Pressan - 24.05.1990, Blaðsíða 4
4
Fimmtuda‘gu'r '24. maí 1990
\
%
.1
Utllræði
af Lúkasi
Mottó:
Guö ég þakka þér aö ég er ekki einsog aörir menn:
ræningjar, ranglætismenn, hórkarlar eöa þá eins-
og þessi tollheimtumaður.
(Lúk. 18. kap. 11. vers)
Mér finnst afskaplega gaman aö vera til
þessa dagana.
Er satt aö segja í sólskinsskapi dægrin löng,
jafnvel meðan ég sef, er mér nær aö halda, því
þegar ég er aö losa svefninn á morgnana á ég
þaö til aö skella uppúr, sem auðvitað er vegna
þess aö það fyrsta sem mér dettur í hug þegar
ég vakna er alveg drepfyndiö.
Afi minn heitinn trúöi mér einusinni fyrir því
aö hámark lífshamingjunnar væri það aö sofna
brosandi og vakna hlæjandi.
Ef þetta var rétt hjá afa, þá verö ég aö segja
aö ég er oftar en hitt meö lífshamingjuna innan
seilingar.
Og satt aö segja vandalaust aö vera hlátur-
mildur þessa dagana, því kosningar fara í
hönd.
Og ég er ekki í framboði.
En góöir hálsar. Þaö er ekki nóg aö vakna
hlæjandi. Ríður á aö viöhalda góða skapinu
frameftir deginum. Þaö geri ég meö því aö fara
framúr rúminu og í sturtu. Svo fæ ég mér kaffi-
sopa, kíki í blöðin og kemst óöara í gamla, fína
sólskinsskapið.
Þegar ég er svo búinn aö lesa góöa stund um
leiðtoga, þjóöhöföingja, haröstjóra, misindis-
menn, glæpamenn og gangstéra, fjárglæfra-
menn, auökýfinga, þingmenn, frambjóöendur
og opinbera embættismenn, fer einsog aö
læðast að mér undarleg hugsun og raunar
fengin aö láni hjá Lúkasi guðspjallamanni:
— Guð ég þakka þér að ég er ekki: ræningi,
ranglætismaður, hórkall eða skattstjóri.
Og í framhaldi af þessu fer ég svo aö lofa guö
og forsjónina fyrir þaö aö vera ekki valdsmaður
meö mannaforráö: konungur, keisari, forseti,
kanslari, aðalritari, forstjóri, framkvæmda-
stjóri, hreppstjóri, baajarstjóri eöa borgarstjóri.
Ekki einusinni í framboöi.
Mérerbókstaffegafyrirmunaö aö botna í því
hvernig nokkur fieilvita manneskja nennir aö
sfanda í tuöinu ög argaþrasinu sem augljós-
lega er því samfara aö vera til dæmis borgar-
stjóri.
Stundum á morgnana, þegar ég er hættur
að filæja og farinn aö biöja bænirnar mínar,
þakka ég guði einiæglega fyrir að fiafa aldrei
gért mig að borgarstjóra.
Og þegar ég skoöa myndirnar í blöðunum af
öllu því góöa fólki sem finnst þaö sjálfkjörið til
aö standa viö stjórnvölinn á þjóðarskútunni,
mönnum sem njóta þess að v.era í puðinu og
taka viö boðaföllunum í ólgusjó málefnaum-
ræöu sem stundum rís ekki alltof hátt, undrast
ég aö menn skuli upp til hópa sækjast eftir
þessum ósköpum.
Og ég hugsa sem svo:
— Þetta er geggjað fólk.
Og í framhaldi af því segi ég einsog faríseinn
forðum:
— Guð ég þakka þér að ég er ekki einsog
aðrir menn.
Ég held ég sé að eðlisfari ekki öfundsjúkur
maöur, gæti satt aö segja helst hugsaö mér að
öfunda þá sem hafa þaö eins gott og ég.
Hinsvegar sárvorkenni ég fjölmörgum og
líklega mest æöstu valdsmönnum íslensku
þjóöarinnar. Og viö þaö að fylgjast meö fjöl-
miðlum er ég bókstaflega farinn aö taka út
meö borgarstjóranum í Reykjavík.
Tuöiö sem maðurinn þarf aö ganga í gegn-
um.
Aö þurfa dægrin löng aö vera aö berjast viö
Ragnar Reykás, fjölskyldu hans og fjallabíl, en
sú fjötekylda er aö verða samnefnari fyrir hinn
íslenska þjóöfélagsþegn í lýðfrjálsu landi þar
sem allir hafa eitthvað til málanna aö leggja.
Ég segi þaö satt. Fremur en aö vera borgar-
stjóri í einn dag vildi ég, heila starfsævi, vera
blindur hundur, lamaöur og fatlaöur og kona í
þokkabót.
Endalausir fjöldafundir og væringar útaf
sorpi og kúk, hundahaldi í Öskjuhlíöinni, reiö-
hjólunarskilyrðum, launum til mæöra sem
passa börnin sín, hömlum á því aö fá að spila
golf á Korpúlfsstööum og nú síðast skýlausri
kröfu sportveiöimanna um aö borgarstjórinn
sjái til þess aö ótaminn lax gangi í Elliðaárnar.
Hámarki held ég þó aö pípið hafi náð þegar
fulltrúar samtaka sem nefna sig „Gamla miö-
bæinn" gengu á fund borgarstjóra með kröfu
um þaö að enn yröi Austurstrætinu breytt og
nú úr göngugötu í bílabraut.
Ég hélt fyrst þegar ég heyrði þessi samtök
nefnd aö þar væru rómantískir húmanistar á
ferð með græna byltingu og notalegt mannlíf
í miöbænum aö leiðarljósi.
En þaö var nú eitthvað annaö.
Ég sé ekki betur en aöalmarkmiöiö sé aö
fjölga blikkbeljum og leggja miðbæinn undir
bílaplön svo hægt sé aö selja pulsur með öllu
og Kentökkí fræd á hverju horni og spila ær-
andi graðhestamúsikk úr gjallarhornum til aö
auka á lystina.
Síöasta geðbótin mér til handa var þegar ég
sá, í sjónvarpinu, fulltrúa „Gamla miöbæjarins"
ganga á fund borgarstjóra meö bænaskjal um
óhindraða bílaumferð eftir göngugötunni í
Austurstræti.
En borgarstjórinn lyfti umræöunni svo sann-
arlega á hærra plan, því hann lofaöi aö hlutast
þegar til um aö tveggja hæða strætó hæfi
reglulegar ferðir um miðborgina.
Viö þetta snarróuðust fulltrúar „Gamla miö-
bæjarins."
Kannske opnar Davíö miöbæinn aftur fyrir
bílaumferö minnugur oröa Lúkasar guðspjalla-
manns sem segir í 18. kapítula 4. 6. versi:
Þó ég óttist ekki guð né skeyti um nokkurn
mann, þá vil ég samt láta ekkju þessa ná rétti
sínum, vegna þess að hún gerir mér ónæði,
til þess að hún sé ekki ávallt að koma og
kvelja mig.
Og sjálfur held ég áfram aö vera í sólskins-
skapi vegna þess aö engar líkur eru á aö ég
veröi nokkurntímann borgarstjóri.
FERtJASKRlFSfOFA
'Simi €52266
FLUG OG BÍLL
ÓDÝRT OG FRJÁLST
Danmörk, verðfrá kr.......20.690,-*
Bretland, verðfrá kr......18.920,-*
Luxembourg, verð frá kr...23.230,-*
Þýskaland, verð frá kr.....
Austurríki, verð frá kr...
Sumarhús og hótel.
Ódýr gisting víða um Evrópu.
.22.510,-*
.24.660,-*
FERf3ASKRIFSTOFA
Simi 652266
* Verð á mann viðað við 4 í bil, VW Goll, 2 (ullorðnir og 2 börn, 2-11 ára i vikulerð, án flugvallarskatts.
D#*aM** á sértilboði í maí:
r ariS Vérð frá kr. 37.260,-
Flug og gisting i 4 nætur
á mann i 2ja -m. herb.
á 3 ★ hóteli, án (lugvallarskatts.
Fiogið
með
Umboð: Akureyri:
Bókabúðin Edda,
Hafnarstræti 100.