Pressan - 31.05.1990, Page 4
4
Fimmtudagur 31. maí 1990
Ufllræði
af skólpi
Því hefur stundum veriö haldiö fram í mín
eyru aö þaö veröi ekki atómsprengjan sem
endanlega gerir út um lífið á jöröinni, heldur
muni mannkynið Ijúka sínu skeiði meö því aö
drekkja sér í eigin skít og óþverra.
Mörgun finnst þessi tilhugsun svolítið ógeö-
felld, þó þeir séu eftilvill fleiri sem láta sér fátt
um finnast, því þaö er nú einusinni staöreynd
að eitt sinn skal hver deyja og úr því að enn er
tæplega fræöilegur möguleiki á því aö lifa
dauðann af má sjálfsagt einu gilda úr hverju
maður drepst.
Þessvegna er eftilvill, aö sumra dómi, ekkert
forgangsmál aö koma kúknum frá sér nema
svona eftir hendinni og þá bara til aö geta and-
að þartil maöur geispar golunni.
Ég er persónulega einn af þeim sem vilja
sem minnst af kræsingunum vita eftir aö búiö
er aö melta þær.
Og þannig er greinilega fleirum fariö því ég
fékk ekki betur séö en hin málefnalega kosn-
ingabarátta fyrir nýafstaðnar kosningar snerist
að verulegu leyti um það hvar ákjósanlegast
væri að búa sorpi og saur úr háttvirtum kjós-
endum endanlegan áfangastaö.
Þegar ég var aö alast upp í Reykjavík á ofan-
veröu rómantíska tímabilinu voru sundin milli
lands og eyja, á víkinni sem höfuðstaöurinn er
kenndur viö, stundum kölluö „sundin blá", og
má geta sér þess til aö nafngiftin hafi verið í
tengslum viö litbrigðin á Viöeyjarsundinu og
Elliðavoginum.
Mér svona einsog dettur þetta í hug vegna
þess að þegar kosningahríðin stóö sem hæst
birtist í Mogganum litskrúðugt kort af „sund-
unum blám" gefiö út af gatnamálastjóra.
Á þessu korti er blái liturinn sannariega víkj-
andi fyrir gulu, rauðu og svörtu, en mér skilst
aö þessir litir gefi til kynna hvað sé á floti á
víkinni framanviö höfuövígi „okkar sjálfstæðis-
manna".
Og einsog krakkarnir segja:
— Ekkert smá gúmmúlaði.
Nú er talið að kosningasigur „okkar" í
Reykjavík sé ekki síst aö þakka því að skólpið
gjálfrar ekki lengur við stein í fjöruboröinu viö
Skúlagötu, heldur er því nú dælt útá „sundin
blá" eða einsog segir í kvæðinu:
— Vaggar sér blíðlega á Viðeyjarsundinu.
— Skólpið er í höfn, einsog frambjóöandinn
sagöi, og þaö kunnum viö reykvíkingar vel aö
meta, einsog dæmin sanna.
Og þá ekki síður nágrannar vorir seltirningar
sem standa vörð um annað höfuðvígi „okkar
sjálfstæöismanna".
Á Seltjarnarnesi kom fram veikburða fram-
boö undir nafninu „Nýtt afl" og geröi skólp-
ræsamál að helsta baráttumálinu, en það var
einsog við manninn mælt; vopnin snerust t'
höndunum á þeim, eöa einsog einn sigurveg-
aranna sagöi:
— Við flutum inn á skólpinu.
Á Seltjarnarnesi og í Reykjavík er nefnilega
sami grautur í sömu skál.
Samtökin „Nýtt afl" gáfu það í skyn aö
heilsufari seltirninga væri fórnað fyrir skólp-
vanda reykvíkinga, en talið er að kúkurinn úr
70.000 reykvíkingum hafni nú í flæðarmálinu á
noröanveröu Seltjarnarnesi og rjúki síðan yfir
byggðina á nesinu í særoki noröanáttarinnar.
Aöstandendur „Nýs afls" kváöust una því
illa aö standa dægrin löng í úrsvölu særoki,
saurmettuðu af Reykjavíkurskólpi.
Þetta virðast þeir nokkuð lengi hafa mátt
búa viö enda var kjörorö „Nýs afls" í kosninga-
baráttunni:
— Við þekkjum særokið á Seltjarnarnes-
inu.
En sjálfstæðismenn á „nesinu" svöruðu
meö þinum fleygu oröum skáldsins:
— í særoki kljúfum við kólguna þungu.
Enda unnu þeir eftirminnilegan sigur í kosn-
ingunum.
Hreinan meirihluta.
Menn verða nefnilega að muna þaö að sel-
tirningar kalla ekki allt ömmu sína í klóakmál-
um.
Þær voru ekki gripnar úr lausu lofti Ijóölín-
urnar hans Þórbergs:
— Kerlingar skvetta úr koppum á tún.
Á Seltjarnarnesi þótti aldrei ástæöa til aö
fara bæjarleið meö þaö sem eins mátti geyma
heima.
Og þeir hjá orðabókinni telja nú fullvíst aö
orðtakið aö „ganga í hægöum sínum" sé upp-
runniö á Seltjarnarnesi.
Þessvegna kippa seltirningar sér ekki upp
við það þó yfir 100.000 (eitthundraðþúsund)
saurgerlar séu í hverjum lítra af skólpi sem
dælt erfrá Reykjavík uppað noröurströnd Sel-
tjarnarnessins og rjúki yfir byggöina í særoki
norðanáttarinnar.
Eftilvill eru þeir á Seltjarnarnesinu hreyknir
af því aö 60% af saurnum í sjávardrífunni eru
úr sönnum sjálfstæðismönnum í Reykjavík og
vissulega sama prósenta á Seltjarnarnesinu til
aö taka við kræsingunum.
Eitt sýna nýafstaðnar kosningar aö minnsta
kosti óvefengjanlega og þaö er að kjósendur í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi kunna vel aö
meta þá „hollustuvernd" sem þeir búa viö.
FERÐASKRIFSTOFA
Sími 652266
FLUG OG BÍLL
ÓDÝRT OG FRJÁLST
Danmörk, verð frá kr......20.690,-*
Bretland, verð frá kr.....18.920,-*
Luxembourg, verð frá kr...23.230,-*
Þýskaland, verð frá kr.....
Austurríki, verð frá kr....
Sumarhús og hótel.
Ódýr gisting víða um Evrópu.
22.510,-*
24.660,-*
FERÐASKRIFSTOFA
Simi 652266
* Verð á mann viöað við 4 í bíl, VW Golf, 2 fullorðnir og 2 börn, 2-11 ára í vikuferð, án flugvallarskatts.
á sértilboði í maí: Fiug og gisting i 4 nætur
rails Verð frá kr. 37.260,- á mann i 2ja m. herb. á 3 ★ hóteli, án flugvallarskatts.
Flogið
með
Umboð: Akureyri:
Bókabúðin Edda,
Hafnarstræti 100.