Pressan - 26.07.1990, Side 25
Fimmtudagur 26. júlí 1990
25
sjúkdómar og fólk
Kviðverkir hjá barni
Ég var eitt sinn kallaður í vitjun í
fjölbýlishús á laugardagskvöldi.
Kona með mæðulega rödd hafði
hringt og beðið um lækni, því litli
drengurinn hennar væri með svo
mikla magapínu. Er hann með hita?
spurði ég. Það veit ég ekki, sagði
konan hálfergilega, við eigum eng-
an mæli. Ég verð að hafa auga með
þér, bætti hún við, dyrasíminn er
nefnilega bilaður. Ég keyrði til
þeirra skömmu eftir miðnætti. Per-
an yfir útidyrunum var brotin og
rafmagnsþræðirnir stóðu útúr dyra-
símanum, eins og einhverjir pöru-
piltar hefðu eyðilagt hann viljandi.
Ég tvísté óþolinmóður fyrir utan
nokkra stund en síðan kom konan
og opnaði fyrir mér. Hún var á
óræðum miðjum aldri einhvers
staðar á milli tuttuguogfimm ára og
fertugs, þreytuleg í bláum gallabux-
um og bol sem stóð á Welcome to
Torremolinos og rauðum háhæl-
uðum lakkskóm, sem séð höfðu
betri tíma. Vinstri hællinn var hálf-
skakkur og hún haltraði lítillega.
Hárið var litað óeðlilega Ijóst, slegið
niður á herðarnar með gömlu per-
manenti. Hún var með stóra gula
eyrnalokka og hálsfesti í stíl. Fyrir-
gefðu, sagði hún, varstu eitthvað
farinn að bíða? Nei.nei, svaraði ég,
þetta er allt í lagi.
Fjör á laugardagskvöldi
Við gengum upp stigann og hún
bað mig að afsaka, að hún gæti ekki
kveikt ljós, það var víst eitthvað að
örygginu. Við fórum inní íbúðina,
sem var á annarri hæð. Ég leit í
kringum mig, þegar inn var komið.
Þetta var lítil íbúð, ein stofa og sam-
liggjandi eldhús og 2 svefnherbergi
sem lágu innar á gangi. Nokkrar
myndir voru á veggjunum, eftir-
prentun af grátandi drengnum og
önnur af grátandi stúlkunni og
gömlu skónum eftir Vincent van
Gogh. í stofunni hékk stór vínrauð-
ur Mexikanahattur sem á stóð,
Torremolinos og tvö rifin plaggöt
með myndum af glæsilegum rauð-
klæddum nautabönum og einhver
áletrun a spönsku. Tveir menn sátu
að drykkju í eiturgrænu leðursóffa-
setti í stofunni, annar berfættur á
rauðum hlýrabol og gallabuxum,
hinn í jakkafötum með Ijóst slipsi.
Þeir eru að fá sér í glas, strákarnir,
sagði konan afsakandi, hánn Kalli
er að fara á ball, bætti hún við og
benti á þann á jakkafötunum, sem
virtist vera að sofna i stólnum. Góða
kvöldið, sagði ég. Komdu í sjómann,
sagði sá á hlýrabolnum. Seinna,
sagði ég, hvar er sjúklingurinn?
Pasturslítill drengur
Við fórum inní pínulítið barnaher-
bergi, þar sem lítill drengur, 8—9 ára
gamall, lá undir bleikri sæng. Á
veggjunum héngu myndir af knatt-
spyrnuliðinu Aston Villa, Ásgeiri
Sigurvinssyni og nokkrir oddafánar
frá Torremolinos. Hann var past-
urslítill, grannur og fölur á vangann.
Ertu lasinn? spurði ég. Já, sagði
hann, mér er svo illt í maganum. Má
ég skoða á þér magann? spurði ég
og settist hjá honum. Ég heyrði úr
stofunni að mennirnir tveir voru
farnir í sjómann, þeir bölvuðu og
rögnuðu, stundu og fretuðu hátt,
enda virtust átökin gífurleg. Strákar
í guðanna bænum, haldiði kjafti rétt
á meðan læknirinn er hérna, æpti
konan í áttina að stofunni. Þeir
skeyttu því engu og héldu áfram að
reyna með sér. Hvar er þér illt?
spurði ég drenginn. Hann benti
feimnislega á naflann á sér. Ég þreif-
aði á kviðnum með hendinni og
hann var mjög aumur viðkomu,
bæði í kringum naflann og hægra
megin við hann, uppaf náranum. Ég
lét hann standa á fætur en hann átti
bágt með að vera beinn og vildi
helst leggjast strax aftur. Það er svo
sárt, þegar ég geng eða hreyfi mig,
sagði hann. Ekkert athugavert var
að heyra á lungunum við hlustun og
ég skoðaði hálsinn, sem var í lagi.
Móðirin sagði að drengurinn hefði
verið lasinn í 2—3 daga, lystarlítill,
ekkert viljað borða og kvartað und-
an óljósum óþægindum í maganum.
Hann hafði kastað upp tvisvar þenn-
an sama dag.
Innlögn á spítala
Frá stofunni heyrðist nú mikið
öskur, ég vann helvítið þitt, sagði
annar maðurinn. Fáum okkur sjúss
uppá það. Ég lét þig vinna, sagði
hinn, þú er bölvaður aumingi. Þeir
eru alltaf eitthvað að leika sér, strák-
arnir, sagði konan afsakandi. Menn-
irnir fóru að syngja um Kela í kjall-
aranum með útvarpinu. Það verður
að fara með strákinn þinn á spítala,
sagði ég. Þetta getur verið botn-
langabólga, sem að honum er. Mig
grunaði það, sagði hún, Siggi bróðir
fékk einu sinni botnlangabólgu og
það lýsti sér einmitt svona. Ég
hringdi á sjúkrabíl, sem kom
skömmu síðar og flutti drenginn
uppá spítala. Á leiðinni út ganginn
kastaði ég kveðju á mennina tvo,‘sá
með slipsið var kominn úr jakkan-
um og virtist mun hressari en fyrr.
Ég skora á þig í sjómann, æj>ti hinn
þegar ég hraðaði mér hjá. Á sjúkra-
húsinu var drengurinn skoðaður ná-
kvæmlega og blóð og þvagprufur
teknar. I ljós kom, að hann hafði
talsverða fjölgun á hvítu blóðkorn-
unum, sem benti til sýkingar og
sökkið hafði hækkað eitthvað.
Þvagskoðun leiddi ekkert í ljós en
þvagfærasýkingar geta stundum
gefið mikil einkenni frá kvið hjá
börnum. Drengnum versnaði eftir
að inn var komið, hann kvartaði
undan meiri verkjum og kastaði
upp. Læknarnir tóku þá ákvörðun
að skera hann upp og kom þá í Ijós,
að botnlanginn var verulega bólg-
inn og því fjarlægður.
Botnlangabólga
Botnlanginn er nokkurra sm löng
lófalestur
í þessari viku:
K-16
(kona, fædd 24.7. 1954)
Þetta er afar ákveðin persóna —
viljasterk, stjórnsöm og metnað-
argjörn. Hún hefur líka glöggt
auga fyrir fólki og málefnum. Þeg-
ar líður á seinni hluta ævinnar
gæti hún orðið þekkt og umtöluð
í þjóðfélaginu.
Undanfarin þrjú til fjögur ár hef-
ur hún lagt töluvert á sig til þess
að komast áfram og árin
1988—1990 hafa eflaust verið
henni dálítið erfið. Viðburðarík-
asta tímabilið í lífi hennar verður
þegar hún er 37 til 45 ára gömul. Á
þeim árum má hún búast við tölu-
verðum breytingum og ætti að
sýna aðgát í fjármálum og ekki
fara út í meira en hún ræður við.
Þessi kona á gott með að ein-
beita sér og hún er afar stefnuföst.
Þrír karlmenn munu hafa mikið að
segja í lífi hennar, en það þýðir ekki
endilega að hún gangi þrisvar í
hjónaband. Árin 1992—1998
verða áhrifarík — annaðhvort í
tengslum við maka, hjúskap eða
sambúð — og geta reynst henni
góð ár í tilfinningalífinu. Annað-
hvort er hún eða verður mjög trú-
uð eða aðhyllist einhverjar öfgar í
stjórnmálum.
VILTU LÁTA LESA ÚT ÞÍNUM LÓFA?
Sendu þá TVÖ GÓÐ LJÓSRIT af hægri lófa
(örvhentir Ijósriti þann vinstri) og skrifaðu
eitthvert lykilorð aftan á blöðin, ásamt upp-
lýsingum um kyn og fæðingardag. Utan-
áskrift PRESSAN — lófalestur, Armúla
36, 108 Reykjavík.
AMY
ENGILBERTS
á heimavelli
Fiskréttur sœlkerans
Nú þegar sólin er hátt á lofti hér
hjá okkur munu margar húsmæður
hugsa til þess að vinna sér heimilis-
störfin svo létt sem mögulegt er, og
þá ekki hvað síst matreiðsluna, sem
sífellt vofir yfir hverju heimili, eink-
um þar sem mannmargt er að jafn-
aði. Og þau eru mörg sveitaheimilin
sem eru æði mannmörg, einkum á
sumrin þegar vinir og vandamenn
sækja að, en einnig getur verið svo
í þéttbýlinu, þegar fólk safnast sam-
an vegna einhverra merkra at-
burða, eða bara af því að veðrið er
gott og sólin skín jafnt á réttláta og
rangláta.
Við birtum hér uppskrift, sem
þægilegt og fljótlegt er að matreiða
handa mörgum (eða fáum) og einn-
ig hægt að útbúa réttinn fyrirfram
og geyma í kulda eða í frosti þar til
á að neyta hans, eða taka hann með
sér í sumarbústaðinn um helgina
eða af einhverju sérstöku tilefni. Nú
eru fiskréttir bæði vinsælir og í
tísku, og þessi er í senn þægilegur
og bragðgóður (ætlaður 6—8
manns).
Fiskréttur sælkerans:
(Allt í einum potti)
50 g smjörlíki, 300—400 g laukur
(3—4 vænir laukar), 300 g gulrætur
(3—4 meðalstórar), 100—200 g
sveppir (eða lítil dós niðurs.), 2—3
teningar súpukraftur (fiskiten.), 1
dós ananas (/2 dós eða lítil dós), an-
anassafinn og 1—2 dl mysa og vatn,
1 lítill rjómaostur eða um 100 g
rjómaostur, V/2 kg ný fiskflök, ýsu-
flök, steinbítsrlök eða annar nýr og
stinnur fiskur.
Smjörlíkið brætt í potti og hreins-
aður og skorinn laukurinn látinn
krauma augnablik við lágan hita.
Gulræturnar hreinsaðar og skornar
í sneiðar settar út í. Síðan teningarn-
ir, ananas, og safinn og mysan eða
örlítið vatn.
Þá kryddið: 2 tsk. salt, 1 tsk. pipar,
2 tsk. karrý, 1 tsk. paprika, 1 tsk.
kúrkúma (turmeric) og rósmarín
eða annað krydd að vild.
Fiskurinn er hreinsaður og skor-
inn úr roðinu og einfaldast er að
skera liann þá um leið í um fingur-
tota sem skagar út úr neðsta hluta
ristilsins. Hjá mönnum er hann lítill
miðað við mörg önnur dýr og óvíst
hvaða hlutverki hann gegnir. Botn-
langabólga stafar af stíflu eða fyrir-
stöðu sem getur orðið í totunni og
þá ná bakteríur sem eru í görninni
að fjölga sér og sýkja slímhimnuna
og þá bólgnar botnlangatotan
handan við stífluna. Einkennin geta
verið margvísleg, óljós verkur í
kviðnum, sem versnar á nokkrum
klukkutímum og verður þá stað-
bundnari á smáu svæði neðarlega
og hægra megin í kvið, þar sem
botnlanginn er. Hjá börnum er
greiningin mun erfiðari, þar sem
þau eiga örðugt með að staðsetja
v.erkinn eins nákvæmlega og full-
orðnir og kvarta oft undan verkjum
kringum naflann. Oftast fylgir væg-
ur hiti, ógleði, uppköst og lystar-
leysi. Ef töf verður á meðferð getur
botnlanginn sprungið og þá kemst
garnainnihald útí kviðinn og veldur
lífhimnubólgu, sem er lífshættulegt
ástand. Á hverju ári er talið að 1 af
hverjum 500 einstaklingum fái
botnlangabólgu svo þetta er nokk-
uð algengur sjúkdómur. Meðferðin
er botnlangaaðgerð en þá er botn-
langinn fjarlægður og gengur það
yfirleitt vel og hefur aðgerðin fáa
fylgikvilla í för með sér. Nokkru
seinna hringdi hún til mín, móðir
drengsins, útaf einhverju öðru.
Hvernig gengur? spurði ég. Vel,
svaraði hún, strákurinn jafnaði sig
alveg, við erum öll að fara í sumarfrí
til Torremolinos. Manninum
mínum finnst svo gott að slappa þar
af, það er svo ódýrt að fá sér í glas
þar, bætti hún við með þessari ótrú-
lega mæðulegu rödd, sem virtist
komin að því að bresta. En við
hlökkum öll til að fara.
ÓTTAR
GUÐMUNDSSON jf
þykkar ræmur. Þegar sósan er tilbú-
in og kryddið komið í eru fiskræm-
urnar settar út í pottinn og soðnar
6—8 mínútur. Sé rétturinn ætlaður
sem veisluréttur er gott að bæta út
í 100—200gafrækjumogsvolitluaf
kræklingi, ásamt rjómaslettu með
rjómaostinum að lokum. Bragðið
síðan á réttinum og bætið við
kryddi ef þurfa þykir. Berið með
soðin hrísgrjón eðasoðnar kartöflur
að vild — og brauð, t.d. smábrauð úr
heilhveiti.