Pressan


Pressan - 13.09.1990, Qupperneq 8

Pressan - 13.09.1990, Qupperneq 8
8 Fimmtudagur 13. sept. 1990 PRCSSOM VIKUBLAÐ Á FIMMTUDOGUM Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Blað hf. Hákon Hákonarson Bladamenn: Ljósmyndari: Útlit: Prófarkalestur: Auglýsingastjóri: Anna Kristine Magnúsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Friðrik Þór Guðmundsson Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Jón Daníelsson (ábm.) Einar Ólason Anna Th. Rögnvaldsdóttir Sigríður H. Gunnarsdóttir Hinrik Gunnar Hilmarsson Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 36, sími: 68 18 66. Auglýsingasími: 68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 36, sími 68 1866. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Oddi hf. Áskriftargjald 500 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðublaðið: 1000 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 150 kr. eintakið. KJARNORKUVOPNALAUST ÍSLAND Það hefur verlð opinber stefna stjórnvalda um langa hríð að játa því hvorki né neita að kjarnorku- vopn séu um borð í herskipum eða flugvélum sem geta borið slík vopn. í orði kveðnu er ástæðan fyrir þessari stefnu sú að koma eigi í veg fyrir að önnur kjarnorkuveldi viti hvenær og hvenær ekki slík vopn séu um borð. I PRESSUNNI í dag er fjallað um þetta mál og þar kemur fram að meginreglan sé sú að kjarnorku- vopnin séu aUtaf til staðar og hin raunverulega ástæða fyrir því, að ekki er gefið upp hvort þessi ógnarvopn séu um borð í skipum, sé sú að með því móti sé auðveldara að senda skip búin kjarnavopn- um í heimsóknir til annarra landa án þess að eiga á hættu stórvægileg mótmæli. Sú stefna að játa hvorki né neita tilvist kjarnavopnanna sé þannig beinlínis tekin upp í þeim tilgangi að dylja nær- veru þeirra. Upplýsingar um þetta komu fram á ráðstefnu í Stokkhólmi nýlega. Þar kom einnig fram að allar líkur bendi tU að skip búin kjarnavopnum hafi hvað eftir annað heimsótt hafnir á Norðurlöndum. Svíar hafa áratugum saman leyft heimsóknir skipa sem geta borið kjarnavopn í trausti þess að þau væru ekki um borð. Þær upplýsingar, sem fram komu á ráðstefnunni og PRESSAN gerir að umfjöll- unarefni í þessu tölublaði, benda til að traust Sví- anna í þessum efnum hafi ekki verið á rökum reist. Islendingar hafa fylgt mjög svipaðri stefnu að þessu leyti. Þess hefur ekki verið krafist að fá svör við því hvort herskip sem hingað koma og geta bor- ið kjarnavopn hafi þau innanborðs. Þær upplýsing- ar sem fram komu á ráðstefnunni í Stokkhólmi benda til að íslensk stjórnvöld þurfi að athuga sinn gang og e.t.v. taka stefnu sína í þessum málum til endurskoðunar. hin pressan rf Gudjón var annar tveggja lög- regluþjóna sem i starfi sinu kærðu núverandi dómsmálaródherra fyrir nokkrum árum vegna gruns um ölvunarakstur á Selfossi/' „Okkar trygg- ing er fólgin í friöarbandalagi NATO og þeirri lögregluvernd, sem þœr þjóðir bjóöa gegn ein- ræöisskúrkum nútímansT — Hreggviður Jónsson þingmaður í Morgunblaðinu. — Frétt í DV. „Eg flutti út 100% umfram heimildir í síö- ustu viku en nauösyn brýtur lög og ég tel mig ekki vera glæpamann frekar en Hrói höttur.“ — Snorri Jónsson, fiskútflytjandi í Vestmannaeyjum, í Morgunblað- „Brennivínið gefur anda og snilli." — Fyrirsögn í Þjóðviljanum. „Menn ... vilja fremur fegra hlutina og keyra áfram á bjart- sýninni. Síðan ranka þeir við sér með allt niður um sig." — Jóhann Þorvarðarson við- skiptafræðingur um gjaldþrota fyr- irtæki í DV. „Ég heyröi hruni Helgar- póstsins líkt við þaö, að rottuhola stíflaðist af skít rottunnar, svo að allt kafn- aði þar inni fyrir." — Stefán Steinsson læknir i Morg- unblaðinu. „Svavar Gests- son mennta- málaráöherra sagöi alla AB-félaga, ráö- herra sem aöra, vera meö gall í hálsi eftir þessa erfiðu lotu.“ — Frétt í Þjóðviljanum. „Lesendur sjá i anda, hvernig konan ristir rúmið upp endi- langt, en sjómaðurinn hverfur ofan í rifuna og drukknar með miklu glurpi." — Stefán Steinsson læknir í Morg- unblaðinu.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.