Pressan - 24.05.1990, Blaðsíða 16
16
Med augunum ljóstrum við upp
hvernig okkur er innanbrjósts og
það er með augunum sem við kom-
um upp um okkar dýpstu leyndar-
mál, enda stendur einhvers staðar
að augun séu spegill sálarinnar. Sá
sem hefur eitthvað að fela lítur
gjarnan undan og treystir sér ekki
til að horfast í augu við þann sem
hann ræðir við. Hinn, sem hefur
allt sitt á hreinu, horfir alltaf beint
í augu viðmælanda síns. Stærð
augnanna gefur ákveðna vísbend-
ingu:
STÓR AUGU
Stór og björt augu tilheyra oft bar-
áttuglaðri og frjósamri mannskju
sem eyðir orkunni oft af ákafa í
starf sitt. Stór, mild, flauelsmjúk
augu tilheyra rómantískri mann-
eskju sem gjarnan lifir í dag-
draumum. Almennt séð eru þeir
sem hafa stór augu fagurkerar,
eiga til ríkt ímyndunarafl og
skarpa athyglisgáfu.
MJÖG STÓR AUGU
Óvenjulega stór augu tilheyra
þeim sem búa yfir mikilli innri ró
en eru ekki alltaf færir um að tjá
hugsanir sínar og tilfinningar.
Þessir persónuieikar eiga það til
að eyða tímanum í ólík störf, sem
ekki endilega henta þeim. Það er
ekki fyrr en þeir hitta einhvern
sem getur gefið þeim hlutlaust álit
að þeir ná árangri í að kalla fram
það besta í sjálfum sér.
LÍTIL AUGU
Þeir sem hafa lítil augu eru Iíflegir,
forvitnir og fullir áhuga á öllusem
er að gerast í kringum þá. Þeir eru
kannski ekki alltaf tryggir í ástum
þar eð þá þyrstir stöðugt í nýjung-
ar. Lítil augu benda einnig til að
manneskjan sé hyggin, framtaks-
söm og búi yfir góðum gáfum. Fólki
með lítil augu hættir til að missa
þolinmæðina og missa sjónar á
markmiðum, en lífsgleði þess bæt-
ir upp alla þá mínusa.
MJÖG LÍTIL AUGU
Manneskju með mjög lítil augu
hættir til að hafa persónulegar
skoðanir á öllum hlutum.Hún lað-
ast fyrst og fremst að öllu sem vek-
ur upp losta hjá henni og kýs efnis-
leg gæði. Mjög lítil augu geta verið
merki um sjálfselsku og mikla met-
orðagirnd.
Fimmtudagur 24. maí 1990
sálarinnar
FRAMSTÆÐ AUGU
Þannig augu hafa þeir sem eru
skrafhreifnir og skapheitir. Fram-
stæð augu eru oft stórkostleg og
hafa undarlegt vald. Þau eru líka
merki um að manneskjan hafi gam-
an af að láta bera á sér og hafi
sjálfsálit og ríkt ímyndunarafl. En
sé litið á þessi framstæðu augu út
frá læknisfræðilegu sjónarmiði
geta þau hins vegar verið merki
um truflanir í skjaldkirtli, sem þá
útskýrir skjót skapbrigði, pirring
og tímabundið þunglyndi.
Leikkonan Sophia Loren er með breitt enni og breiðar augabrúnir, sem gefur til
kynna að hún sé fljót að hugsa. Stór og rök augun eru merki um að hún sé örlát en
kjósi oft einveru. Nef hennar, sem er fallega lagað og sterkbyggt sýnir að hún er opin
fyrir nýjum hugmyndum. Stór og fallega lagaður munnur er merki þess að hún hefur
vilja til að njóta samskipta við fólk, þótt hún taki fáa og góða vini fram yfir marga
kunningja. Það hvernig hún heldur á sígarettunni sýnir að hún kýs að halda þeim sem
hún er að ræða við í ákveðinni fjarlægð og með því undirstrikar hún að hún er í ákveð-
inni vörn. Stórar hendur og breiðir úlnliðir sýna stöðugleika og að hún er reiðubúin
að takast á við streituvaldandi þætti í lífinu. í heildina eru þeir sem líkjast Sophiu Lor-
en líklegir til afreka en geta hins vegar aðeins notið hluta þess sem þeir gefa öðrum.
Óöryggi er mjög algengt meðal þeirra sem ná langt í skemmtanaiðnaðinum.
varirnar segja líka ýmislegt
Auk augnanna gefur munnurinn
til kynna hvers konar persónuleiki
býr að baki andlitinu. Munnur er
eitt af því fyrsta sem fólk tekur eft-
ir og dæmir manneskjuna út frá. í
könnun sem gerð var í Bandaríkj-
unum kom til dæmis fram ad 40%
aðspurðra kvenna höfðu fyrst af
öllu tekið eftir augum þeirra
manna sem þær voru beðnar að
skilgreina en 60% mundu best eft-
ir munni þeirra.
Við skuium líta á nokkrar mynd-
ir af vörum og sjá hvað þær segja
okkur um fólk:
finnst gaman að vera umkringd
fólki.
Fullkomnar, hjartalagaðar varir
geta verið mjög lostafullar og eru
merki um árangur í sambandi við
hitt kynið.
Breiðar varir tilheyra manneskju
sem er tilfinningarík og róman-
tísk.
Ef varirnar sveigjast upp á við í
„hornum“ á eðlilegan hátt bendir
það til að viðkomandi sé aðlaðandi
og eigi auðvelt með að umgangast
fólk.
Varir sem vísa upp, sérstaklega ef
þær eru oft aðskildar, sýna skap-
góða og bjartsýna manneskju sem
Þunnar varir tilheyra oft þeim
jarðbundnu, sjálfsöruggu einstakl-
ingum sem fara varlega með pen-
inga.
Ef varir vísa niður á við er nokkuð
víst að viðkomandi er þrár og
þrjóskur og oftast er erfitt að gera
honum/henni til hæfis.
DJÚPSTÆÐ AUGU
Djúpstæð augu.gefa til kynna að
viðkomandi sé athugull og gagn-
rýninn.Fólk með þannig augu get-
ur orðið andlega þreytt og vill þá
gjarnan einangra sig meðan það
skilgreinir eigin tOfinningar og
eykur innri ró. Því finnst erfitt að
tjá hugsanir sínar á skýran hátt.
KRINGLÓTT AUGU
Ef kringlóttu augun eru skýr og líf-
leg er manneskjan framtakssöm
og ákveðin. Ef þau eru hins vegar
með skýjuðum blæbendir það til
að viðkomandi sé hæfileikarík og
hamingjusöm manneskja sem tek-
ur ákvarðanir umhugsunarlaust.
Þessi persóna á auðvelt með að ná
sambandi við hitt kynið.
MÖNDLULAGA AUGU
Ef augu þessarar manneskju virka
köld gefur það til kynna slægð.Ef
þau á hinn bóginn eru hlý bendir
það til að manneskjan'hafi mikla
sjálfsstjórn, en heitar tilfinningar
undir niðri. Möndlulaga augu gefa
jafnframt til kynna ákveðna Iist-
ræna hæfileika.
HÁLFLOKUÐ AUGU
Ef augnlok eru „þung“ er það
merki um hlédrægan persónu-
leikasem á það til að vera efagjarn.
Þau sýna einnig að viðkomandi er
feiminn, stoltur og afbrýðisamur
varðandi þá hluti sem snerta líf
hans. Þessi persóna gerir oft upp-
reisn gegn kerfinu.
Þið hafið að sjálfsögðu ekki lært
af lestri þessarar stuttu greinar
hvernig lesa má úr andlitum, enda
af mörgu öðru að taka. Það allt
verður þó að bíða betri tíma og þið
getið æft ykkur að þekkja andlits-
fall, stærð og lögun augna og vara
þangað til!