Pressan - 31.05.1990, Qupperneq 10
10
Fimmtudagur 31. maí 1990
íslandsmótiðlíjcnattspyrnu
Möguleikar liöanna: Athyglisveröir leikmenn:
ÞÓR FRAM AKUREYRl luufiurdaginn 2. júní kl. 14 Það þarf mikla sérvisku til að spá Þórsurum sigri í þessum leik. Frammarar hafa byrjað stórkost- lega í ár en Þór er það lið sem lak- asta leiki hefur átt nú i byrjun mótsins. En eins og fyrri daginn getur allt gerst i knattspyrnu. Þórsarar hafa haft það orð á sér i gegnum tíðina að vera erfiðir heim aö sækja. Með toppleik og baráttuanda eiga þeir fræðilega möguleika á jafntefli. Allt Fram-liðið getur blómstr- að i þessum leik svo erfitt er að nefna einstaka leikmenn. Pétur Ormslev, GuðmundurSteinsson, Baldur Bjarnason og Ríkharður Daðason virðast allir frábærir um þessar mundir. Hjá Þórsurum mun mikið mæða á varnarmann- inum júgóslavneska, Luca Kostic, en hann hefur verið besti maður liðsins undanfarið.
KR ÍBV KR-VELLI luui’arduf’inn 2. júní kl. 14 Hér eru möguleikarnir áþekkir og i leiknum að ofan. KR-ingar hafa byrjað vel og hvort sem þeir endast út mótið eða detta niður síðari hlutann eins og oft áður eru þeir ekki líklegir til að gefa eftir i þriðju umferð. Flestir hljóta að spá KR sigri á heimavelli gegn nýliðunum ungu úr Eyjum. Ann- að telst a.m.k. til óvæntra úrslita. Ragnar Margeirsson byrjaði feril sinn á íslandsmóti með KR með því að skora tvö mörk. Spurning hvort hann heldur upp- teknum hætti gegn Eyjamönn- um. Þá verður gaman að sjá hvort Pétur Pétursson opnar markareikning sinn í ár. Vest- mannaeyjaliðið er ungt og jafnt og ekki ástæða til að nefna ein- staka leikmenn fyrr en eftir fleiri leiki.
FH STJARNAN KAPLAKRIKAVELLI luuj’urdaí’inn 2. júní kl. 14 Hér getur allt gerst. FH-liðið varð að vísu í öðru sæti í fyrra og Stjarnan er nýtt lið í deildinni en í upphafi móts hafa FH-ingar fjar- lægst toppklassann og enginn fallbaráttubragur er á Stjörnulið- inu. Við spáum jöfnum leik en heimavöllurinn er auðvitað FH- ingum í hag. Enginn hefur skorið sig úr í FH- liðinu til að byrja með, en spenn- andi verður að sjá hvort marka- kóngurinn frá þvi í fyrra, Hörður Magnússon, fer i gang i þessum leik. Stjörnuleiðið hefur verið jafnt, en athygli vakti að Árni Sveinsson skoraði tvö mörk í fyrsta leiknum gegn Þór.
VALUR VÍKINGUR VALSVELLI lauf’ardai’inn 2. júní kl. 14 Valsmenn hafa byrjað mjög vel og Vikingar virðast ekki auðsigr- aðir þó enginn spái þeim topp- sætinu. Enginn vafi er á því að Valsliðið hefur meiri möguleika á að spila góða knattspyrnu en spurning er hvað baráttugleðin skilar Víkingum. Við höllumst heldur að Valssigri enda heima- völlurinn sterkur. Anthony Karl Gregory skoraði tvö mörk með Val á dögunum. Hann var markhæstur i liði ís- landsmeistara KA i fyrra. Spurn- ing hvort hann stefnir á marka- kóngstitilinn í ár. Margir valin- kunnir leikmenn i Valsliðinu en ekki ástæða til að tína út fleiri að sinni. Hjá Víkingum hafa Atli Ein- arsson, Aðalsteinn Aðalsteins- son og Goran Micic verið jafn- bestir. Spennandi að sjá hvernig Atla gengur í framlinunni gegn Valsvörninni.
ÍA KA AKRANESI laugarduginn 2. júní kl. 14 Bæði liðin eru án stiga eftir tvær umferðir. Enginn vafi leikuT á því að íslandsmeistarar KA eiga meiri möguleika, liðið er baeði sterkt og reynslumikið en ÍA- menn tefla fram óvenjuungum mannskap í ár þó vænlegur sé. KA-menn hafa hins vegar ekki spilað eins og íslandsmeistarar það sem af er mótinu svo það er aldrei að vita með úrslit hér. Bjarki Pétursson og Arnar Gunnlaugsson eru meðal spenn- andi framtíðarleikmanna í ÍA, sumir segja verðandi atvinnu- menn. Hjá KA hafa Bjarni Jóns- son, Ormar Örlygsson og Kjartan Einarsson byrjað mótið best.
Staðan í fyrstu deild eftir tvær umferðir
leikir u j t mörk stig
Fram 2 2 0 0 8:0 6
KR 2 2 0 0 5:2 6
Valur 2 2 0 0 3:0 6
Víkingur 2 10 1 3:2 3
Stjarnan 2 10 1 3:3 3
FH 2 10 1 1:2 3
ÍBV 2 10 1 2:4 3
KA 2 0 0 2 0:3 0
Þór 2 0 0 2 0:4 0
ÍA 2 0 0 2 0:5 0
Markahæstir:
Guömundur Steinsson Fram........................................ 3
Anthony Karl Gregory Vaí........................................ 2
Árni Sveinsson Stjörnunni (1. v.)............................... 2
Baldur Bjarnason Fram............................................ 2
Ragnar Margeirsson KR............................................ 2
Ríkharður Daöason Fram........................................... 2
VERÐSAMANBURÐUR
Glæsivagninn BMW kostar drjúgan skilding á íslandi. Aörir bílar eru líka mun dýrari á
íslandi en til dæmis i Belgíu eöa Þýskalandi.
DÝRIR BÍLAR
Á ÍSLANDI
Islenska þjóðin er ein mesta bílaþjóð heims, en
það er ekki vegna þess að bílar séu sérstaklega
ódýrir hér á landi. Eins og allir vita eru bílar dýrir
á Islandi. PRESSAN birtir hér verðsamanburð á
þremur bíltegundum í sex löndum. Afbílunum sem
eru seldir á Islandi kom Citroén AX einna best út.
Hann var þó rúmum 170 þúsundum dýrari hér en
í Hollandi þar sem hann var ódýrastur. BMW var
langdýrastur á Islandi en þar munaði nærri
500.000 krónum á hæsta og lægsta verði.
EFTIR BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR OG EINAR ÓLASON
Löndin þar sem verö var
boriö saman eru Belgía,
Þýskaland Frakkland, Hol-
land, Bretland og Island.
Bílarnir voru ódýrastir í Belg-
íu, dýrastir á Islandi, en á
Bretlandi voru þeir næstdýr-
astir.
Veröiö sem gefiö er upp er
án virðisaukaskatts, þann-
ig að 19,3% bætast ofan á ef
maöur vill vita raunverulegt
verö bilsins. Mismunurinn á
veröi bílanna er því mismun-
ur á veröi frá framleiðanda.
Þetta er staögreiösluverö af
verölista og ekki gert ráö fyr-
ir mismunandi aukahlutum
sem geta fylgt bílunum og
gert þá dýrari.
Þannig kostar til dæmis
BMW um 1.196.000 krónur
án virðisaukaskatts eftir
verölista. Meö virðisauka-
skattinum kostar hann um
1.490.000 krónur, staðgreidd-
ur. Kf bíllinn er keyptur á af-
borgunum þarf kaupandinn
að borga einhver hundruö
þúsunda til viöbótar. Ofan á
allt þetta bætist ryðvörn og
skráning fyrir um það bil
25.000 krónur. íslendingar
eru gefnir fyrir aukahluti og
aö kaupa glæsilegustu gerð
sem völ er á af hverri bílteg-
und. Stundum eru einföld-
ustu gerðirnar ekki fluttar
inn til Islands því aö þær selj-
ast ekki. Sjálfskipting og raf-
magnsdrifnar rúðulæsingar
eru dæmi um aukabúnað
sem er vinsæll á lslandi.
Fíat Tipo 1400 fæst til
dæmis í tveimur mismunandi
gerðum hér á landi og dýrari
gerðin kostar um 40.000
krónum meira en er samt vin-
sælli. (Ódýrari geröin er í töfl-
unni.) Mismunandi tollar geta
einnig haft áhrif á verðið og
það skal tekiö sérstaklega
fram að ekki er endilega öll
sagan sögð um gróöa bílaum-
boðanna með þessum sam-
anburöartöflum okkar.
Samanburðurinn er geröur
á þremur bíltegundum sem
fást í öllum sex löndunum.
Einnig var tekin meö fjórða
tegundin, Nissan Bluebird
1600, sá bíll var seldur hér
fyrir nokkrum árum, en er
ekki lengur fluttur inn.
Bílarnir eru: BMW 316 i,
sem Bílaumboðið flytur inn;
Citroén AX 11, fluttur inn af
Globus; Fíat Tipo 1400 frá
Sveini Egilssyni og Nissan
Bluebird 1600, sem Ingvar
Helgason flutti inn fyrir
nokkrum árum en fæst ekki
lengur á Islandi.
Niðurstaðan er að Belgía
og Holland eru ódýrustu
löndin. ísland er dýrast og
Bretland næstdýrast. Mestu
munaði á hæsta og lægsta
verði á BMW-bílnum, hann
var 72,7% dýrari á Islandi en
í Belgíu og 35,8% dýrari á ís-
landi en á Bretlandi sem var
næstdýrasta landið.
Helgi Ingvarsson hjá
Ingvari Helgasyni reiknaði út
hvað Nissan Bluebird 1600
myndi kosta væri hann seld-
ur á Islandi í dag. Sá bíll virð-
ist koma betur út en hinir.
Helgi segir að umboöið hafi
ekki álitið þetta góðan sölu-
bíl, verðið hafi ekki verið tal-
ið sérlega hagstætt miðað við
aksturseiginleika bílsins.
Sumstaðar í Evrópu, ekki síst
í Belgíu og Hollandi, væri selt
mun meira af bílum á borð
við Nissan Bluebird 1600,
sem er stór bill með litla vél
og hentar ekki nógu vel við
íslenskar aðstæöur.
VERÐSAMANBURÐUR í NOKKRUM LÖNDUM
Belgía Holland Frakkland V-Þýskaland Bretland ísland
693.000 703.500 738.000 727.000 881.100 1.196.800
381.000 375.500 455.200 430.400 526.300 546.100
460.700 502.600 479.100 490.600 609.400 678.700
602.000 542.800 651.300 — 783.700 795.000
MISMUNUR HÆSTA OG LÆGSTA VERÐS
BMW 316 i..........................................................72,7%
Citroén AX 11..................................................... 45,7%
Fiat Tipo 1400.....................................................49,1%
Nissan Bluebird 1600 ............................................. 46,5%