsætisrúölwrra. oi> Einur Karl Haraldsson. ritstjóri Nordisk Kontakt. Borgarlíf utan bíldyra „Það er enginn friður yfir sambýli gamals og nýs í Reykjavík. Það er eins og mið- borgin æpi á mann að hér standi yfir stríð" I ys og þys flugstöðvarinnar heyrði ég úr hópi fólks, sem var að koma frá íslandi, há- væra rödd, sem sagði: „Reykjavík er Ijótasta höfuð- borgin í Evrópu." Það kemur alltaf illa við mann að heyra sleggjudóma um land og þjóð á erlendri grund. Þeir láta náttúrlega ekki allir svona illa í eyrum eins og framhaldið hjá há- vaðabelgnum bar vitni um: ,,Hitt er svo satt, að það er hvergi eins fallegt kvenfólk og á íslandi." Þessi viðhorf eru ekki óalgeng hjá erlend- um sleggjudómurum. Mér kom hins vegar meira á óvart kenning virts ambassadors, sem var andseti minn á ís- lenskri matarkynningu í Stokkhólmi. Yfir eftirréttin- um, sem var innbakað skyr með týtuberjasultu, sagði hann með veraldarvönum spekingssvip: ,,Það er á allra vitorði, að íslenskar konur eru fegurstar í heimi. En ein- mitt þess vegna er það svo einkennilegt að íslenskir karlmenn, sem mér vitanlega eru sömu þjóðar, skuli vera svona ljótir upp til hópa." Þaö stoðaöi ekkert, þó aö ég benti honum á myndar- lega íslenska karlmenn í sam- kvæminu eins og Sigmar B. Hauksson og Hrafn Gunn- laugsson. Hann sagði bara kurteislega: ,,Ja, það eru náttúrlega alltaf til undan- tekningar frá reglunni." -o-o-o- Smekkur er alltaf umdeil- anlegur. Og alhæfingar um þjóðir eru ákaflega varasam- ar. Sænski rithöfundurinn og teiknarinn Albert Engström sá mann með heljarstórt og rauðþrútið nef ganga út úr bjórkrá á Akureyri 1911 og dró þá ályktun af því, að ís- lendingar væru aö úrkynjast. Hvað útlendingum finnst um Reykjavík getur farið eftir veðri og fjallasýn. Engu að síður geta hvatskeytislegir dómar af áðurgreindu tagi knúið okkur sjálf til þess að leita svara við óþægilegum spurningum. Er Reykjavík ljót? Hver þor- ir að svara þeirri spurningu öðruvísi en neitandi nú þegar borgarstjórnarkosningar nálgast? Breiðholtið og svæðið upp með Elliðaánum, sem tengist Kópavogi, er að verða falleg- asti hluti borgarinnar að mín- um dómi, með þéttri byggö, sem veitir skjól, og góðum heildarsvip. Svæðið vestan Elliðaáa er á hinn bóginn eins og línurit yfir íslenskt efna- hagslíf eftir stríð. Eða eins og safn yfir sögu Sjálfstæðis- flokksins. Gamla borgin veit ekki hvað hún er eða hvað hún vill verða. Það er eins og hún komist aldrei af gelgju- skeiðinu. Eins og hún sé dæmd til þess að verða ólán- legur unglingur um aldur og ævi. Það er enginn friður yfir sambýli gamals og nýs í Reykjavík. Það er eins og miðborgin æpi á mann að hér standi stríð. Það er ljótt að sjá hvernig bárujárnshúsin mörg hver eru í niðurníðslu. Við hlið þeirra rís hvert nývirkið af öðru, hálfkarað og ófrá- gengið. Margt af liinum nýja arkitektúr í miðborginni er spennandi, en hvort nokkurn timann kemst á friður eða heildarsamræmi í borgar- myndina er óráðin gáta. Það er ljóst að jafna verður marga steinkumbalda við jörðu og færa til gömul timburhús, ef bæta á fyrir gamlar syndir og gera miðbæinn að augna- yndi. Er einhver pólitískur vilji fyrir slíku? Ráðhúsið er svo dæmi um nýdrýgða synd, sem kallar á umbyltingu allt um kring, ef það á nokkurn tímann að geta notið sín. -o-o-o- Miðborgin er samansafn af óleystum vandamálum og óunnum verkefnum. I öllum borgum er bíllinn til vand- ræða. Víðast hvar er í undir- búningi að vísa honum út fyr- ir innsta borgarhring eða skipta yfir í aðra umferðar- tækni. Hér virðast hags- munaaðilar í miðbænum sjá það helst honum til endurlífg- unar að fólk fái að böðlast þar á bílum sínum takmarka- laust. Eins og það sé til nokk- urs. í Lundúnum ku meðal- hraðinn í miðborginni vera kominn niður í 16 km á klukkustund og er talinn verða 8 km að fimm árum liðnum. Og ekki batnar pest- in við að bílarnir aki á göngu- hraða. Nei, hér þarf að breyta um stefnu. Því ekki að leggja hita í götur og gangstéttir í gamla Austur- og Vesturbænum? Þar þarf hvort eð er að skipta um lagnir og leggja nýtt slit- lag á stagbættar göturnar. Því ekki að byggja yfir hluta af helstu verslunarstrætum og skapa á öðrum stöðum ör- uggt skjól fyrir þeim næðingi sem angrar borgarbúa út um holt og hæðirnar? Að gera miðbæinn að skjóli fyrir mannlífið utan bíldyranna þar sem hægt yrði að ganga um þurrum fótum ársins hring. Og því ekki að minnka Reykjavíkurflugvöll og nýta Vatnsmýrina til þess að tengja byggðina í eina heild og leysa ýmis vandamál byggðar í miðborginni? Utlitið, bragurinn og starf- semin í gamla bænum eru í hæsta máta pólitískt mál. Vonandi fá málefni þessa borgarhluta rækilega umfjöll- un í komandi kosningabar- áttu. hfn pressan „Fegurð er ekki bara Ijóst hár og langir leggir." — Gróa Ásgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri Fegurðarsamkeppni islands, i viðtali við Morgunblaðið. ,,Og rétt ódur en kaldur og blautur vetur er kvaddur „Fegurð getur verið misjöfn. Hún skiptist i ytri og innri fegurð og fer efftir smekk. Þess vegna er fegurðarsam- keppni nauðsynleg.## — Ellert Guðmundsson nemi svarar spumingu DV. berast þau gledi- tídindi ad Bjarni P. er hœttur ad „Mig dreymdi ekki kórónur í nótt..." — Ásta Sigriður Einarsdóttir, ný- kjörin Fegurðardrottning islands 1990. vera í fýlu út í Jón Baldvin. . - Úr pistli Odds Ólafesonar i þaö er a|,s ekkj á h limom im manns færi að koma fram fyrir fleiri þúsund manns í beinni útsendingu á sundbol og brosandi út að eyrum." — Gróa Ásgeirsdóttir, fram- Fegurðarsamkeppni við Morgunblaðið. „Vegna máttar fjölmiðlaum- • talsins er ekkert mál fyrir strákana á Stöðinni að fá Dav- íð til að leika brandara með Ragnari Reykás og fá aðra stjórnmálaforkólfa og stjörnu- sjúklinga til að henda rjóma- tertum. Betra að leika fífl en ekkert." — Úr grein Birnu Þórðardóttur i Þjóðviljanum. „Á svipaöan hátt kom Nýr vettvangur sér á koppinn í Reykjavík, án þess að setja nokkurt málefni á oddinn." — Ur sömu grein Birnu Þórðardótt- ur í Þjóðviljanum. „Ég veit ekki hvort Ólafur vin- ur minn er að spá í að losna viö mig um tíma, eða hvaö hann er aö fara með þessari tillögu." — Páll Pétursson í Timanum um sama efni. „Aldrei skyldi maður treysta minni sínu." — Haraldur Ólafsson dósent i kjall- aragrein i DV. „Mér fyndist vænlegra að ræöa þessi mál i flokknum en í beinni útsendingu i útvarpi." — Steingrímur J. Sigfusson, vara- formaður Alþýðubandalagsins, um viötal við Ólaf Ragnar Grimsson á rás 2 þar sem hann sagðist fagna samvinnu ýmissa flokka. „Þeir eiga kannski eftir að vinna saman á kössum í Miklagarði eða Hagkaupum, Ólafur Ragnar og Magnús L. Sveinsson." — Úr sömu grein Birnu i Þjóðviljan- um. „Ég hef náttúrulega áhuga á að keyra hér um. . .## — Július Sólnes umhverfisráðherra i samtali við Timann um skoðunarferð sina á jeppanum um nágrenni Reykjavíkur. „Ég minni á hvað Rússamir gerðu við þýskan strák sem heitir Matthías Rust." — Páll Pétursson, alþingismaðurog forseti Norðurlandaráðs, um tillögu Ólafs G. Einarssonar þess efnis að sendinefnd Norðurlandaráðs sæki um vegabréfsáritun til Sovétríkj- anna frá Lithaugalandi.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.