Pressan - 31.05.1990, Qupperneq 7
fippr 'f n i r lirrr ir
Fimmtudagur 31. maí 1990 7
að verra sé að vinna með ís-
lensku bakkana, tafsamt sé
að pakka í þá og að þeir fari
illa með hendur.
Þorsteinn á eggja- og
kjúklingabúinu Hvammi
notar eingöngu íslensku
eggjabakkana og kannast
ekki við þau öþægindi sem
Helgi nefnir, en báðir aðilar
handpakka eggjunum. Kinn
af viðskiptaaðilum Þorsteins
er Mikligarður vestur í bæ.
Þeir eru að mestu leyti að
færast yfir í íslensku bakkana
og kannast ekki við að neyt-
endur kvarti yfir því, þvert á
móti.
Hagkaup í Kringlunni
hefur aðra sögu að segja. ,,Ef
við stilltum upp einni grind
með rauðum, íslenskum
bökkum og annarri með hvít-
um umbúðum þá seldust
þessar rauðu síður," segir
Guðni Grétarsson, starfs-
maður Hagkaups. Hagkaup í
Kringlunni er nær eingöngu
með erlendar umbúðir, sem
verslunin fær m.a. frá Eggja-
búinu Vallá.
Eggjabúið Vallá og Nesbú
eru stærstu eggjaframleið-
endurnir á íslandi. Það mun-
ar því mikið um að þeir nota
nær ekkert íslensku eggja-
bakkana. Bæði búin hafa vél-
vætt pökkun sína og segja að
innlendu umbúðirnar henti
illa í vélarnar.
Það hefur engin könnun
verið birt um vilja neytenda í
þessu máli ennþá, en Land-
vernd er aö athuga mögu-
leika á slíkri könnun. Spurn-
ingin er, að sögn Svanhildar
Skaftadóttur hjá Landvernd:
Hvað eru fínir eggjabakkar?
Hún vekur líka athygli á því
að eggjaframleiðendur njóti
verndar gegn innflutningi og
að hollensk egg í íslenskum
eggjabökkum séu miklu
ódýrari en islensk egg í er-
lendum eggjabökkum.
öl í Errr ár
Opið alla daga
12.00-15.00 og 18.00—01.00
fösludaga og laugardaga til 03.00
MATUR, ÖL
OG LIFANDI TÓNLIST
Ómar og Pétur
halda uppi fjörinu frá fimmtudegi til
sunnudags
Frá Fjöl-
brautaskólanum
við Ármúla
Ármúla 12, 108 Reykjavík.
Nýjar námsbrautir
í haust hefst kennsla á þremur nýjum námsbraut-
um, ef næg þátttaka fæst:
Braut fyrir aöstoðarfólk tannlækna er tveggja ára
nám auk starfsþjálfunar á tannlæknadeild Háskóla
íslands.
Sjúkraliöabraut er þriggja ára nám, og framhalds-
nám til stúdentsprófs er á náttúrufræðibraut.
Læknaritarabraut er árs nám auk starfsþjálfunar á
heilbrigðisstofnunum. Inntökuskilyrði á hana er
stúdentspróf eða sambærileg reynsla og mennt-
un.
Umsóknarfrestur um nýjar brautir er til 10. júní.
Auk þessa býður skólinn upp á eftirfarandi nám:
Tveggja ára brautir:
Uppeldisbraut Viðskiptabraut Þjálfunarbraut
Stúdentsprófsbrautir:
Félagssvið með sálfræði-, félagsfræði eða fjöl-
miðlavali
Viðskiptasvið með hagfræði-, bókfærslu- eða
markaðsfræðivali
íþróttabraut
Listdansbraut í samvinnu við Listdansskóla Þjóð-
leikhússins.
Náttúrufræðibraut
Nýmálabraut
Innritun fyrir haustönn verður í skólanum 31. maí
og 1. júní kl. 8—16 og sömu daga í Miðbæjarskól-
anum kl. 9—18.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
skólans, s. 84022. Námsráðgjafi og yfirvöld skól-
ans eru til viðtals daglega kl. 8—16 um hvaðeina,
sem að náminu lýtur.
Skólameistari
NORÐDEKK
UMBOÐSMENN
UM LANDALLT
í 0^Sr0
mmiimsmfíui
Réttarháls 2 s. 84008 & 84009 • Skipholt 35 s.