Pressan - 26.07.1990, Qupperneq 11
Fimmtudagur 26. júlí 1990
11
TVÍBREITT
KONIINGLEGT BAD
Það er með ólíkindum hvað frétt-
ist af innviðum hinnar 500 milljón
króna hallar, sem verið er að byggja
fyrir þau hjónin Fergie og Andrew
Bretaprins. Þeir, sem koma nálægt
hönnun og byggingu hallarinnar,
eru auðvitað bundnir trúnaði við
prinsinn og konu hans, en alltaf
tekst bresku blöðunum fá einhvern
til að „leka“ upplýsingum.
Fyrir rúmu ári fréttist af viðbrögð-
um Filippusar prins, þegar hann
komst að því hvernig Fergie ætlaði
að hafa svefnherbergið. Höfðu blöð-
in það fyrir satt að drottningarmað-
urinn hefði líkt hjónaherberginu við
hóruhús, en það er nú önnur saga.
Núna er það baðherbergi prinsess-
unnar, sem veldur umtali.
Fergie er sögð hafa ákveðið að
láta innrétta einkabaðherbergi sitt í
skipsstíl — kannski vegna þess að
eiginmaður hennar er í breska sjó-
hernum. Baðkerið verður eins og
skip í laginu og verður staðsett í
miöju herberginu. En það sem
meira er: Það mun rúma tvo!
Þetta þótti breskum fjölmiðlum
auðvitað krassandi og eitt af sunnu-
dagsblöðunum fékk m.a.s. sálfræð-
inga til að sálgreina prinsessuna út
frá þessari vitneskju. Ekki varð sú
sálgreining til að varpa nýju Ijósi á
Fergie, en þeir sögðu eitthvað á
þessa leið: „Það er hægt að taka upp
á ýmsu í svona stóru baðherbergi!
Þetta bendir til þess að Fergie sé
frjálsleg og kunni illa við öll form-
legheit. Einnig segir það heilmikið
um persónuleikann að hún skuli
ætla að hafa baðkerið úti á miðju
gólfi. Það sýnir að hún vill vera mið-
depill og vendipunktur — jafnvel í
baðherberginu — og hvítu marm-
araflísarnar eru eins og flóðlýsing.
Hvíti liturinn er líka róandi fyrir
prinsessuna."
Þá vitum við það!
KLÁMMYNDIR
í KASTALA
Lávarður nokkur í Bretlandi er al-
veg fjúkandi reiður þessa dagana,
vegna nektarmynda sembirtust ný-
verið í karlablaðinu Mayfair. Konan,
sem þar striplast, er þó ekkert á veg-
um lávarðsins, enda snýst reiði hans
ekki um stúlkukindina heldur um-
hverfið, sem hún er í.
Myndirnar voru teknar fyrir
tveimur árum í kastala lávarðsins,
sem er afar glæsilegur. Þekktur ljós-
myndari fékk salarkynnin leigð
vegna tískumyndatöku og fannst
eigendum hallarinnar það hið besta
mál. Til vonar og vara létu þeir þó
þjóna sína standa vörð um ljós-
myndarann og lið hans — kannski
ekki síst vegna þess að mikið var
þarna um óbætanlega muni í eigu
fjölskyldunnar. Vaktmennirnir virð-
ast hins vegar hafa brugðið sér frá af
og til og þá notaði fyrirsætan tæki-
færið, tíndi af sér spjarirnar í hvelli
og lét mynda sig létt- eða allsendis
óklædda í og á dýrindis antíkhús-
gögnum lávarðsins.
Nektarmyndirnar birtust svo í
karlablaðinu, en „tískumyndirnar"
hafa hvergi verið prentaðar. Þess
vegna þykist lávarðurinn hafa verið
plataður allhressilega varðandi
myndatökuna í kastalanum og íhug-
ar að fara í mál.
BÍÓMYNDA-
LANDAKORT
Það er ýmislegt gert til freista
ferðamanna. Við fréttum nýlega af
sérkennilegu landakorti af Bret-
landi, sem ferðamálaráðið þar í
landi hefur látið gera. Þeir kalla það
„The Movie Map“ eða Kvikmynda-
kortið.
Kvikmyndakortið er venjulegt
landakort, en inn á það eru merktir
75 staðir þar sem frægar bíómyndir
eða sjónvarpsþættir hafa verið kvik-
myndaðir. Þannig er ferðamönnum
auðveldað að komast á slóðir, sem
vakið hafa athygli þeirra í kvik-
myndahúsum eða í sjónvarpinu.
Einnig ætlar breska ferðamála-
ráðið að gangast fyrir óvenjulegu
„rallýi" 50 bifreiða, sem „leikið"
hafa í kvikmyndum eða sjónvarps-
þáttum. Kallast þetta „The Great
British Film Rally“. Hefst rallið í Wa-
les en því lýkur í Edinborg og m.a.
taka þátt í því bílar úr myndum um
James Bond, úr Batman-myndinni
frægu og úr myndinni Chitty Chitty
Bang Bang.
ÁFENGISVEIDAR
Nú stendur yfir leit að tvö þúsund.
kössum af áfengi í hafinu nálægt
eyjunni Suður-Uist við strendur
Skotlands. Skip nokkurt, sem hét
Stjórnmálamaðurinn, strandaði
þarnaárið 1941,enþað varáleið frá
Liverpool til Jamaíka.
Skipið flutti ýmsar vörur, t.d. bað-
ker, silki, mótorhjólavarahluti og
peninga — og 250 þúsund flöskur af
skosku viskýi. íbúar við ströndina
kræktu sér í heilmikið góss, þegar
atburðurinn gerðist, en talið er að
allt að tvö þúsund áfengiskassar séu
enn á hafsbotni. Kafarar fundu raun-
ar átta flöskur árið 1987 og seldust
þær á uppboði fyrir um 400 þúsund
íslenskar krónur. Það er því eftir
miklu að slægjast.
FERÐAMENN
í FYRIRTÆKI
Víða erlendis gefst ferðamönnum
tækifæri á að skoða ýmis fyrirtæki í
fullri starfsemi. í Bretlandi er t.d.
gefinn út sérstakur listi yfir fyrir-
tæki, sem taka á móti gestum, og
eru þau um 150 talsins — allt frá
gömlum hefðbundnum fyrirtækjum
til framleiðenda hátæknibúnaðar.
Ferðamenn geta keypt þennan
lista í flestum bókaverslunum fyrir
lítinn pening og valið hvaða fyrir-
tæki þeir vilja heimsækja. Mikið er
um verksmiðjur á listanum og fram-
leiða þær allt milli himins og jarðar:
bjór, glervörur, viský, tin, hveiti,
silki, súkkulaði og fleira. Einnig er
hægt að líta inn hjá framleiðanda
Bristol Cream sjerrísins, ef maður er
þannig þenkjandi, eða þá fara í
mjólkurbú eða í ostagerð. Þetta geta
orðið hinar mestu ævintýraferðir,
því í tinverksmiðju einni er t.d. farið
með gestina niður í afar djúpa
námu, sem er í helli undir sjónum.
TE, TE, TE
Breska þjóðin er kunn fyrir mikla
tedrykkju og nú hefur verið gerð
vísindaleg könnun á málinu, eins og
svo mörgu öðru. í ljós kom, að hver
einasti Breti yfir tíu ára aldri drekk-
ur að meðaltali 3,62 tebolla á dag.
Mikil tilþrif hafa lengi tíðkast í kring-
um eftirmiðdagste landsmanna og
þetta virðist lítið breytast. í nýút-
kominni bók er t.d. sagt frá 168stöð-
um í London, sem enn bjóða upp á
hefðbundið síðdegiste að gömlum
og góðum sið.
STJÖRNU-BOD:
ÞÚ TEKUR EINA SPÓLU OG FÆRÐ AÐRA FRÍA!
NÝ MYNDBANDALEIGA MEÐ MAGNAÐ ÚRVAL!
BACK TO THE
FUTURE
BLACK
RAIN
EIGHT
MEN
OUT
CAMERONS
CLOSET
TAKTU STJÖRNURNAR MEÐ ÞÉR HEIM Á MYNDBÖNDUM
ÞÚ TEKUR EINA SPÓLU
OG FÆRÐ AÐRA
OPIÐ ALLA DAGA KL. 13.00 - 23.30