Pressan - 26.07.1990, Page 16
Fimmtudagur 26. júlí 1990
LIFIBRAUÐ LEIKARA, frh.
mig núna, þó ég ætli alls ekki að tala illa um
auglýsingarnar, sem hafa veitt mér atvinnu.
Nú er ég á ferð um landið með Spaugstof-
unni og við auglýsum lambakjöt um leið."
Margir af yngri kynslóð leikara kenna leik-
list, stjórna leikritum úti á landi eða vinna
við þáttagerð eða upplestur í útvarpi. Eldri
kynslóðin neyddist til að vinna á daginn og
leika á kvöldin því möguleikarnir voru ekki
eins miklir að fá vinnu sem tengdist leiklist.
Steindór Hjörleifsson vann í banka eins og
margir leikarar af hans kynslóð gerðu, en
dóttir hans Ragnheiður hefur haldið fyrir-
lestra hjá JC og Míálfreyjum, sett upp
Skáld-Rósu á Blönduósi og lesið inn á aug-
lýsingar.
Bannað að leika
í auglýsingum
fólki að beita líkamanum á réttan hátt. Hún
losar um gamla ávana sem fólk hefur tamið
sér á lífsleiðinni. Hún kennir þessa tækni í
Kramhúsinu og í Leiklistarskólanum auk
þess sem hún kennir hljómlistarmönnum
sem vilja notfæra sér þessa tækni. Jónína
hefur þó líka leikið á sviði síðan hún kom
heim, m.a. í Macbeth í Gamla Bíó, og ætlar
sér að halda áfram að leika hjá Alþýðuleik-
húsinu.
Leikkonan í fjósinu
Halla Guðmundsdóttir gerði aukastarfið
að aðalstarfi og sér ekki eftir því. Hún er
bóndi að Ásum í Gnúpverjahreppi og hóf
þar búskap fyrir fjórtán árum með manni
sínum Viðari Guðgeirssyni sem er guð-
fræðingur að mennt. Þau búa félagsbúi með
foreldrum Höllu og hafa 30—40 kýr. Halla
hefur þó ekki lagt leiklistina algjörlega á hill-
una því hún setur upp a.m.k. eitt leikrit á ári
og kennir á leiklistarnámskeiðum. Hún hef-
ur lika lagt stund á þáttagerð fyrir útvarpið
og sameinar þá bæði áhugamálin, því hún
hefur gert þætti sem fjalla um sveitina og líf
sveitafólks.
,,Ég get ekki sagt hvort starfið er betra,
þau eru svo ólík,“ segir Halla, ,,það er varla
hægt að bera þau saman. En bóndi og leikari
þarf að vera búinn sömu hæfileikum á vissan
hátt. Hann þarf að vera bjartsýnn og hafa
mikla trú .á því sem hann er að gera og vera
viss um áð Ifann hafi eitthvað að gera í faginu
— og hafa yndi af því. Það er aðalatriðið í
báðum greinum! Ef svo er ekki, er betra að
Tinna Gunnlaugsdóttir: Tinna selur barnaföt í Bankastræti.
Auglýsingar voru eitur í beinum margra
leikstjóra áður fyrr en nú ríkir hjá þeim allt
annað sjónarmið. Þegar Jónína Olafsdóttir
lék í leikhúsum og í sjónvarpskvikmyndum í
Bretlandi þar sem hún dvaldi í 20 ár, var
henni bannað að leika í auglýsingum. „Nú er
allt breytt," segir hún, ,,og það er jafnvel talið
æskilegt að ungir leikarar spreyti sig á aug-
lýsingum og veki athygli á sér um leið. Ég lék
meðal annars í auglýsingum undir stjórn
Ridley Scott sem nú er kominn til Holly-
wood og er orðinn heimsfrægur."
Jónína lærði svokallaða Alexanders-
tækni í Bretlandi en hún felst í því að kenna
Arnór Benónýsson: Arnór á leiö í vinn-
una.
Sigurveig Jónsdóttir: Þessi heföarfrú rak
Ijósastofu i'iReykjavík
Lilja Guörún Þorvaldsdóttir: Lætur ekki
deigan síga þótt á móti blási! '•
gera eitthvað annað því hvortveggja er mjög
erfitt og slítandi.
Það var erfitt á sínum tíma að taka þessa
ákvörðun um að leggja leiklistina á hilluna,
þ.e.a.s. að hætta að leika, og ég geri ráð fyrir
að á vissan hátt hafi óvissan um framtíðina
átt þátt í því hvernig fór að lokum. Nú eru
meiri atvinnumöguleikar fyrir leikara en þá
var. Nú eru til þessi litlu leikhús en þá var að-
eins um Litla sviðið að ræða. Það verður
enginn góður leikari nema hann hafi nóg að
gera. Ég held að það gegni sama máli um
hvað sem er, hvort sem um er að ræða köku-
bakstur eða skósmíði eða annað. Maður
verður að stunda það sem maður ætlar að
verða flínkur í.“
Okkar eigin herrar
Það eru þó til leikarar sem aldrei hafa ver-
ið fastráðnir hjá leikhúsi en hefur samt tekist
að lifa á leiklistinni, en þeir eru ekki margir.
Edda Björgvinsdóttir er ein þeirra leik-
ara sem aldrei hafa leikið í auglýsingum
enda þótt hún hafi samið handrit að ótal
mörgum þeirra. Edda hefur aldrei verið fast-
ráðin hjá leikhúsunum, en hún hefur starfað
eingöngu að leiklist og því sem henni tengist
síðan hún útskrifaðist. „Mér og manninum
mínum, Gísla Rúnari, hefur tekist að helga
okkur algjörlega leiklistinni," segir Edda.
„Við höf um alltaf rekið okkar eigið fyrirtæki,
eigið leikhús. Svo höfum við samið handrit
og stjórnað fyrir útvarp og sjónvarp. Hingað
til höfum við verið eigin herrar."
Mæðgurnar Margrét Ólafsdóttir og
Ragnheiöur Steindórsdóttir: Kvíða ekki
atvinnuleysinu!
Sigurður Sigurjónsson: Siguröur í eld
húsinu.
Jónína Ólafsdóttir: Kennir Alexanders-
tækni í Kramhúsinu.