Pressan - 24.05.1990, Blaðsíða 27

Pressan - 24.05.1990, Blaðsíða 27
itrn vjpfcbuimmH as i\vAViW»vAv*VtVMVAVtVtVMWiVWAW»\mHvmmw4.vmœwmyj3Wjyi:i:ffl»wjTíVj:o:í»!oyjí»3:tt 27 kvikmyndir helgarinnar FIMMTUDAGUR 24. maí Stöð 2 kl. 22.20 Á UPPLEIÐ *** (From the Terrace) Bcmdarísk kvikmynd frú 19(i() Leiksljóri: Murk Robson Adalhluluerk: Puul Newmun, Jounne Woodward, Myrna Loy Myndin fjallar um mann, sem kem- ur heim úr stríöinu og tekur til við aö raka saman fé og klifra upp þjóð- félagsstigann. Paul Newman hefur oft leikið betur, en Joanne, eigin- kona hans ,,í alvðrunni", stendur sig ágætlega. Það sama má segja um Myrnu Loy, sem leikur drykkjusjúkl- ing. í heild er myndin svolítið yfir- borðskennd. Stöð 2 kl. 00.35 TRYLLTIR TÁNINGAR ** (O.C. and Stiggs) Bandurísk kvikmynd frá 19X5. Ijeikstjóri: Robert Altman. Aöalhlutverk: Daniel H. Jenkins, Neill Burry, Paul Dooley. Léttmeti um fáránleg uppátæki tveggja villtra táninga, sem fyrir vikið fara verulega í taugarnar á nærstöddum. Myndinni er ekki al- veg alls varnað, en hún er ruglings- leg á köflum. FOSTUDAGUR 25. maí Stöð 2 kl. 21.20 FRUMHERJAR *** (Winds og Kitty Hawk) Bundarísk sjónvurpskvikmynd frá 197X. Leikstjóri: E.W. Swackhumer. Adalhlutverk: Michael Moriurty, Duvid Huffmun. Tom Bower. Sagan af flugdraumum og flugvéla- smíð Wright-bræðranna í blíðu og striðu. Kvikmyndatakan er frábær, en það er afar mikill orðaflaumur í þessari sjónvarpsmynd sem gerir hana óþarflega langdregna. Sen- urnar í háloftunum eru hins vegar stórkostlegar og þetta er hin þokka- legasta afþreying. Stöð 2 kl. 22.55 MILUÓNAHARK ** (Carpool) Bundurísk sjórwurpsmynd frá 19X1 Leikstjóri: E.W. Swackhamer. Aóalhlutverk: Hurvey Kormun, Ernest Borgnine, Peter Scoluri. Þetta er sjónvarpsmynd í léttari kantinum og fjallar hún um slag nokkurra aðila um milljón dollara, sem „fundust" fyrir tilviljun. Harð- svíraðir glæpamenn og óheiðarleg- ar löggur blandast í leikinn, því allir vilja komast yfir peningana. Ríkissjónvarpið kl. 23.30 HVER ER JÚLÍA? *** (Who is Julia?) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 19X6. Leikstjóri: Walter Grauman. Adalhlutverk: Mare Winnini>ham, Jameson Parker. Við mælum með þessari mynd, sem gerð er eftir sögu Barböru S. Harris, þó efni hennar sé raunar afar frum- legt. Hún fjallar sem sagt um konu, sem fær ígræddan nýjan heila — með öllum tilheyrandi vandamál- Stöð 2 kl. 00.30 GATSBY HINN MIKLI *** (The Great Gatsby) Bandarísk kvikmynd frá 1974. Leiksljóri: Jack Claylon. Adalhlutverk: Robert Redford, Mia Earrow, Bruce Dern. Gamla, góða glansmyndin um hann Gatsby, sem byggð er á hinni þekktu skáldsögu eftir F. Scott Fitzgerald. Bókinni er fylgt nokkuð nákvæm- lega og mikið er um dýrðir í gervi- veröldinni á Long Island í Banda- ríkjunum, þar sem sagan gerist. Þarna er Robert Redford á blóma- skeiði sínú, enda féllu víst margar konur gjörsamlega fyrir honum, þegar myndin kom á markað á sin- um tíma. LAUGARDAGUR 26. maí Stöð 2 kl. 14.15 DAGBÓK ÖNNU FRANK **** (Diary of Anne Frank) Bandarísk mynd frá 1959. Leikstjóri: George Stevens Adalhlutverk: Millie Perkins, Joseph Schildkruut, Shelley Winters. Allir þekkja söguna af gyðingastúlk- unni Önnu Frank og margir hafa les- ið dagbókina hennar. Myndin þykir afskaplega vel heppnuð og banda- ríska leikkonan Shelley Winters fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni. Klassísk mynd, sem virk- ar á tárakirtlana. SUNNUDAGUR 27. maí Stöð 2 kl. 13.15 HINGAÐ0G EKKILENGRA **** (Gal Young 'Un) Bandarísk kvikmynd frá 1979. Leikstjóri: Viktor Nunez. Aðalhlutverk: Dana Preu, David Peck. Þessi mynd var gerð af litlum efn- um, en útkoman er virkilega góð. Sagan gerist á bannárunum í Bandaríkjunum og fjallar um vel efnaða ekkju, sem giftist fátækum manni. Náunginn reynist ekki merkilegur pappír og hjónabandið verður hrein martröð. Stöð 2 kl. 22.55 SUMARÁST *** (Summer of my German Soldier) Bandarísk kvikmynd frá 197X. Leikstjóri: Michael Tuchner. Adalhlutverk: Kristy McNichol, Bruce Davison, Esther Rolle. Myndin gerist í smábæ í Bandaríkj- unum á tímum seinni heimsstyrjald- arinnar. Amerísk gyðingastúlka og nasisti, sem sloppið hefur úr fanga- búðum, verða ástfangin og það fell- ur ekki í góðan jarðveg. Þetta er mynd á rómantísku nótunum. Rikissjónvarpið kl. 23.10 VILJI ER ALLT SEM ÞARF (Where there's a Will) Bresk sjónvarpsmynd. Adalhlutverk: D>uan Gideon, Michael Howe, Patrick MacNee. Þetta er fremur nýleg bresk sjón- varpsmynd. Hún fjallar um alls kyns vandamál, sem upp koma í viðskipt- um amerískrar konu og bresks lög- fræðings, sem fella hugi saman. dagbókin hennar dúllu Það eru allir í fjölskyldunni komn- ir með kosningaveikina, nema ég sem er algjörlega að æla af öllu þessu stjórnmálatali alls staðar. Mamma er meira að segja búin að tæla Adda bróður til að bera út bæk- linga fyrir Kvennalistann, en hann afsakar sig reyndar með því að hann fái eitthvað borgað fyrir það. . . Húsverkin hafa sko öll lent á mér, þó ég hafi verið á bólakafi í sjúklega þungum prófum, en það hefur eng- inn áhyggur af svoleiðis smámun- um. Mamma hefur t.d. ekki sést hérna heima í tæpan mánuð og við gætum eins haldið að hún væri dá- in, ef það væri ekki alltaf far í kodd- anum hennar eftir nóttina og hálf- drukkinn tebolli á eldhúsborðinu, þegar við hin vöknum. Ég gæti þess vegna verið fárveik eða kasólétt, án þess að hún hefði hugmynd um það. Svona er hún nú æðisleg móðir! Maður getur ekki einu sinni leitað skjóls hjá sinni eigin ömmu í þessum vandræðum. Amma á Linimelnum var nefnilega voða óörugg með livað hún ætti að kjósa, en um dag- inn dreymdi hana að ráðhúsið hryndi í Tjörnina í rosalegum jarð- skjálfta og að rauðhærða konan í nýja framboðinu bjargaði litlu barni frá því að verða undir öllu saman. Þetta túlkaði amma sem skilaboð frá afa heitnum eða einhverjum öðr- um „þarna uppi" um að hún ætti að styðja nýja framboðið. ()g amma gerir aldrei neitt nema með stíl — þ.e.a.s. með hávaða og látum. Vesalings fólkið í framboðinu er órugglega í svakalegum erfiðleik- um með hana, því amma er ótrú- lega herská eftir aldri. Hún heimtaði að fá borð og stól og bæklinga og plantaði sér með þetta i miðju Bankastrætinu, þannig að hún gæti gripið allt fólkið sem hún þekkir og messað soldið yfir því. (Hún má nú eiga það, að hún þekkir bókstaflega allan bæinn.) Þetta þótti líklega ekki góð hugmynd, því framboðsfólkið reyndi mikið að fá hana til að vaska frekar upp og hella á könnuna, en það þýddi ekkert. Amma sagðist vera alltof dýrmætur starfskraftur til að vinna soddan rútínuverk og fannst þessi rauðhærða t.d. ekki of góð i uppvaskið. (Kr það von að mamma þakki Guði fyrir hvað amma hatar Kvennalistann. Hún segir, að það sé mun meiri martröð að hafa þá gömlu með sér en á móti.) Ég hef stundum reynt að líta i blað til að gleyma prófunum eða þessari stjórnmálasýktu fjölskyldu, en það er vonlaust dæmi. Öll blöð eru stút- full af væmnum greinum frá ein- hverjum frambjóðendum, sem lofa og lofa öllu fögru. Þeir ætla allir að útvega helling af barnaheimilum. hækka launin hjá borgarstarfs- mönnum, láta laga göturnar og hafa ódýrara í strætó og sund. Þetta fólk er algjörlega að springa af skoðun- um og brennandi af æsingi og þörf fyrir að láta aðra vita hvaða krafta- verk það ætlar að gera. En það er ferlega vitlaust, ef það heldur að maður fatti ekki af hverju það er að skrifar þessar greinar. Þetta er nátt- úrulega trikk! Liðið vill bara láta mann taka eftir sér og þannig. Kf það hefði raunverulega svona gló- andi áhuga á borgarmálum myndi það sko skrifa miklu oftar í blöðin — og ekki bara fyrir kosningar. Maður er nú ekki fæddur í fyrradag!

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.