Pressan - 13.09.1990, Síða 21

Pressan - 13.09.1990, Síða 21
Fimmtudagur 13. sept. 1990 21 Svavar „Þarf mermtamálaráðherra sér- kennslu?" spurðu hinir þrír hug- prúðu einstaklingar sem létu hafa sig út í það að setjast á skólabekk á fullorðinsárum og taka enskupróf fyrir framan alþjóð! Þau höfðn fyrirfram fengið upp- lýsingar um hverjir ættu að mæta til leiks og fannst vera skarð fyrir skildi þar sem sjálfan höfuðpaurinn, Svavar Gestsson menntamálaráð- herra, vantaði. Þó að Svavari byðist að mæta einn í prófið tókst honum ekki að finna sér neinn tíma til próftöku fyrr en í lok september og þar kom að þolin- mæði enskukennarans þraut og hún neitaði að prófa Svavar. „Ég sé enga ástæðu til þess að vera að dekstra menntamálaráð- herra fram eftir öllum vetri til þess að koma í þetta próf,“ segir Ingveld- ur Sveinbjörnsdóttir. „Sem félagi í BHMR hef ég heldur enga löngun til þess að taka þátt í því að auglýsa vondan ráðherra í blöðunum. Hið íslenska kennarafélag hefur sömu stefnu." Og þar með féll Svavar á mætingu. „Auðvitað höfum við prófskrekk“ „Mér finnst þetta nú eiginlega ekki skemmtilegt og þið megið vel muna eftir því að ég gerði þetta fyrir ykkur," segir Svanhildur Kaaber. Hún er nánast undrandi á sjálfri sér fyrir að hafa látið hafa sig út í þetta. Þau stallsystkinin þrjú eru öll sam- mála um að þau hafi prófskrekk og þegar prófið hefst er þögnin svo þrúgandi að við heyrum andardrátt feitu fiskiflugunnar á veggnum í gömlu kennslustofunni í Kvenna- skólanum. Blaðamaður PRESSUNNAR hefur líka hnút í maganum, gömlu tilfinn- inguna frá menntaskólaárunum fyr- ir rúmum áratug. Það er 41 eitt ár síðan Davíð Sche- ving Thorsteinsson lauk mennta- skólaprófi og síðan hefur hann ekki tekið enskupróf. Þórunn Hjartardóttir er yngst þátttakenda og því stystur tími síð- an hún sat á skólabekk. „Mín reynsla er sú að prófskrekk- ur aukist með árunum frekar en hitt. Þar að auki finnst mér heilmik- ið afrek að fara í enskupróf fyrir blöðin," segir Ingveldur Svein- björnsdóttir, enskukennari og próf- dómari PRESSUNNAR. „Reyndar hef ég aldrei haldið svona próf áður, en ég hafði mjög gaman af þessum einbeittu og áhugasömu nemend- um. Davíð benti meira segja á form- galla í prófinu, þar sem málfræði hans var alveg kórrétt." Hlustun og málfræði Stöðuprófið í ensku skiptist í tvo hluta og tekur klukkutíma. Venju- legir menntaskólanemendur þurfa þar að auki að skrifa 2—3 síðna rit- gerð, en við ákváðum að sleppa nemendum PRESSUNNAR við það. Fyrrihluti prófsins byggist á hlustun en síðari hlutinn á málfræðikunn- áttu. Eldgamalt kassettutæki er notað í fyrrihluta prófsins, sem tekur 10 mínútur. Við sitjum sem límd við stólana og rýnum í texta fyrir fram- an okkur þar sem á að strika undir þau orð sem okkur heyrist sögð á segulbandinu. Að hika er sama og tapa, því segulbandið verður ekki stöðvað þó okkur misheyrist. Það er fljótlegt að rugla saman líkum ensk- um orðum og strika undir rangt orð. Það er heilmikil áreynsla að kom- ast í gegnum þessar tíu mínútur en ekki er öll sagan sögð með því. Seinnihluti prófsins, sem líka er einskonar krossapróf þar sem á að strika undir málfræðilega réttar setningar, er síst betri, jafnvel held- ur verri. Þegar mínúturnar fimmtíu eru liðnar eru forsetningar, sam- tengingar, nútíð og þátíð komnar í eina flækju í hausnum á örþreyttum blaðamanni. Hinir þátttakendurnir eru líka þeirrar skoðunar að prófið hafi verið þungt, en niðurstöðurnar sýndu þó að þeir létu ekki rugla sig. Hótel Flúðir FUNDA' OG RÁÐSTEFNUSALIR. Sérbyggð gistiaðstaða í tengslum við Skjólborg, opið allt árið. Hverju herbergi fylgir sér bað og útisetlaug. Verið velkomin Hótel Flúðir Hrunamannahreppi (20 mín. keyrsla frá Selfossi) sími: 98-66630 KYNNIST NÝRRI AÐSTÖÐU í pye|#y| umi FROSTASKJÓLI 6 í BOÐI ER Fullkominn tækjasalur 250 fm Þolfimisalur á dýnu 120 fm Ljós Gufubað OPIÐ: MÁN.-FIM. FÖSTUD. LAUGARD. SUNNUD. '■» w» 8.00- 8.00- 10.00 14.00 -22.00 -20.00 -17.00 -17.00 'A t K /H'W A ^’ÉÍ áS & KARATEFÉLAG VESTURBÆJAR Byrjenda- og framhaldsnámskeið hefjast 18. september. Kennari verður Tor Egil Berndal, handhafi svartabeltis. INNRITUN ER HAFIN Upplýsingar í síma 12815 og 12355. R Æ K T I Frostaskjóli 6 - vestan við KR-heimiliö - sími 12815

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.