Pressan - 26.07.1990, Page 14

Pressan - 26.07.1990, Page 14
14 PRESSU M6L&R hjólaverkstæðið Borgarhjói á Hverfisgötu stundar viðgerðir af kappi þessa dagana. Þar er líka hjólaleiga sem hingað til hefur verið notuð mest af erlendum ferða- mönnum. Nú er svo komið að inn- anbæjarmenn, jafnvel örgustu skrif- stofublækur, leigja sér hjól til að fara í vinnuna og leggja bílnum yfir sum- arið. . . Þ lotkun reiðhjóla hefur færst í vöxt á íslandi. En það sem reið- hjólaverkstæðin finna mest fyrir eru auknar viðgerðir á fjallahjól- um. Þau bila ekki endilega oftar, en þegar fjallahjól bilar er erfiðara að gera við það vegna þess að búnað- urinn er flóknari. Karlmannahjólin bila miklu fremur en kvenhjólin, en það mun stafa af illri meðferð karl- anna á reiðhjólunum frekar en að karlahjólin séu lakari að gerð. Reið- að eru eflaust margir sam- mála Nirði P. Njarðvík sem kvartar yfir því í Morgunblaðinu að út- lendingar, og ekki síst frændur okk- ar á Norðurlöndum hafi litla þekk- ingu á íslandi og íslendingum. Heitir hverir, miðaldamenning og í seinni tíð drykkjuskapur og lausung séu það helsta sem útlendingunum komi í hug þegar minnst er á Island. Njörður bendir á að íslendingar geri töluverf af því að staðfesta þessa' einföldu ímynd frekar en að breyta henni. Og það er auðvitað alveg rétt. Auðvitað sýnum við erlendu ferðamönnunum heitu hverina, miðaldamenninguna og stóru disk- ótekin-með drykkjuskapnum. Þetta eru okkar sérkenni. Hinsvegar get- ur hver og einn haft sína skoðun á því hvort það sé góð kynning á ís- lenskri menningu að laða erlenda ferðamenn að skemmtistöðum með því að setja horn á þjónana og kalla þá víkinga. En þetta gera þeir í I GALTALÆ KJARSKOGl Verslunarmannahelgin 3.-6. ágúst Föstudagur 3. ágúst. kl. 21.00 Danslelkur ( kúlu Hljámsveltin ER' kl. 22.00 HUÓMS* kl. 03.00 Dansleikjum lýkur. Laugardagur 4. ágúst. kl. 11.00 Hjólreiöakeppni BINDINDISFÉLAGS ÖKUMANNA (BFÖ) Barnaleikir BJÖSSI BOLLA TRÚÐAR kl. 14.00 ÖKULEIKNI BFÖ á bökkum Rangár Hljómleikar I kúlu: Hljómsveitin ELSKU UNNUR kl. 16.00 Barnadansleikir á palll: HUÓMSVEIT INGIMARS EYDAL i BJÖSSIBOLLA TRÚÐAR r,¥ kl. 17.00 Fimleikasýning FIMLEIKAFÉLAGIÐ BJÖRK kl. 20.30 Mótssetning: STEFÁN jónatansson kl. 20.40 KVÖLDVAKA: Skemmtidagskrá á palli ROKKPARIÐ HJÖRTUR BENEDIKTSSON, eftirherma ki. 22.00 HUÓMSVEIT INGIMARS EYDAL Hljómsveitin-ERTU EKKI ÞOKKALEGA ERN? Hljómsveitin BUSARNIR Hljómsveitin ELSKU UNNUR kl. 00.01 FLUGELDASÝNING Fjöldasöngur kl. 04.00 Dansleikjum lýkur Sunnudagur 5. ágúst. kl. 11.00 Barnaleíkir BJÖSSI BOLLA TRÚÐAR kl. 14.00 Helgistund: Sóra PÁLMI MATTHlASSON KÓR kl. 15.00 Danssýning DANSSKÓLI JÓNS PÉTURS OG KÖRU kl. 15.30 Barnaskemmtun: BJÖSSI BOLLA TRÚÐAR o.fl. kl. 16.00 Bamadansleikur á palli: HUÓMSVEIT INGIMARS EYDAL Hljómlelkar I kúlu: Hljómsveitin BUSARNIR kl. 17.00 MÖGULEIKAHÚSIÐ kl. 20.00 Hátíðarraeöa ERHARÐ INGÓLFSSON, metsöluhöfundur Söngsveltin RADDBANDIÐ Danssýning DANSSKÓLI JÓNS PÉTURS OG KÖRU kl. 22.00 Dansleikur á palll: HUÓMSVEIT INGIMARS EYDAL Danslaikur I kúli Hlj, Hljómsvel kl. 02.00 Dansleikjurp Hveradölum og víðar, við miklar undirtektir erlendra ferðamanna. Útlendingarnir hafa einstaka ánægju af því að virða fyrir sér inn- fædda, karlana sem augafulla vik- inga með stór horn og konurnar sem léttúðardrósir á íslenskum bún- ingum. . . Fimmtudagur 26. júlí 1990 Ikveðið hefur verið að halda næsta flokksþing Alþýðuflokks- ins í íþróttahúsi. Nánar tiltekið verður það i íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði, líklega um miðjan október. Verður það í fyrsta sinn í 70 ára sögu flokksins, sem flokksþing er haldið í Hafnar- firði. . . Þ að er von tennisáhuga- manna að áhugi landsmanna á íþróttinni glæðist nú eftir að ríkis- sjónvarpið sýndi beint frá merkustu tenniskeppni heims, sem fer fram i Wimbledon á Englandi. Daníel Stefánsson, badmintonkennari hjá Tennis- og badmintonfélagi Reykja- víkur, sagðist eiga von á að tennis- leikur yrði meira iðkaður með haustinu því TBR tekur þá í notkun húsnæði með einum tennisvelli. Einn tennisvöllur er jafnstór fjórum badmintonvöllum og þarf að breiða sérstaka mottu yfir badmintonvell- ina til að hægt sé að leika tennis á þeim. Með tilfæringu verður hægt að leika tennis inni allan ársins hring —á föstudögum og um helgar. Annars sagði Daníel að eini útivöll- ur þeirra TBR-manna væri frekar lít- ið notaður þrátt fyrir blíðuna, en það kostar 600 kr. á tímann að leika þar. Dariíel sagði a ð þeir hjá TBR lof- uðu að leigja salinn á minna en gert er í Fjölnishúsinu uppi í Grafarvogi, en þar kostartíminn 2.800 kr. Það er vonandi að tennisfólk á Islandi þurfi ekki að hafa tekjur líkt og Martina Navratilova eða landi'hennar Ivan Lendl til að geta stundað þessa ann- ars ágætu íþrótt.. . Persónulestur úr vegg- múlningunni ■ Þeir sem hafa rauðmálaða veggi eru greinilega svolítið fyrir að rífast — eða að minnsta kosti ræða málin á hressilegan hátt. Og ef stofan þín er máluð í bláum lit er næstum öruggt að þú stillir ofn- inn á hærra hitastig en vinkona þín sem er með bleiku veggina. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri bók eftir Peter Marsh sem heitir hinu „einfalda" nafni: „Lífsstíllinn getur reynst dýrmætur lykill til að skilgreina persónuleika vina þinna og nágranna." Þar kem- ur einnig fram að djarfir litir geti ýtt undir hressilegar samræður og því æskilegt að mála í slíkum litum stof- una þar sem þú tekur á móti gest- um. Þeim opinskáu líður vel í herbergi sem málað er í sterkum og björtum ODYRT Flug og bíll í Þýskalandi aðeins kr. 25.875,-* í 1 viku. Vegna hagstæðra samninga getum við boðið upp á flug og bíl í 1 - 4 vikur til Dusseldorf og/eða Stuttgart Þú getur valið um flug og bíl flug og hótel - flug og gistihús flug og tjald - flug og húsbíl. * (miöað viö 4 fullorðna (bíl.) Bankastræti 2, Sími : 62 71 44 litum, því þeir þurfa að vera í líflegu umhverfi. Hinir sem minna eru gefnir fyrir fólk eru afslappaðastir þar sem jaröarlitir ráða ríkjum. Kannanir sýna ennfremur að þeir sem stefna hátt, starfslega og pen- ingalega séð, kjósa dökkbrúna liti eða bláa, sem blandaðir eru gráum. Litir eins og rauður, bleikur og appelsínugulur virka hlýir litir, en bláir og gráir kuldalegri. í könnun einni kom í ljós að þeir sem voru í blámáluðu herbergi settu hitann á þótt þar væri sama hitastig og í rauða herberginu við hliðina á sem öllum leið vel í. Þessi tilfinning fyrir litum kemur fram víða. Ef kassar eru til að mynda málaðir í rauðum og græn- um litum álítur fólk að sá rauði hljóti að vera þyngri. Skærgulur kassi myndi hins vegar virka þannig á fólk að hann væri mjög léttur. , A heimilum ætti fólk að gæta þess að mála ekki í svörtum litum að sögn Peters Marsh: „Svartur litur minnkar eftirtekt okkar og veldur því að við verðum óörugg. Þannig getur okkur sýnst svartur veggur vera að falla á okkur." Litur á veggjum getur haft bein áhrif á skap okkar, dugnað og líðan: „Ef við horfum á Ijós endurspeglast á hlýjum lit, til dæmis rauðum, verð- ur keðjuverkun. Vöðvaspenna eykst og líkaminn virðist teygja sig í átt að ljósinu og litnum. Öndun og hjartsláttur verða hraðari og blóð- þrýstingurinn hækkar. Á endanum nær þessi virkni til heilans og þú verður hressari og meira vakandi. Lítil birta og dökkir litir, eins og blár, hafa öfug áhrif. Þáð slaknar á vöðvum, andardráttur og hjartslátt- ur verða hægari og blóðþrýstingur fellur. Þú gætir jafnvel sofnað." Hér er sjálfsagt komin skýringin á vin- sældum blárrar málningar á svefn- herbergisveggi. Ef þú treystir þér ekki til að taka ákvörðun um hvernig þú vilt að þér líði í þessu eða hinu herberginu er rétta lausnin ekki sú að mála allt húsið í hvítum lit, að minnsta kosti ekki fyrir Breta, en Peter Marsh bendir á að birtan þar hafi ekki sömu hressandi áhrifin og í Miðjarð- arhafslöndum: „Á Bretlandi virkar hvítur litur grár og leiðigjarn." Eldhús eru oft máluð í lit sem minna á eitthvað matarkyns, til dæmis rauð, brún og græn, en bleik- an lit setur fólk hins vegar gjarnan í samband við hreinlæti: „Bleik bað- herbergi þykja til dæmis mjög hreinleg," segirMarsh. „Ef þitt bað- herbergi er hins vegar málað í blá- um eða grænum lit er líklegt að þér þyki notalegt að lesa í baðinu — að minnsta kosti er baðherbergið það herbergi sem þér finnst einna best að slaka á í.“ Herbergi sem notuð eru við ýmis tækifæri er hentugt að mála í demp- uðum lit, en nota skæra liti á ein- staka hluti þar inni. Ljós skipta einn- ig miklu máli. Rafmagnsljós og kertaljós framkalla gula birtu sem veldur því að hlýju litirnir virðast skærari en bælir aftur á móti niður skæru litina þannig að herbergið verður ekki mjög hlýlegt. Og hvað gerir maður þá ef mak- inn hatar einhvern ákveðinn lit eða krakkarnir þínir heimta appelsínu- gult baðherbergi? Leyfðu hverjum að velja lit á sitt herbergi — og slepptu því að fara þangað inn ef sá litur virkar illa á þig.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.