Pressan - 13.09.1990, Page 6

Pressan - 13.09.1990, Page 6
6 Fimmtudagur 13. sept. 1990 m Norrœn skyrsla um heimsoknir herskipa: Skipin yfirieiii með vopnin innanborðs // // ekki það kjarnorkuvopnalausa svæði sem það er stundum talið vera.“ Herskip úrfastaflota NATO — Stanavforlant — bundið við festar í Sundahöfn. utanríkisráðuneytinu. í þeirri heimild er ekkert minnst á að koma herskipa með kjarn- orkuvopn innanborðs sé óheimil. Þess má geta að bæði Svíþjóð og Finnland, sem eru hlutlaus ríki, tiltaka slíkt sérstaklega. íslensk stjórnvöld fara held- ur ekki fram á neinar yfirlýs- ingar um að skipin beri ekki slík vopn, þegar í hlut eiga bandamenn íslands í NATO. Gunnar Pálsson, sendi- ráðunautur á alþjóðaskrif- stofu utanríkisráðuneytis- ins, sagði að „það væri í raun og veru eins og við værum að varpa rýrð á bandamenn okkar með því að ganga úr skugga um það í hvert og eitt skipti og það væri óeðlilegt. Við gerum ráð fyrir því að okkar eigin bandamenn gangi ekki á svig við lög okk- ar og reglur". Aðspurður um það hvort utanríkisráðuneytinu hefði verið Ijóst að freigátan Champbletown gæti borið kjarnorkuvopn — væri „nuclear capable" eins og það er kallað — sagði Gunn- ar: „Það er nú dálítið teygjan- legt hvað er „nuclear capa- ble" og hvað ekki og við höf- um ekki aðstöðu hér til að leggja dóm á það, en við vit- um a.m.k. að það eru ýmsir sem telja að Champbletown geti borið kjarnorkuvopn. Það er ekkert óvenjulegt með svona stór herskip að þau hafi getu til að bera kjarn- orkuvopn en það er allt ann- að mál að ætla að þau séu með þau innanborðs." Var Gunnar ákveðið þeirrar skoð- unar að um borð í skipum Stanavforlant væru ekki kjarnorkuvopn þegar þau koma til íslands. Hjá utanríkisráðuneytinu fengust þær upplýsingar að Stanavforlant hefði síðast komið hingað til lands árið 1985, en ekki tókst að afla vitneskju um þau skip sem þá voru í flotanum. A sl. þremur áratugum hafa tæplega 500 skip sem geta borið kjamorkuvopn heimsótt hafnir á Norðurlöndun um. Fátt bendir til þess að þau losi sig við þessi vopn á hafi úti áður en þau sigla til við- komandi hafna. Slíkt er dýrt, erfitt og áhættusamt. EFTIR INGIBJÖRGU SÓLRÚNU GÍSLADÓTTUR ~ Engu að síður hefur því gjarnan verið haldið fram af stjórnmálamönnum að Norðurlöndin séu í raun kjarnorku- vopnalaus. Yfirlýsingar íslenskra stjórnmálamanna Þetta viðhorf kom ma. fram hjá nokkrum þingmönnum í umræðum á Alþingi 28. janúar 1987. Þáverandi utanrík- isráðherra, Matthías Á. Mathiesen, sagðist t.d. leggja áherslu á að „svæði án kjarnavopna nái einnig til svæða þar sem vitað er um kjarnavopn en ekki aðeins til Norðurlanda sem allir vita að eru kjamorkuvopnalaus". Og Jón Baldvin Hannibalsson, núverandi utanríkisráðherra, sagði: „Norðurlöndin em eins og allir vita kjarnorkuvopnalaus. Það hefur því enga hernaðarlega merkingu að þau lýsi yfir svo augljósum hlut.“ Norrænn samstarfshópur um stefnu Norðurlanda varð- andi herskipaheimsóknir (Nordic Study Group on Port Call Policies) fuilyrðir aftur á móti að Norðurlöndin séu langt frá því að vera kjarnorkuvopnalaus. í skýrslu frá hópnum, sem þeir kalla „The Port Call Issue: Nordic Considerations", segir: „Norrænt svæði er langt frá því að vera kjarnorkuvopna- laust. Herskip með kjamorkuvopn innanborðs heimsækja oft norrænar hafnir. Yfirlýst stefna er ekki í samræmi við raunverulegt hernaðarmunstur. Norrænt svæði er í raun Bandarísk herskip yfirgnæfandi Þessa fullyrðingu byggja þeir á tíðum heimsóknum her- skipa sem geta borið kjarnorkuvopn. Eftirfarandi tafla sýnir slíkar skipakomur á árunum 1970—1990. Hún er þó ekki tæmandi þar sem ekki er víst að allar skipakomur, t.d. ef þær eru óopinberar, séu tilkynntar. Er þetta sérstaklega talið eiga við um kjarnorkuknúna árásarkafbáta. Bandaríkin Sovétríkin Bretland Frakkland AUs Danmörk" 147 3 32 0 182 Finnland 14 4 1 0 19 ísland 2 0 0 0 2 Noregur 243 5 13 1 262 Svíþjóð 18 0 6 0 24 Samtals 424 12 52 1 489 "Grœnland og Fœreyjar medtalin. En eins og bent er á í meðfylgjandi grein er eitt að geta borið kjarnorkuvopn og annað að gera það. Skýrsluhöfund- ar virðast hins vegar á þeirri skoðun að skip sem geta borið kjarnorkuvopn séu yfirleitt með vopnin innanborðs þegar þau heimsæki hafnir. Þeir segja: „Sú aðgerð að fjarlægja vopnin á hafi úti er bæði þung í vöfum og áhættusöm og þess vegna sjaldan notuð. Ef skipin skilja vopnin eftir á geymslu- stöðum fyrir kjarnorkuvopn eru þau hugsanlega svipt meg- inhlutverki sínu svo mánuðum skiptir." í þessu sambandi er vert að hafa í huga að öll Norðurlönd- in, hvort sem þau eru aðilar að NATO eða hlutlaus, hafa markað sér þá stefnu að heimila ekki kjarnorkuvopn á sínu landsvæði. Réttlæting hernaðarleg — ástæða pólitísk Fyrir því gefst hins vegar engin vissa af þeirri einföldu ástæðu að kjarnorkuveldin hafa þá stefnu að játa hvorki né neita staðsetningu kjarn- orkuvopna á tilteknum stöð- um. Þetta er viðurkennd stefna innan NATO sem sam- þykkt var á fundi forsætisráð- herra aðildarríkjanna í Par- ís árið 1957. ísland hefur því lagt blessun sína yfir hana ef að líkum lætur. Tilefnið var að þá hófu Bandaríkjamenn að staðsetja kjarnorkuvopn á evrópsku íandsvæði. Stefnan er réttlætt með þeim hernað- arlegu rökum að hún styrki fælingarmátt kjarnorku- vopnanna. Ef til ófriðar komi geti Sovétmenn t.d. ekki vit- að í hvaða skipum séu kjarn- orkuvopn og því sé þeim vandi á höndum að velja sér skotmark. Ef staðsetningin væri kunn myndi það veikja varnirnar. Margir halda þvi hins vegar fram að hin raunverulega ástæða þessarar stefnu sé1 pólitísks en ekki hernaðar- legs eðlis. Eugene J. Car- roll, fyrrverandi flotafor- ingi í bandaríska sjóhern- um, sagði t.d. á fundi í Stokk- hólmi fyrir skömmu að á sjötta áratugnum hefðu bandarísk stjórnvöld viljað halda uppi sterkum hernað- arlegum tengslum við íhalds- stjórnir í Evrópu án þess að ýta undir andstöðu róttækra hreyfinga og flokka í viðkom- andi löndum. Til að koma í veg fyrir of mikla ögrun hefði „nærveru kjarnorkuvopna' verið haldið leyndri með þeirri stefnu að játa henni hvorki né neita. Nánustu vin- ir okkar og sairtstarfsaðilar féllust á þessa blekkingu sem Akraborgin og herskip úr NATO-flotanum mætast úti á Sundunum. skynsamlega leið til að af- vopna alla róttæka and- stöðu". Kjarnorku- vopnastefna Svía virt að vettugi íslendingar eru jafnofur- seldir þessari stefnu og aðrar þjóðir enda hafa þeir fallist á hana innan NATO. Þeir vilja aftur á móti ekki taka á móti kjarnorkuvopnum og treysta kjarnorkuveldunum innan NATO til að virða þann vilja. Gunnar Pálsson var að því spurður hvernig á það yrði litið innan NATO ef íslending- ar færu fram á skýlaus svör um hvort herskip sem hingað koma beri ekki kjarnorku- vopn. „Eg held að það mætti túlka það sem ákveðið trún- aðarbrot í samstarfi okkar ef við færum að gefa til kynna að þau lönd sem annast varn- ir okkar virði ekki okkar regl- ur. Við höfum enga ástæðu til að gera ráð fyrir öðru." Svíar hafa líka mjög skýra stefnu í kjarnorkuvopnamál- um og hafa borið sama traust' til kjarnorkuveldanna og ís- lendingar til sinna banda- manna. Það traust gæti þó farið þverrandi því í rann- sókn, sem unnin var á vegum Greenpeace-samtakanna og kynnt í Stokkhólmi fyrir rúmri viku, eru færð sterk rök fyrir því að kjarnorku- veldin hafi ekki verið trausts- ins verð. Ef marka má gögn bandarískra hermálayfir- valda, sem rannsóknin byggir á, hefur 31 bandarískt her- skip komið til hafna í Svíþjóð með kjarnorkuvopn innan- borðs á undanförnum 30 ár- um. Pierre Schori, aðstod- arutanríkisráðherra Svía, sagði af þessu tilefni að málið yrði tekið til alvarlegrar skoðunar og var sendiherra Svía í Washington m.a. falið að leita skýringa hjá banda- ríska utanríkisráðuneyt- inu. Fyrst stefna Svíþjóðar, sem er hlutlaust ríki, hefur verið virt að vettugi af Bandaríkja- mönnum vaknar óneitanlega| sú spurning hvort ekki séj ástæða til að ætla að það: sama gildi um NATO-ríkið ís- land? PRESSAN bar þetta undir Gunnar Gunnarsson, ráðgjafa í utanríkisráðu- neytinu. Sagðist hann ekki sjá neina ástæðu til þess. „Yf- irlit yfir skipakomur hér áj landi bendir til að okkari stefna hafi verið mjög vel virt.“ Aðspurður um freigát- una Champbletown sagðist hann ekki hafa neina ástæðu til að ætla að hún bæri kjarnavopn. En hefur ísland beitt sér fyrir því innan NATÓ að leggja af þá stefnu að játa hvorki né neita staðsetningu kjarnorkuvopna? „Nei, það hefur ekki þótt ástæða til, enda höfum engin vandamál að þessu leyti," sagði Gunnar.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.