Pressan - 26.07.1990, Page 18
18
Fimmtudagur 26. júlí 1990
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 16 • 101 REYKJAVlK • SÍMI 91-621490 •
AMSTERDAM UM
VERSLUNARMANNAHELGINA
Brottför 2. ógúst og 3. ógúst — 3 eöa 4 nœtur.
Verö pr. mann í tvíbýli frá 31.890. Innifaliö flug,
gisting og morgunverður.
TÖNLEIKAR:
FLEETWOOD MAC - JETHRO TULL
DARYL HALL OG JOHN OATS
Frábær uppákoma 1. september á Wembley í
London. Brottför 30. og 31. ágúst, 3 eða 4
nætur.
Fararstjóri: Ásgeir Tómasson.
Verö pr. mann í tvíbýli frá 42.500. Innifaliö flug,
gisting, morgunveröur, flutningur til og frá flugvelli
aö hóteli og á Wembley og aögöngumiöar á
tónleikana.
TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ
BENIDORM
Alla fimmtudaga.
Örfá sœti laus í ágúst og september.
FLUG OG GISTING/FLUG OG BÍLL
Til Kaupmannahafnar, Amsterdam, Luxemborgar,
Uondon, Glasgow, New York, Orlando.
Haust- og vetrarveröiö komiö.
Athugaöu veröiö hjá okkur.
Sjáumst
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 16*101 REYKJAVIK • SIMI 91-621490 •
Sími 621490
AMY ENGILBERTS LES ÚR KROTI OG KRASSI LESENDA PRESSUNNAR
MEIRA UM KROT
Fyrir skemmstu birtum við nokkur dæmi um það
hvernig fólk krassar á blað, þegar það hefur penna
við höndina en er með hugann við eitthvað allt ann-
að. Amy Engilberts las síðan sitt af hverju út úr
þessu kroti um persónuleika krassarans.
EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR
Lesendum blaðsins var síðan boð-
ið að senda inn dæmi um það hvern-
ig þeir krota á blað í hugsunarleysi
— með loforði um að Amy myndi
rýna í krassið í lok júlí. Núna efnum
við þetta loforð, en framlengjum
jafnframt þennan lauflétta og
ábyrgðarlausa leik. Þú hefur sem
sagt enn möguleika á að fá lesið úr
þínu kroti, ef þú sendir okkur dæmi
um það. (Sjá utanáskrift á öðrum
stað hér á síðunni.) Góða skemmt-
un!
2.
Þessi persóna er glaðlynd og
svolítið kæruiaus — og henni
finnst mjög gaman að skemmta
sér hressilega. Hún hefur sterkt
ímyndunarafl og lifir eiginlega í
hálfgerðum draumaheimi. Að
eðlisfari er hún bjartsýn, en hana
skortir meira úthald og oft er hún
fljótfær.
W
3.ai3it (L
,;.o
i öW
-nJJ
Krotið bendir til að þessi ein-
staklingur vinni fremur hratt og
skorti oft þolinmæði. Það kemur
þarna fram mikil spenna, sem
bendir til að hann sé eitthvað
óánægður eða pirraður. Hann
hefur líka áhyggjur og að öllum
líkindum er hann í aðstöðu, sem
krefst þess að hann standi í stór-
ræðum eða takist á við vanda-
mál. Að mörgu leyti er hann
ósveigjanlegur, en getur þó einn-
ig verið sveigjanlegur.
1.
Þetta er trygglynd og hlý per-
sóna, sem er mikið með hugann
við heimilið. Hún lifir hins vegar
dálítið í fortíðinni. Ákveðin
spenna einkennir þessa per-
sónu. Þetta er viðkvæm sál, en
hún hefur þörf fyrir félagsskap
og samskipti við annað fólk. Ein-
hver dapurleiki hvílir þó yfir
henni og hún hefur áhyggjur.
3.
Sá, sem krotar svona, er fram-
kvæmdasamur og vill hafa
skipulag á hlutunum. Hann nýtur
þess að standa í stórræðum og
ætlar sér sannarlega að komast
áfram í lífinu. Hann hefur líka
bæði úthald og dugnað og bar-
áttuþrek til að ná langt. Persón-
una skortir hins vegar tilfinnan-
lega sveigjanleika.
5.
Þessi krotari hefur hönnunar-
hæfileika og er líklega mikill ná-
kvæmnismaður. Hann er glað-
lyndur, samviskusamur og opinn
persónuleiki. ímyndunaraflið er
sterkt.
VILTU LATA LESA ÚR ÞÍNU KROTI?
Sendu þá dæmi um það hvernig þú krassar, þegar þú ert
annars hugar. Úrlesturinn birtist í Pressunni í lok ágúst.
Utanáskriftin er:
PRESSAN — krot og krass, Ármúla 36, 108 Reykjavík.
Þetta er krot innhverfrar og dálít-
ið iokaörar persónu. Hún er vilja-
sterk og nokkuð stjórnsöm, en
getur verið óþægilega ósveigj-
anleg.
Sá, sem krotar svona er ósáttur
við sjálfan sig og langar til að
gera eitthvað allt annað en hann
er að fást við. Að öllum líkindum
á hann við ákveðið vandamál að
stríða um þessar mundir. Hann
þráir að komast í burtu og fá al-
gjöra hvíld í einhvern tíma. Við-
komandi er sveiflukenndur að
því leyti að hann hefur tilhneig-
ingu til að dragast langt niður, en
einnig tii að vera mjög „hátt
uppi" á tilfinningasviðinu.