Pressan - 13.09.1990, Side 14

Pressan - 13.09.1990, Side 14
14 Fimmtudagur 13. sept. 1990 Ekki spyrja 1 + Segjum frekar „Hvað tókstu marga 1 „Það þurfa allir að ökutíma?“ = 2 HEILBRIGD gefa sér góðan tíma Ekki segja SKYNSEMI! í ökunámi!“ „Ég tókekki ...nema.. . mÉUMFERÐAR Vráð PRESSU flokki Sjálfstæðisflokksins. Aðrir sjálfstæðismenn benda á, að Ólafur ísleifsson hafi verið efnahagsráð- gjafi Þorsteins Pálssonar, þegar hann var forsætisráðherra, en það var einmitt efnahagsstjórn Þor- steins og sambandsleysi við samráð- herra sína sem varð honum að falli. Telja margir sjálfstæðismenn að efnahagsráðgjöf Ólafs kunni að þyngja róðurinn í prófkjörinu. . . L hefur heyrst af hugsanlegum konum í prófkjörsslag Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Nú er þvi hvíslað að Ragnhildur Helgadótt- ir kunni að draga sig úr pólitíkinni og talið víst að Sólveig Pétursdótt- ir taki hennar sæti. Aðrir telja ólík- legt að Ragnhildur hætti strax á þingi.. . FRABÆRT FERÐATILBOÐ 21 .-25.SEPT. VERÐ FRÁ P ■ rófkjörslisti sjálfstæðis- manna í Reykjavík fyrir næstu al- þingiskosningar gerist æ litríkari. Ljóst er að þrír fyrrum aðstoðar- menn ráðherra Sjálfstæðisflokksins úr ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar ætla að gefa kost á sér, þeir Hreinn Loftsson, Guðmundur Magnús- son og Ólafur ísleifsson. Allir telj- ast þeir til frjálshyggjuarmsins í Sjálfstæðisflokknum og mun Davíð Oddsson borgarstjóri vera helsti verndari þeirra í komandi prófkjöri. Hins vegar munu sjálfstæðismenn mishrifnir af frambjóðendunum. Gamlir og grónir sjálfstæðismenn gleyma ekki uppruna Guðmundar Magnússonar, en hann var áður harður marx-lenínisti og maóisti. Telja þeir að maður með slikan póli- tískan feril samræmist illa þing- Itlikið er nú spáð í það, hver fylli skarð Geirs heitins Hallgríms- sonar í Seðlabankanum. Sjálfstæð- ismenn „eiga stólinn" en margir þeirra ku vera reiðubúnir að af- henda Jóni Sigurðssyni, alþýðu- flokksmanni og viðskiptaráðherra, embættið, ekki síst vegna þess að þeir vilja losna við erfiðan andstæð- ing úr pólitíkinni. Jón mun hins veg- ar ekki hafa áhuga á Seðlabankan- um í stöðunni og því er talið víst að sjálfstæðismaður setjist í stól Geirs. Margir hafa verið nefndir til starf- ans. Matthías Á. Mathiesen er tal- inn sterkur umsækjandi úr hópi þingflokks sjálfstæðismanna en einnig hefur Olafur G. Einarsson, formaður þingflokksins, verið nefndur sem sennilegur í stöðu seðlabankastjóra. Af mönnum í at- vinnulífi hefur nafn Vals Valsson- ar, bankastjóra íslandsbanka, verið nefnt, en hann mun ekki hafa áhuga á stöðunni, og einnig hafa menn bent á Ólaf Davíðsson, fram- kvæmdastjóra Félags íslenskra iðn- rekenda. Málin ættu að fara að skýr- ast bráðum.. . r ■ eykvikingar eru teknir að leggja undir sig landsbyggðina. Það hefur víst ekki farið framhjá neinum að landbúnaðurinn á í kreppu og það verður æ algengara að jarðir ieggist í eyði. Fjölmörg dæmi eru um að fólk á höfuðborgarsvæðinu kaupi slíkar jarðir fyrir slikk og noti sem sumarbústaði. Á mörgum þess- ara jarða eru vel nothæf eða jafnvel nýleg íbúðarhús, sem eru þá að sjálf- sögðu hinir ákjósanlegustu sumar- bústaðir. Þegar heilar jarðir eru keyptar fylgja að sjálfsögðu öll gögn og gæði. Þannig er nýjum eigend- um að sjálfsögðu heimilt að fara í berjamó eða skjóta gæsir og rjúpur í landi sínu. Sums staðar fylgir einn- ig veiðiréttur í ám eða vötnum. Með tilliti til þess hve verðið er lágt er kannski ekki skrýtið þótt margir kjósi heldur að kaupa sér heila jörð í stað þess að láta sér nægja spildu undir sumarbústað . . . ^DIlþýðubandalagið hefur, þrátt fyrir erfiða útgáfu Þjóðviljans, ákveðið að endurvekja sitt forna málgagn á Akureyri, Norðurland. Nýráðinn ritstjóri á Norðurland er Heimir Már Pétursson, blaða- maður á Þjóðviljanum. Áætlað er að Norðurland komi út hálfsmánaðar- lega. Það er greinilegt að Alþýðu- bandalagið telur að kosningar séu í nánd... *f | p * • 4 í bfl A.fl. STÓRFÍN FERÐ TIL 23. - 30. OKT. BEINT LEIGUFLUG Sumarauki af bestu gerð, veisla í veitingum og verslun. Heimsþekktar vetrarvörur á góðu verði. Frábærar ferðir fyrir hópa af öllum gerðum FERÐASKRIFSTOFAN HALLVEICARSTÍG 1, SÍMI 28388 OG 28580 EINDAGI STAÐGREIÐSLUFJÁR ER 15. HVERS MÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar. Munið að gero skil tímanlego! RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.