Pressan - 13.09.1990, Síða 13
Fimíritudagúr T3. sept. 1990
13
ALMENNA
BÓKAFÉLAGK)
í NAUMRSAMNINGUM
Almenna bókafélagið á í raun ekki fyrir skuldum
og vinnur nú að því að ná eins konar nauðarsamn-
ingum við lánardrottna sína. Líkur benda til að
flestir muni þiggja þau 65% sem í boði eru, en hjá
ýmsum bókaforlögum þykir mönnum hins vegar
súrt í brotið að neyðast til að styðja við bakið á stór-
um keppinaut. Samkvæmt heimildum PRESSUNN-
AR þykir þó nokkurn veginn víst að björgunarleið-
angurinn takist og Almenna bókafélagið muni
starfa áfram.
EFTIR JÓN DANlELSSON
Rætt hefur verið um að ýmis stór-
fyrirtæki leggi aukið hlutafé í Al-
menna bókafélagið og í því sam-
bandi hafa einkum Eimskipafélagið
og Sjóvá-Almennar verið nefnd.
Þessi fyrirtæki munu hins vegar
krefjast þess að skuldir verði lækk-
aðar áður en þau komi til hjálpar.
Óli Björn Kárason, framkvæmda-
stjóri Almenna bókafélagsins, vildi í
gær alls ekkert segja um þetta mál.
Heimildir PRESSUNNAR herma
hins vegar að hann hafi byrjað að
leita samninga við lánardrottna
ekki síðar en í byrjun síðasta mán-
aðar. PRESSAN hefur líka fengið
staðfest hjá þó nokkrum þeirra sem
eiga peninga hjá Almenna bókafé-
laginu að þeim sé boðið að fá greidd
65% skuldanna, gegn því að afgang-
urinn verði felldur niður. Það virðist
hins vegar vera nokkuð misjafnt
hvort AB hyggst greiða þessi 65% út
eða dreifa greiðslum á lengri tíma.
Fær Oddi húsið?
Til viðbótar þessum samningum
um lækkun skulda hyggjast menn
losa um fé með sölu eigna og er þá
einkum rætt um að selja húseignina
við Austurstræti. Hún er þó ekki
auðseld. Þessi eign er metin á hátt í
100 milljónir og það eru ekki allir
sem snara þeirri fjárhæð út. Þegar
PRESSAN fjallaði um þetta mál fyrir
rúmum mánuði var borið undir
Davíð Oddsson borgarstjóra, hvort
til greina kæmi að borgin hlypi und-
ir bagga með því að kaupa húseign-
ina. Davíð tók því hins vegar ekki
líklega. Nú mun aftur á móti hafa
komið til tals að prentsmiðjan Oddi,
sem á tugi milljóna hjá Almenna
bókafélaginu, yfirtaki einhverjar
eignir og kaupi jafnvel húseignina.
PRESSUNNI tókst ekki að fá þetta
staðfest í gær en telur heimildir trú-
verðugar.
Almenna bókafélagið skuldar
mörgum aðilum. Meðal þeirra eru
allmargar bókaútgáfur. Skuldir við
bókaútgáfur eru vegna verslunar-
rekstrar eftir samruna Almenna
bókafélagsins og Bókaverslunar Sig-
fúsar Eymundssonar. Þessar skuldir
hafa valdið AB verulegum erfiðleik-
um síðustu mánuði og orðið til þess
að velflest bókaforlög hafa alveg
lokað á viðskipti við bókaverslan-
irnar öðruvísi en gegn staðgreiðslu.
Þannig átti Almenna bókafélagið
t.d. í miklum erfiðleikum með að ná
út skólabókum til að selja nú í haust.
Bókaforlögin treg
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR eru það bókaforlögin sem
einna tregust eru til að samþykkja
niðurfellingu skulda. Ráðamönnum
forlaganna þykir hart aðgöngu að
styðja við bakið á stórum keppinaut
með því að fella niður skuldir hans.
Á hinn bóginn mun það vega
þyngra að menn munar um pening-
ana. Þar við bætist svo persónuleg-
ur kunningsskapur milli manna í
Býöur lánar-
drottnum aö
greiöa skuldir aö
65 hundraös-
hlutum gegn því
aö afgangurinn
falli niöur. Flestir
viröast œtla aö
ganga aö þessu
tilboöi. Gerist
þaö fœst vœntan-
lega nýtt hlutafé.
þessum geira. „Auðvitað kennir
maður í brjósti um þetta fólk, sem er
að berjast í þessu,” sagði einn við-
mælandi PRESSUNNAR. „Það er
nóg komið af gjaldþrotum,” sagði
annar. Viðmælendur voru misjafn-
lega fúsir til að gefa upplýsingar,
enda „málið á viðkvæmu stigi”, og
vildu ekki láta nafns getið.
A ekki fyrir skuldum
Eins og skýrt var frá í fyrri umfjöll-
un PRESSUNNAR var bókfært tap
Almenna bókafélagsins á síðasta ári
nálægt 40 milljónum. Um síðustu
áramót munu eignir umfram skuldir
hafa verið taldar nema svipaðri
upphæð. Hafi tap fyrirtækisins á
þessu ári verið svipað og í fyrra gæti
látið nærri að þessar eignir væru nú
að verða uppétnar. Frá því var líka
skýrt í síðustu umfjöllun PRESS-
UNNAR að bókalager fyrirtækisins
væri í bókhaldi metinn á óraunhæf-
ar upphæðir. Samkvæmt þessu virð-
ist ljóst að Almenna bókafélagið
geti varla í raun átt fyrir skuldum.
Samkvæmt heimildum PRESSUNN-
AR hefur þetta líka verið viður-
kennt í viðræðum við lánardrottna.
Forráðamenn Almenna bókafé-
lagsins munu þó vera fremur bjart-
sýnir þessa dagana. Þeir hafa víða
fengið jákvæðar undirtektir við um-
leitunum sínum um niðurfellingu á
ríflegum þriðjungi skulda. En ein-
mitt sú niðurfelling mun vera aðal-
skilyrðið fyrir þvi að nýtt hlutafé
komi inn í fyrirtækið.
Húseign Almenna bókafélagsins viö Austurstræti 18. Nú mun hafa
komið til tals að prentsmiðjan Oddi eignist þetta hús.
STYRKIR
TIL
KVIKMYNDAGERÐAR
Kvikmyndasjóöur Islands auglýsir eftir
umsóknum um styrki til kvikmynda-
geröar.
Umsóknum skal skilad á skrifstofu Kvik-
myndasjóðs, Laugavegi 24, 101 Reykja-
vík, fyrir 15. nóvember 1990.
Sérstök eyðublöð fást á skrifstofu Kvik-
myndasjóðs og eru umsóknir því aðeins
gildar að eyðublöð Kvikmyndasjóðs séu
útfyllt samkvœmt skilyrðum sjóðsins.
*
Stjórn Kvikmyndasjóðs Islands
Til sölu Mazda 323 LX 1,5
Upplýsingar
á daginn í
síma 82383
og kvöld og
helgar í síma
678191
HREINT LOFT
Blikksmiðjan Vík
annast smíöi einfaldra jafnt sem
flókinna loftræsti- og lofthitakerfa.
Blikksmiðjan Vík
annast eftirlit og viðhald á
loftræsti- og lofthitakerfum.
Blikksmiðjan Vík
annast alla almenna blikksmíöi.
Hjá okkur sjá fagmenn um verkiö.
I JWÆZ.//F/F&VÆZJF7A/
V/ÁfAS,
SMIÐJUVEGI 18C KÓPAVOGI - SiMI 71580