Pressan - 26.07.1990, Side 6

Pressan - 26.07.1990, Side 6
6 Fimmtudagur 26. júlí 1990 -til íslands í staðinn og ílentist þar. Hann skrifaði mér þrjú bréf frá Islandi. I síðasta bréfinu sagðist hann ætla að reyna að komast á skip. Eftir það lieyrðist ekkert frá honum framar. Þá var hann í Vest- mannaeyjum og vann þar í frystihúsi. Ég sendi honum pakka um jólin 1968, en hann lét mig ekki vita hvort hann hefði fengið hann. Dótið hans fannst í herberginu hans svo það er ólíklegt að hann hafi ráöið sig á skip og það síðan farist með manni og mús og hann ekki skráður af ein- hverjum ástæðum. Ég geri ráð fyrir að hann hefði tekið eigur sínar með sér. Þær voru ekki heldur svo fyrirferðar- miklar. Lögreglan kom til pabba með þetta dót, úrið hans og fleiri smáhluti. Bern- ard á víst enn bankabók í Reykjavík, en við höfum aldr- ei óskað eftir að fá féð greitt. Ég held að hann hafi átt ís- lenska kærustu, en hún hefur aldrei reynt að hafa samband við okkur. Pabbi náði sér aldrei eftir þetta. Hann lést þremur ár- um síðar.“ Trúi ekki á sjálfs- morð „Lögreglan rannsakaði hvarfið og komst að þeirri niðurstöðu að Bernard hefði verið þunglyndur og taldi að hann hefði framið sjálfsmorð, en við höfum aldrei trúað því,“ segir Madeleine, systir Bernard, ennfremur. ,,Ég er sjálf alveg viss um að bróðir minn hefur ekki framið sjálfs- morð. Hann var alls ekki þunglyndur. Þvert á móti var hann bjartsýnn og dugmikill ungur maður og mikill nátt- úruunnandi. Hann hafði mik- ið yndi af náttúruskoðun og mér skilst að hann hafi sökkt sér niður í hana á íslandi. Hann var fremur hlédrægur og talaði lítið um sjálfan sig, en hann var ekki þar fyrir óhamingjusamur. I einu bréf- anna sagði hann mér að sig langaði til þess að fara á sjó- inn og að hann þekkti ein- hvern sem gæti útvegað hon- um skipsrúm. Ef einhver er enn á lífi á Islandi sem man eftir Bernard bið ég hann að láta mig vita. Mig langar til að frétta hvað varð um litla bróður minn, þótt langt sé nú liðið frá hvarfi hans." Hippinn varð úti Annar Erakkinn sem kom hingað og dó hér á þessu tímabili var líka dularfullur maður, en á annan hátt en Bernard Journet. Sá maður var fullkomið afsprengi hippatímans og af allt öðru sauðahúsi en Bernard, sem alls ekki var hippi — bara full- ur ferða- og ævintýralöngun- ar eins og títt er um unga menn. Hippinn steig út úr flugvél- inni klæddur næfurþunnum indverskum tuskum í vetrar- kuldanum og með bænatepp- ið sitt undir handleggnum. Hann héh strax til fjalla og varð úti. Ýmsir muna enn eft- ir þessum atburði vegna þess hve sérstæður hann var. Man einhver eftir Bernard? Venjulegur ungur maður sem kemur til íslands og fer að vinna í frystihúsi virðist hins vegar fáum minnisstæð- ur. Þó hlýtur hið einkenni- lega hvarf hans að hafa vakið athygli einhvers. Man ekki einhver Vestmannaeyingur enn eftir þessum manni? T.d. maðurinn sem bauðst til að útvega honum skipsrúm. Ættingjar Bernard í Frakk- '-V 'S ■ ' n . . .. V . ^ i V'- Jk' \ „tyeÁ ^ V. ^ i\\ jr v< v' ^ ^ -ðx v \v ti ' Bréf frá Bernard Journet til systkina sinna í Frakklandi „ÉG LÆRI ENSKU A MEÐAN ÉG BÍÐ EFTIR SÍLDINNI77 Bernard sást síðast í Vestmannaeyjum. „Ég er að kynna mér sjófuglalífið hér," skrifaði hann í bréfi heim. landi komu aldrei til Islands. Enginn þeirra var enskumæl- andi og því síður kunnu þeir íslensku. Þeir gerðu ekki ráð fyrir að hafa mikið upp úr krafsinu.þótt þeir legðu á sig ferð til Islands. „Auraráðin voru heldur ekki of mikil í þá daga, þótt öðruvísi horfi við núna,“ segir Madeleine. „Þó er það enginn stórauður, sem varð til þess að nú er lýst eftir bróður mínum. Það varð bara einhverntíma að ganga frá þessu máli.“ Heimilisfang syslur Bern- ard Journet: Mme. Madeleine Knoepfli Route d’Ars St. Didier de Formans 01600 Trevoux Frakkinn sem synti til hafs Þriðji Frakkinn var maður, sem margir muna enn eftir. Ekki síst eftir að Vilborg Dag- bjartsdóttir skáld gerði hann ódauðlegan í ljóði sínu um Frakkann sem synti til hafs. Hann hét Dominique en var af mörgum kallaður Gaston. Hann hafði alla eiginleika rómantískrar hetju til að bera og kannski er það þess vegna sem minning hans er svo líf- seig í hugum fólks. Hann var einmana, þunglyndur, skáld og lék á gítar. Hann átti marga kunningja og unnustu í Reykjavík þar sem hann bjó. En einhverstaðar hlýtur að hafa verið brotalöm í tilveru Gastons því einn morguninn fundust fötin hans í fjörunni í Laugarnesi. Hann hafði synt til hafs. „Ég held ekki að þetta hafi verið sjálfsmorð í venjuleg- um skilningi þess orðs,“ segir Vilborg Dagbjartsdóttir. „Ga- ston hafði orðið að þola margt, bæði í heimalandi sínu og ekki síður hér á ís- landi þar sem fólk er svo tor- tryggið gagnvart útlending- um. Undir lokin var eins og hann væri farinn að trúa því að ekkert gæti lengur gert honum mein. Ég held að það hafi verið eins konar helhvöt sem stýrði því að hann lagð- ist til sunds þetta kvöld í fjör- unni í Laugarnesinu." Vestmannaeyjum 10.7.1968 Komið þið sæl, öllsömul! Ég ætla að segja ykkur lauslega frá ferðalagi mínu hing- að til. Ég fórfyrst til Bordeaux og ætlaði að reyna að kom- ast sem háseti á skip. Það tókst ekki vegna verkfalls hafnar- verkamanna. Ég fór þá á puttanum til le Havre og var fastur þar í tvær vikur vegna verkfallsins. Ég reyndi að finna skip svo ég gæti komist yfir Atlantshafið og unnið fyrir mér um leið, en það gekk ekki. Á farfuglaheimilinu í le Havre kynnt- ist ég íra sem bjó í Kanada og hann sagði mér heilmikið um ísland og sagðist hafa unnið þar í 6 mánuði fyrir góðan pening. Eg sagði þá við sjálfan mig að ef ég færi til ísjands gæti ég bæði nálgast Kanada og rýmkað auraráðin. Ég fór þess vegna yfir Ermarsund og svo England og alltaf á puttanum. Það reyndist erfitt að fara í gegnum London, borgin er stór og ég hafði ekkert kort. Mér tókst það samt og ég gisti í Holland Park á farfuglaheimili í miðri London. Svo fór ég til Glasgow í Skotlandi. Ég ætlaði að fara á skip í Edinborg því það er eina hafnarborgin sem skip sigla frá til íslands fyrir utan Kaupmannahöfn í Danmörku. En það var ekkert pláss að fá. Ég tók þess vegna flugvélina frá Glasgow til Reykjavíkur og var þar í eina viku. ísland er fallegt land, en þar eru engin tré. Hér er mikið af villtum fuglum sem eru ekkert villtir. Reykjavík er alveg hituð upp með vatni úr heitum upp- sprettum. í þessu landi standa líka yfir verkföll en hér er það þveröfugt við Frakkland. Það eru atvinnurekendur sem hér eru í verkfalli, en það er ekki alvarlegt. Það sem er alvar- legra er að síldin kemur ekki og þegar engin síld er, er enga vinnu að fá fyrir útlendinga eins og mig sem tala hvorki ís- lensku né ensku, því það er mjög erfitt að gera sig skiljan- legan á öðru máli. Ég reyndi sumsé að fá vinnu í Reykjavík en þegar það gekk ekki fór ég til Vestmannaeyja sem er lítil eyja og bær fyrir sunnan ísland í nokkurra kílómetra fjar- lægð frá Surtsey sem er síðasta eyjan sem fæddist í Átl- antshafinu. Ég tók skip í Reykjavík sem hossaði mér í 9 klukkustundir í þungum sjó og þarna kynntist ég sjóveiki í fyrsta sinn. Sólin sest aldrei á íslandi á sumrin og and- stætt því sem mætti ætla samkvæmt hnattstöðu landsins, er veðurfarið nokkuð temprað, á milli 12 og 16 gráður og þetta er Golfstraumnum að þakka. Vestmannaeyjar eru stór síldveiðamiðstöð, en á meðan ég bíð eftir síldinni læri ég ensku, því ég hef komist að því að hana er mjög heppi- legt að kunna utan Frakklands. Ég er líka að kynna mér al- veg niður í kjölinn sjófuglalífið hér, því þeir eru hér þúsund- um saman, sem er mjög hentugt, vegna þess að maður þarf ekki byssu til þess að veiða þá. Bréf Bernards er lengra, en hér lýkur þeim hluta þess sem Madeleine systir hans sendi PRESSUNNl.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.