Pressan - 13.09.1990, Side 7

Pressan - 13.09.1990, Side 7
Fimmtudagur 13. sept. 1990 7 PRESSU s %^koðanakönnun Félagsvís- indastofnunar um fylgi stjórn- málaflokka hefur vakið athygli. Nið- urstöðurnar benda til þess að kjós- endur séu ekkert að hegna flokkum eða verðlauna eftir því hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu — virðist samanlagt fylgi stjórnar- flokka annars vegar og stjórnarand- stöðu hins vegar vera um það bil óbreytt frá því fyrir ári. Nýjustu hræringarnar virðast benda til þess að stjórnarflokkurinn Alþýðu- flokkur og stjórnarandstöðuflokk- urinn Sjálfstæðisflokkur séu í sókn, en að stjómarflokkurinn Al- þýðubandalag og stjórnarand- stöðuflokkurinn Kvennalisti séu í vörn. Loks er einsog kjósendur hafi ákveðin skilaboð um að e.t.v. hafi fjórflokkakerfið ekki verið sem verst — fyrst hrundi Borgaraflokk- urinn og nú hefur Kvennalistinn fallið í kosningafylgi sínu eftir að hafa náð 30% fylgi í könnunun á timabili. . . lÍleirihlutinn borgar- stjórn Reykjavíkur er að velta fyr- ir sér að hækka laun Davíðs Odds- sonar borgarstjóra um litlar 45 þúsund krónur. Hugmyndin er að greiða honum laun sem borgarfull- trúa auk embættislaunanna. IDV sl. miðvikudag var Davíð spurður um málið og vísaði hann til þess að þetta tíðkaðist í öðrum bæjarfélög- um þar sem starfa pólitískir bæjar- stjórar. Var á honum að skilja að það væri viðameira starf að vera póli- tískur bæjarstjóri en ópólitískur. Nefndi hann forvera sinn í starfi, Eg- il Skúla Ingibergsson, þessu til sönnunar og sagði: „Hann sat ekki í borgarstjórn og kom ekki fram fyr- ir hönd borgarinnar út á við.“ Að vísu var-Egill ekki kosinn í borgar- stjórn og hafði þar ekki atkvæðis- rétt, en auðvitað sat hann alla borg- arstjórnarfundi, enda er það hluti af embættisskyldu borgarstjóra. Það má því segja að málið snúist um það hvort greiða eigi Davíð Oddssyni sérstaklega fyrir það að greiða at- kvæði... I yfirstandandi umræðu um hækkun á launum formanna nefnda á vegum borgarinnar hefur það alveg farið framhjá mönnum að hækkun hefur þegar átt sér stað hjá a.m.k. einni nefnd, ekki bara til for- mannsins heldur til ailra hinna póli- tískt kjörnu fulltrúa. 15. júní gerðist það nefnilega að hafnarstjórn var „hækkuð í tign“. Greiðslur til nefnd- armanna eru þrenns konar eftir mikilvægi nefndanna. Hafnarstjórn var á þessum tímamótum hækkuð úr miðlungsflokki í efsta flokk. Um ieið hækkaði nefndarþóknun full- trúanna úr 15 þúsundum á mánuði í 21 þúsund krónur eða um 40% (álag formanns er 20%). Af einhverj- um ástæðum virðist hafa gleymst að hækka nefndarlaun Onnu K. Jóns- dóttur á tilsettum tíma, því hún fékk leiðréttingu síðar og þá aðeins frá og með 1. ágúst. Annar nefndar- maður hefur „gleymst". Fram að hækkuninni hafði fulltrúi^ starfs- manna í stjórninni, Grétar Ársæls- son, sömu laun eða 15 þúsund. Hann fær enn sömu upphæð á með- an pólitísku fulltrúarnir hafa hækk- að um 6 þúsund krónur. .. A ^^inn af kjallaramönnum DV, Hannes Hólmsteinn Gissurar- son, skrifaði sl. mánudag um „Hag- fræði lífs og dauða". Þar lýsir hann enn sem oftar andstöðu sinni við fóstureyðingar. Máli sínu til stuðn- ings segir hann: „Líklegasta ástæð- an til þess, að drepa má ófætt barn, en ekki nýfætt, er sú, að ófædd börn geta lítt látið í sér heyra... Þau skrifa ekki greinar í blöð og geta ekki minnt stjórnmálamenn á til- veru sína í kjörklefanum." í fram: haldi af þessu vaknar sú spurning: í hvaða blöðum gefur að líta lang- hunda hinna nýfæddu?... Leidrétting Þau mistök urðu við vinnslu síðasta tölublaðs PRESSUNN- AR að höfundariína féll niður í viðtalinu við Kristin Sigtryggs- son, framkvæmdastjóra Arnar- flugs. Það var Jón Birgir Péturs- son sem vann þetta viðtal. Bæði hann og lesendur eru beðnir vel- virðingar á mistökunum. EKKERT HÚS ÁN ELDVARNA ENGIN FYRIRHÖFN - ÞÚ HRINGIR - VIÐ KOMUM ELDVARNAÞJÓNaSTAN ÞJÖNUSTA íÞJÓÐARÞÁGU ÞJÓÐBRAUT1 - AKRANESI - SÍMI 93-1 32 44 gxjSx:?::;::: LAUGARASBIO Sími 32075 frumsýnir spennu-grínmyndina

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.