Pressan - 13.09.1990, Side 16

Pressan - 13.09.1990, Side 16
16 Fimmtudagur 13. sept. 1990 Máttur í Faxafeni heimsóttur_______________ ÖFLUG FORVARNA- OG ENDURHÆFINGARSTÖÐ ÖNNUR NÁMSKEIB í VETVR HJÁ OKKUR ERU MEfiAl ANNARSi Klst: Bókhaldsnám 72 Sölumannanám 24 Fjármálanám 24 Útflutningsnám 20 Skattaframtöl fyrir einstaklinga 16 Skattaframtöl fyrir smærri fyrirtæía 24 Klst: Windows 16 WordPerfect 5.0 16 WordPerf. umbrot. 16 MS DOS 16 PC byrjendanámsk. 16 Multiplan 16 Tölvufjarskipti 8 Tbrbo Pascal 20 Klst: Excel 16 dBase 16 PlanPerfect 16 Word 16 Works 16 PageMaker 16 Tofíari 88 9 AutoCAD 48 gTOLUUSKOLI REYKJAUIKUR BORGARTÚNI 28 S:687590 JJ.LOJ.X\.VUai ILttJlL |Jttl aci ^reinar, viðskiptagremar skemmtilegum relagsskap. Skrifstofutækni er markvisst nám þar sem þú lærir tölvugreinar, * ' ’ ' og tungmnál í Serstök áhersla er lögð á~notkun tölva í atvinnulífinu. Námið tekur 3-4 mánuði og að því loknu útskrifast nemendur sem skrifstofutæknar. í náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar: Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskapti, rit- vinnsla, gagnagrunnur, töflureiknar og áætimiagerð, tölvubóknala^toíla- og verðútreikningur, almenn skrifstofutækni, grunnatriði við stiornun, útfylling eyðublaða, verslunarreikningur, vMar og verðbrer, íslenska og viðskiptaenska. Baldur Garöarsson: Námið er besta fjár- festing, sem ég hef ráðist i um dagana. Skóliim leggur grei- nilega metnað ann í ao bjóða einungis upp á 1. flokks aostöðu, vandað námsefni og bestu kennara, sem völ Sá hverju sinni t fðck að námi ldknu starf sem bókarl hiá traustu fyrirtækL Sólveig Þ. Jónsdóttír; Eftir vandlega atirng- un á valkostam til að styrkja stöðu mína á vmnumarkaðinum valdi ég skrifetofutæknL Námsgrdnamar voru ölí gruruiatriðL Menntanin hefur nýst mér vel í nýju starfi á skrifetofu SendMa- stöðvarinnar hf sem ég fékk í gegnum Tólvu- cUbnn Hulda Ws framlcv, Sexutíbflast. Sólvag hefur nú siarfaö um nokknrra mánaða skað við ahnenn skrifetofustwf hjá SendiMastöðinni hf. Hún hefur i mjög hæfur i itt fyrir að þetta sé starf. Þjónusta Tölvu- skólans við manna- ráðningar er til fyrir- myndar Hringdu strax í síma 687590 og víð sendum þér bækling. Tekist á við streitu Lífsháttanámskeiðin, sem lítils- háttar var minnst á hér að framan, eru fjögur. Þau heita Slökun gegn streitu, Breyttar matarvenjur, Háls og herðar og Hreyfing og heil- brigði. A því fyrstnefnda er fjallað um hvernig þekkja má eigin streitu- einkenni og annarra. Af hverju streitan myndast og ýmsir spurn- ingalistar eru lagðir fram. Leiðir til að taka á þessum hvimleiða fylgi- fisk nútímans eru kynntar og und- irstöðuatriði slökunar kennd. Breyttar matarvenjur byggjast m.a. á fræðslu um gott mataræði, þar sem það er haft að leiðarljósi að varanleg breyting verði á mat- aræði og neysluvenjum. Fjallað er um offitu og sjúkdóma, fylgst með þátttakendum á námskeiðinu og þeir vigtaðir reglulega. Námskeiðið Háls og herðar er, eins og nafnið gefur til kynna, fyrst og fremst ætlað þeim sem búa við óþægindi í nefndum lík- amshlutum. Það er í formi fyrir- lestra og verklegra æfinga svo sem teygjuæfinga fyrir háls, axlir og bak. Þátttakendum eru einnig kennd einföld handtök við nudd á þessum líkamshlutum og mökum, vinum og vandamönnum þeirra er frjálst að taka þátt í þeim hluta námskeiðsins. A námskeiðinu Hreyfing og heil- brigði er farið yfir áhrif reglubund- innar þjálfunar á heilbrigði, helstu þjálfunaraðferðir og skipulagn- ingu sjálfsþjálfunar. Námskeiðið er í formi fyrirlestra og á eftir hverjum fyrirlestri er sýnikennsla og þjálfun. Reykingar, megrun, slökun, ákveðni og jóga Hjá Mætti er boðið upp á fjölda valnámskeiða sem liggja utan þess ramma sem markaður er með grunnnámskeiðunum. Má þar til dæmis nefna námskeið fyrir þá sem vilja hætta að reykja. Atta eða tíu manna hópur sameinast í við- leitninni undir leiðsögn sálfræð- ings og lögð er áhersla á aðferðir sem henta hverjum einstaklingi fyrir sig. Framhaldsnámskeið í slökun gegn streitu er eitt valnámskeið- anna þar sem farið er ítarlega gegnum slökunaræfingar og áhersla lögð á að hver og einn finni kerfi við sitt hæfi. Átak í megrun er framhald af grunnnámskeiðinu Breyttar mat- arvenjur og ætlað þeim sem vilja grennast. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 8—10 einstakl- inga og áhersla lögð á einstakl- ingsráðgjöf og samskipti innan hópsins. Ákveðni og sjálfstraust er yfir- skrift eins námskeiðsins en þar er farið yfir orsakir og atleiðingar ákve&ni og óákveðni í mannleg- ifm sámskiptum. Fjallað er um að- ferðir við uppbyggingu sjálfs- trausts, bætt sjálfsálit og munur- inn á ákveðni, hlédrægni og hroka greindur. Jóganámskeið er einnig á boð- stólum, námskeið um afköst og vinnustreitu, ákveðni og sam- skiptaþjálfun og fleira mætti nefna. Þá er boðið upp á sjúkraþjálfun í Mætti, ráðleggingaviðtöl við lækna og/eða íþróttafræðinga og stuðningstíma, til dæmis fyrir þá sem eru að ná sér eftir slys eða sjúkdóma. Ljósabekkir eru á staðnum og þarna má fá allskonar nudd; alnudd, hálfnudd, iljanudd, Sihatsu og djúpnudd, sem er aðal- lega ætlað íþróttafólki. Nuddarar stöðvarinnar hafa viðurkennda menntun í nuddi. og þolmælingar. Þá ræðir næring- arfræðingur við viðkomandi, einnig læknir og skoðun er fram- kvæmd ef hennar er talin þörf. Læknir metur einnig hvort þörf sé á viðtölum við íþróttakennara eða sjúkraþjálfara svo nokkuð sé nefnt. Pann 26. september síðastliðinn var stofnað hlutafélagið Máttur hf. Pað samanstendur af nokkrum stéttarfélögum og fyrirtækjum oghlut- verk þess var að kaupa 1.100 fermetra húsnæði í Faxafeni 14 í Reykjavík. Par var síðan sett upp forvarna- og endurhæfingarstöðin Máttur. í Mætti fer fram öflug starfsemi undir yfirumsjón lækna. Má þar nefna forvarnafræðslu, vinnu- vernd, almenna endurhæfingu og líkamsþjálfun. Máttur er þannig annað og meira en venjuleg lik- amsræktarstöð. Þannig er til dæmis miðað við að námskeið fari ekki einungis fram innan veggja stöðvarinnar heldur sé einnig farið út í fyrirtæk- in og efnt þar til námskeiða og fræðslu af ýmsu tagi. Mörg fyrirtæki taka þátt í kostn- aði starfsmanna sinna og styrkja þá til þátttöku, auk þess sem fé- lagsmenn stéttarfélaga fá afslátt og sjúkrasjóðir taka þátt í greiðslu námskeiðsgjalda fyrir félagsmenn sína. Fjöldi ólíkra nám- skeiða Grunnnámskeið er eitt þeirra námskeiða sem Máttur býður upp á. í því feist mat á heilbrigði, ráð- gjöf á lífsháttanámskeiði (sem nánar verður komið að síðar) og líkamsþjálfun. Á grunnnámskeiði er boðið upp á mat á heilbrigði sem annars veg- ar er byggt á svörum við spurning- um um heilsufar og lífshætti og hinsvegar niðurstöðum ýmissa mælinga. Má þar nefna blóðfitu- mælingar, blóðþrýstingsmælingar

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.